Lögrétta - 21.09.1927, Síða 1
LOGRJETTA
XXn. ár.
_________________
Reykjavík, miðvikudaginn 21. september 1927.
48. blað.
Um vlða veröld.
Albert Einstein
um uppeldismál.
Albert Einstein hefur á síðustu
árum orðið einhver kunnasti og
mest dáði vísindamaður sem nú
er uppi. Þessu veldur fyrst og
fremst afstæðiskenning hans og
rannsóknir þær, sem fram hafa
farið í sambandi við hana, þótt
deilt hafi að vísu verið um þau
efni og ýmsum virðist svo, sem
of mikið hafi verið gert úr gildi
Einsteinskenningar, eða jafnvel
að nýjustu rannsóknir sjeu að
veikja þær. Hefur Lögrj. áður
sagt frá amerískum tilraunum í
þá átt, en ekki er það annara en
sjerfræðinga, að setja sig inn í
einstök atriði þeirra mála. En
Einstein hefur látið fleiri mál til
sín taka en stærðfræði og eðlis-
fræði. Hann hefur í viðræðum
við rithöfund einn, sem Mos7,-
kowski heitir, vikið að ýmsum
úrlausnarefnum í menningu nú-
tímans, bæði í sinni fræðigrein og
öðrum. Fólki til fróðleiks verður
sagt hjer ofurlítið frá skoðunum
hans á uppeldis- og fræðslumál-
um. Hann hefur mjög mikinn á-
huga á uppeldismálum og nokk-
uð beiska reynslu frá skólaárum
sjálfs sín. Hann hefur ótrú á
latínuskólum í hinu gamla formi,
en telur samt ekki tiltækilegt að
breyta skólaskipuninni alt í einu.
Yfirleitt virðist honum vera
lögð of mikil áhersla á gildi
málanáms, einkum fommálanáms,
enda beri það nám ekki tilætlaðan
árangur. Það sje eitt meginatriði
allra skóla, að nota tímann rjett
og að kenna rjetta tímanotkun.
Skólamir leggi of ríka áherslu á
óþarfa, leiðinlega og agaríka
kenslu. Einkum sjeu prófin til
spillis og lestur sá, sem miðaður
sje við prófin fyrst og fremst.
Prófin ættu að falla niður að
mestu leyti. Mannkynssögu telur
hann að miklu leyti óþarfa náms-
grein, eins og henni sje nú fyrir-
komið, hún sje að mestu þurr og
eyðileg eins og markaskrá. Meira
ætti að kenna en gert er um
uppfyndingamenn og hugsjóna-
menn, sem borið hafa uppi menn-
inguna, eins og Archimedes og
Appolonius, en minna um þess-
háttar menn eins og Cyrus og
Vercingetorix. Ekki vill hann
samt leggja mikla áherslu á al-
menna kenslu í þjóðfjelagsfræði
og lögfræði, þótt sjálfur hafi
hann allmikinn áhuga á þjóðfje-
lagsmálum. Hann segir að sjer
sje lítið gefið um pólitískt skóla-
uppeldi. Kenslan í stærðfræðum
og náttúrufræðum segir hann að
sje að jafnaði ill í skólum nútím-
ans og öfug, því hún leggi of
litla áherslu á það hagnýta, að-
laðandi, það sem auðskilið sje og
auðsjeð og verði bygt upp þann-
ig að á því verði þreifað. í þess
stað sjeu bömin troðin út með
allskonar skýrgreiningum og
reglum, þurrum bóklærdómi, sem
þau finni ekki að neinn veruleiki
standi að baki. Eðlisfræði segir
hann að ekki eigi í upphafi að
kenna með neinu öðru en tilraun-
um.
Eitt er það þó enn, sem Ein-
stein leggur einna mesta áherslu
á í uppeldismálaskoðun sinni. Og
það er það, að hverjum manni
yrði kent eitthvert handverk. Á
það segist hann leggja ríka á-
herslu, bæði vegna gildis hand-
verksins í sjálfu sjer og vegna
þess, að slíkt brýni fyrir öllum
stjettum jöfnuð og skyldleika
þeirra og samábyrgð í þjóðlífinu.
Loks má geta þess, að hann seg-
ist hafa mikla trú á gildi kvik-
mynda til kenslu. Hann segir að
landafræðiskensla sje nú að
mestu leyti orð innantóm, en
mundi verða öll önnur og meira
lifandi með kvikmyndasýningum.
Það mundi einnig hafa mikið
gildi að geta sýnt dýralíf og
jurtalíf eða ýmsar greinir úr
menningarlífi manna, hvernig
ýmsar verksmiðjur starfa, hvem-
ig ýmsir algengir en merkilegir
og flóknir hlutir verði til, vagnar
vjelar, blöð og bækur.
Þannig eru meginskoðanir hins
víðfræga vísindamanns á uppeldi
og kenslu í hinum svonefndu ó-
æðri skólum. Þær eru eftirtektar-
verðar margar og merkilegar,
þótt ekki sje tiltakanlegt nýja-
bragð að þeim öllum og margir
fleiri hafi, eins og að líkindum
lætur, sett fram samskonar skoð-
anir, bæði hjer og annarsstaðar.
En sjálfsagt verður mörgum
hugarhægra, sem vantrúaðir hafa
verið á ýmislegt af þessu og
farið um það háðulegum orðum
þegar það hefur komið fram hjá
smærri spámönnunum, þegar
þeir sjá að einn af stóru spá-
mönnunum er á sömu skoðun og
skammast sín ekki fyrir. Og nú
undir haustið þegar „skóla- og
uppeldisstarfið“ er aftur að byrja
eftir hvíld sumarsins, er ekki
nema gott að menn kynnist því
ofurlítið hvemig „frægur maður“
hjá „stórþjóðunum“ lítur á starf-
ið, sem fyrir höndum er og
starfsaðferðirnar.
Ýmislegt.
Iögrj. hefur áður skýrt allítar-
lega frá ensku ráðagerðunum um
úrlausn byggingamálsins og hús-
næðisvandræðanna þar í landi.
Nýlega hefur Neville Chamber-
lain, bróðir utanríkisráðherrans,
sem mál þessi heyrðu undir í
stjórninni, sagt að síðustu þrjú
ár hafi verið reist í Bretlandi
500 þúsund ný hús af ríkinu eða
með þess styrk og sveitarfjelag-
anna. Það er ætlun hinna bjart-
sýnustu manna, að með þessu
áframhaldi megi koma í sæmilegt
lag húsavandræðum allra stjetta,
jafnvel hinna allra vesælustu og
þar með stíga stórt spor til bóta
lægstu og að ýmsu leyti spilt-
ustu stjettum þjóðfjelagsins á
skömmum tíma. Ráðagerðirnar
hafa þó mætt andstöðu.
Það er Englendingum áhyggju-
efni, að fæðingum fer fækkandi í
landinu og eru nú orðnar hlut-
fallslega færri en í Frakklandi.
Manndauði er einnig hlutfallslega
nokkuð mikill, og fer krabbamein
einkum vaxandi, sem banamein.
Enska skáldið John Masefield,
hefur nýlega gefið út kvæða-
flokk um Tristram og Isodd, en
um sama efni eru til m. a. á ís-
lensku bæði sögur, rímur og
kvæði.
Sir Gerhard Strickland heitir
enskur íhaldsþingmaður, sem ný-
lega varð forsætisráðherra á
Malta. Það hefur vakið allmikla
athygli og umtal að hann hefur
lýst því yfir, að hann láti ekki af
þingmensku í Englandi þótt hann
sje stjómarformaður á Malta og
þykir mörgum það ósæmilegt, að
ætla að hafa stjómarformensku
þannig í hjáverkum í öðru landi.
í Lahore í Indlandi hafa ný-
lega staðið málaferli, sem veitt
hefur verið talsverð athygli. Var
mál höfðað gegn blaði einu fyrir
niðrandi ummæli um Múhameð
spámann og var greinarhöfundur
dæmdur í 2ja ára fangelsi og 200
rúpía sekt. Ákærandinn, Múham-
ed Shafi, hjelt því fram, að allar
árásir og öll gagnrýni á trúar-
bragðahöfundum eða leiðtogum
væri saknæm. En dómarinn taldi
að vísu að svo væri ekki, um-
ræður um þá og árásir væru
heimilar innan skynsamlegra tak-
marka, en heimskulegar árásir,
eins og hjer hefði verið um að
ræða á slíkan mann, sem höf-
und Islams, væru vítaverðar.
í rússneska kommúnista flokkn-
um eru viðsjár öðru hvoru. Á
flokksfundi eða fulltrúafundi,
sem nýlega var haldinn, fengu
þeir áminningu Trotsky, Sinov-
jeff, Kameneff og Rakovski o.
fl. og skrifuðu jafnframt undir
yfirlýsingu á þá leið, að þeir væru
á móti því, að nokkuð það yrði
aðhafst, sem orðið gæti til þess
að kljúfa flokkinn. —
í Landinu helga er nú verið að
koma upp rafmagns stöðvum við
Jórdan til þess að lýsa upp all-
mikinn hluta landsins.
ítalski hlutinn af Mont Blanc
kvað nýlega hafa verið skírður
upp (af Signor Turati) og heitir
nú Monte Mussolini. —
Rivera hefur nýlega lýst því
yfir á ríkisráðsfundi í Santander
að ekki þurfi að búast við þingi
og þingræði á Spáni fyrst um
sinn, þjóðin kæri sig ekkert um
slíkt. Annars var talið að nokkur
skriður væri að komast á það, að
kallað yrði saman þjóðþing. —
I Póllandi er nýlega horfinn
Zagorski, einn aðalandstæðingur
Pilsudskis, stjórnanda landsins.
Leiða menn ýmsar getur að
hvarfi hans, að hann hafi verið
fenginn til að hverfa eða verið
komið fyrir kattamef.
í Frakklandi er gengismáhð sí-
felt nokkuð rætt og misjafnar
skoðanir á því. Poincaré hefur ný-
lega lýst því yfir, að hann vilji
ekki stöðva gengið með lögum
fyrst um sinn, eða fyrir kosning-
ar, sem i hönd fara. Veldur þessu
einkum erfið flokkaafstaða nú
og hætta á því að stjómin geti
ef til vill fallið ef til skar-
ar yrði látið skríða um geng-
ismálið. Ýmsir fjármálamenn,
eins og Lazard bræðumir og
Finalay og ýmsir iðjuhöldar vilja
þó stýfingu. Farið er að gera ráð
fyrir nýrri stjóm eftir næstu
kosningar, helst með Briand sem
forsætisráðherra, en hann er að
vísu við slæma heilsu, og búist við
samvinnu Tardieu og Caillaux í
þeirri stjóm. óvíst er það samt
alt.
Síðustu fregnir.
Millerand hefur undanfarið
krafist þess, að Frakkar slitu
stjómmálasambandi við Rússa og
ýmsir stutt kröfu hans, en stjóm-
in hefur neitað að verða við henni
fyrst um sinn. Á þjóðabandalags-
fundinum í Genf gengur enn í
þófi um afvopnunarmálin. Bon-
cour Frakkafulltrúi stingur upp á.
því að reynt verði að koma á alls-
herj argerðardómum og öryggis-
samningum, án þátttöku Breta. í
Japan fómst nýlega 3 þúsund
manns af völdum flóðbylgju og
hvirfilvinda. Dáin er nýlega af
bifreiðarslysi heimsfræg dans-
kona og rithöfundur, Isidora
Duncan. Nýlega var ákveðið að
Finnland, Kanada, og Kuba
skyldu eiga fulltrúa í ráði þjóða-
bandalagsins í stað Belgíu,
Tjekkoslovakíu og San Salvador,
en þeirra kjörtímabil var útmnn-
tð. Belgía baðst þess að verða
endurkosin, en var synjað þess.
----o-----
Tvö blöð koma af Lögrj. í dag.