Njörður - 27.02.1918, Síða 1

Njörður - 27.02.1918, Síða 1
r*..................... : : Verð &rg. er 3 kr. : l innanlands, en 6 kr. ; i erlendis. s Z B t Gjaldtlagi 1. júni. | NjðrOnr. -»3í Ritstjóri: síra Guðm. Guðmundsson. &»- Kemur að jafnaði át j einu sinni i viku eða § svo oft sem ástæður f leyfa. Jll.M .1 ■ I I . ■ 1 . I I I ■ I 1 I '1 I . I ■ I I .” III. ÁRG. ísafjörður, 27. febrúar 1918. M 4. Höggur sá sem hlífa skyldi. Bjargráðanefndir eru kjörnar til að halda hlífiskildi yfir mönnum, einkum þeim fátæku og úrræða- litlu, gegn aðsókn skorts og dýr- tíðar. Sfcarf þeirra er vandasamt og að mörgu ilt viðfangs. Er þess engi von, að þær geti komið öllu því til leiðar, sem þörf krefur. Það er þess vegna auðsætt, að ekki má heimta of mikið af bjarg- ráðanefndunum, eða ætla að þær geti úr öllu bætt. En hins vegar má heirnta, að þ>að sein þær gjöra, gjöri þær vel. — Hér í bænum höíúm við bjarg- ráðanefnd, skipaða fimm mönnurn. Það sem af er árinu hefur hún ekki getað starfað i mörgu til hags- bóta; vantar bæði til þess tíðarfar og tækifæri. Þó má hér tvent nefna sem nytsemd er i, rekstur námunnar á Grili og grjótflutninga hér ofan úr fjallinu. Þetta hvortveggja horfir til bóta. Náman veitir nokkrum mönnum stöðuga atvinnu og aflar fleirum eldsneytis. Grjótflutningurinn er nálæg og handhæg atvinna fyrir bæjarmenn, °g gæti, í bærilegri tíð, orðið mörg- um að góðu liði og bænum síðar ,að ýmsu gagni. En evo illa hefur til tekist, að bjargráðanefndin hefur blandað hvortveggja þetta þungum meinum. Yið grjótvinnuna hefir hún borg- að mikils til of lágt kaup, en sett verðið á surtarbrandinum drjúgum ■of líátt. Þetta er illa ráðið, og mun að illu verða. Þá vinnu sem bærinn veitir á hann ætíð að borga sæmilega, en einkum þá vinnu er hann veitir í bjargráðaskyni. Nú getur kaup við útivinnu ekki talist sæmilegt, sé það lægra en '75-80 aurar um tímann, en í grjótvinnu bjargráðanefndar hefur :það ekki verið nema 60- 65 aurar. I i! | I s I fcs Verslun. Til sölu er verslun hér í bænum. Ritstjóri Njarðar visar á. Slíkt kaupgjald þætti smátt skamtað af einstökum mönnum, þótt ekki hefði það á sér neinn bjargráðablæ. Yerkmönnum mun það reynast alt annað en bjargvænlegt síðar meir. Það bregst varla, að hinir stærri vinnuveitendur bæjarins munu þykjast gjöra vel, ef þeir eæma fólk sitt jafn háu kaupi og bjarg- ráðanefndin sjálf galt borgurunum við ervitt og kaldsamt verk. Getur þá hver maður séð hve vel er að verið. — Líkt er farið með verðið á surt- arbrandinum. Af honum kom bátsfarmur 22. þ. m. og var seldur á 18 kr. skp. Þettfi er félitlum engi stór feng- ur, meðan kostur er á 50 kr. kolum. Um þá bar þó fyrst að hugsa. Mátti það gjörast með tvennu móti: Annað hvort með því að selja surtarbrandinn allan með vægu verði 12—15 kr. og láta þá fátæk- ari sitja fyrir kaupum á honum, eða hafa tvenskonar verð t. d. 10 kr. og 20 kr. eða 12 og 24, eftir því sem henta þætti og brandur- inn reyndist móts við kol. Átján kr. verð á brandinum, nokkuð snjóugum, án alls grein- armunar, likist meir algengri versl- un en bjargráðum. Er með þessu verði öðrum gefið dæmi, sem seljendum rnun þykja betra að fylgja, en kaupendum við að búa. — Grjótvinnan hefur staðið stutt og surtarbrandssalan ný byrjuð. Er þvi auðvelt fyrir bjargráða- nefnd að breyta um til batnaðar, TVý komið í verslun Guðrúnar Jónasson margar teg. af þvottasápu svo sem: Sólskinssápu og Kreolínsápu. Einnig mikið úrval af handsápum. Sykur. I sölubúð Bökunarfélagsins fæst: molasykur, kaffi, kaffirót, mjólk í dósum (Hebe), handsápa, te o. fl. bæði með kaupgjaldið og brand- verðið. Henni er lika innan handar, að efla sig til þess með samþykki bæjarstjórnar í heild sinni, efþess þykir þurfa. Skyldi svo fara, sem ekki þarf ráð fyrir að gjöra, að bæjarstjórn- in vilji ekki veita samþykki sitt til frekari bjargráða í þessum efn- um, heldur en þeirra, sem hér hafa verið gjörð að umtalsefni, er nefnd- in úr sökinDÍ. Heitið hreif. Á siðustu forvöðum, 15. þ. m., fór ísinn af firðinum, svo bátunum var út fært. Hafði vindurinn, undan farna daga, leitað alla vega lags með að losa isinn. Munu menn oftar heita á Sam- verjann. Komnir suður. Bátarnir héðan eru nú komnir suður nær allir. Hafa fengið verstu hrakreisu, flestir. Tíðin svo afleit að lán má kalla að ekki olli manntjóni.

x

Njörður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Njörður
https://timarit.is/publication/200

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.