Lögrétta - 27.11.1929, Side 3
4
LÖGRJETTA
tíðirnar látnar nægja, miklu oftar
en í íslensku. Eins er líka hægt
að mynda nafnorð af lýsingar-
hættinum með því að setja enda-
staf nafnorða í staðinn fyrir enda-
staf lýsingarorða: amanto =
maður sem elskar, aminto = mað-
ur sem hefur elskað, amonto =
maður sem mun elska. í novial er
aðeins hægt að mynda nafnorð
með nútíðarmerking. Sama er að
segja um atviksorðin. „Jeg kem
gangandi“ er í novial „me veni
irantim“, og á esperanto „mi ven-
as irante“.
4. „Orðmyndunarreglumar gera
málið liprara og eðlilegra en stirf-
in rökfestan í ido og reglulegra en
occidental er“. O. J. nefnir hjer
ekki 'esperanto, en þar sem hann
telur það standa ido að baki er
dómur hans auðsær. Má og lengi
um það deila, hvort eitt mál sje
öðru liprara. Hitt ættu allir þeir
að vita, sem eitthvað hafa lesið
og skrifað á esperanto, að þar er
unt að sýna svo mikla lipurð og i
hárfín blæbrigði, að afarörðugt er
að ná þeim í þýðingu. Sumum
esperanto-þýðingum er líka við-
brugðið. Þannig segir ekki ómerk-
ari málfræðingur en Collinson
prófessor, að þýðing dr. Zamen-
hofs á Hamlet muni vera sú besta,
sem til er. Hinu ber síst að neita,
að novial mun líka vera lipurt mál
þótt ekki sje gott að fullyrða um
það eftir lestur aðeins fárra síðna.
En það brýtur eina mikilvægustu
regluna, sem verður að gilda í
hverju tilbúnu hjálparmáli: Það
er ekki reglulegt. Alstaðar eru j
undantekningar.
5. „Ekkert beygingar- eða orð-
myndunarefni er tekið af handa-
hófi“. O. J. ásakar esperanto mjög
fyrir þetta handahófsval ýmissa
orðmynda, en um slíkt má lengi
deila. Jespersen virðist miða mál
sitt mest við vísindamenn.. AI-
þýðumennina, sem lítinn tíma
hafa til tungumálanáms, hirðir
hann minna um. En einmitt þeim
er hvað mest þörfin á hjálpar-
máli, auðveldu og lipru, en til þess
þarf það að vera reglulegt og
sjálfu sjer samkvæmt. Öllumþess-
um kröfum fullnægir esperanto,
en novial ekki nema sumum.
Þó er eftir ónefndur einn af
kostum esperanto, og það sá, sem
ef til vill hefur hvað mest stuðl-
að að útbreiðslu þess. Og hann er
alls ekki til í novial. O. J,. segir
sjálfur: „En jafnframt er það
sýnilegt, að slíkt hjálparmál get-
ur aldrei orðið nokkurum manni
mál hjartans á sama hátt og móð-
urmálið er það, ... það getur
aldrei losnað við að hafa eitthvað :
óskáldlegt og jarðbundið yfir ;
sjer“.
Það má vel vera að þetta sje
rjett um novial. En það er rangt
að því er esperanto viðvíkur. Það
mál er upphaflega borið fram af
brennandi hjarta eins hins mesta
mannvinar, til þess að hjálpa \
smælingjunum, olnbogabömunum, j
og gera jarðlífið betra og fegurra. j
Þetta er sú hugsjón, sem andar
blæþýtt eða þrumar týrammt í
hverri einustu ritsmíð dr. Zamen-
hofs. Esperanto er vaxið upp úr
þessum jarðvegi og ber þess
menjar. Andi bræðralags og jáfn-
rjettis fylgir því stöðugt. Úr því i
Hestamannafélagið Fákur
Þingvallakappreiðar.
í sambandi við Alþingishátíðina 1930 efnir félagið til kappreiða í svonefndum Bolabás
inn undir Ármannsfelli. 5 verðlaun verða veitt fyrir hvortveggja skeið og stökjs og eru
þau ákveðin þessi:
/
1000 kr. — 400 kr. — 200 kr. — 150 kr. — 100 kr.
Sprettfæri skeiðhesta verður 250 metrar, þar af 200 metrar á hreinum kostum, en
hlaupvöllur stökkhesta 400 metrar.
Gera skal aðvart um hesta þá, er keppa eiga formanni félagsins Daniel Danielssyni
dyraverði í Stjórnarráðinu (sími 306) eigi sídar en fimtudag 5. júni, en allir verða
kappreiðahestarnir að vera komnir til Þingvalla laugardaginn næstan áður en Alþingishá-
tíðin hefst og verður þar tekið við hestunum til geymslu fram yfir kappreiðarnar.
Þingyallanefnd Fáks.
hafa margir góðir drengir um
víða veröld teygað þyrstum sálum
sínum lífsmagn. Þar hafa þeir
fundið starfsvið fyrir krafta sína,
er þeir hafa viljað leggja fram
sambræðrum sínum til heilla.
Novial er gersneytt svona hug-
sjón. Og það tjáir ekkert að
segja, að hægt sje að skapa hana.
Hún e r alls ekki til frá höfundar-
ins hendi. Hún getur þess vegna
aldrei orðið samgróin málinu. Það
á að þjóna efnislegum hagnaði
mannanna einum. Það getur eser-
anto líka gert alt eins vel. En no-
vial hefur ekkert fram að bjóða
móti andlegum auðæfum þess.
Novial er mál heilans eins, esper-
anto mál bæði heila og hjarta. Og
þá er ekki líklegt, að þeir menn
— karlar og konur —, sem sjá
ögn út fyrir eigin túngarð og
hugsa ofurlítið um velferð ann-
ara en sjálfra sín, verði lengi að
ráða við sig hvoru málinu þeir
eigi að ljá liðsinni. Og með fylgi
slíkra manna er hverju málefni
best borgið í bráð og lengd.
Ól. Þ. Kristjánsson.
-----o----
Sigurður Magnússon prófessor,
yfirlæknir á Vífilsstöðum, varð
sextugur 24. þ. m. Hann er einn
af .vinsælustu og merkustu mönn-
um læknastjettarinnar hjer og
hefur veitt Vífisstaðahælinu for-
stöðu frá því það var stofnað,
haustið 1910, eða í nærri 20 ár
og undir hans stjóm hefur hælið
orðið fyrirmyndarstofnun, sem
stendur jafnfætis bestu heilsu-
hælum erlendis og hafa verið þar
nærri 2800 sjúklingar, þar af
yfir 270 börn, en sjerstök bama-
deild var opnuð 1921. Próf. S. M.
var einnig vel undir starf sitt
búinn. Eftir að hann lauk prófi
við Hafnarháskóla 1901, cLvaldi
hann 5 ár erlendis við framhalds-
nám í berklaveikisfræðum, var
svo praktiserandi læknir í Reykja-
vík í 2 ár, en hafði áður um
skeið verið læknaskólakennari
fyrir Guðm. Magnússon. Seinna
fór hann aftur utan til þess að
kynna sjer heilsuhæli á Norður-
löndum, í Þýskalandi og Austur-
ríki og eftir að hælið var stofn-
að hefur hann einnig nokkmm
sinnum farið utan til þess að
kynnast berklavamarmálum og á
vísindafundi. Hann hefur skrifað
ýmsar ritgerðir um berklaveiki á
AGENTER
ansættes med höi provision. Skriv
straks efter vore agenturbetingelser
og skaf Dem en indtægt i disse
daarlige tider.
Bankirfirman Lundberg & Co.,
Stockholm C.
dönsku, þýsku og á íslensku, t.
d. bókina: Um berklaveiki.
Ólafur Ólafsson kristniboði
mun nú vera um það bil að koma
aftur austur til Kína. Stönsuðu
þau hjónin dálítið í Ítalíu, en
hjeldu svo með skipi skemtu leið
austur.
Árni Pálsson bókavörður er ný-
lega farinn áleiðis til Ameríku - í
fyrirlestraferð. Mun hann ferðast
víða um Kanada á vegum bóki-
mentafjelags eins og flytja á
ensku fyrirlestra um ísland.
Hann mun einnig fara um Is-
lendingabygðimar og flytja þar
íslensk erindi. Áður en hann fer
vestur dvelur hann um tíma í
London.
Litla tímaritið, annað heftið er
nýkomið. 1 því eru smásögur
eftir góða höfunda: Dostojevskij,
Maupasant, Stamatov, Andersen-
Nexö o. fl. og frágangur allur
smekkvíslegur. — Útgefandi er
Jón H. Guðmundsson.
Bergström heitir sænskur
mentamaður, sem hjer dvaldi um
skeið 7í sumar og ferðaðist hjer
nokkuð um. Hann starfar við
Svenska Dagbladet og hefur í
haust skrifað ýmsar greinar í
það um íslensk mál, stjómmál,
atvinnumál og ekki síst alþingis-
hátíðina. Einkum er athyglis-
verður greinaflokkur eftir hann
um kaupstaðina íslensku. Þykja
honum þeir á gelgjuskeiði að
byggingu og bæjarbrag, svipljótir
oft og illa hirtir, en samt að
mörgu merkilegur vöxtur þeirra
og viðgangur og þá helst upp-
gangur togaraútgerðarinnar í
Reykjavík. En samt þykir hon-
um höfuðstaðurinn ekki merkast-
ur vegna útgerðarinnar og kaup-
manna þeirra, sem þar búi, þott
duglegir sjeu, heldur vegna
mentamannanna, sem setji blæ
sinn á bæinn og valdi því, að
þrátt fyrir ýmsan smábæjarbrag
í ytri ásýnd, sje bærinn sannur
höfuðstaður og menningarmið-
stöð að sínu leyti eins og t. d.
Lundur eða Uppsalir í Svíþjóð.
Islánder Schule
Regine Dinse
St. Peter Nordsee.
Þýskalandí
Námsskeið hefst í skólanum
15. apríl næstkomandi. Þar verð-
ur kent: Þýska, garðrækt, nátt-
úrufræði, matarefnafræði, landa-
fræði og handavinna.
Mánaðargjald er 190 mörk.
Nemendum verður gefið kost-
ur á ódýrum ferðalögum um
Þýskaland.
Gerið svo vel að snúa yður til
Lúðvígs Guðmundssonar sköla-
stjóra á Hvítárbakka, sem gefur
allar upplýsingar.
Re^ine Dinse
St. Peter Nordsee
Til yðar! —
Ný fegurð — nýr yndisþokki.
Fáið hvftari, fegurri tennur
— tennur, sem engin húð er á.
'T'ANNHIRÐiNGAR
* framfönixn.
hafa tekið stórum
Tannlæknavíslttdln rekja nú fjðlda tann-
kvilla tll húðar (lags), sem myndast &
tðnnunum. Rennlö tungunni yflr tenn-
urnar; þá flnnið þár sllmkent lag.
Nú hafa vlsindln gert tannpastað Pep-
sodent og þar með fundið ráð til að eyða
aö fullu þessari húð. >að losar húðina og
nær henni af. >«ð inniheldur hvorki
kísil né vikur.
Reynið Pepsodent. Sjáið, hvernig tenn-
urnar hvitna jafnóðum og húðiagið hverf-
ur. Fárra daga notkun feerir yður heim
sanninn um mátt þess. Skriflð eítir
ðkeypis 10 daga fýnishorni til: A. H.
Rlise, Afd. 1560» 4j Bredgade 25, EX,
Kaupmannahöfn, K:
FÁIÐ TÚPU - NÚl
P«DSAUÍJ\t
Vðrtimerki
j Afburða-tannpasta nátimans.
il Mefur meðmœli helrtu tennl»kna í öllum heimi. lððO
Prcnteimðjftn Acta.