Lögrétta - 09.01.1929, Side 1
LQGRJETTA
[V. ár. j Reykjavík, miðvikudaginn 9. janúar 1929. | 1.
Um víða veröld.
Mussolini og fascisminn.
Mussolini segir æfisögu sína.
Mussolini hefur nýlega látið
gefa út æfisögu sína, sem hann
hefur sjálfur skrifað. Hún hefur
þegar verið þýdd á ýms mál, en
verið misjafnlega tekið. Sumir
telja bókina merka sálarlýsingu
og skýra og lifandi mynd af ein-
hverjum harðvítugasta athafna-
manni nútímans og af störfum
hans (t. d. ýms ensku íhalds-
blöðin). Aðrir telja bókina fremur
fánýtt skrumrit og óáreiðanlegt
(t. d. Manchester Guardian).
Sjálfsagt verður bókin merkilegt
heimildarrit, en ekki einlægt
Mussolini til lofs.
Talsverður sjálfbyrgingsskapur
og þótti lýsir sjer í ýmsum um-
mælum hans um sjálfan sig, enda
hefur það komið fram við ýms
tækifæri önnur í stjórnarferli
hans, að maðurinn er talsverður
orðhákur. Þetta hefur oft sett á
stjómarstefnu hans, einkum í
utanríkismálum, nokkuð gustmik-
inn og galgopalegan blæ og gefið
rangar hugmyndir um það, sem
á bak við lá. Því athafnimar hafa
stundum verið skynsamlegri og
markvissari en orðin. Utanrlkis-
stefna Mussolini hefur að ýmsu
leyti orðið til þess að styðja
fascismann inn á við, þótt ýms af-
skifti hans t. d. af annarlegum
þjóðernum (sbr. Tyrol-málin) eigi
~fáa formælendur.
Mussolini segist í æfisögu sinni
aldrei hafa orðið fyrir minstu
áhrifum af öðrum mönnum. Hann
segist að vísu hlusta með mikilli
athygli á orð vina sinna og jafn-
vel á ráðleggingar þeirra, en þeg-
ar hann taki mikilsverðar ákvarð-
anir segist hann eingöngu fara
eftir sínum eigin vilja og sam-
vitsku. Hann segist heldur ekki
trúa á áhrif bóka eða á fyrir-
myndir úr æfisögum merkra
manna. „Sjálfur hef jeg aðeins
notað eina stóra bók. Sjálfur hef
jeg aðeins haft einn mikinn kenn-
ara. Bókin er lífið. Kennarinn er
dagleg reynsla“. Hann segir enn-
fremur, að það hafi vissulega ekki
verið töfrar persónulegs valds,
sem knúið hafi sig áfram, heldur
hafi hann einungis barist fyrir
heill og hagsæld þjóðar sinnar.
Hann segist ekki njóta mikils
næðis eða draumlífs. Það sem er
skáldlegt í lífi mínu er skáldskap-
ur skapandi skipulags. Æfintýr
lífs míns er æfintýri fyrirætlana,
st'jórnmálaákvarðana og framtíð-
ar ríkisins. Jeg þjóna ítölsku
þjóðinni með hverri taug hjarta
míns. Jeg er þjónn hennar. Jeg
finn það, að allir ítalir skilja
inig og elska mig. Jeg veit það,
að sá einn er elskaður, sem er j
hiklaus og hispurslaus leiðtogi,
óeigingjam og í öniggri trú.
Þessi eru orð Mussilinis sjálfs J
og hann segist hafa notið fylgis
„hinnar heiðarlegu, góðu, hreinu
og einlægu sálar hinnar ítölsku
þjóðar“. En eins og kunnugt er,
bregður mjög til beggja skauta
um skoðanirnar á Mussolini og
stefnu hans, fascismanum, hjá
öðrum. Út í frá eru það ekki
síst ítalskir flóttamenn, sem orð-
Mussolini.
ið hafa fyrir barðinu á fascism-
anum, sem haft hafa áhrif á al-
menningsálitið í Evrópu, honum
til tjóns. En sjálfur segir Musso-
lini í æfisögu sinni, að hann láti
sig það ekki miklu skifta, þótt
hann sje misskilinn, „því þegar
öllu er á botninn hvolft, þá hef
jeg of mikið að gera til þess að
hlusta á baktjaldamælgi lygara“.
En ýmsir þeir, sem ekki hafa
neinna ítalskra flokks- eða eigin-
hagsmuna að gæta, en hafa rann-
sakað fascismann, hafa einnig
borið honum illa söguna. En mjög
eru frásagnirnar frá Ítalíu sund-
urleitar, ekki síður en frá Rúss-
landi, og sýnist sitt hverjum.
Lögrj. hefur oft sagt frá mönn-
um og málefnum suður þar, m.
a. ýmsum, sem gagnrýnt hafa á-
standið þar allsterklega. Nýlega
hafa birtst greinar um þessi mál
(í Politiken) eftir dr. phil. Emil
Rasmussen, sem er vel kunnugur
Italíu fyrir og eftir fascistabylt-
inguna og ber hann að ýmsu leyti
vel söguna fascismanum og áhrif-
um hans.
Til þess að geta dæmt rjettilega
um fascismann þurfa menn að
kunna skil á ástandinu eins og
það var áður en bylting hans
kom til sögunnar. Það er ekki
Mussolini, sem byrjað hefur á því
að styðja einræði sitt eingöngu
við einn flokk eða klíku, segir dr.
E. R. Slíkt hefur ávalt átt sjer
stað síðan ítalska ríkið var stofn-
að. Hinar svonefndu þingræðis-
stjórnir, sem áður sátu að völdum
urðu undantekningarlaust að
I styðjast við einn ákveðinn flokk
og mjög áhrifamikinn, sem sje
frímúrarafjelagið. Frímúraramir
voru svo að segja almáttugir í
ítölskum stjómmálum og höfðu
þingið og ráðuneytin í hendi sjer.
Þess vegna hefur ráðríki fascist-
anna ekki síst komið hart niður á
frímúrarafjelagsskapnum, sem er
bannaður, og á þipginu, sem í
raun og veru er upphafið og á-
hrifalaust orðið, þótt því sje
haldið að nafninu til, enda mun
konungurinn neita afnámi þess.
Afstaðan til frímúraranna hefur
einnig orðið til þess, að sameina
nokkuð fascistana og kaþólsku
kirkjuna, því frímúrarar voru
kirkjufjendur og töldu það jafn-
vel stefnu sína, að „útrýma Róm-
kirkjunni“. En kirkjan ljet einnig
hart mæta hörðu og predikaði
strengilega gegn frímúrurunum.
En þeir vom svo voldugir, að
þeir gátu boðið henni byrginn.
Þegar fascisminn þóttist þurfa á
stuðningi kirkjunnar að halda og
leitaði hans, varð hann hennar
vegna, þótt hann hefði ekki vilj-
að það annars vegna, að fóma
frímúrurunum og gerði það.
Kirkjan hefur unnið á í Ítalíu að
ýmsu leyti við þetta og fascism-
inn sýnir henni virðingu sína við
allskonar tækifæri. Áhrif kirkj-
unnar hafa einnig orðið fascism-
anum hjálpleg í ýmislegri við-
leitni hans til þess að koma á
röð og reglu og bættu siðferði,
eða kirkjan hefur beitt fascism-
anum fyrir sig í þeim efnum. T.
d. hefur verið rótað hressilega
upp í glæpa- og ólifnaðarveröld
ítölsku stórborganna. Þeir, sem
kunnugir voru í Neapel fyrir 20
til 30 árum, þekkja hana ekki
aftur sem sömu borg. Áður fyr
stóðu þar vændiskonur á öðru
hvoru götuhomi og buðu börn til
óskírlífis. Nú er slíkt horfið.
Úr Róm voru fluttar skækjur í
heilum jámbrautarlestum þegar
fascistar og kirkjan fengu völdin.
Þessi barátta gegn lauslætinu
varð jafnvel til þess að launalág-
ir embættis- og starfsmenn mót-
mæltu burtflutningi vændis-
i kvennaima. Þeir sögðu að laun
sín væm svo lág, að þeir hefðu
ekki efni á því, að eiga heimili og
konu alla vikuna og yrðu að láta
sjer nægja það, að vera giftir
einu sinni í viku. En þótt fascist-
ar og Vatikanið hafi getað tekið
höndum saman um ýms mál, þá
er sambandið lítið nema á yfir-
borðinu og ber ýmislegt á milli.
Einkum getur fascisminn ekki
fallist á allar skólamálakröfur
kirkjunnar, en kirkjunni er lítið
gefið um sumt athæfi fascism-
ans, t. d. dýrkunina á d’ Ann-
unzio. En hann er einskonar
þjóðardýrðlingur fascista, en í ó-
sátt við kirkjuna. Fascistar vilja
gjama nota færið til þess að fá
enda bundinn á hið gamla deilu-
mál, hina svonefndu rómversku
deilu, milli páfastólsins og ítalska
ríkisins. En leiðtogar Vatikans-
ins eru ófúsir til þessa, og ráða
mestu um það erlendu kardinál-
amir. Annars hefur samvinna
fascismans og kirkjunnar ekki
orðið til sjerlega mikillar trúar-
vakningar hjá þjóðinni, nema
helst á Suður-Italíu, en þar hefur
einlægt verið trúhneigðara fólk
en í norðurlandinu. Á Suður-
Italíu er kirkjusókn mikil og
fjárframlög rífleg til guðsþakka.
En þeim fer fækkandi, sem ganga
til skrifta og fólk lætur nú miklu
hispurslausar en áður í ljós ó-
kirkjulegar skoðanir. Tilfinnan-
legur hörgull er einnig á prestum
og prestaefnum víða. I bæ einum
þar sem áður voru 27 prestar
voru nú nýlega aðeins 9 prestar
og enginn guðfræðanemi.
Samvinna fascismans og kar
þólsku kirkjunnar hefur þannig
að mörgu leyti orðið fascisman-
um til styrktar. En honum varð
einnig til styrktar það ástand,
sem var í stjómmálalífi þjóðar-
inar þegar hann fór að láta til
sín taka, glundroðinn, úrræða-
leysið og óheiðarleikinn. Italska
þingræðið eða sú skrípamynd
þingræðisins,-sem þjóðin bjó við,
var orðið gjaldþrota. Fascisminn
hefur rótað upp í ýmsu gömlu
ólagi og óheiðarleik og lagað á-
standið, en hann hefur líka
stjómað með harðri hendi kúg-
unar og einræðis. En menn skulu
\einnig minnast þess, þegar þeir
dæma einræði fascismans, að það
er ekki fascisminn sem hefur
skapað einræðið og kúgunina, það
var til áður, en fascisminn hefur
hagnýtt sjer það. Prefektamir
gömlu, (einskonar stiftamtmenn)
vora hreint og beint kosninga-
smalar stjórnarinnar og beittu
kosningakúgun í stórum stíl, svo
að hinn frjálsi kosningarjettur
var skrípaleikur einn, því með
prettum og kúgun trygði stjómin
sjer ávalt meirihluta. Þegar á
þingið kom gátu samt áhrifamikl-
ar klíkur að tjaldabaki ráðið lög-
um og lofum þvert ofan í þing-
viljann. Stjórnmálaspillingin var
orðin afskapleg, landeyður og
misindismenn óðu uppi og gátu
jafnvel orðið ráðherrar, ef þeir
vom í nógu góðri klíku. Það var
því ekki að undra þótt slíkt þing-
ræði fjelli um sjálft sig og væri
ekki harmað. Verra en það áður
var gat ástandið varla orðið í
höndum fascistanna.
Síðast en ekki síst er eins að
geta, sem mjög varð til þess að
ýta undir fascismann. En það var t
undirróður kommunista í Italíu.
Það vai’ skynsamlegt af bolsevík-
um að beina byltingartilraunum
sínum til Italíu. Jarðvegurinn var