Njörður - 31.07.1917, Blaðsíða 1

Njörður - 31.07.1917, Blaðsíða 1
| Verð livors ársfjórð- | | ungs (15 blöðj kr. 0,75 | I er greiðist fyrirfram. : I Erlendis 4 kr. árg. í -+3 Ritstjóri: síra Guðm. Ruðmundsson. | : | Kemur vanalega út : | einu sinni í viku og : : aukablöð við og við. : r:i|»l;il!!l!l|!il:Kil|!!tlll"|:i|llllil:i|ii|llll|:i|.llill!|!'lnlii|;!|illlll,«HI!it? II. ÁRGr. ísafjörður, 31. júlí 1917. M + Alþingismaðup Skúii S. Thoroddsen látinn. Þá sviplegu sorgarfregn höfum vér að færa iesendum vorum, að Skúli alþingismaður Thoroddsen er látinn. Hann andaðist i Reykja- vik aðfaranótt 24. júli, eftir stutta legu í taugaveiki. Ætt og ævi þessa unga manns er öllum kunn. Hér var hann fæddur á Isafirði, 24. mars 1890. Hann varð stúdent vorið 1908, tók heimspekispróf í Kaupmanna- höfn 1909 og las þar lög uns hann hvarf heim til háskóla Islands 1912. Þar lauk hann laganámi vorið 1914 með 1. einkunn. Yfirdóms- lögmaður varð hann 1915 en kjör- inn alþingismaður í Norður-ísa- fjarðarsýslu, eftir föður sinn, haust- ið 1916. Skúli heitinn var að því leyti líkur föður sínum, að hann var á- gætum gáfum gæddur, djarfmælt- ur og vel máli farinn, frjálslynd- ur og unni ættjörð sinni vegs og gengis. Hann var vel meðalmaður á hæð, þreklegur á velli, þekkilegur í and- liti, manna best hærður. Skúli heitinn var vinsæjl meðal skólabræðra sinna og hér á Yest- fjörðum erfði hann traust og vin- sældir föður síns. Allir þessir menn harma ævilok Skúla Thoroddsens og taka þátt í þeirri þungu sorg, sem kveðin er að móður hans, frú Theodóru Thor- oddsen, margreyndri og sorg- mæddri. Andláts hans var minnst hátið- lega í sameinuðu þingi 24. þ. m. Flutti forseti sira Kristinn Daní- elsson nokkur minningarorð um hann, og var þinghlé gert þann dag. Hér, á æskustöðvum hans, blöktu sorgarfánar, þegar lát hans spurðist. T'rsLttiboð til þingmennskn. -«-- Eg undirritaður mun bjóða mig fram til þingmanns fyrir Norður- Isafjarðarsýslu við kosningu þá, sem fram á að fara í næsta mán- uði. ísafirði, 27. júlí 1917. Guöm. Guðmundsson past. emerit. Bonding. Eins og sést á auglýsingu bér að framan, hefur ritstjóri þessa blaðs ásett sér að bjóða sig fram til þingmanns fyrir Norður-ísa- fjarðarsýslu. Sökum þess að fram- boðsfrestur ekki er lengri en til 8. eða 9. næsta mánaðar, hefur ekki fengist ráðrúm til, að bera þann ásetning undir álit margra sýslubúa. Njörður gjörir ráð fyrir, að lang- mestum hluta kjósenda sé hugar- haldið að senda öruggan sjálfstæð- ismann á þing. Lesendur blaðsins vita, að rit- stjóri þess hefur þetta til að bera; líka mega þeir hafa fyrir satt, að hann vilji í hvívetna stunda gagn héraðsins og halda því til vegs og virðingar. Hann vonast ekki eftir mikilli mótspyrnu frá öðrum en stöku heimastjórnarmönnum. Af þessum mönnum er nógu fátt i Norður-ísafjarðarsýslu til þess að þeir hverfi sem reykur fyrir gusti góðra manna. Þeir, konur jafnt sem karlar, geta þvi ráðið hverjum skulu feng- in í hendur vopn hins fallna full- trúa. Þeim er sæmd sem hlýtur, en vandi vel að bera. Ný komið í verslun Guðrúnar Jónasson margar teg. af þvottasápu svo sem: Sólskinssápu og Kreolinsápu> Einnig mikið úrval af handsápum. Þökk. Kæra þökk votta ég hérmeð öllum, sem heiðruðu útför Jóhann- esar Póturssonar manns míns og ekki síður þeim, er með heimsókn og ljúfum viðræðum styttu honum stundir í sjúkleik hans. ísafirði, 25. júli 1917. Helga Helgadóttir. Sú fregn berst nú út, að Ame- ríkumenn banni alla verslun við Norðurlönd. Eigi er víst hvort þeir telja ís- land eitt af þeim, en sé svo, er það enn ein þokkaleg uppskera af sambandi voru við Dani. Sagt er einnig að her Rússa sé allur á flóttaferli, og má það verða upphaf stórra breytinga á aðstöðu Þjóðverja. SKIPAKOMUR hafa verið óvenjulega tíðar nú undanfarið. Bisp kom að sunnan 24. þ. m., setti hér upp 300 smál. salts og 1300 tómar tunnur, hélt síðan til Siglufjarðar. Lagarfoss kom að sunnan 25. með fáein steinolíuföt og nokkuð af matvöru frá lahdsstjórninni; átti hann í fyrstu að fara beint hóðan vestur um haf, en svo varð þó eigi, heldur fór hann suður á leið, en kom við á Sandi og lét þaðan í haf. Sama dag kom Botnia hér á norðurleið frá Reykjavík, hafði hér nær enga viðdvöl. Jóh. kaupm. Þorsteinsson fekk 4. skipið nú á dögunum, er það viðarskúta frá Svíþjóð. Ólafur Sigurðsson fekk og segl- skip nýlega með tunnur o. fl., einnig kom seglskip með tunnu- efni til Víkings.

x

Njörður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Njörður
https://timarit.is/publication/200

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.