Norðri - 05.07.1907, Qupperneq 1
Akureyri, föstudaginn 5, júlí,
1907.
Til kaupmanna!
Hér með leyfum við okkur að tilkynna heiðr-
uðum kaupmönnum á íslandi að innan skams
munum við hafa steinolíu „á Lager“ í Reykjavík
og á Eskifirði. Seljum við því bráðlega steinolíu
til allra hafnarstaða á íslandi, þar sem gufuskipin
koma við.
Með mikilli virðingu.
Det danske Petroleum Aktieselskab.
Alþingi 1907.
I.
Alþingi var sett mánudaginn 1. júlí
eins og lög gera ráð fyrir. Séra Friðrik
Friðriksson í Rvík steig í stólinn og
predikaði sem siður hefir verið til. Og
var svotekið til óspiltra málanna, að því
Ioknu,kosnir embættismennþingsins, lögð
fram nokkur frumvörp, kosið í nefndir
o. s.frv. Pessir voru kosnir embættismenn:
Forseti sameinaðs þings: Eiríkur Briem
Varaforseti: Lárus H Bjarnason. Skrifarar
Hannes Porsteinsson, Ouðmundur Björns
son. Forseti efrideildar: Júlíus Havsteen.
Varaforset ar: Jón Jakobsson, Ouðjón
Guðlaugsson. Skrifarar: Sigurður Jens-
son, Björn Olsen. Forseti neðrideildar:
Magnús Stephensen. Varaforsetar: Magnús
Andrésson, Tryggvi Gunnarsson. Skrif
arar: Jón Magnússon, Árni Jónsson.
Vörumarkað héldu Skagfirðingar á
Sauðárkrók 29. f. m., hafði sýslunefndin
undirbúið það mál í vetur á sýslunefnd-
arfundi. Tilgangur markaðsins er að
koma á skiftum milli landbænda og sjáv-
arbænda með afurðir þeirra, og eiga
Skagfirðingar heiður skilið fyrir að hafa
riðið á vaðið með þetta.
Markaðurinn hófst kl. 12 á hádegi. Voru
þar samankomin 3 — 4 hundruð manna.
Hélt sýslumaður P. V. Bjarnason fyrst
snjalla ræðu um þýðingu þessa fyrirtækis
o. fl. Eftir það byrjuðu menn að spjalla
um kaupskapinn og stóð það langa
stund. Kl. 4 byrjuðu veðreiðar, fyrstu
verðlaun fyrir stökk hlaut rauður hestur
eign ErlendarBjörnssonar á Skíðastöðum,
fyrstu verðlaun fyrir skeið hlaut grár
hestur, eign Valdimars Guðmundssonar
í Vallholti, fyrstu verðlaun fyrir tölt brún
hryssa, eign Frím. MagnússonarYtribakka.
Fleiri verðlaun voru ekki veitt. t*á glímdu
menn nokkra stund og þótti góð
skemtun, einna bezt glímdu þeir Árni Jóns-
son Hafsteinsstöðum, ísleifur Gíslason
kaupmaður Sauðárkrók, Sig. Björnsson
Veðramóti og Kristján Hansen Sauðá.
Kl. 7 varfarið að dansa og skemtu menn
sér við það fram á nótt. Síðan fóru
menn heim glaðir og ánægðir yfir á-
rangri dagsins.
Slátrunarhúsi hefir Kaupfélag Ey-
firðinga í hug að koma á fót og hélt
það fund hér í bænum um það efni
28 f. m. — Var þar samþykt að reisa
hús nú í sumar í þvíaugnamiði, á það
að verða 30X12 al. að stærð og standa á
lóð félagsins norðan við Torfunefslæk-
inn. Allar frekari framkvæmdir í málinu.
fól svo fundurinn stjórn félagsins og
sérstaklega formanni jjess Hallgrími Krist-
inssyni. Væri óskandi að fyrirtæki þetta
ætti góða framtíð fyrir hönduni og ef-
umst vér heldur ekki um að svo verði.
Sundkensla fer nú fram hér í bæn-
um. Bæjarstjórnin lét gera sundpoll í
Grófargili í félagi við Ungmennafélagið,
fer kenslan þar fram og nota hana ná-
lægt 80 að tölu, flest unglingar. Kenn-
ari er Lárus J. Rist.
Hannes Þorsteinsson ritstj. Rjóð-
ólfs var á flokksfundi með þingmönnum
Heimastjórnarflokksins en kom ekki á
flokksfund hinna. — Ress var von af
honurn er til alvöru kæmi, og mun það
verða öllum gömlum flokksbræðrum
hans hið mesta ánægjuefni.
Aðalfundur Ræktunarfélagsins var
haldinn á Blönduósi 23. þ.m. Jón Norð-
mann kaupmaður var kosinn í stjórn fé-
lagsins í stað Aðalsteins Halldórssonar
verksmiðjustjóra er gekk úr eftir hlut-
kesti.
Sigurður Jónsson Ysta-Felli ritstjóri
tímarits sambandskaupfélagsins var hér
í gær á heimleið úr leiðangri er hann
hefir farið alla leið vestur í Strandasýslu
í erindi fyrir kaupfélögin ogtímarit þeirra,
aðallega til þess að auka viðkynning
meðal helztu forkólfa kaupfélaganna,
treysta sambandið milli þeirra o. s. frv.
Alþingismennirnir hér norðan og
austan að fóru flestir suður með < Vesta»
Guttormur Vigfússou, Jóhannes Jóhann-
esson, Einar Pórðarson, Pétur á Gaut-
löndum, Árni Jónsson, Steingr. Jónsson,
Guðl. Guðmundsson,Jón í Múla, Magnús
Kristjánsson. Ólafur Thorlacius náði ekki
meðVestu þvíhún komst ekki áBerufjörð
vegna þoku. Stefán í Fagraskógi fór land-
veg og Stefán kennari ætlaði landveg aj
Blönduósi að loknum Ræktunarfélags-
fundinum.
t*órði lækni Pálssyni erveitt Mýra-
hérað
„Verzlunin' ýAKUREYRI”.
Strandgata 31. Oddeyri.
Nauðsynjavara kornmatur og kramvara sem nöfnum tjáir að nefna,
Yefnaðarvara alskonar tvisttau —sirz —bómullartau og flanelette, hvít léreft blikin
og óblikin, stumpasirz, skyrtutau, svuntu og kjólatau o. s. frv.
KARLMANNA-fatefni margar teg- « KVENNA-klæði. Silkitau og hvít
undir frá 2 — 6 kr. al. Yfirfrakka og^tau ýmisleg. Hattar, sem fegra hvert
Ulsterefni. Hálstau svo hvergi í bæn- p andlit. Hálsfestar svartar. Silki-
um er fjölskrúðugra úrval, sérstaklega \treflar hvítir, svartir og af ýmsum lit-
eru slaufur og slifsi aðdáunarverð. Hatt-^um og gerð. Herðaklútar. Brjóst-
ar svartir og Ijósleitir. Húfur. Regn-1 nálar. Sólhlífar. Regnhlífar. Enskt
kápur svartar og sárfínar. Hálsklútar^klæði. Reiðfataefni. af ýmsum lit-
úr bómull og silki o. s. frv. f um og gerð.
Margir hirða ekki nægilega um góðan nærfatnað er sé voðfeldur og þó haldgóður.
Pað er ekki nóg að stássa ytri klæðnaðinn en nærfötin séu illa úr garði gerð, ljót og ó-
þægileg. »Verzl. Ak.« hefir úrval af skyrtum og brókum kvenna og karla, millifatapeis-
um, millipilsum prjónuðum og hekluðum, millipilsadúk og öllu þess háttar. Ennfremur
barnapeisur margar tegundir.
TIL PRIFNAÐAR: Sápu af ótal- ÝMSA SKRAUTGRIPI
tegundum. Handsápa frá 0,05— 0,65 st.^hentuga í tækifærisgjafir, «tilgjafir»
«Odol»-vatnið fræga. Tannbursta. Nagla- f og þessháttar, arðberandi vel ef rétt er
bursta o. s. frv. J að farið.
Sápuduft alveg nýuppfundið, öllum^Kex og kaffibrauð ótal tegundir rnjög
hreinlætiskonum ómissandi. ■ ódýrar.
Allir ættu að líta inn í búðina þegar þeir eiga leið fram hjá. Hún liggur
fast við hina fjölförnustu götu bæjarins, við hliðina á Hótel Oddeyri, og inn-
gangur er beint af götunni, — Ferðamenn eiga kost á hestarétt fyrir hesta sína
meðan þeir skifta við verzlunina.
Allar vandaðar ísleizkar vörur. ull, lambskinn, verkaðan saltfisk, smjör
o. s. frv. kaupir verzlunin gegn útlendum vörum með lægsta peningaverði.
Afgreiðslan fljót og lipur
Garðar Gíslason
STÓRKÁUPMAÐUR í LEITH
er væntanlegur til Akureyrar með Vestu frá Reykja-
vík 7. júlí og ráðgerir að fara heimleiðis með
„Ingólf“. — Retta tilkynnist viðskiftavinum hans.
-ij-v->-'~‘i«*~Tr-nj-*r>_i—\«*--ij-‘n)-*i-->_i—‘i)<*'-ii-vrv~ii)~*if i “ * .** “ * r-Aá i* i ** i“*1
Séra Sveinn Eiríksson Asum í Skaft-
árt mgu druknaði seint íf. m. í Kúðafljóti
nálægt Söndum. Hann var á leið til
Reykjavíkur til fundar við sonu sína
Pál stud. mag og Gísla exam. juris.
er þar dvelja í sumar. — Fljótið var
í afarmiklum vexti, en séra Sveinn var
«vatnamaður» með afbrigðum og lagði
því í það. Með hverjum atburðum slys-
ið hefir orðið er oss ókunnugt enn þá
en munum geta þesx síðar og þá um
leið helztu æfiatriða séra Sveins sál. er
var hæiileikamaður.
Bráðkvaddur varð maður ágötu hér
í bænum nú í vikunni Jón Helgason að
nafni frá Vík á Flateyjardal. Hafði
komið hingað með »Gunnu» og verið
nýkominn í land.
Einar skáld Hjörleífsson fer bráð-
lega til Ameríku með fjölskyldu sina
að því er oss er sagt af merkum manni í
Reykjavík. - Er það að mörgu leyti
leiðinlegt og illa farið að hann skyldi
ekki eiga færi á að stunda hérlendis þá
list er hann mun mest hneigður fyrir
og hefir mesta löngun til.
Veðrátta er að breytazt til batnaðar
og hefir nú brugðið til sunnanáttar
undanfarið, svo ekki enn þá er vonlaust
með öllu um að grasvöxtur verði þol-
^nlegur,
Stórstúkuþing Good-Templara var
háð hér í bænum 18, —22. f. m. Par
var meðal annars rætt um undirbún-
ing atkvæðagreiðslu um aðflutningsbann
áfengis er Templarar hugsa sér að láta
fram fara á næsta ári og ákveðið að «agi-
tera» fyrir þeirri atkvæðagreiðslu af alefli
með fyrirlestrum, flugritum, o. s. frv.
Útbreiðslufund héldu Templarar kvöld-
ið áður en þeir fóru héðan og töluðu
þar ýms stórmenni úr liði þeirra.
Skipaferðir. 22. júní kom Sterling frá
Austfjörðum. Farþ. A. V.Tulinius sýslumað-
ur á Eskifirði ásamt frú sinni og börnum.
Chr. Havsteen, Paul Smith ingenior o. fl.
»Sterling« fór daginn eftir áleiðis til Rvík-
ur. Með skipinu fóru flestir stórstúkuþings-
fulltrúarnir sem hér hafa dvalið fyrirfarandi
daga. Ennfr. ungfrú Halldóra Matthíasdóttir,
ungfrú Margrét Valdemarsdóttir, P Smith
ingeniör, Stefán Björnsson kennari, Sigur-
geir Daníelsson kaupmaður frá Sauðárkrók
o. fl.
S. d. kom »Vesta» frá útl. Farþegar frá
Khöfn: Frú J. Norðmann, fröken Anna
Erlendsdóttir, stórkaupni. Aage Berlem, al-
þingismennirnir austan fyrir o. fl.
Með »Vesta« er fór daginn eftir áleiðis til
Reykjavíkur var mesti fjöldi farþega, þar á
meðal Quðm. læknir Hannesson, Sigurður
Hjörleifsson ritstjóri ásamt frú sinni, frú
Ragnheiður Benediktsdóttir, Jón A. Hjalta-
lín skólastjóri og fósturdóttir hans ungfrú
Sigríður Hjaltalín, Karl Finnbogason kenn-
ari. Quðm. Friðjónsson skáld, Jóhann Ragú-
élsson bókavörður o. fl.