Norðri - 30.03.1906, Page 2

Norðri - 30.03.1906, Page 2
52 NOWÐR!. NR. 13 m -- NORÐRI Qefinn út af hlutafélagi. Ritstjóri: Jón Stefánsson. Skrifstofa Hafnarstrœti 3. Prentsmiðja B. Jónssonar. FráAkureyri til Reykjavíkur. Ferðasaga eftir Arna prófast Jónsson. I. Kæri vin! Eg lofaði að skrifa þér fáeinar Iínur, til þ:ss að láta þig vita, hvernig mér liði á leiðinni og ferðin gengi. fJ i þótti óvænlegt fyrir mig, að leggja upp í svona langferð, alla leið landveg, frá Akureyri til Reykjavíkur, um hávet- ur, viku af þorra. E hafði heldur ekki hug til þess, að I - 'gja það nákvæmlega niður fyrir mér, áður en eg hélt á stað, hvaða erf- iðleii; =r væru fyrir á leiðinni, og að nú mund- annað en þá, þegar við fóruin áðtir lessa sömu leið, glaðir og í góð- um i.ig, í sunnan átt og sólskini á sum tdegi. — En það eitt dróg mig til far irinnar, að eg hafði verið kvaddur til að reka nauðsynja erindi, þótt eg finn; lanmátt minn til að Ieysa það svo vel :: hendi. sem eg vildi og vera ætti. — þ. ( var hinn 27. janúar, um morg- uninn að eg lagði upp með póstinum. Mér i rá nú við fyrst í stað, að fara út úr anum og þægindunum, sem eg mæt í hverju húsi hjá ykkur á Akur- eyri. i að var að vísu hreint ogbjart veður, enah; úkið frost(8°R),ogsunnanamrandi, setti egar renningsstrokur fram af fjalla- hyrr . uim. Fönnin, lognfönnin, sem féll dagi i.i áður, lá mjúk og mjallhvít yfir; hafð hún sléttað alt og blindað. Brautin nýja, sem verið er að gjöra út Kræklingahlíðina, var samt uppi. En okkur þótti hún ná heldur skamt, og þegar kom út á Mýrarnar og Mold- hauf i ahálsinn, þá fóru hestarnir að velt- ast itn þúfurnar eins og í fyrstu snjó- um í haustdegi. Því að fram að 15. janú r mátti heita atauð jörð þeunan fá- gæta snjólausa vetur, sem vart hefir komið annar eins í Norðurlandi, næstl. 59 ar, síðan 1856. — En nú setti að með snjóana. Öxnadalur og Öxnadalsheiði var það sem r.g hafði einkum kviðið fyrir á leið- inni. Rað mundi reynast langt og leið- inle; t En það mundi engu vera að kvíð i, þá er það væri unnið, og komið í hi .ir fögru sveitir Skagafjörð og Húi r/atnssýslu. Það eru naumast allir, sem v ta það, að frá Akureyri og í Bakka- sel, ; m er undir Öxnadalsheiði, er 12 tíma lestagangur. Hestarnir óðu fönn- ina hné/.Pað sýndist langt og ömur- legt að horfa fram í dalinn á móti sunn- an nepjunni Rað fór að verða hríðarlegt í lofti og tók að dimma til fjallanna. Pó var það únn sólskinsblettur, sem eg var altaf ð svipast eftir og það var þar sem: 'Ástarstjarna yfir Hraundranga skín á bak við ský«. Það ar Hraundranginn þ^ssi á tind- unu fyrir ofan Hraun, þar sem Jónas Hal! ímsson fæddist. Og þegar eg loks á hann koma fram undan fjalla- röðie ú, þá fanst mér birta yfir öllu, öl! f orin að verða léttari og líflegri eftir það — Rað var komið að kveldi. Da rúnin síðasta lagði bjarma sinn þan.a einmitt yfir fjallseggina, og þrátt fyrir það, þótt að öðru leyti væri þykt í Iofti, nóttin væri dottin yfir dalinn, fannabreiðan svo tilbreytingalaus og vetr- ardauði yfir öllu, þá fanst mér þó í huga mínum: «Geislar sumarsólar — silungsána gylla« «þar sem háir hólar — hálfan dalinn fylla.» Og mér þótti vænt um að minnast þess þarna, að eg hafði í fórum mín- um 50 kr. sem ungu stulkurnar í Sveit- inni minni höfðu safnað til minnisvarð- ans — hans Jónasar. — Eyrinn verður kaldur í myndastyttunni hans, en aur- arnir, sem á að reisa hana fyrir ættu að koma frá gjöfulli mund og glöðum huga þjóðarinnar barna, sem hafa séð yfir «Sæludalinn« og ljóstæru lindirnar «listaskáldsins góða«. — Eg tek nú aftur fram fyrir. Pósturinn lagði upp með þunga lest, 7 kúffortahesta og 2 að auki. Samferða- menn voru altaf að bætast í hópinn, svo að seinast voru þeirorðnir 10 menn (með póstinum) allir Aíðandi, og 10 hestar að auki í lestinni. Vildu allir þessir nota sér leiðsögn — og slóðina pösts- ins. — Hann fór á undan eða fylgdar- maður hans sína réttu braut og dróg alla á eftir sér eins og gufuvagn, sem dregur langa lest. Stundum fóru þeir báðir á undan, þar sem voru lækir, eða umbrot, gil eða gljúfur. Það var líkt eins og þegar tveir gufuvagnar eru sett- ir fyrir lestina á örðugustu stöðunum í Klettafjöllunum. — nema við fórum hægra. Meðal samterðamannanna voru 2 ungir og fjörugir Eyfirðingar, er ætiuðu suð- ur í Reykjavík, að taka námsskeið eftir- litsmanna með nautgriparæktunarfélög- um. Pótti mér vænt um þann áhuga, sem þeir sýndu í þessu, til að styðja svo þarflegar stofnanir, Pá var og stúlka þingeyzk, er suður fór að læra yfirsetukvennafræði. Húnvetningar 3 voru með og á eftir öðru hvoru. Höfðu þeir farið norður næst áður með pósti, og voru nú á heimleið. Hafði einn þeirra tekið sér konu unga og fríða í Eyjafirði. Vað það hraustlega gjörtum hávetur. Brúðurin var og í förinni, og lofaði lítt leið og færi. Eftir stífa 8 tíma hvíldarlausa ferð frá Akureyri komum við í myrkri að Pverá í Öxnadal. Par býr Stefán Bergsson, góður bóndi. Fengum vér þar greiðar og góðar viðtökur. Var það notalegt að koma inn í baðhita eftir að hafa norpað svo lengi úti á leiðinni. Færðin var söm daginn eftir, og þó öllu verri um Bakkasel og á Öxnadals- heiði norður fyrir Grjótá. Víða umbrot, og varð ekki riðið í slóðina, þó að 20 hcstai væru búnir að troða hana á und- an. Pá var haldið hvíldarlaust í 13 tíma að Silfrastöðum. Hestunum aðeins gefin einu sinni töðutugga — á Kot- um- Fremri. Pá slóst í förina Skagfirzkur bóndi, er kunni frá ýmsu að segja af liáttum úr sínu héraði. En á heiðum uppi, þegar látið er þramma fót fyrir fót, þá er öll dægradvöl vel þegin. Hann taldi það mikið mein á verzlun þeirra á «Króknum«, hvað lítið væri gjört að vöruvöndun. Engin munur væri gjörð- ur á ullargæðum. ekki heldur kjöti af full- orðnum sauðum og fjallalömbum. Sama vildi einnig viðbrenna á hrossamarkaðin- um. Menn gerðu tiltölulega lít- inn mun á 5 vetra foluin og þrévetrum trippum. Skagfirðingar eru uppgangs. menn miklir, fjölga einkum hrossunum, og væri því gróði mikill, ef þau gætu orðið góð vara. Magnús hreppstjóri Gíslason á Frostastöðum, er nú taiinn einna ríkastur. Tíundar yfir 50 hundr. Byrjaði þó ekki búskap fyr cnfyrir3ár- um. En var orðin svo fjárríkur áður, að hann lagði inn 1200 pund af ull. Svona má græðaá garnla íslandi og þarf ekki til Ameríku. — En nú komum við að Silfrastöðum. eftir dagsetur í tnngsljósi, og urðum fegin hvíld og góð- um beina. Framh. Hvers vegna? Vegna þess! Eins og lesendum Norðra er kunnugt hefir hann haft meðferðis bréf til mín frá Jóni Jónssyni, sem margur mætti ætla að eg hefði hug á að svara fullum hálsi. Eg hefi þó ráðið það af, eftir nákvæma hugsun, að gera ekki ágreining okkar að þráðbeinu umræðu efni. Hvers vegna? Vegna þess fyrst og fremst, að eg hefi sagt það um mótstöðu menn mína í syslunni, sem mestu máli skiftir — það eitt. í öðru lagier öllumalmenningi óskeinti- leg hver og ein ritdeila, sem hefir langt trýni og langan hala. Ef eg svaraði Jóni mundi það verða langt mál, og væri þá síður en ekki séð fyrir endann á halanum. í þriðja lagi þykir mér gott að aka heilum vagni heim úr þessum ófriði. Pað þykist eg gera. Eg þykist hafa neytt þeirra vopna að eins, sem geymd hafa verið í hreinu méli. En þegar um- ræðuefnin fjölga og smækka, eins og oftast verður í ritdeilum, þá færast ágrein- ingsefnin frá alfaraveginum inn í heima- húsinu og er það aldrei tii ánægju né til afnota almenningi. Pað tel eg rétt í alla staði. að ræða sýslumál og héraða í blöðunum. Eg sé ekki eftir þvi að hafa gert það og og tel það rétt mætt ef ekki er farið inn fyrir bæar-dyrin. Ef til vill kynni eg að ganga of nærri nágunganum, ef eg kæmist í vígahug þann sem fylgja mundi nýjum skilmingum. í fjórða lagi er rétt að minnast orða Björnssons, þeirra sem eitt hvert leikrit hans endar á og sem þaiinig eru: «Einhver verður að byrja á því að fyrirgefa.» Með þessu er það ekki sagt, að eg muni sitjast í helga steininn hvorki í pólitísku nágrenni við sýslunga mína, þegar málum er mælt heima í héraði, né heldur í blöðunum, þegar mér þykir ástæða til uinræðu um almennings mál. Orð mín um æskuna og hugsjónirn- ar og þær og stjórnina hafa verið gerðar að umtali í ýmsum blöðum, Austra, Lögréttu og ef til vill í fleirum. Á það málefni mun eg minnast sérstaklega, einhverntíma og á einhvern pappir láta, ef eg fæ tíma og tóm. Pá hefi eg í huga orð Jóns Jónsso.iar í Norðra u»n það efni, sem hann beindi að mér-ogsjá- um þá hvað setur. Guðm._ Friðjónsson. Frétta-pistlar. Sauðárkrók, 13. marz 1906. Sýslufundur — Meðferð hrossa — Jarðleysi — Ódýrar vörur — Verzlunarhorfur. — Hún er liðin, sýslufundarvikan. Pað er viðburðaríkasta vikan hér í kauptúninu. Þá streymir fólkið úr sveitinni til að fylgjast með rás viðburðanna í héraðsstjórninni, og svo um leið að leita sér upplyftingar við sjónleiki og aðrar smáskemtanír, sem um þær niundir er opinn aðgangur að. Hann stóð yfir í 6 daga í þetta sinn sýslufundurinn hérna, eða frá 27. febr. til 4. þ. ni. og mætti ýms tíðindi frá’ honum segja, en af því eg veit til að Norðri hefir fengið alla fundargerðina sleppi eg því að mestu. Eitt hið þýðingarmesta sem á fundinum gjörðist hygg eg hafi verið það, að kosin var þriggja manna millifundanefnd til að athuga hrossaeign Skagfirðinga m. fl. Nefnd þessi hefir fengið til meðferðar málefni, seni miklu varðar fyrir þetta hest- auðugasta hérað landsins, og virðist þessi vetur ætla að færa rækilega heim sanninn um, að hér sé orð í tíma talað, og engin vanþörf á að koma fram með hyggileg ráð gegn hinni gengdarlausu hrossamergð og hinu jafn gengdarlausa fyrirhyggjuleysi margra um bjargráð handa þessum vesal- ingsskepnum, þegar »frís í æðum blóð«. Og svo hefir nú tíðin farið að um langan undanfarinn tíma, að jarðlaust má heita í flestum bygðum héraðsins, og fjölmörg hross komin á hús og hey, en voði fyrir dyrum nreð hin, sem úti eru, komi ekki bráður bati. »Mjölnir« kom í vikunni sem leið og með honum vörur til Gránufélagsins. Það þóttu tíðindi, þegar sú fregn barst út, að verzlun þessi hefði sett til muna niður verð á öll- um útlendum vörum, og jafnframt að tvær aðrar hinar stærstu verzlanir hér ætluðu að gjöra slikt hið sama. Mun það vera ætlun kaupmanna, að borga íslenzkar vörur með sanngjörnu verði, og afnema þannig hið falska verð sem einatt hefur áður verið greitt fynr þá vöru. Ekki verður því neitað að umbót er þetta mikil, og er vonandi að kaupmönnum iánist að koma verzluninni með þessu fyrirkomulagi í betra horf en verið hefir. Æskilegt væri og að kaup- mennirnir sæu sér fært að kaupa ísl. vörur fyrir peninga út í hönd, en sennilega verð- ur það erfitt, meðan bankaruir ekki setja upp útibú hér. Hver áhrif þessi breyting á verðlaginu við fastaverzlanirnar kann að hafa á hinn almenna kaupfélagsskap skal ósagt látið, en hugsast getur þó og er enda ekki ótrúlegt, að verðlækkun komist einnig á innan þeirra vébanda, þar sem kostnaðurinn við rekstur föstu verzlananna hlýtur þó ávalt að vera stórum mun meiri en hjá kaupfélögunum. Hið Skagfírzka kaupfélag opnar söludeild með vorinu. Mývatnssveit, 11. marz 1906. Fréttirnar fáar. Þorrinn var harður og góan það sem af er snæsöm og breytin í skapi. Enn þá hefir ekki gefið til þess að aka símastaurunum hingað upp eftir, flestir vona, að þeir komist þó alla leið sína og ekki þurfi að tefjast verkið fyrir þá sök. Finnast kunna þó hér í svcit þeir menn, sem ekki mundu angrast mjög yfir því, þótt hér yrði árekstur og tálmun á símalagning- unni. Rannsóknir og rýningar sumra manna hneigjast að Marconi og loftskeytunum og þeim virðist svo, að við hinir séum gamlir í skoðunum og afturhaldsmenn í anda. Þeir menn eru mér vitanlega þó ekki margir hérna við vatnið, sem amast stórum og einarð- lega við símanum, og sumir þeirra eru nokkuð gamlir og um ungan og framgjarn- an anda þeirra hafa fæst orð minsta ábyrgð. Heilbrigði manna hér ail-gott, en hey þykja mikilgæf, enda nokkuð víða skemd og sauð- fé fóðrast illa, amar víða að því lungnaveiki og hlessingur. Dýralæknarnir hafa lítið koin- ið sér við að leiðbeina okkur bændunum með þessa hveimleiðu kvilla. Þeir eru fáir og verkin sýna þess líka merkin að svo sé. Þorgils. Hornstranda-bréf 28 jan. 1906. Blaðakaup. — Pólitík. — Hafís. Þeir sem helzt kaupa blöð hér, kaupa sunnanblöðin Isafold og Þjóðviljann. Menn eru hér flestir minni hluta menn en það kemur mest af því að þeir hafa ekki athugað málið frá annari hlið en þeir sjá í nefndum blöðum Að hinu leyti gerir fátækt manna það, að þeim, sem kann skeervon, ógnarþessi hái tollur semorðinn er á kaffi, sykri, tóbaki o. fl. En fyrir þurrabúðarfólk má það, að minsta kosti kaffi og sykur teljast nauðsynja- vara. Hvað önnur aðal mál, svo sem ritsíma og skipaferðir snertir held eg að flestirhér setji sig nú ekkí svo vel inn í þau að þeir geti dæmt ttm þau til hlýtar. Veðráttan hefir oftast verið góð í vetur, það sein af er, en þó miklar og stöðugar vestan áttir. Eru því kunnugir menn mjög luæddir um að hafís komi hér seinna i vetur og er slæmt til þess að hugsa. -

x

Norðri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.