Lögrétta - 07.01.1931, Qupperneq 3
4
LÖGRJETTA
nöp við kenningar og störf kirkj-
unnax, eða preSta, þá má það
ekki verða að þvílíkri ástríðu, að
sannleikanum sje raunverulega
hallað þess vegna, enda er það
nú orðið gagnslaust til þess að
afla sjer hylli, því þjóðin, yfir-
leitt, metur þá ekki nú orðið
menn að meiri, sem altaf, bæði
í tíma og ótima, eru að hnjóta
í kirkju og kennimenn, — hún
er nefnilega sjálf að hætta því. —
Það skemdi fyrir mjer þenna, að
öðru leyti góða og greinilega
fyrirlestur prófessors Nordals,
að hann ljet þessa ástríðu hlaupa
með sig í gönur. Og það særir
mest, að slíkt kemur fyrir, þeg-
ar það er vafið inn í það, sem
annars er vel sagt.
Þó þessi fyrirlestur Nordals
kæmi mjer til þess að rita grein
þessa, þá eru ummæli hans ekki
þau einustu eða verstu orðin,
sem sögð hafa verið um kirkju
vora og það þann dag í dag, en
jeg vil nota tækifærið, til þess
að biðja menn að yfirvega með
rjettsýni, hvort kirkjan eigi slíka
dóma skilið, hvort hún, þrátt
fyrir sína galla, — ekkert er
fullkomið á jörðu hjer —, eigi
ekki fremur lof en' last skilið
hjer á okkar landi og það næst-
um hvaða öld sem vjer lítum á.
Eða skyldi það vera hyggilegt
að vera að lasta þá stofnun eða
draga úr virðingu manna fyrir
henni, sem þó enn í dag er sterk-
asta vömin gegn því að þjóð vor
komist á glapstigu æsinga og of-
stopa, er vjer þó vitum hverjar
afleiðingar slíkt hefur fyrir þær
þjóðir, þar sem slíkt kemst í al-
gleyming, og það einkum nú, er
vjer sjáum aðrar þjóðir Evrópu
vera að sligast undir þessu oki?
Hitt væri eflaust hagkvæmara
nú á dögum, að allir góðir og
gætnir menn reyndu að afsaka
og lagfæra það, sem kirkju vorri
er áfátt: reyndu að bæta svo
kjör starfsmanna hennar, að þeir
gætu lagt fram óskifta krafta
sína til þess að gera hana, nú og
í framtíðinni, að þeirri hjálpar-
hellu fyrir þjóð vora og land,
sem hún á að vera og eiginlega
hefur verið um liðnar aldir;
reyndu að afstýra því, að ríki og
kirkja þurfi að skilja, sem hlýt-
ur að bera að, ef ríkið ekki get-
ur kostað kirkjuna, eða borgað
svo mörgum starfsmönnum við
hana, að að gagni komi, því þjóð-
in vill auðvitað ekki hafa þá
starfsmenn á fæði til lengdar,
sem hún engin not hefur af, en
sem stendur er það víst ekki
happasælt að ríki og kirkja þurfi
að skilja, glundroðinn er nógur
samt bæði innan kirkjunnar og
í þjóðfjelaginu. »
Þetta geta þó allir gjört, hvað
sem fjárhagsástæðum líður, þeir
geta hætt að hnýta í presta og
kirkju að ástæðulausu eða af
sýnilegri óvild; geta hætt ( að
draga úr þeirri litlu virðingu,
sem þjóðin enn þá ber fyrir
þessari stofnun sinni, enda þsetti
mjer sennilegt, að þeir sem gera
það í dag muni áður en langir
tímar líða óska þess, margir
hverjir, að kirkjan með kenning-
um sínum um kærleika, umburð-
arlyndi og mildi hefði meiri á-
hrif á þjóðina en hún hefur nú
og lítur út fyrir að hún hafi
næstu árin, ef ekki breytist til
batnaðar og það bráðlega.
Kirkjan þarf að fá eldheita á-
hugamenn, sem vilja og geta
lagt fram alt sitt starf í hennar
þjónustu; þarf dugnaðar- og
eljumenn, sem ekki þreytast á
að beina mönnum á farsældar
brautir rjettsýni og friðar; þarf
slíka leiðtoga — óháða einstakl-
ingum —, sem hafa áræði til
þess að kenna Guðs orð rjett og
hreint, sem með festu og ró geta
aukið veg kirkju lands vors og
sem fyrir trú sína og samfjelag
við Drottinn geta haft víðtæk
blessunaráhrif á hugi manna,
svo bróðurelskan nái að vaxa í
þjóðfjelagi voru og kærleikur-
inn fái yfirtökin í sálum allra
landsmanna. Þá yrði landi voru
borgið og farsæld biði eftirkom-
enda vorra.
Guðm. Einarsson.
----JX----
Til þess að hægt verði að haga flutningi tilbúins áhurðar til
landsins næsta vor á sem hagkvæmastan og ódýrastan hátt,
verðum vér ákveðið að mælast til þess að
allar áburðar-pantanir séu komnar í vor-
ar hendur fyrir febrúarlok 1931
Eins og undanfarið tökum vér á móti pöntunnm frá
kaupfélögum, kaupmönnum, búnaðarfélögum og hreppsfélögum
en alis ekki frá einstökum mönnum.
x r
pr. Aburðarsala ríkisins
Samband ísl. samvlnnufélaga
Tilbúinn áburður. Lögrjetta vill
vekja athygli á auglýsingu S. 1.
S. um pantanir á tilbúnum á-
burði, á öðrum stað í blaðinu. Er
áríðandi fyrir S. 1. S. að fá á-
kveðnar áburðarpantanir svo
snemma vetrar, að hægt sje 1
tæka tíð, að fá fullt yfirlit yfir
áburðarþörfina á komandj vori.
„Óðinn“ Síðara hefti 26. árg.
var sent með póstum út um land
í byrjun desbr. Þar í er fram-
hald æfisögu sjera Fr. Friðriks-
sonar, För til Noregs, eftir sjera
Hallgrím Thorlacíus í Glaumbæ,
og fjöldi mynda og greina um
einstaka menn.
Glímufjelagið „Ármann“ á 25
ára afmæli í dag og minnist þess
með veitsluhaldi á Hótel Borg. t
fjelaginu er nú um 800 manns,
karlar og konur, og hefur það
lengi haft mikil áhrif á íþrótta-
lSf bæjarins og alls landsins.
Lengi var fjelagið aðeins glímu-
fjelag, en nú eru iðkaðar þar
margskonar íþróttir/ Formaður
er nú Jens Guðbjömsson.
Björgunarbringur frá togaran-
um Apríl fanst nýlega á Vattar-
nesi við Reyðarfjörð.
Morten Ottesen er nýlega kom-
inn úr ferð til Rússlands, dvaldi
um tíma í Lefiingrað, Murmansk.
Arkangelsk og Moskvu, í verslun-
arerindum. Síðastliðinn sunnudag
flutti hann fyrirlestur um Rúss-
land, fróðlegan og áheyrilegan.
Sagði hann að almenningur í
Rússlandi fylgdi með mikilli at-
hygli 5 ára áætluninni og hefði
áhuga á, að hún kæmist fram, en
nú er aðeins fyrsta ár áætlunar-
tímans um garð gengið. Hann leit
svo á sem ráðstjórnin væri föst í
sessi. Bær er nú risinn upp á
Múrmansströndinni, við norður-
enda járnbrautarinnar frá Lenin-
grað, og eru þar 25 þús. íbúar.
Þar er nýgerð hafskipahöfn og
eru Rússar að koma þar upp tog-
araflota. Ganga nú þaðan 40 tog-
arar, vel búnir, en 60 nýir eru í
smíðum í Þýzklandi. Er þetta
eina höfnin við Norður-Rússland,
sem er ísfrí á vetrum.
Samkepnisprófið í heimspekis-
deild Háskólans er nú svo langt
komið, að keppendur hafa skilað
TlU LEIKRIT
eftir Guttorm J. Guttormsson
fást hjá öllum bóksölum.
rítgerðum sínum (Um frjálst
verkafólk á Islandi til siða-
skifta). Þessir 5 keppendur af-
hentu ritgerðir sínar dómnefnd-
inni á tilsettum tíma á gamlárs-
dag:Ámi Pálsson, Guðbrandur
Jónsson, Hallgrímum Hallgríms-
son, Sigurður Skúlason og Þor-
kell Jóhannesson. Barði Guð-
mundsson hefur engri ritgerð
skilað og Jón Dúason hefur ekki
heldur skilað ritgerð um efni
það, sem fyrirsett var, en mun
hinsvegar hafa sent dómnefnd-
inni ritgerð um annað efni. Dóm-
nefnd mun sennilega ljúka yfir-
ferð sinni yfir ritgerðimar um
mánaðamót og hefjast þá fyrir-
lestrar og líklega verður kepn-
inni lokið um missiraskifti há-
skólans í febrúar.
Óspektir nokkrar hafa verið
hjer í bænum að undanfömu,
mest af völdum kommúnista, og
hófust þær með ryskingum á
bæjarstjórnarfundi 30. f. m. milli
lögreglumanna, sem til voru
kvaddir af lögreglustjóra, og
nokkurra utanaðkomandi manna.
Var mikil þröng á áheyrenda-
svæðinu, svo að eitthvað af á-
heyrendunum lenti inn á svið
bæjarstjóraarinnar. Lögreglu-
þjónamir voru þá kallaðir inn til
þess að koma þeim burtu þaðan.
En þá sló í bardaga og voru lög-
regluþjónamir ofurliði bomir og
sumir meiddir. Bekkir voru
brotnir, flöskum og vatnsglösum
fieygt um salinn og borð brot-
in. Að sjálfsögðu varð bæjar-
stjórain að slíta fundi. Tilefnið
til uppþotsins var, að menn með-
al áheyrendanna kröfðust, að
teknar yrðu til umræðu á fund-
inum kröfur þeirra um atvinnu-
bætur, en samkvæmt dagskrá
fundarins var rætt þar um fjár-
hagsáætlun bæjarins. Hafði at-
vinnubótamálið verið rætt í fje-
laginu Dagsbrún skömmu á und-
an og þar samþyktar tillögur í
því máli. En engan þátt átti
stjóm þess fjelags eða for-
GLÆPUR OG REFSING
(Fyrra bindi)
hin fræga saga Dostoj-
evskijs, í þýðingu eftir
Vilhjálm Þ. Gíslason, fæst
nú hjá bóksölum og kostar
aðeins kr. 7.50.--------
sprakkar þess samt í aðsúgi
þeim, sem gerður var að bæjár-
stjórninni. Hafa fjórir menn,
sem fyrir þeim aðsúgi stóðu eða
talið var, að valdir hefðu verið
að meiðslum í bardaganum, verið
teknir fastir, og er mál þeirra
undir rannsókn enn. Sagt var
síðastl. laugardag, að ráðgerð
væri aðför að fangahúsinu til
þess að ná þeim út, en ekkert
varð samt af henni.
Atvinnuleysi er farið að sverfa
nokkuð að hjer í bænum, og
sjálfsagt er, að þeir, sem ráðin
hafa, sinni því máli. En ærsla-
gangur, eins og sá, sem hjer hef-
ur verið frá sagt, er engum til
gagns.
Ný heildsöluverslun. Vilhelm
Knudsen, sem lengi hefur verið
verslunarfulltrúi hjá firmanu
Nathan og Olsen, hefur nú um
áramótin stofnað nýja heildsölu-
verslun, sem hefur bækistöð sína
í húsi Braunsverslunar við Aust-
urstræti.
Garnavinnudeilan. Henni lauk
svo rjett fyrir áramótin, að S. I.
S. fjelst á að gjalda verkakon-
unum þar kaup, sem Verkamála-
ráð Alþýðusambandsins krafðist,
þ. e. 80 aurar um tímann, í stað
70 aura, sem þær vora ráðnar
fyrir.
Amerísk flugvjel lagði á stað
frá Curtiasflugstöðinni rjett fyr-
ir síðustu helgi og ætlaði til Par-
ísar, með viðkomu á Bermuda og
Azoreyjum. Hafði flugvjelin um
200 punda flutning meðferðis. En
nýlega komin fregn segir, að hún
hafi orðið að snúa til baka og
hafi með naumindum náð aftur
til stranda Ameríku, og voru
flugmennimir þá úrvinda af
þreytu.
Prentsmiðjan Acta.