19. júní - 01.01.1920, Side 2

19. júní - 01.01.1920, Side 2
50 19. J Ú N 1 var um það leyti breytt í samskóla, fyrir drengi og stúlkur; slíkt fyrir- komulag þektist þá ekki og þótti næsta djarft, enda spáðu margir illa fyrir því. Reynslan varð öll önnur og nú eru samskólarnir hvervetna koinnir á og enginn mælir framar á móti þeim. Samhliða kennarastarfinu hélt Ellen Key á þeim árum fyrirlestra, bæði fyrir ungum stúlkum af mentuðu stéttum borgarinnar: lista-menningar- og bókmentasöguiegs efnis, og í hinu svonefnda »AlþýðufræðsIufélagi«. Fékk hún brátt orð á sig sem fyrirlesari og áheyrendur hennar skiftu tugum þúsunda. Liðu svo mörg ár að ekk- ert orð kom af hennar vörum, er hneykslum gæti valdið. Um þetta leyli, 1880—1890 hafði framþróunarkenningin borist til Sví- þjóðar og tóku ungir mentamenn henni opnum örmum. En þeir sem af eldri skólanum voru, kunnu þessu illa, komst svo langt að beitt var líkamlegum refsingum og fangelsis- vist, til þess að þagga niður i flylj- endum hínna nýju kenninga. En — á þessum gullaldri stjórn- málamollu og óheiðarleika, þegar vin- ur þekti ekki vin, og vísindin rétlu hindurvitnunum bróðurhönd. þegar hugsana og málfrelsi var fótum troð- ið, þá rauf róleg en djörf rödd kæf- andi þögnina. Það var Ellen Key, sem talaði máli menningarinnar og réttlætisins og hóf mótmæli móti þvi, að fjórir ungir menn höfðu verið settir í fangelsi fyrir skoðanir sínar. í deilum um andleg efni, átti ekki að nota önnur vopn en andleg. Hún sýndi fram á live ósæmandi þau lög væru er leyfðu önnur vopn. Án þess að verja hina brotlegu eða áfellast þá, er með völdin fóru, talaði hún djarflega máli andlegs frelsis. f*ar með var teningunum kastað. Ellen Key var nú kominn inn í ólg- andi röst, sem hún ekki átti aftur- kvæmt úr. Og frá því hún árið 1889, eftir tilmælum stúdentafél. »Verðandi«, hélt tvo fyrirlestra, er jafnframt voru prentaðir, um þessi brennandi þrætu- efni, hefir hún tilheyrt hinu opinbera lífi og gengið þess þyrnum slráða veg. Það, sem knúði hana, sem hing- að lil hafði lifað í kyrþey og að eins neytt sinna miklu hæfileika og þekk- ingar á fræðslusviðinu, út á þessa braut, var sannleiksást hennar og ó- kúgandi frelsistilfinning. Um sama leyti hélt hún fyrirlestra »um kosn- ingarrétt kvenna« í kauphöllinni í Stokkhólmi. Áheyrendurnir voru ein- göngu karlmenn. Var Ellen Key fyrsta konan, er hér á Norðurlöndum talaði opinberlega um það efni. Upp frá þessu er varla nokkurt það mál uppi meðal þjóðar hennar, að eigi sé leitað álits hennar og gef- ur hún það jafnan djarflega, án þess að skeyta um, hvort betur líki eða ver. Og í hvert sinn er eitlhvað var, er særði réttarmeðvitund hennar, eða eillhvað það, er misbauð því, er fyrir henni hafði heilagt gildi, hefir hún kom- ið fram og talað máli þess er hún vissi réttast. Þannig var það um kvenna- hreyfinguna. E. K., sem bæði vegna stöðu sinnar og skoðana var í þeirra tölu, er þráðu að konur fengju fult at- hafnafrelsi, gat eigi átt samleið með þeim konum, er á fyrstu árum báru

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.