Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Njörður


Njörður - 26.11.1916, Blaðsíða 4

Njörður - 26.11.1916, Blaðsíða 4
1B6 NJÖRÐUR. Ónotalegt. Yið undirritaðir komum að Arn- gerðareyri 15. þ. m. og báðum þar gistingar, því ferðinni var heitið út Djúpið með bátnum „Guðrúnu“ daginn eftir. Yar okkur neitað um hana bæði heima á bænum og eins hjá versl- unarstjóranum niður við sjóinn. Mundum við þó hafa gjört okkur ánægða með húsaskjól einsamalt, þó eigi hefðu verið rúm til. Detta kemur sér mjög illa fyrir ferðamenn og sýnist ekki mega eiga sér stað. Sjálfsagt væri að borga slíkt fullu verði, eins og hvern annan nauðsynlegan beina, en þyki hús- ráðendunum ekki tilvinnandi að láta gistingu í tó af eigin hvötum, ætti sýslunefndin að stuðla til þess að þarna fengist gisting. Margur þarf hennar með á Arn- gerðareyri og þó það hafi ónæði og umstang í för með eér fyrir heimilin, er nauðsyn ferðamanna svo mikil, að úr henni verður að bæta á einhvern hátt. Manni bregður við eftir þær við- tökur sem tíðastar eru á sveitabæj- um, og þó ekki sé unt að. annast gesti jafnvel þar sem eins marga ber að garði og á Arogerðareyri, hæfir ekki að neitað só um húsa- skjól. Þessar línur óskum við að blað- ið Njörður láti berast til viðkom- enda. ísafirði, 17. nóv. 1916. Sigurlangiir Guðjónsson, Eyjum, Páll Jóharmsson, Reykjavík, Páll Guðjónsson, Kaldbak. BEST er að tryggja líf sitt í lifsábyrgðarfélaginu Carezrtia. Umboðsmaður fyrir Isafjörð og grend E. J. Pálsson. Lóða-taumar 09 ör.glar fást í verslun S. Guðmundssonar. Ó. Steinbach taimlæknir. Tangagötu 10, ísafirði. Sími 46. Erfingj ainnköllun. Erfingjar Guðmundar heitins Jónssonar bæjarpósts á ísafirði, er andaðist 21. nóvbr.m. 1916 gefi sig fram og sanni erfðarétt sinn fyrir undirrituðum skiftaráðanda. Bæjarfógetinn á ísafirði, 22. nóv. 1916. Magnús Torfason. REGNKAPUR FYRIR DÖMUR OG HERRA sérlega smekklegar og góðar. Miklar birgðir nýkomnar í A^ELS-BÚÐ. Guðmundssonar Einnig mikið úrval af Enskum liúfum, Flibhum, Slaufum, Brjóstum, Manchettum 0. fl. , Þér ættuð að líta á klæðnaðinn sem ég býð yður fyrir afarlágt verð, áður en þér festið kaup annarstaðar. __ Notið tækifærið! Sparið peninga yðar og kaupið klæðnað þar, sem hann er fallegastur og haldbestur, sem er aðeins í Verslun S. Guhmundssonar. XDr ezicfjafob og1 Telp tjölbreyttast og best í Axels-buð. m I verslun S. er mikið úrval af J&rllsl0e<ðzia,c5i fyrir karlmenn. Löða-önglar d.uki hvergi ódýrari en í verslun Guðjóns Jönssonar. tlvergi jafn mikið úrval af stumpasirsi, refnaðarvöru og færeyiskum peisum sem í verslun S. Guömundssonar. Prentsmiðja Njarðar. Vegna ófriðarins mikla eru marg- háttaðir örðugleikar á að út- vega ýmislegt það, er með þarf til mótorsmíða. Þeir, sém ætla að fá hjá mór Alpha-mótora eru því vinsamlega beðnir að panta þá í tíma (helst með 7 mánaða fyrirvara. ísafirði, í febr. 1916. Helgi Sveiusson.

x

Njörður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Njörður
https://timarit.is/publication/200

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.