Norðri


Norðri - 07.12.1906, Qupperneq 2

Norðri - 07.12.1906, Qupperneq 2
200 NORÐRI. NR. 50 NORÐRl Gefinn út af hlutafélagi. Ritstjóri: Jón Stefánsson. Skrífstofa Hafnarstræti 3. Prentsmiðja B. Jónssonar. morgunverður búinn í tjaldí, en græn- gresisbönd alt í kringum það og kross- strengir, sömuleiðis vafið upp með súl- unni, en blómvendir á borðunum. Par talaði Liittichau kammerherra fyrir ís- landi, en sr. Þórhallur svaraði og mælti, fyrir minni «Heiðafélagsins.» Að loknum morgunverði, voru engin skoðuð, grösug og gúllfalleg. Sumt af þeim er selt á leigu til slægna. Mikið var en óslegið. Vatnsleiðslurnar eru merkilegar, og með lokræsum. Skógar- belti á milli Nú var snúið við og ekið norður á bóginn á sléttum og góðum vegi, í blíðu og bezta veíri. Víðsýni mikið, og var þetta hátíðleg ferð. Það var tilkomu- mikið og einkennilegt, að sjá hestana fríða og fallega með 35 vagna í einni rennu; og þá var eins og hátíðablær- inn hvíldi yfir allri bygðinni, því að svo langt sem augað eygði, sáust flöggin blika í sólskininu, og víða voru gjörð heiðurshlið á veginum, þar sem við að eins ókum í gegnum, en stóðum eigi við. En hvervetna þar sem til var náð heilsaði fólkið með innilegum fagnaðar kveðjum.. Pó þóttu viðtökurnar í Hern ing taka öllu fram. Herning er nýr bær á miðri heiðinni, með 5500 íbúum. F*ar áttum við að taka járnbrautarlestina aftur á ákveðnum tíma kl. 5V2. Svo sem bæjarleið frá bænum mætir okkur svo alt í einu meðfram skógar- götunni mikill fjöldi af ungum piltum og þó enn fleira af stúlkum fagurbún- um (sumir héldu alt að 300) alt á hjól- hestum, skreyttum fánum, blómum og blómsveigum. Um leið og lestin fór fram hjá laust svo þetta fólk upp fagn- aðarkveðju, veifandi klútum og fánum. Rendi síðan allur þessi meyjaskari hest- um sínum heim á leið til bæjarins með fram vögnunum, og kastaði blómum upp í þá. Var þá farið heldur hægt á meðan. En nú gjörðist tíminn naumur, því eftir var að skoða Pontoppidans «Mosa- rcektun,» sem þarna er rétt hjá Herning. Varð það heldur flýtisverk. Gengið bara yfir grundirnar áleiðis til bæjarins. Par í skemtigarði, fagurlega fyrirbúið, fálkamerki 2 ogflögg 16. Fjöldi manns og hátíðlegar viðtökur. Vín og vistir í tjaldi, en tími enginn til að neyta þeirra, eða þakka nægilega þessar alúðarviðtök- ur og góðu gestavináttu. ' Sóknarnefndarformaður Yde bauð ís- lendingana velkomna með hjartanlegum orðum og kvað það fögnuð fyrir alla þar samankoma að fá að sjá þá. Síð- an hrópaði hann. «Lifi alþingi Islands» og tók allur mannfjöldinn undir það með miklu fjöri og húrra hrópum. Prófessor Björn M. Olsen þakkaðifyrir þessar inni- legu og hjartanlegu viðtökur, og síðan hrópuðum við öflugt húrra fyrir Herning. En nú varð næstum að hlaupa á stað. Var okkur fylgt með hljóðfæraslætti og af mannfjölda miklum alla leið til járnbrautarvagnanna, og þar enn þá send- ar heillaóskir og há húrraköll til brott- fararinnar. Morguninn eftir fékk sr. Eiríkur Briem, sem forseti sameinaða þings símritaða kveðju til alþingismanna, frá nokkrum stúlkum í Herning. Símritaði hann þeg- ar aftur hinn sama dag þakklæíi til bæj1 arbúa fyrir viðtökurnar, og sérstakar þakkir til stúlknanná fyrir kveðjuna. Frá Hemiilg var nú haldið, með járn- brautinni norður og síðan austur til Vt- borgar (Vébjarga). Sýndist víða fremur hrjóstugt á þeirri teið. En ekki nýtur maður útsýnisins nærri eins vel úr gufu- vögnum, sem fara svo hart, eins og að keyra með hestunum. Viborg er hin forna höfuðborg Jótlands, liggur hér um bil í miðju landi, er þar fremur fallegt, en ekki eru íbúar nema 9000, Rangað komum við nú um kl. 7. Var fjöldi manns fyrir til fagnaðar, og borg‘ arstjóri Toldedundbauð gestinaVelkómna. — Var síðan skoðuð dómkirkjan, hún er mikil og merkileg. Hún var upp- haflega bygð á 12. öld. en algjörlega endurbygð í sýnum gamla stíl á næst- liðinni öld, og nú er verið að prýða hana með veggmyndum. Borgarstjórnin hafði boðið til mið- degisveizlu kl. 8 um kvöldið. Rar var meðal annara séra Magnús Magnússon Jochumssonar. Hann er prestur þar á Jótlandi, og hafði verið með okkur meiri hluta dagsins. Par mætti konferensráð Hansen. Hafði hann eigi verið í Jót landsförinni fyrri, en tók nú við stjórn hennar næsta dag. Samsætið fór vel fram. Mælti Saxild skjalavörður íyrir minni íslands, en pró- fessor Björn Ólsen aftur á móti fyrir minni Vébjarga. Par vorum við svo um nóttina. Um garðyrkjufélög. Eftír Steingrím Stefánsson. búfræðing. íslenzka garðyrkjan er enn í bernsku þó langt sé síðan að farið var að rækta garðjurtir hér á landi. Pað er álitið, að hér hafi verið stunduð garðyrkja í fornöld. Allir þekkj- um vér máltækið. sem segir: «Pað er ekki sopið kálið þótt í ausuna sé komið». Grettis-saga. Já. — Það mun vera búið að stunda garðyrkju hér á landi — að öðrum þræði — síðan í fornöld, en þó erum vér íslendingar of skamt á veg komnir í því efni, og það er óvíst að vér stöndum nokkuð framar en for- feður vorir á 16 og 17 öld. Kemur margt tilþessa: Sérílagi það, að fólkinu hefir ekki verið aflað nægi- legrar þekkingar á garðyrkju, og ekki verið gerðar nógu ítarlegar tiiraunir með garðjurtir, hverjar af þeim þrifust bezt hér á landi, og hvaða kröfur þær gerðu til lífsins. Ekki vita menn til, að það hafi verið skrifað um íslenzka garðyrkju, fyr en Gísli sýslumaður Magnússon (f 1699) skrifaði um það mál. Pá kom og til sögunnar Björn prófastur Halldórsson í Sauðlauksdal. Báðir þessir menn skrifa vel og greinilega um málið. Peir kvarta með- al annars yfir því að fólk fáist ekki til að eta garðávextina, Með öðrum orð- um: að fólkið vilji alls ekki eta gras. En svo má fyrir þakka, að nú í seinni tíð, er meira farið að gera til þess, að styrkja íslenzka garðyrkju og afla mönnum þekkingar á henni. Arið 1885 er hið íslenzka Garð- yrkjufélag stofnað, sem mun mikið að þakka Schierbeck landlækni. Pað félag starfaði nokkur ár með á- huga; gaf út fræðandi garðyrkjurit o. s. frv.. en rann svo inn í «BúnaðarféIag Islands». Pá var og farið að gera tilraunir í Reykjavík viðkomandi garðyrkju o. fl., ög árið 1899 veitti alþingi styrk tirikk'- urn 3500 kr. á fjárbagstírúflbilíViu í 900 — 1901 til þeirríi. Árið 1905 er «Ræktunarfélag Norð- urlands* stofnað. Pað vinnur að yms- um tilraunum og vill koma á fót verk- legri kennslu í garðrækt ÖIl þessi viðleitni til að efla garð yrkjuna og jarðræktina yfir höfuð mun vera gagnleg og góð fyrir framtíð lands- ins. En er nú þessi viðleitni éirthlít ðg ekkert meira hægt að gerá til þess áð auka garðyrkjúná og áfía mönnum þekk- ingár á henni? Getur ekki verið um það að tala að stofna garðyrkjufélög út um land, t. d. innan starfsviðs - Ræktunarfélags Norð- urlands,» og með aðstoð þess. Mín skoðun er, að þetta megi takast og verða að góðu gagni. Hér á Norðurlandi lifir nú Ræktunar- fél. sem blóm í eggi, og virðist hafa góð áhrif á bændurnar, sem eru að rækta landið. Pað er meðal annars tilgangur fél., að gefa hverjum sem óskar þess allar upp- lýsingar, sem að jarðrækt lúta, þar á meðal sérstaklega í garðyrkju — koma á fót verklegri kenslu í henni. En «þeim sem óskar*. Með öðrum orðum, fólkið þarf að óska þess, sem eðlilegt er. Ennfremur er svo tilætlast í lögum Ræktunarfélagsins, að fél. skiftist í deild- ir. Hver deild skal hafa eitthvert ætl- unarverk, er sé í samræmi við störf og stefnumið aðalfélagsins. Mér er nú, því miður, kunnugt um, að það eru alt of margir meðlimir fél, alt of margir hreppar, sem enga veru- lega deild skipa, eða starfa nokkuð sem um munar samkvæmt tilgangi félagsins. Fólkið vantar enn lifandi áhuga og þrek til þess að vinna kappsamlega að ræktun landsins, og færa sér nógu vel í nyt starfsemi og tilgang Ræktunarfél. Norðurl.. Það þarf að koma helzt öll- um félagsmönnum í starfsemi. Hér á eg við, að farið sé að stunda jarðyrkju á sem flestum heimilum og í öllum hreppum innan starfsviðs Rækt- unarfélagsins., en til þess þurfa samtök og samvinnu. Pessi garðyrkjufél. gætu verið sérstök út af fyrir sig undir aðalumsjón R.fél., þau gætu líka verið í nánu sambandi við R.fél. deildirnar, og væri að líkind- um bezt að svo væri. Tilgangur slíkra félaga ætti að vera sá, að útbreiða með Ræktunarfél. þekk- ingu manna á garðyrkjunni; það sem mest er um vert, að efla og styrkja garðyrkju helzt á hverju heimili, kenna mönnum þannig verklega framkvæmd í því cfni. Að innan garðyrkjuélagsins eða deildanna væru haldnar nákvæmar skýrslur yfir garðyrkjuna á hverju heim- ili, yfir kostnað við hana, gróðan o.s.frv. Pessar skýrslur koma svo út í ársriti Ræktunarfélagsins. Að veitt væru verðlaun fyrir dugnað í garðyrkju. Að deildirnar eða félögin hafi starfs- menn, sem ferðist um til að halda fyr- lestra, og kenna mönnum verklegar framkvæmdir í garðyrkjunni. Pessi garðyrkja væri aðallega fólgin í tvennu: 1. Að rækta garðávexti til manneldis og skepnufóðurs til þess að menn þyrftu eigi að kaupa slíkt frá út- iöndum. 2. Að rækta blóm runna og trjáteg- undir, sem líkindi eru til að geti þryfist hér á landi, til þess að gera fegurra kringum sveitabæina og auka trú manna á landinu. Pessi félög eða deildir störfuðu sýo lí skjóli Ræktunarfélags Norðurlands. Pað sé þeirra leiðarstjarna, Myndi ekki verða mikið fengið með þessu ? Myndi ekki verða mikið fengið með því að þjóðin lærði að rækta landið sitt sem mest og bezt. Að hún fengi að sjá af eigin reynd, hvað landið geymir í skauti sínu|og getuf uppskorið ef því er sómi sýrtdtín já, það mundi verða mikið fengið: «Fáiæktin er vor fylgikona*, segir máltækið. Víst mun mikið satt í þessu. En fá- tæktin, peningaskorturinn er ekki aðal- þröskuldurinn á vegi framfaranna. Fátæktin á sannri þekking á land- inu ásamt þjóð sinni, sjálfum sér og hlutunum umhverfis oss er sá þránd- urinn, sem mest mun standa í veginum og mun hafa gert það síðan í Sturl- ungaöldinni, Myndu ekki færri fara til Ámerlktí. Og myndu ekki færri lítá varitrúaðir frám í timann — á framtíð landsins — ef það væri skógi vaxið. Landið hring- inn íkringum heimili manna sveipað bros- hýrum, iðgrænum blómjurtum, þar sem nú eru holt og sinumýrar. Myndi ekki æskumaðurinn bindast en tryggari böndum við æskustöðvar sínar, ef hann væri alinn upp «í landi nýrra skóga* og blómjurta heima við bæinn. þar sem hann vendist störfunum við þær, að hlúa að þeim, og sæi líf og þroska þeirra. Jú. því mun enginn neita. Eflum ræktarsemina við landið okk- ar, meðal annars garðyrkjuna. því hún gefur auðsæld og eykur ánægjuna. Læt eg hér staðar numið að sinni, en vísa málinu til mér færari manna. Pverá í Öxnadal, 12, nóv. 1906. Húsavík er stærst kauptún hér norðanlands, þeg- ar Akureyri er slept. Eru þar framfar- ir miklar á ýmsan hátt, og áhugi íbú- anna á almennum málum ekki minni en hér á Akureyri að því er kunnugir segja. — «Fundafélag« hafa þeir t. d. Hús- víkingar er helzt hefir forgöngu þeirra mála, er þeir vilja koma í framkvæmd eru í því 57 meðlimir, þar af 5 konur Formaður þess er Aðaist. kaupm. Krist- jánsson, en Steingrímur sýslumaður vara- formaður. Niðurjöfnun aukaútsvara er nýlega lok- ið á Húsavík. Voru öll aukaútsvör hrepps- ins kr. 2503.75 en gjaldendur 252 að tölu. Hér skulu talin útsvör kaupmanna og verzlana þar I þorpinu: Örum & Wulffs verslun kr. 400,00, Aðalsteinn ogPáll Kristjánssynir og verzl- un kr. 120,00, Kaupfélag Pingeyinga kr. 100,00, Jón a. Jakobsson og verzl- un kr. 90,00, Sigurjón Porgrímsson kr. 38,00, Steinólfur Geirdal kr. 30,00, Pét- ur Jónsson 22,50, Bjarni Benidiktsson kr. 18,00, Kristján Arnason kr. 15,00, Jakob Hálfdánarson kr. 15,00, Eiríkur Porbergsson kr. 12,00, Arni Sigurðson kr. 10,00, Guðni Porsteinsson kr. 10,00, Vilhjálmur Guðmundsson, kr. 10,00, Pórður Ingvarsson kr. 10,00. Hæstir gjaldendur aðrir voru: Steingrímur Jónsson sýslumaður kr. 60,00, St. Guðjohnsen kr. 60,00, Gísli læknir Pétursson kr. 56,00, Jóhannes Sig- urjónsson Laxamýri kr. 42,00, sr. Jón Arason kr. 40,00, Egill Sigurjónsson Laxamýri kr. 38,00, Arnijónsson áPverá kr. 34,00, Porsteinn Björnsson í Tungu kr. 34,00. Manntal. Geir prófastur Sæmundsson hefir ný- lega lokið húsvitjun hér í bænum og segir að hér muni nú vera nálægt 1700 manns.

x

Norðri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.