Lögrétta - 06.06.1928, Blaðsíða 3
4
LÖGRJBTTA
Æfisaga Krists
Eftir Giovanni Papini.
(Ágrip).
------ Frh.
Myrkrið. Andardráttur Jesú
varð þyngri og þyngri, brjóstið
dróst sundur og saman eins og í
krampateygjum, til þess að ná
lofti, höfuðið riðaði, hjartað sló
ótt og ákaft, svo að líkaminn
skalf. Alla, sem krossfestir eru,
kvelur brennandi þorsti, blóðið
verður eins og eldur í æðunum.
Krossfestingin er grimmilegust
og kvalafylst allra dauðdaga. Ef
hinn krossfesti fjekk krampa,
þá deyfði það meðvitundina og
flýtti fyrir dauðanum. En til voru
þeir menn, sem með sívaxandi
kvölum hjeldu lífi fram á næsta
dag og jafnvel enn lengur. En
flestir voru þó dánir innan 12
klukkustunda.
Blóðið frá sárum Jesú á hönd-
um og fótum storknaði kringum
naglahöfuðin, en við hvert
hjartaslag rann nýtt blóð fram,
seig hægt niður eftir krossinum
og fjell í dropum til jarðar. Háls-
vöðvamir mistu mátt og höfuðið
hnje til annarar hliðar, augun
voru hálfbrostin og varimar blá-
ar og þrútnar. Þannig dó hann,
sem hafði læknað sjúka, lífgað
dána, útrekið illa anda frá óðum
mönnum, grátið með grátendum
og snúið ranglátum mönnum á
rjetta leið, hann, sem í háleitum
skáldsýnum og með kraftaverk-
um hafði birt mönnum hinn
æðsta kærleika. Hann hafði lækn-
að sár, en nú var hann mörgum
sárum særður; hann hafði fyrir-
gefið og elskað, en leið nú sak-
laus hegningu og var hataður í
dauðanum. En alt þetta hlaut
svo að vera, til þess að mennim-
ir fyndu aftur leiðina til hinnar
jarðnesku Paradísar, til þess að
þeir leystust frá hinu dýrslega
ásigkomulagi og þeim yrði lyft
upp til heilagleikans hæða, lyft
upp frá svefni hins jarðbundna
lífs, svo að þeir mættu eygja
dýrð hins himneska ríkis. Hugs-
un okkar verður að lúta þessum
óskiljanlegu leyndardómum og
við megum ekki gleyma, hverju
verði okkar mikla skuld var borg-
uð. 1 þau nítján hundruð ár, sem
liðin eru frá þessum atburðum,
mun hver sú manneskja, sem hef-
ur endurfæðst í Kristi, hafa grát-
ið yfir þeim að minsta kosti einu
sinni á æfinni. En alt það tára-
haf bætir ekki fyrir einn einasta
blóðdropa, sem fjell til jarðar frá
krossi Krists á Golgata.
Þegar píningarsaga Krists var
lesin fyrir Hlöðvi Frakkakonungi
(ca. 500 e. Kr.) komst hann svo
við, að hann grjet fyrst; en að
lokum varð hann æfur, greip til
sverðs síns og æpti: „Jeg vildi
óska, að jeg hefði verið þar með
Frakka mína!“ Þetta em að vísu
bamaleg orð, en sóma sjer vel í
munni herkonungs og ribbalda,
þótt þau sýni, að hann hafi ekki
orðið snortinn af því, sem Jesús
sagði við Pjetur í Getsemane. í
allri sinni mannlegu einfeldni eru
þetta fögur orð. Það er ekki nóg
að gráta, menn verða líka að
stríða, berjast gegn öllu innra
fyrir, sem skilur þá frá Kristi,
j og berjast út á við gegn öllum ó-
; vinum hans. Miljónir manna hafa
j grátið við lestur píningarsögunn-
j ar, en föstudaginn langa, er Jes-
ús hjekk á krossinum, hlógu allir,
að undanskildum nokkrum kon-
um. Og þeir, sem þá hlógu, em
ekki allir úr sögunni enn; þeir
eiga afkomendur á lífi, og margir
af þeim eru skírðir, en þeir hlæja
enn þann dag i dag. En ef allur
: gráturinn getur ekki þvegið burtu
einn blóðdropa, hvað getur þá
bætt fyrir hinn hræðilega hlátur'
Lítið enn einu sinni í huganum
yfir hópinn, sem stendur hlæjandi
: í kring um kross Jesú. Lítið með
athygli á hvem einstakan, og þið
; þekkið þá alla, því þeir eru enn
! eins og þeir þá vom. Eftirmynd-
j ir gömlu Gyðingaprestanna,
! skriftlærðu mannanna, peninga-
j mannanna, lögfræðinganna og alls
; þjónamúgsins em enn til. Og þeir
em enn, eins og áður, óvinir
Krists. — En það var eins og
náttúran sjálf vildi hylja þessa
j hræðilegu mynd. Himininn hafði
j verið heiður og blár allan fyrri
j hluta dagsins, en myrkvaðist alt
í einu. Það var eins og svört þoka
i stigi upp frá fenjum helvítis og
breiddist yfir allan sjóndeildar-
hringinn, svo að „myrkur varð
yfir öllu landinu alt til níundu
i stundar".
Hjónaband. Síðastl. sunnudag
j giftust á Auðkúlu í Húnavatns-
j sýslu sjera Gunnar Árnason (frá
j Skútustöðum) og frk. Sigríður
Stefánsdóttir fyrrum prests á
Auðkúlu.
Vilhj. Þ. Gíslason meistari og
frú hans fóru í ferðalag til Norð-
urlands 30. f. m., landveg frá
Borgarnesi; ráðgerðu að koma
aftur 19. þ. m.
Meðal aðkomumanna hjer í
bænum em nú þeir sjera Helgi
j Hjálmarsson á Grenjaðarstað og
I Sigurjón Friðjónsson skáld og
j fyrv. alþm.
Aflabrögð em nú sögð í besta
lagi á vjelbáta bæði á Vestfjörð-
j um og fyrir norðan land.
Landhejgisbrot. óðinn hefur nú
j með stuttu millibili tekið 8 togara
1 landhelgi, alla útlenda. Vora 5
dæmdir í Vestmannaeyjum, en 3
j kom hann með hingað.
} Flugið. Síðastl. viku hefur
þýska flugvjelin verið í reynslu-
! ferðum, fyrstu dagana hjer yfir
j bænum og nágrenninu, og hefur
tvisvar farið til Þingvalla, en 4.
j þ. m. flaug hún norður um land,
til Isafjarðar, Siglufjarðar og
j Akureyrar. Hún fór hjeðan kl.
91/2 um morguninn og kom til ísa-
fjarðar laust fyrir hádegi. Kl. 4
fór hún frá ísafirði og kom til
Siglufjarðar kl. 5,45. Þaðan fór
hún eftir kl.tíma viðstöðu og
flaug á tæpum hálftíma til Akur-
j eyrar. Með henni vom þýsku flug-
mennimir þrír og dr. Alexander
Jóhannesson. Fyrir vestan og
norðan var henni tekið með mikl-
j um fögnuði, og er þetta í fyrsta
sinn, sem flogið er norður um
Númer 33 34
Plötustærð cm Hæð bökunarofns — Breidd do • . — Dýpt do — Verð kr. 70 X 421/2 lf> 26 35 110,00 751/2 + 48 17 31 38 120,00
Helgi Magnússon & Co.
Til athugunar
Þá, sem gera ætla húsabætur í vor, eða leggja vatnsleiðslur,
viljum við mixma á það, að við höfum ávalt miklar birgðir af
margskonar byggingarefni, t. d. þakjámi, þakpappa, linoleum,
flókapappa, nöglum allskonar, ofnum, miðstöðvartækjum, eldavjel-
j um, baðkemm, þvottaskálum, þvottapottum, eldhúsvöskum, vegg-
tiglum, gólftiglum, pípum allskonar, dælum, krönum, o. fl., o. fl.
i
Prentaða verðskrá (með myndum) yfir ofna og eldavjelar
sendum við hverjum sem þess óskar. Sömuleiðis verðskrá yfir alls-
konar pípur og tengihluta.
Reynslan hefur löngu sannfært viðskiftamenn okkar um það,
að þeir gera ekki annarstaðar hagkvæmari kaup en hjá okkur.
Hafnarstræti 19, Reykjavík, 23. april 1928.
'
Helgi Magnússon <& Co.
Vikuútgáfa
Alþýðublaðsins
flytur mjög ítarlegar greinir mu J
íslensk stjórnmál og menningar-
j mál. Hún flytur einnig greinir um
j sjórnmálaástand erlendra þjóða og
I auk þess allskonar frjettir og fróð-
I leik.
| Húr! kostar aðeins 5,00 kr. á ári.
Ritstjóri er Haraldur Guðmunds-
I son, alþingismaður. Utanáskrift er:
Alþýðublaðið Hverfisgötu 8
Reykjavík
i ---------------------------
I land . Þoka var þennan dag, og
í flaug vjelin alla leið með strönd-
j um fram, nema þvert yfir mynni
Húnaflóa. í gærkvöld kl. 63/4
! lagði hún á stað aftur frá Akur-
eyri, og vita menn ekki enn um
1 ferð hennar suður annað en það,
að hún rendi sjer niður útundan
í ökrum á Mýrum einhvemtíma í
j gærkvöld vegna bilunar á vjelinni,
! og á að dragast af vjelbáti suður
hingað. Þykir öllum leitt, að svona
skyldi til takast, ef það yrði til
þess að fresta að verulegum mun
frekari framkvæmdum á flugferð-
| um hjer. .
Prentsmiðjan Ácta.
Móðir!
Gakktu úr skugga um að þú
fáir þér Pepsodent á tenn=
ur barns þíns og tannhold.
CR þér ant um að barn þitt fái fallegri
tennur nú og betri vörn við tannkvillum
síðar á æflnni? Reyndu þá Pepsodent.
Gáðu að, hvað helztu tannlæknar hvetja
mæður til að nota.
Þú finnur húð á tönnum barns þíns. Þá
voflr hættan tíðast yfir. Sömu þrálátu húð-
ina og þú verður vör við, ef þú rennir
tungunni um tennurnar í þér sjálfri. Við
hana áttu að berjast. Húðin er versti óvinur
heilbrigðra tanna. Hún loðir við tennurnar,
smýgur í sprungur og festist. Gömlum að-
íerðum tókst ekki að vinna á henni.
Nú hefur Pepsodent tvö ný efni að
geyma, sem eyða henni. Helztu tannlæknar
fallast á þetta. Það heldur tönnunum hvít-
ari. Það er vísindaráð nútímans til betri
varðveizlu tannanna. Reyndu það. Sendu
rniðann og þú færð ókeypis sýnishorn til
10 daga.
, _ 2410A
Ó.K« PáSSSÚ*Kt
A. H. RIISE, Bredgade 25 E
Kaupmannahöfn K
Sendið Pepsodent-sýnishorn til 10 daga til
Nafn......
Heimili..........................
Aðeins ein túpa handa
IC.40.