Njörður - 13.05.1917, Blaðsíða 3
NJÖRÐUR.
67
Hugsið fyrir framtidinni
með því að tryggja lif yðar
lífsá/byrgðarfél. jlDarLmarbÁ
Það er áreiðanlegasta og ódýrasta lífsábyrgðarfélagið á Norðurlöndum.
Vátryggingarfjárhæð 90 miljónir; eignir 21 miljón.
Nýtísku barnatryggingar.
Rikissjóður Dana tryggir í þvi fjölda embættismanna sinna.
Félagið hefur varnarþing í Reykjavík.
Umboð fyrir Vesturland hefur
Marís M. GilsfjörJ.
Yerslun Jóns Hröbjartssonar
Hafnarstræti 32
minnir á sinar góðu og fjölbreyttu vörur, meðal annars:
LEIRTAU, svo sem: Bollapör, Diska, Mjólkurkönnur,
Spölkomur o. fl.
Myndaramma, Albúm, Póstkort, Skrifpappír.
KOtARA (þríkveikjaða), Brauðhnífa, Þvottabretti, Sagir,
Sporjárn, Naglbítar, Stofuskrár.
Bátasaumur (ný kominn).
Niðursoðna ávexti, Græmar baunir, Niðursoðna mjólk, Kúrennur,
Makkaronier.
Farva i smá dósum.
Reyktóbak, Vindla.
SKÓFATNAÐ, Barómeter, Betrek, Email. katla og könnur,
Vatnsfötur, Skóflur.
En aðal-vörubirgðarnar eru þó
Álnavara 0g nærfatnaður.
Af álnavöru vil ég sérstaklega benda á: Hvít léreft (bleikjuð og
óbleikjuð), Sængurdúk, Handklæðadregil, Piquet, Kjólatau, Bommesí,
Tvisttau, Lasting, Stakkatau, Plyds, Silki o. fl.
Þetta er handahófs upptalning. Margar fleiri góðar og gagn-
legar vörur til. Eg vona þess vegna, að menn, sem annars eiga erindi
i kaupstað skifti við mig. — Ekki er að fráfælast búðina því „Búðin
er bæði björt og fín“ eins og skáldið kvað.
Með virðingu og vinsemd
Jón Uróbjartsson.
Göð stofa til leigu frá næstu
Árvakur
nefnist félag drengja og unglinga
hér í bænum; var það stofnað í
vetur og er því enn á bernsku-
skeiði, en virðist næsta líklegt til
þroska.
Tilgangur þess er, að efla dáð
og dug unglinganna, jafnt i hönd
sem huga, og jafnframt að kenna
þeim samvinnu og samheldni.
Þó er stefnuskrá þess eigi jafn
fjölbreytt og ungmennafélaga al-
ment.
Tel ég það stóran kost.
Félagar eru milli 40 og 50.
Hafa þeir i votur haldið mál-
fundi, safnað nær 1000 kr. í sjóð
og stundað líkamsæfingar — glímu
og leikfimi — af mesta kappi.
Alt þetta hafa þeir verið einir
um, þvi fullorðnir hafa eigi rótt
til inntöku í fólagið.
Er það sjálfsagt rétt ráðið og
viturlega, enda hafa þeir fullsann-
að, að þeir eru sjálfbjarga ýmsum
öðrum fremur.
Síðastliðinn þriðjudag sýndu þeir
islenska glímu í Templarahúsinu;
fengu allir ókeypis aðgang meðan
húsrúm leyfði. Er það hin mesta
nýlunda hór.
Glímumenn voru í tveim hóp-
um, 8 smádrengir í öðrum, en 10
stærri í hinum; þar glímdiogmeð
sá, sem fræknastur var í smádrengja-
hópnum og lagði þar margan sór
lengri.
Glímdu þeir yfirieitt vel, og
nokkrir ágætlega; þó virtust sum-
ir um of laushentir og hlífnir við
að fylgja eftir brögðum, varð þvi
glíman losalegri en ella.
Aftur sást enginn nota fólsku-
tak, bolast eða níðast á bragði; er
það vel farið og sýnir að þeir
kunna glögga grein glímu og
stympinga.
Smærri brögð mörg voru prýð-
islaglega lögð og vel við þeim orð-
ið, en flestir virtust hálfragir við
að nota stærri brögðin; þó eá ég
nokkur ljómandi falleg klofbrögð
Og einn rösklegan hnykk. —
Áhorfendum þótti skemtunin
bæði ódýr og góð, enda þökkuðu
þeir hana óspart með lófaklappi.
Sú er von mín og margra ann-
ara, að Árvakur eigi eftir að leika
hér listir sýnar oft enn, og verði
þroski hans slíkur sem byrjunin
bendir til, tel ég bænum að hon-
iUm hinn mesta feng. H. G.
SKIPAKOMUR.
Flora kom hér í norðurleið 10.
þ. m. og fór aftur að kvöldi sama
dags. Með henni var fjöldi far-
þega til Norður- og Austur-lands,
mest mentaskólapiltar og annað
námsfólk úr Reykjavik.
Hingað komu: Sigfús Daníels-
son verslunarstj., Jón Grimsson
verslunarstj. og Einar Thorsteins-
son.
S s. Dana og seglskipið AUiance
komu hór i síðustu viku.
Taka þau bæði fisk hjáÁsgeirs-
verslun og flytja til Spánar. —
mánaðamótum.
Leigist aðeins einhleypum.
Afgreiðslan visar á.
RjÚpUP á boðstólum; verð 35
aurar.
LÁTINN
er nýlega Jón Guðmundsson á
Firði í Múlasveit.
Hann var kominn nálægt sjö-
tugu.
Yar sæmdarmaður í hvivetna.