Lögrétta - 07.01.1931, Page 2
2
LC'GR JETTA
LÖGRJETTA
Útgefandi og ritstjóri:
porsteinn Gíslason
þingholtsstræti 17. Sími 178.
Innheimta og afgreiðsla
í Lækjargötu 2. Simi 185.
liugkvæmni mannanna, eða upp-
fyndingagáfu, sem byltir til að-
ferðum á hinn óvæntasta hátt, og
ástin, sem ræður tölu þeirra nýju
borgara, sem í heiminn fæðast
(þeir eru í Rússlandi 3*4 miljón
á ári).
Svona er Rússland, fult af
áhuga, viðleitni og tilraunum. En
það er milli steins og sleggju.
Nútíðin lifir við skort í voninni
um framtíðina. Og sú framtíð er
ennþá alveg óviss. En flestir bú-
ast við því að núverandi um-
skiftatímar, með kreppu og
skorti standi í mörg ár enn,
hvort sem bolsjevisminn heldur
þá velli eða ekki, breytist eða
líður undir lok.
Framtíð lýðræðisins
og kjör fátæklinga.
W. R. Inge.
Lýðræði hefur verið kjörorð
síðustu tíma í þjóðfjelagsmálum.
En á seinustu árumermjög farið
að vefengja gildi þess víða um
lönd og það hefur meira að segja
verið afnumið í ýmsum löndum
og einhverskonar einræði komið
í staðinn. Inge, aðalprestur Páls-
kirkjunnar í London og einn af
snjöllustu og þekktustu rithöf-
undum Englands, hefur oft látið
þessi mál til sín taka og m. a. í
nýrri ritgerð.
Á stríðsárunum, segir hann,
ljetu Bretar heita svo, sem þeir
berðust fyrst og fremst fyrir
lýðræðinu. Það var sagt fyrir
Ameríkumanninn og hafði á
hann tilætluð áhrif. En nú virð-
ast flestir vera komnir á þá skoð-
un, að lýðræðið sje ekki örugt.
En við verðum að gera okkur
grein fyrir því, að orðið lýðræði
(democracy) er notað í þremur
merkingum. Það er stjómskipu-
lag, þar sem allir borgarar eru
sjálfir löggjafar án fulltrúa.
Lýðræði er einnig ríki, þar sem
kjósendur með almennum kosn-
ingarrjetti hafa síðasta orðið,
en kjósa fulltrúa til þess að
fara með umboð sitt. Og loks er
lýðræði þjóðfjelag, þar sem allir
eiga að vera jafnir eða jafnt til-
lit á að vera tekið til allra.
Fyrsta lýðræðið er einungis
framkvæmanlegt í litlu borgríki,
eins og Aþenu hinni fomu eða
svissneskri Kantónu. Annað lýð-
ræðið búum við nú við. Það
þriðja er kristileg kenning og
sem kristinn maður trúi jeg á
það, segir Inge. En á lýðræðið
annað 1 röðinni trúi jeg ekki
mikið og jeg held að fáir trúi á
það nú orðið. Shaw hefur sagt,
að mesta viðfangsefni stjórnmál-
anna væri það, að finna góða að-
ferð til manngildismælinga (ant-
hropometric jnethod), en hún hef-
ur ekki fundist ennþá. Heimsku-
legasta aðferðin er sú að kljúfa
höfuðin í herðar niður (í styrj-
öldum og með ofbeldi), sú næst-
heimskulegasta er að telja þau,
að fara eftir höfðatölunni. I raun
og veru táknar almennur kosn-
ingarrjettur það, að veraldleg
gæði minnihlutans eru sett á upp-
boð í hverjum kosningum og fjar-
stæðum þeim, sem frambjóðend-
umir lofa eru engin takmörk
sett, nema óttinn við það, að ef
til vill þurfi þeir að standa við
þær. Þetta er fávíslegt skipulag.
En jeg játa það hispurslaust, að
jeg veit ekki hvað koma ætti í
staðinn.
Síðan talar Inge um ýmsar til-
lögur og umræður um þjóðfje-
lagsmál, m. a. þá, að afnema eigi
persónulegan gróða eða hagnað
einstaklinganna. En hann segist
vera þeirrar skoðunar, að ef kipt
sje burtu þeim aðalhvötum, sem
knýi menn til vinnu, harðrar
vinnu, sem sje óskin um það að
bæta kjör sín og ennþá meira,
óskin um það, að sjá' bömum
sínum farborða í lífinu, þá
mundi fátt fólk vinna eins vel
og það gerir nú, flestir mundu
vinna illa, og talsvert margir
mundu alls ekki vinna, nema þeir
væru neyddir til þess.
Þeir, sem sífelt eru að álasa
þjóðskipulagi okkar, og kalla það
helvíti á jörðunni og þessháttar,
þeir gera landi sínu einhvem
þann mesta ógreiða, sem unt er
að gera því. Því að sannleikurinn
er sá, að þrátt fyrir alla þá galla,
sem rjettilega mætti finna á
þjóðskipulaginu, er það einföld
staðreynd, að aldrei hefur kom-
ið sá tími í sögu heimsins, að al-
menningur, verkamenn og konur,
hafi notið þæginda og skemtana
og tækifæra til uppeldis og and-
legrar ánægju neitt svipað því,
sem hann hefur nú. Með öllum
göllum sínum er menning tuttug-
ustu aldarinnar sú hamingjusam-
asta og besta fyrir allan almenn-
ing, sem heimurinn hefur sjeð.
En svo ganga menn um og eitra
huga fólksins og eggja til óánægju
alstaðar, uns þjóðfjelagið verður
fult af gremju, beiskju, þvargi og
deilum. Skipulag þjóðfjelagsins er
nú hagstæðara fátækum borgur-
um en það hefur verið nokkru
sinni áður og það fer batnandi.
Ameríka vísar veginn. Með stór-
framleiðslu og auknum einfald-
leik og bættum vjelum, er ljett
erfiði handavinnunnar og þæg-
indi, sem engan dreymdi um áð-
ur getur nú svo að segja hver og
einn öðlast, án þess að vinnudag-
ur sje lengdur eða laun hækkuð.
Þetta er það, sem Ameríka hefur
að bjóða í stað jafnaðarstefnu.
Þetta er starfandi framkvæmd,
en jafnaðarstefnan hefur sífelt
verið mishepnað og dautt fram-
kvæmdaleysi.
En þó að jeg segi þetta gleymi
jeg ekki hinum ógurlega þrándi í
götu okkar — atvinnuleysinu. Það
sprettur sumpart af veitingu at-
vinnuleysisstyrkjanna og sumpart
af því að fólksfjöldinn er of mik-
ill. Vandamál þjóðfjelagsins eru
viðráðanleg þegar mannfjöldinn
er mátulegur. Ef hann er það
ekki er viðureignin vonlaus.
Kringum 1940 til 1945 fer mann-
fjöldi Englands að standa í stað
eða jafnast. En ef fólksfjöldinn
er of mikill núna og það er hann,
þá er besta ráðið landnám með
ríkisstuðningi. Atvinnuleysis-
styrkir eru siðspillandi. Aðal-
áhrif þeirra eru þau, að gera úr
mönnum, sem ekki fá atvinnu,
menn, sem ekki vilja atvinnu.
Gildi þjóðfjelagsins er ekki
komið undir sem mestum fólks-
fjölda, heldur hinu, að fólkið sje
sem kjarnmest og best.
Guglielmo Ferrero
um ókyrð aldarfarsins.
Guglielmo Ferrero er einn af
þektustu sagnfræðingum nútím-
ans og hefur einnig látið ýms
þjóðfjelagsmál til sín taka • og
hefur Lögrjetta áður sagt frá
LuGPv JETTA
sumum ritgerðum hans um þau.
Hann hefur. nýlega skrifað um
eðli og orsakir ókyrrðar þeirrar,
sem nú ríki í heiminum. Hann
segir að hömlur þær og þeir
máttarviðir, sem nítjánda öldin
hafi fengið að erfðum frá tíman-
um fyrir frönsku byltinguna sjeu
nú eyddir, hafi fallið í heims-
styrjöldinni. Erfikenningar eru
glataðar, siðir eru losaralegir,
fjölskyldan er ekki lengur skóli í
aga, trúin hefur mist mikið af
fyrri áhrifum sínum. En menn-
ing getur ekki lifað á eintómri
upplausn. Hún þarf aðhald, höml-
ur. Þessvegna þarf að búa til nýj-
ar hömlur og nýja máttarviði í
stað hinna gömlu. Og nú er ein-
mitt verið að finna þá upp og búa
þá til. Þetta er varla byrjað og
við vitum ekki enn hvar það end-
ar. Það er mjög sjaldgæft, að
tímabil í sögunni viti sjálft með
vissu hvað það er að hafast að.
Ekkert er erfiðara en að skapa
aga og ekkert nauðsynlegra, en
okkar tími hefur ennþá ekki get-
að það. Við lifum dag frá degi í
sífeldri óvissu einmitt af því að
við erum agalaus. Við þurfum,
eins og allir tímar þurfa, aga í
smekk okkar, aga í siði okkar,
stjórnmálaaga, mentalnálaaga og
fjármálaaga. Hann verður skap-
aður. I öngþveiti því, sem nú er,
sjást þegar merki hans. Eftir því
sem hann verður ljósari minkar
óvissa og ókyrð heimsins. En
meðan á biðinni stendur verðum
við að starfa og hafa þolinmæði
og máske þjást. Miklar nýjungar
búa nú um sig í sögu heimsins
og við verðum að verða þeirra
verðugir.
-----o----
Rangsleitni
í garð presta og kirkju.
Á nítjándu öld var það á-
stríða, sem nálgaðist sjúkdóm
hjá þorra manna hjer á landi, að
leita að ágöllum á kristinni
kirkju og þó einkum kennimönn-
um hennar, en það átti aftur
rætur sínar í öfund, af því að
prestum, sem þá voru yíirleitt
mikilhæfustu menn þjóðarinnar
og leiðtogar hennar, bæði í and-
legum og veraldlegum málum,
gekk búskapurinn betur en öðr-
um bændum, enda höfðu þeir
mikinn styrk af launum sínum,
sem þá máttu heita góð móti því
sem nú er, því þá munu þeir
hafa getað fengið að meðaltali
4—5 vinnumenn fyrír embættis-
laun sín, en nú 2—2*4 i mesta
lagi.
Þessi rangsleitni í garð presta
hafði gripið hugi manna svo, að
það var einatt talin ágengni og
ágimd hjá prestum, ef þeir inn-
heimtu lögboðin laun sín, en við
það leið aftur kirkjan, virðingin
fyrir þessari helgu stofnun þvarr
og mörgum fanst eiginlega sjálf-
sagt að hnýta í hana um leið og
prestana.
Upp úr aldamótunum síðustu
fer þó þetta aftur að smálagast,
því þá er svo komið, að prestar
fara að eiga eins erfitt, eða erf-
iðara með að framfleyta sjer og
sínum, eins og flestir aðrir menn
hjer á landi; jafnvel kemur það
nú fyrir, að söfnuðimir verða að
fara að skjóta saman gjöfum
handa presti sínum, svo hann
flosni ekki upp eða líði nauð, og
þá var ekkert framar að öfunda
þá af. En virðingin fyrir kirkj-
unni óx ekki við þetta, síður en
•
svo, því þjóðin virðir trauðla öl-
mösumenn meðan þeir lifa, þótt
góðir menn sjeu, og henni er
hætt við að líta svipuðum augum
á þá stofnun, sem þeir vinna
fyrir, og á þá sjálfa.
En mestan og bestan þátt í
því að drepa niður þennan öf-
undarhug manna í garð presta
átti þó löggjöfin um, að prestar
skyldu hætta að innkalla laun sín
sjálfir, enda var þá um leið flutt
yfir á ríkissjóð nokkuð af gjöld-
unum, svo beinu gjöldin til presta
og kirkju minkuðu til muna.
Nú er svo komið að þjóðin, all-
ur þorri manna, er farinn að sjá,
að prestar eru beittir miklum
órjetti samanborið við aðra
starfsmenn ríkisins, enda skilja
nú allir betri bændur í sveit, að
það er hagkvæmara að hafa
prest, sem fremur getur rjett
öðrum hjálparhönd ef með þarf,
en sem sjálfur þarf á hjálp ann-
ara að halda. Sjálfur kirkjumála-
ráðherra íslands hefur bent þjóð-
inni á þet'ta misrjetti, og í því er
hún öll, eða mikill meiri hluti
hennar, honum sammála og má
því vænta að bráðlega verði úr
því bætt að einhverju leyti, eða
svo að vel megi við una.
En þrátt fyrir alt þetta, fá-
tækt og erfiðleika presta, mis-
rjetti það, sem þeir eru beittir, og
hættu þá, sem þjóðinni stafar af
því, ef dugnaðarmennimir færu
að hliðra sjer hjá prestsstarfi, þó
hugur þeirra og löngun sje að
starfa á því sviði, er ekki er hægt
að lifa sæmilegu lífi á launum
þeim, sem fyrir það starf eru
greidd, nema þá að lifa í einlífi,
og auk þess laðar það ekki til
starfsins ef hnútur og óvirðing
er kaupbætirinn; þrátt fyrir alt
þetta gægist þó enn fram þessi
gamli hugsunarháttur öðru
hvoru, að vilja hnýta í presta og
kirkju og það jafnvel helst hjá
lærðum mönnum, sem ætlast má
þó til meira víðsýnis hjá en svo;
það er ástríða eða sjúkdómur
sem sumir menn geta ekki losn-
að við og það þótt þeir viti bet-
ur.
T. d. í gær, 21. des. 1930 kl.
20 og 30 mín. hjelt prófessor Sig-
urður Nordal fyrirlestur í út-
varpið á fyrsta útvarpsdegi þess,
þar sem þessi ástríða kom svo
greinilega í ljós, að almennum
sársauka hefði valdið, ef vjer
prestar ekki værum þessu svo
vanir, og skal játað, að mjer
olli það alt að einu talsverðri
gremju. Jeg vænti mjer annars
af svo lærðum manni, því alt
þakklætið sem íslenska kirkjan
fjekk hjá honum fyrir það að
útvega prentsmiðju og innleiða
prentiðn í landið var það, að hún
hefði aflað sjer einokunar rjett-
inda á prentiðn hjer á landi, til
þess að sjá um að aðeins guðs-
orðabækur yrðu prentaðar hjer,
— fyrirbyggja að önnur rit yrðu
prentuð, — og líkti hann þessari
einokun kirkjunnar við verslun-
areinokunina alræmdu.
Þetta er hreint og beint að
misbjóða sögunni til þess að geta
hreytt í kirkjuna og starfsemi
hennar, því það var fleira prent-
að en guðsorðabækur, meðan
prentsmiðja var á Hólum, eins
og prófessorinn veit. Að kirkjan,
eða rjettara hin fyrsta prent-
smiðja landsins, fjekk einkarjett
til prentiðnar, var víst fremur
af fjármálalegum ástæðum en
hinu, að hún vildi ekki lofa
mönnum að kynnast veraldlegum
fræðum.
Þó okkar lærðu mönnum sje í
DOSTOJEFSKIJ: Glæpur og refsing.
Sonja, að ef bíða ætti þangað til allir menn yrðu skyn-
samir, yrði alt um seinan. Jeg sá líka, að þetta mundi
aldrei verða, að mennimir breyttust ekki, að enginn gæti
breytt þeim, að alt væri einskis nýtt .,. Þetta er lögmál
mannlífsins, þetta er lögmál, Sonja. Og nú veit jeg það,
Sonja, að sá sem er sterkur í anda og skynsemi, hann
mun ráða yfir þeim. Sá einn, sem eitthvað vogar hefur
rjett meðal mannanna, og sá, sem mestu vogar hefur
mestan rjettinn og verður leiðtogi allra, höfðingi og lög-
gjafi. Svona hefur það altaf verið og verður einlægt. All-
ir sjá það nema þeir, sem blindir eru.
Raskolnikof hafði ekki augun af Sonju meðan hann
talaði, en hann ljet sjer það nú í ljettu rúmi liggja, hvort
hún skildi hann eða ekki. Ofsinn hafði altekið hann, þeg-
ar hann gat nú loksins talað eftir langa einveru. Og Sonju
skildist það, að þessi bölsýni var orðin trú hans.
— Mjer skildist það, sagði Raskolnikof ennfremur,
að valdið er þeim einum gefið, sem þorir að beygja sig
eftir því og hrifsa það. Þetta er það eina nauðsynlega,
að þora! Hugsun skaut upp í mjer, í fyrsta sinn á æfi
minni datt mjer þetta i hug, hugsun, sem enginn hafði
hugsað á undan mjer. Enginn. Það stóð nú ljóslifandi
fyrir mjer: hversvegna hefur engin manneskja þorað
það, þegar hún sá alla þessa dæmalausu heimsku, að taka
allan ófögnuðinn á löpp og slöngva honum til fjandans.
Jeg — jeg ætlaði að varpa þessu og jeg drap, jeg ætlaði
einungis að þora það, Sonja, það var alt og sumt.
— Ó, þegið þjer, þegið þjer, kallaði hún og sló hönd-
um. — Þjer hafið snúið baki við guði og guð hefur refs-
að yður og gefið yður djöflinum á vald.
— Rjett, Sonja, þegar jeg lá í myrkrinu og tyigsaði
þetta alt, þá var það sjálfsagt djöfullinn, sem freistaði
mín. Er ekki svo?
— Þegið þjer! Hvað dirfist þjer, guðníðinguri Ekk-
ert, ekkert skiljið þjer. Ó, guð, hann skilur það ekki,
hann skilur það ekki.
— Vertu róleg, Sonja, jeg er ekki að gera að gamni
mínu, jeg veit það sjálfur, að djöfullinn hafði vald á
mjer. Jeg veit þetta allt. Jeg velti þessu öllu fyrir'mjer
og hvíslaði því öllu að sjálfum mjer, þegar jeg lá ein-
samall í myrkrinu. Jeg var sárþreyttur, sál mín var leið
og reið af þessu sífelda blaðri við sjálfan mig. Jeg vildi
gleyma öllu alt í einu og byrja á nýjan leik og binda enda
á þvættinginn. Og þú heldur máske, að jeg hafi gengið
að verkinu eins og heimskingi, blindur og sljór? Nei, jeg
gekk að því eins og skynsamur náungi og það var einmitt
bölvun mín. Og jeg vissi það sjálfur, að rjettur minn til
valdsins hvarf í þeim sama svip, þegar jeg fór að spyrja
sjálfan mig þess, hvort jeg hefði þennan rjett. Mjer var
það fullljóst, að þegar jeg alla þessa daga var sí og æ
að spyrja sjálfan mig þess og velti því fyrir mjer, hvort
Napoleon mundi hafa gert þetta, þá var jeg engum ólík-
ari ein einmitt Napóleon. Allar þessar spurningar og
bollaleggingar urðu mjer að lokum óbærileg kvöl. Jeg
ætlaði að varpa henni af mjer, leysa mig frá henni í ein-
hverjum verknaði. Jeg ætlaði að drepa hugsunarlaust, til-
gangslaust, drepa einungis sjálfs mín vegna, ef þú vilt
orða það svo, Sonja. Jeg ætlaði ekki einu sinni að ljúga
að sjálfum mjer. Jeg myrti ekki til þess að hjálpa móður
minni. Það var þvættingur. Jeg myrti ekki heldur til þess
að afla mjer fjár og valda til þess að geta orðið velgerða-
maður mannkynsins. Það var líka þvættingur. Nei, jeg
drap blátt áfram af því að jeg ætlaði að drepa, fyrir mig
einan, sjálfs mín vegna drap jeg. Mjer lá það alveg í
ljettu rúmi, hvort jeg yrði velgerðamaður mannkynsins
eða sæti eins og könguló í vef, eins og blóðsuga á öllu lif-
andi, sem nálægt mjer kæmi. Peningar voru mjer ekki
heldur aðalatriðið, Sonja, það var eitthvað annað, sem
meira valt á en peningamir. Alt þetta veit jeg nú orðið.
Jeg vil að þú skiljir þetta, Sonja: ef að jeg hefði haldið
lengra á þessari braut hefði jeg aldrei aftur framið morð.
Jeg varð þá að komast að því, hvað sem það kostaði,
hvort jeg væri lús eins og allir aðrir, eða maður. Var jeg
verður slíku verki, eða var jeg það ekki? Þorði jeg að
þrífa það, sem jeg vildi, eða þorði jeg það ekki? Var jeg
skjálfandi hundur, eða hafði jeg rjett? ...
— Til að drepa? Rjett til að drepa? Sonja sló
höndum.
Æ, Sonja, hrópaði hann og var önugur og hafði svar
á reiðum höndum, en þagði fyrirlitlega. — Taktu ekki
fram í fyrir mjer, Sonja. Jeg ætlaði einungis að sanna
þjer það, að það hafi sannarlega verið Satan sjálfur, sem
dró mig á tálar, en sýndi mjer það svo eftir á, að jeg
hefði ekki haft rjett fyrir mjer, af því að jeg væri ein-
mitt alveg samskonar lús og allir aðrir. Hann dró dár að
mjer, og nú kem jeg hingað til þín. Ljúktu upp fvrir
gestinum. Mundi jeg hafa komið til þín, ef jeg væri ekki
lús, ef jeg væri ekki vesalingur. Hlustaðu á það, hvað
jeg segi þjer. Jeg fór þá einungis til kerlingarinnar í til-
raunaskyni. Nú veitstu það.
— Og myrtir, myrtir!
— Hvað merkir þetta: „myrtir“ ? Hef jeg þá í sann-
leika drepið gömlu konuna? Sjálfan mig hef jeg drepið,
en ekki gömlu konuna. Jeg gerði út af við sjálfan mig í
einni svipan. Kerlinguna hefur skrattinn drepið, en ekki
jeg. En nú er nóg um það, Sonja, meira en nóg. I<áttu
mig í friði, kallaði hann alt í einu afar gramur, láttu mig
í friði. Hann studdi olnboganum á knje sjer og tók
báðum höndum um höfuð sjer.
— Ó, þjer þjáist svo mikið, sagði Sonja.
— Hvað á jeg nú til bragðs að taka, segið þjer mjer
það? sagði hann og hóf hofuð sitt og horfði á hana og
svipur hans var afskræmdur af angist.
— Hvað þú átti til bragðs að taka? sagði hún og
spratt upp, og augu heimar, sem áður voru full af tárum,
urðu skyndilega björt og skær. — Rístu upp! Hún þreif
í herðar hans og neyddi hann næstum því til þess að
standa upp. Hann horfði undrandi á hana. — Farðu und-
ir eins, tafarlaust, gaktu á krossgötur, krjúptu, kystu
fyrst jörðina, sem þú hefur saurgað, beygðu þig svo og
auðmýktu þig fyrir allri veröldinni, í allar áttir og segðu
hátt frammi fyrir öllum mönnum: Jeg hef myrt. Þá mun
guð aftur gefa þjer líf. Ætlar þú að fara? Ætlarðu að
gera það? spurði hún og skalf eins og krampi færi um
hana, greip fast um báða úlnliði hans og starði leiftrandi
augum beint í augu hans.
Hann undraðist stórum æsing hennar.
— Þú ert að hugsa um Síberíu og námurnar, Sonja.
Jeg á sjálfur að selja mig á vald þeirra?
— Þú átt að taka á þig þjáninguna og endurleysast
fyrir hana.
— Nei, Sonja, til þeirra fer jeg ekki.
— En hvemig ætlar þú þá að lifa ... lifa áfram undir
þessu oki? hrópaði Sonja. Getur þú talað svona? Og móð-
ir þín — hvernig getur þú talað við hana? Ó, hvað skyldi
nú koma fyrir þær? En — þú hefur þegar yfirgefið þær,
móður þína og systur. Þú hefur yfirgefið þær, yfirgefið
þær, guð minn góður. Þetta veit hún alt saman sjálf.
Hvemig er unt að lifa áfram einmana og vinum horfinn.
Hvað á nú að verða um þig.
— Láttu ekki eins og bam, Sonja, sagði hann stilli-
lega. I hverra hendur ætlast þú til að jeg framselji sjálf-
an mig. Hvaða erindi á jeg til þessara manna? Að hverju
leyti er jeg sekur gagnvart þeim? Hvað á jeg að segja
þeim? Nei, þetta er alt saman heilaspuni. Þeir gera sjálf-
ir út af við miljónir manna og telja það sjer til sóma. Þeir
eru þorparar og óþokkar, Sonja. Til þeirra fer jeg ekki.
Og hvað skyldi jeg svo sem eiga að segja þeim? Að jeg
hafi drepið, en ekki þorað að snerta peningana? — en
falið þá undir steini? bætti hann við og brosti beiskju-
lega. Þeir mundu skellihlæja að mjer og segja: Sá var
heimskur að nota sjer ekki peningana, heimskur og rag-
ur. Þeir mundu ekkert skilja, Sonja, ekki vitund. Og eru
ekki verðir þess að skilja. Hvaða erindi skyldi jeg svo sem
eiga til þeirra? Nei, til þeirra fer jeg ekk. Láttu ekki eins
og bam, Sonja ... •
— Þú munt kvelja sjálfan þig til bana, kvelja þig í
hel, sagði hún aftur og fórnaði til hans höndum í örvænt-
ingu og bæn.
— En ef jeg skyldi nú, þrátt fyrir alt, hafa verið
að sverta sjálfan mig? sagði hann eins og við sjálfan sig
— ef til vill er jeg þrátt fyrir alt manneskja, en ekki
skepna. Ef til vill dæmi jeg of kurteislega um sjálfan mig
... þrátt fyrir alt ætla jeg að berjast til þrautar.
Um varir hans ljek stoltaralegt bros. /
— Slíka kvöl ætlar þú að bera, alla æfina.
— Jeg venst því, tautaði hann í barm sjer. — En
hlustaðu nú á, sagði hann eftir andar*taks þögn. — Hættu
nú að gráta, nú skulum við snúa okkur að því, sem er
mergurinn málsins. Jeg er kominn til þess að segja þjer
það, að jeg er grunaður og mín er leitað.
— Æ, hrópaði Sonja dauðhrædd.
'— Núnú, af hverju ertu að kveina. Þú vilt sjálf koma
mjer í þrælkunarvinnuna, en nú verður þú hrædd. Eitt
er víst og áreiðanlegt, jeg læt ekki undan. Jeg berst við
þá og þeir skulu ekki koma mjer á knje. Nei, þeir hafa
vissulega engar sannanir. I gær ^ar jeg í mikilli hættu
staddur, jeg hjelt að úti væri um mig. I dag horfir málið
öðru vísi við. Á öllum rökum þeirra eru tvær hliðar. Það
er að segja, það er hægt að snúa hverri árás þeirra mjer
í hag, sjerðu. Og jeg skal svei mjer nota mjer það ...
Jeg verð samt sjálfsagt settur í fangelsi. Ef tilviljunin
hefði ekki bjargað mjer hefði jeg sjálfsagt lent í fang-
elsinu undir eins í dag. En þetta skiftir engu, Sonja. Jeg
sit inni svolítinn tíma og þá verða þeir að láta mig laus-
an, því að þeir hafa^ enga almennilega sönnun og skulu
enga fá, því heiti jeg. Það er ekki hægt að dæma nokk-
urn mann með þeim gögnum, sem þeir hafa í höndunum.
Jæja, hvað um það. Jeg segi þjer þetta svona hinsegin,
til þess að þú skulir vita það ... Jeg skal koma því svo
fyrir, að mamma og systir mín trúi þessu ekki og beri
engan kvíðboga fyrir því. Það er reyndar svo að sjá, að
sjeð sje fyrir systur minni og þá reyndar mömmu líka.
Svona liggur í málinu. Vertu annars vör um þig. Ætlarðu