Njörður - 27.02.1918, Qupperneq 3

Njörður - 27.02.1918, Qupperneq 3
NJÖRÐUR. 15 KORH °g ^‘y^z\jLT\xtlcií\jLt\xn. Eftir lok þessa mánaðar verður ekkert af komvöru eða sykri selt, hvorki af bæjarverslun eða kaupinanna hálfu nema samkvæmt seðlum er úthlutaðir verða 28. febrúar. Er öllum heimilisráðendum, konum sem körlum, og þeim sem eru á sjálfskosti skylt að gefa nákvæma skýrslu, að viðlögðu drengskap- arvottorði, um kornvöru- og sykur-birgðir sínar og taka þar seðla sem þeim verða úthlutaðir og vandlega ber að geyma. Seðlaúthlutunin fer fram 1 bárnaskólanum og byrjar kl. 10 árdegis. Samkvæmt reglugjörð 23. janúar 1918, varða brot gegn þessu alt að 10 þúsund króna sektum. Bæjarfógetinn á ísafirði, 25. febrm. 1918. Magnús Torfason. seljandi gefið kaupanda viðurkenn- ingu fyrir að hann eigi óafhent það sem vantar á að hann hafi fengið fult kornvörugildi seðilreits- ins (2 V, kílógr.). 12. gr. Kaupmenn og félög, er panta kornvörur og sykur hjá heildsölum innanlands eða landsverslun, skulu senda með pöntunum sínum korn- vöru- eða sykur-seðla, er svara til vörumagns pöntunarinnar. Sé það óframkvæmanlegt vegna þess að pöntun sendist símleiðis eða af því að seðlar eru eigi innleystir, skulu þeir sendir svo fljótt sem unt er. Fyrir seðlasendingar þessar greiða sendendur ekki burðargjald. Eng- ar pantanir má afgreiða án sam- þykkis landsverslunar og skal þess ávalt getið hvort seðlar hafi fylgt pöntun eða ekki þegar samþykkis er leitað. 13. gr. Innflytjendur kornvöru og syk- urs skulu, jafnskjótt og þoir fá þær vörur frá útlöndum, tilkynna landsverslun hve mikið þeir hafi fengið af hverri vörutegund. Mega þeir eigi selja vörurnar nema gegn seðlum, sbr. þó 12. gr. Seðlana skulu þeir senda landsverslun jafn- ótt og þeir fá þá í hendur. 14. gr. Nú telur landsverslun nauðsyn bera til að flytja kornvöru eða sykur frá einum landshluta í ann- an, og skulu þá vörueigendur skyld- ir að hlíta fyrirskipunum þeim, er landsverslun kann að gera um ráðstöfun varanna. 15. gr. Fyrir rýrnun kornvöru og syk- urs við flutning og sölu, eða ef vörurnar verða fyrir skemdum, fá hlutaðeigandi kaupsýslumenn hæfi- lega seðlafúlgu hjá bæjarstjórnum eða hreppsnefndum eftir ákvörðun og fyrirmælum landsverslunar. 16. gr. Bjargráðanefndir skulu hafa á hendi eftirlit með því, að stein- •olíu, sem berst til umdæma nefnd- anna, verði skift niður eftir þörf- um í umdæminu, og ber kaup- mönnum og öðrum, sem hafa keypt steinolíu af innflytjendum, að hlýða fyrirmælum nefndanna um úthlut- un og sölu olíunnar. Hinsvegar verða innflytjendur að hlítaákvörð- un landsverslunarinnar um skift- ing á innfluttri steinolíu milli um- dæmanna. 17. gr. Smjörlíki má ekki selja nema eftir ráðstöfun hlutaðeigandi bjarg- ráðanefndar, sem setur reglur um söluna. 18. gr. Landsverslunin annast allar frek- ari framkvæmdir reglugjörðar þess- arar. 19. gr. Brot gegn ákvæðum reglugjörð- ar þessarar varða sektum alt að 10 þúsund krónum og fer um þau mál sem önnur lögreglumál. 20. gr. Reglugjörð þessi öðlast þegar gildi og er með henni numin úr gildi reglugjörð 11. apríl 1917 um aðflutta kornvöru og smjörlíki, reglugjörðir 18., 21. og 26. apríl 1917 um viðauka við reglugjörð 11. apríl 1917 um aðflutta korn- vöru og smjörlíki, reglugjörð 16. maí 1917 um breyting á reglu- gjörð 26. apríl 1917, reglugjörð 7. ágúst 1917 um úthlutun og sölu steinolíu, reglugjörð 5. september 1917 um notkun mjölvöru og um sölu á landssjóðssykri, reglugjörð 30. nóvember 1917 um frestun á framkvæmd ákvæða um sykurseðla og reglugjörð 14. desember 1917 um afnám ákvæða um höft á bakstri bakara. Þetta er birt öllum þeim til eftirbreytni, sem hlut eiga að máli. í stjóruarráði íslands, 23. jan. 1918. Sigurður Jónsson. Jón Hermannsson. HÚS hefi ég í umboðssölu á rúmgóðum stað í bænum, vandað ogvel inn- réttað, stærð 14X18 álnir, bygt úr steinsteypu. Einnig hefi ég stórt tvílyft timburhús, sterkviðað og alt járn- varið, því fylgir mikið geymslu- pláss og hentug lóð. Marís M. Gilsfjöð. •Teg tek á móti pöntunum á snurpinótum, reknetum og öðru, er að síldarútveg lítur. Fyrirliggjandi hefi jeg síldar- net, segldúk og efni í flögg yfir lóðadufl. Marís M. Gilsfjörð. Nokkur BOLLAPÖR úr kínversku postulíni fæst ennþá í verslun S. Guðmundssonar. '^mt^mmmmmm^^^mm^mmammamm^mmmmmm^mmmmmmrnm Áteiknaðir Borðdúkar, Ljósadúkar, Kaffidúk- ar og Serviettur, ásamt hvítu og mislitu Broclerg-ariai jæst í Dcrsíim 5. <Su$mutt&sfðttar. Kaupendur Njarðar sem skulda fyrir blaðið, eru beðnir að borga það eem fyret.

x

Njörður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Njörður
https://timarit.is/publication/200

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.