Lögrétta


Lögrétta - 18.12.1929, Side 3

Lögrétta - 18.12.1929, Side 3
4 LÖGRJETTA Grænland á rúmhelgum dögum og hátíðum. Meðal jarðfræðinga Dana er kona ein, Sophie Petersen lektor, sem mikið þykir kveða að og ýmsir munu kannast við frá dvöl hennar hjer á landi fyrir nokk- urum árum og eins frá skrifum hennar í dönskum blöðum og tímaritum, því að hún er alt annað en pennalöt. Hún er allra kvenna víðförulust. Kann hún því frá mörgu að segja, og það sem mest er um vert: hún segir vel og skemtilega frá því, sem henni ber fyrir augu. Fyrir nokkurum árum skrifaði hún t. a. m. ágæta ritgerð um Krísu- víkumámana, er hún hafði ferð- ast hjer um Suðurland í fyrra skiftið (því að hún hefur verið hjer tvisvar, en í síðara skiftið aðeins nokkra daga á næstliðnu sumri) og var vel af þeirri rit- smíð látið af þeim, er bera best skyn á þá hluti. En alveg sjer- staklega er henni hlýtt til Græn- lands og það er þá líka einmitt vegna ágæts alþýðurits um það land, er hún nýlega hefur gef- ið út, sem línur þessar eru skrif- aðar, ef ske kynni, að einhvem úti hjer fýsti að kynnast því og fræðast af því um Grænland vorra tíma. Rit þetta heitir „Grönland i Hverdag og Fest“ (gefið út á kostnað bókaforlags Reizels í Khöfn). Virðist ritið vera samið af náinni þekkingu á lífi og háttum Grænlendinga á vorum tímum, en jafnframt af miklum lærdómi bæði náttúru- fræðilegum, landfræðilegum og sögulegum. Skín djúpfær lærdóm- ur höfundarins (ekki síst hinn náttúrufræðilegi, bæði að því er snertir jarðfræði, dýralíf í legi og á landi, og grasafræði) fram á hverri blaðsíðu ritsins, en þó svo, að hin auðvelda og alþýð- lega framsetning gerir að engu j aíla ei-fiðleika á að tileinka sjer I efnið. Flestum mun það þó veita j hvað mesta ánægju að kynnast ; því, sem höfundurinn segir um | daglegt líf og háttu Grænlend- j inga bæði heima og að heiman (þ. e. á ferðum þeirra um láð og lög vegna atvinnu sinnar), um húsakynni þeirra og klæðaburð, um afstöðu þeirra til „menning- arinnar“ og skoðanir þeirra á líf- inu og heiminum. Frá öllu þessu skýrir höfundurinn svo skemti- lega að unun er að lesa. Má al- j staðar lesa milli línanna, hve vænt höfundinum þykir um þenn- an þjóðflokk, sem nú byggir Grænland og er ein þeirra fáu ,,frumþjóða“ (ef það orð má nota hjer), sem hafa þolað það að kynnast siðmenningunni án þess að bíða tjón af því og líða smán saman undir lok. Jeg hef enda fyrir satt, að grænlenski þjóð- flokkurinn hafi tvöfaldast að höfðatölu frá því, er var fyrir 50 árum. Mun að einhverju leyti j mega þakka það „einangruninni“, ! sem Grænlendingar hafa átt við I að búa, en ýmsir mætir menn ! vilja annars síst bót mæla. Að umgerðinni til er megin- hluti bókarinnar ferðasaga höf- undarins sjálfs, en með fróðleg- um útúrdúrum um ýmislegt af því, 'sem fyrir augun ber. En á síðustu 50 blaðsíðunum er þeirri umgerð slept. Er þar allnákvæm landafræði Grænlands og saga þess, bæði frumsaga þess meðan íslendingar bygðu það og eins eftir að landið verður norsk og síðan dönsk hjálenda. I bókinni eru 100 myndir til skýringar, snildarvel teknar og prentaðar, svo og vandaður Grænlands-uppdráttur. Eykur þetta hvorttveggja mjög gildi bókarinnar. Alls yfir trúi jeg ekki öðru en margir hjer á landi hefðu á- nægju af að kynnast þessu á- gæta og alþýðlega riti ’hinnar víðförulu og lærðu dönsku konu. J. H. ----o----- Líftryggíngafélagíð „Danmark“ Vestre Boulevard 34, St. Kaupmannahöfn. Ágóðahluti (Bonus) útbýtt nú, krónur 2 miljónir 700 þúsund. Ágóðahluti (Bonus) fyrir 5 ár, 1924—1928, verður greiddur í aðaldeild líftryggingafélagsins fyrir tryggingar tölusettum undir 80000 þegar menn snúa sér skriflega til aðalumboðs félagsins í Vestre Boulevard 34 (St.), Kaupmannahöfn, og á síðasta iðgjaldakvittun og nákvæm utanáskrift að fylgja. Þátttaka í þessari ágóðaúthlutun er þó því skilyrði bundin, fyrir utan að hafa nýmer undir 80000, að tryggingin sé skráð undir gagn- kvæmri ábyrgð síðast 31. desember 1927, og hafi þar að auki verið í gildi hinn 31. desember 1928, og að hún ekki ár 1929 sé úr gildi við dauða eða hafi verið greidd í lifanda lífi, því þá er ágóðahluti greidd- ur með tryggingarupphæðinni. Fyrir skírteini með hærri númerum (þ. e. 80000 og þar yfir) greiðist Agóðahluti með tryggingarupphæðunum þegar þau falla til útborgunar eins og þær tryggingar, sem skráðar eru í undirdeildum, koma ekki til greina í þess- ari ágóðaúllilutun, vegna þess, að fyrir þær gilda sérstakar ágóðahlutareglur. Reykjavik, 8. desember 1929. Alþingfshátíðin. Hvað verður um að vera? Skipulag Alþingishátíðarinnar hefur nú verið ákveðið til fulls. Hátíðin stendur í 3 daga á Þing- völlum, frá fimtudeginum 26. júní til laugardagsins 28. júní, en sunnudaginn þar á eftir verð- ur lokaveitsla fyrir fulltrúa allra stjetta í landinu. Hátíðin hefst klukkan 9 á fimtudagsmorgun með guðsþjónustu í gjánni fyrir norðan fossinn og verður drang- ur einn í gjárbarminum notaður fyrir predikunarstól. Klukkan hálftíu verður gengið á Lögberg og safnast fólk fyrst saman und- ir fánum hjeraða sinna á flöt- um suður af Gróðrarstöðinni. Þetta tekur klukkustund og kl. hálfellefu verður hátíðin sett á Lögbergi (sem ákveðið er sam- kvæmt athugunum Eggerts Briem frá Viðey). Fyrst syngur Þingvallakórið Ó guð vors lands, síðan talar forsætisráðherra og á eftir verður sunginn fyrri hluti hátíðaljóðanna. En síðan, kl. 1114 verður Alþingi sett með ræðu for- seta sameinaðs þings og þá verð- ur sunginn síðari hluti hátíða- Ijóðanna (eftir Davíð í Fagra- skógi með lögum Páls ísólfsson- ar). Frá kl. 1 til 3 verður mat- arhlje en kl. 3 fer fram opinber móttaka gesta á Lögbergi og talar þá forseti sameinaðs þings, en fulltrúar erlendra þinga (ca. 20) flytja kveðjur, ekki lengri en 5 mínútur hver. Kl. 414 verða sögulegir hljómleikar, kl. 6 mið- degisveitsla og kl. 9 Íslandsglím- an. — Á föstudagsmorgun kl. 10 verð- ur íslandsminni flutt að Lögbergi og sama morgun fara fram kapp- reiðar í Bolabás. Kl. 2 hefst þingfundur. Kl. tæplega 3 verð- ur Vestur-íslendingum fagnað á Lögbergi, en fulltrúar þeirra bera fram kveðjur. Kl. 314 verður söguleg sýning (á fornu þing- haldi), síðan nýtísku hljómleikar og leikfimissýning um kvöldið. Síðasta daginn verður þing- slitafundur um morguninn. Ekki mun enn ákveðið hvaða mál verða rædd eða afgreidd á þessum þingfundum, sumir tala um inn- göngu í þjóðabandalagið, aðrir um ósk um uppsögn sambands- laganna, en sumir um afnám bannlaganna, en ekki er að henda reiður á neitt af þessu. Á eftir þingfundi verður einsöngur, seinna um daginn fimleikasýn- ing 200 manna og söngur lands- kórsins og svo sögusýning, en kl. 8 að kvöldi slítur forsætisráð- herra samkomunni. Á hverju kvöldi verða einnig hjeraðsfundir, bændaglímur, rímnakveðskapur, söngur, hljóðfærasláttur, víkivak- ar, bjargsig og frjáls gleðskapur. Mesti fjöldi hefur þegar pantað tjöld á Þingvöllum. ----o---- Stórbruúi varð á Bíldudal síð- astliðið mánudagskvöld, brunnu 5 hús, þar á meðal stór verslunar- hús, áður eign Pjeturs Thor- steinsson og bygð af honum, síð- an eign Hannesar B. Stephensen og nú eign íslandsbanka. 1 þess- um húsum hafði bækistöð sína Bjargráðafjelag Arnfirðinga og hafði forstjóri þess, Ágúst Sig- urðsson, samið við bankann um kaup á húsunum og átti að taka við þeim nú um áramótin. Einnig brann íbúðarhús, sem þeir bjuggu í JI. B. Stephensen og Helgi Kon- ráðsson læknir, og var það hús áfast verzlunarhúsunum, en fleiri hús skemdust, þ. á. m. Símastöð- in. Ekki er frjett um upptök elds- ins, en þess getið til, að kviknað hafi í út frá rafleiðslu. Tjónið kvað vera mikið. Allar húseign- irnar sagðar virtar á 150 þús. kr. og vörur á 40 þús. H. B. Step- hensen misti innbú sitt óvátrygt, en læknirinn hafði vátrygt sitt." Póstafgreiðsla var í verslunarhús- unum, sem brunnu. Gjöf frá Manitóbastjórn. Brac- ken-stjórnin í Manitóba ætlar að gefa Islandi á afmælishátíð Al- þingis næsta ár líkneski af Thóm- asi H. Johnson heitnum, sem um eitt skeið var dómsmálaráðherra í Manitóba og einn af merkustu forvígismönnum Islendinga þar vestra. Hefur „Cðinn“ tvívegis flutt ítarlegar greinar um Thom- as H. Johnson, líf hans og starf, hina síðari eftir fráfall hans, skrifaða af Jóni fyrv. alþm. frá Sleðbrjót. Þorvaldur Pálsson læknir. Ráð tannlækna hljóðar nú: »Náið húðinni af tönnnnnm. svo að þær verði heilbrigðari og betri«. npANNHIRÐINOAR * framförum. hafa tekið störum Tannlæknavisindin rekja nú fjðlda tann- kvilla til húðar (lags), sem myndast & tönnunum. Rennlð tungunni yflr tenn- urnar; þá flnnlð þér sllmkent lag. Nú hafa vísindin gert tannpastað Pep- sodent og þar með fundið ráð til að eyða að fuilu þessari húð. Það losar húðina og nær henni af. Það inniheldur hvorkí kísil né vikur. Reynið Pepsodent. Sjáið, hvernig tenn- urnar hvítna jafnöðum og húðiaglð hverf- ur. Fárra daga notkun færir yður heim sanninn um mátt þess. Skriflð eftlr ókeypis 10 daga sýnishorni til: A. H. Riise, Afd. 1882- 4* Bredgade 26, EX, Kaupmannahöfn, K. FÁIÐ TÚPU í DAGI iiii-Mn !■■■ j|nff||fBDPKUHfltfH'ni Skrásett m WMm. úþA Vðrumerkl Afhurð&'tannpasta nútímans. Hefur meðmœll helztu Unnlækna í ðllum heími. 1682 Maður varð úti nýlega nálægt Selfossi, Óttar Guðmundsson frá Norðurkoti í Flóa, og er haldið að hann hafi snögglega veikst á leið milli bæja. Böðvar Bjarkan lögfræðingur á Akureyri hefur afsalað sjer for- stöðu búnaðarbankans, sem hann var ráðinn til að gegna frá byrj- un næsta árs. Einar Arnórsson prófessor hef- ur skrifað nokkrar greinar í Morgunblaðið um sambandsmálið og telur sjálfsagt, að um leið og við tækjum utanrikismálin að öllu í okkar hendur, yrði kon- ungssambandinu við Danmörku slitið. Prentam. Acta.

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.