Norðri - 12.08.1909, Side 1

Norðri - 12.08.1909, Side 1
Ritst]jóri Björn Líndal Brekkugata 19. IV. 31 Til minnis. Bæjarfógetaskrifstofan opinkl. 10—2, 4—7 Bæjarsjóður, Lækjargötu 2, mánud. mið- vikud. og laugardaga kl. 4. 7 Kitsímastöðin virka daga 8 f. h. til 9 e. h. helga daga 8—11 og 4—6 Bókasafnið, þriðjud.. fimtud. og laugard. 5—8. Sunnudögum 10—11 og 4—8. l’ósthúsið hvern virkan dag 9—2og4—7. helgid. 10—11 f. h. Utbú Islandsbanka 11- -2 Utbú Landsbankans 11—12 Stúkan Akureyri fundard.þriðjud.kv. kl. 8. Brynja miðvikudagskvöld kl. 8. Isafold Fja'IIkonan sunnudagskv. kl. 4. Trúföst mánudagskv. kl. 8. Tryggvi Gunnarsson bankastjóri. Flutt fyrir minni hans í samsæti á Akureyri 9. ágúst 1909. Fornvini fagnar fjörður hins Magra. Sjdlfboðinn sé pér sess hér og vist! Hátt yfir súlum Helga öndvegis heiðbjartur hlýrnir hló við pér fyrst. Fár vildi firða fjörð vorn hinn »magra« framkvœmdum fita fremur en pú. Barnungar hendur, hvatur til ráða, réttir pú Fróni fastur í trú. Sterklega bera stálsettar herðar sjötigu og fjögurra sumranna praut. Eigin hag aldrei ejtir pú spurðir; land pitt og lýður lifsverk pitt hlaut. »Ndungans nytsemd« namst pú að rista, »dugnað og drengskap,« djúpt á pinn skjöld. Vér, sem pér fögnum, vitum ei annan snœlenzkra bœnda snjallari höld. Skarð pitt að fylla flýta sér aðrir; verði peim gott af Akureyri, Fimtudaginn 12, ágúst, 1909. vaxi peim fremd. Vér sem pig kveðjum, vitum með sóma pín hlutverk háin, heitorð þín efnd. Alt er á flugi, auður og metorð, líf vort og lukka, Ijóð vor og mál. Eitt lifir effxr: orðstýr hins góða.— Öðlingur itri, eigðu pá skál! M.J. Fornmenjaransóknir. Eins og getið er um í síðasta blaði hafa þeir Daníel Bruun og prófessor Finnur Jónsson fundið afarmerkar forn- menjar í Svarfaðardal, skamt fyrir utan nýbýlið Höfn. Þeir komu báðir þaðan utan að á fimtudaginn er var, síðdegis, og lét þá prófessor Finnur ritstjóra þessa blaðs góðfúslega í té munnlega skýrslu þá, er hér fer á eftir. Sigurður Jóhanuesson í Höfn hafði fengið sér land til ræktunar, og tók að plægja þ?ð snemma í fyrra sumar. Fann hann þá gömul mannabein í plógför- unum og sá greinilega 4 grafir, en þær voru auðsjáanlega talsvert fleiri og var gizkað á að þær mundu vera nær 20. Prófessor Finnur, sem hér var einnig á ferð í fyrra, fór þangað úteftir jafnskjótt og hann fékk fregn af fundi þessum en gat þá eigi gefið sér tíma til þess að ransaka staðinn. Samdi hann því við eiganda landsins um að ekkert skyldi rótað við gröfunum til næsta- árs. — í sumar hagaði prófessor Finnur ferð- ferðum sínum eins og áður hefir verið skýrt frá hér í blaðinu, en Daniel Bruun ætlaði vestur að Bessatungu til þess að ratisaka þar hoftóttir gamlar. Ætluðu þeir síðan báðir til Svarfaðardals til þess að ransaka grafirnar. En Daniel Bruun varð lasinn og varð því ekkert úr því að hann færi vestur í Bessatungu. Sneri hann því, er hann hrestist, til Svarfað- aðardals, og hafði lokið ransóknum þar að mestu, er prófessor Finnur kom. Fundist hafa 14 grafir og var eitthvað af beinagrindunum áreiðanlega kven- mannsbeinagrindur, en þó sennilega ekki nema tvær. Einn af mönnum þess- um hafði verið heygður í bát. Sneri framstafn bátsins til sjávar en skutur til lands og sat maðurinn í skut og snéri andliti fram. Hefir hann sennilega verið settur við stýri, þótt þess sæi nú eng- ar menjar. Spjót hefir verið lagt hjá honum, því að oddurinn fansl þar, ryð- brunninn mjög. Miðskipa var beina- grind af hundi en af hesti í framstafni, er sýnilega hafði verið grafinn með öll- um týgjum. Stærð og lögttn bátsins sást greinilega af naglaröðinni í mold- inni, en tré alt var fúið nema smáagnir undir naglahausum. Var báturinn 7 metrar á lengd, og af lengd naglanna að ráða, er voru rógnaglar, mjög' líkir þeim, er ennþá tíðkast í súðbyrtum skip- um, hafði þykt súðarinnar verið mjög lík því og enn tíðkast í sexæringum. Af trétægjum þeim er fundust, virtist skipið hafa verið úr eik. Hestabeinagrindur fundust tvær, önnur hjá karlmanns- en hin hjá kvenmanns- beinagrind. Af munum fundust þar 2 spjótsodd- ar, leifar af beizli, glertölur úr hálsbandi, koparskjöldur með útflúri, auðsjáanlega kvenskraut, líklega afbelti. Pá fundust nokkrir smáhlutir, úr þungum málmi með samskonar lögun og vogarskálalóð, enda hafa sennilega verið það; og enn fundust 19 gripir úr beini, með hnot- arlögun; var einn þeirra stærstur svo talsverðu nam, og stærð hinna var tvens- konar; hinir smæstu voru langflestir. Gat prófessorinn þess til, að þetta mundi vera úr hnottafli því, er getið er um í fornsögum. Hvernig það tafl hefir verið leikið er mönnum nú algerlega ókunn- ugt um, enda hefir ekkert úr því fund- ist til þessa og hefir þess jafnvel verið getið til að nafnið hafi verið afbakað, og átt sé við hneftafl, sem einnig er nefnt í fornsögum. En við fund þennan styrkist sú skoðun, að hnottafl hafi ver- ið til og sé nafnið komið af lögun taflsins. Allir þeir munir er fundust, og eins beinin, voru látnir í kassa, og nokkuð af því sent beina leið til Reykjavíkur en nokkuð til Kaupmannahafnar til ran- sóknar, og þar á að blanda þá muni, er úr málmi eru, þeim efnum, er varna þvf, að þeir ryðbrenni meiraeða leysist upp, en orðið er. Að því búnu verða þeir allir undantekningarlaust sendir á forngripasafnið í Reykjavík, eins og alt, sem þeir félagar fundu á Hofstöðum í fyrra sumar. Petta eru þær merkilegustu fornmenj- ar, sem nokkurntíma hafa fundist hér á landi. Skip frá fornöld hefir aldrei fund- ist hér áður og beintaflið er einnig af- ar merkilegt. í kringum flestar grafirnar hafði verið hlaðið steinum, í hring eða lítið eitt sporöskjumynduð. Enginn efi er á því, að grafirnar eru frá heiðni og að |því er Svardælasaga segir, eru þær nákvæmlega í sama stað og orustan var milli Ljótólfs goða og Karls rauða, á árunum 960 — 970, þar sem Karl féll og allmargir menn aðrir. Próf. Finnur virtist ekki hafa þá skoð- un, að þetta væru grafir Karls og þeirra manna, er með honum féllu. Réði hann það einkum af kvenmannsbeinagrindun- um og af orðum sögunnar um þann stað, er Karl var grafinn. Karl segir við konu sína, Porgerði, morguninn áður en hann féll: »Ek vil láta færa mik yfir á þá, er hér er úti á ströndinni, ef ek látumsk á fundi okkar Ljótólfs; þykir mjer þar gott tilsýni, ef skip sigla út eða inn eftir firðintim«. Og síðan segir sagan eftir fall Karls: «Ok er þetta frjettist til Upsa, þá lætur Porgerður færa Karl ok austmenn- ina upp til Karlsár, ok váru þeir þar lagðir í skip, ok fé mikit með þeim, og heitir þar Karlsá síðan.« Sá, er þetta ritar, er enginn fornfræð- ingur. En eigi virðast litlar líkur til þess, að beinagrind Karls hafi það verið, er í skipinu fanst. Sú á, sem nú er nefnd Karlsá,rJiggur að sönnu nokkru utar á ströndinni, en grafir þessar standa skamt frá læk, er getur hafa verið vatns- meiri í fornöld og þá heitið Karlsá, en nafnið síðan verið flutt út á ytri ána, er vatníð minkaði í hinni syðri. Eigi virðist heldur ósennilegt, að Por- gerður, kona Karls, hafi verið grafin í nánd bónda sínum og fleira kvenfólk af þeirri ætt. — Prófessorinn hyggur að þetta muni vera ættargrafreitur, hver- jir sem þar liggi. Frjálslyndi Norðmanna í trúarefnum. Pað er alment talið miklu sjaldnara en á voru landi, því óvíða þrífast innri trúboðar og oftrúarmenn betur en þar í landi, einkum «vesturlands». En hér skal sýnt dæmi þess, hvernig sumir höfuðprestar Noregs rita um rétttrúnað hinnar norsku kirkju. Er það grein eftir skáldið og únítaraprestinn nafnkunna Kristöfer fansson. »Ymsar verða nú öfgarnar hjá hinni norsku ríkiskyrkju. Fyrir skömmu lét hún á stórþinginu neita Unítörum, að fá að kalla sig kristna menn, heldur taldi þá jafnréttlausa og Gyðinga; nú er hver klerkur sjálfrar kirkjunnar á fætur öðr- um farinn að boða únítarakenningar — og sitja þó sem fastast í embættum». Eins og kunnugt er, dró séra Kon- ow í Björgvin nýlega upp hreinan ún- ítarafána, og nú hefir einn af félögum hans, síra A. Sommerfeldt, ritað sams- konar kenningar og sent blaðinu »Verd- ens Ga«g». Greinin var álitsmál um bók Arna Garborgs: Heimkominn son- ur, er hann lofar á hvert reipi, að verð- ungu. Pað er að öllu leyti únítarfsk bók. Kallar hann Garborgs kenningar h re i n s- aðan, einfaldan kristindóm, á ljósu og indælu alþýðumáli, segir, að þess hafi þjóðin oflengi beðið og sé rit- ið hinn mesti kjörgripur. Garborg kenn- ir að guð sé faðirinn — sá faðir, sem J. Kristur hafi boðað í fjallræðunni. Hann sé ekki dómari. Dóminn fyr- ir breytni vora, kveður ekki guð upp, heldur kveðum vér hann upp sjálfir fyr eða seinna. Hann sé ekki heldur hegnari. »Hegningin er afleiðing synda vorra og endanlegs eðlis,« »Guð er ekki ísraels guð (Jahve), né blótguð, er heimt- ar fórnir og hlýðni sín vegna. Hann er faðirinn, sem leiðir börnin sfn með boðorðum sínum sakir sjálfra þeirra. Gjör það, og muntu lifa.« Um Jesú eða Messías kennir Garborg, að hann hafi vérið maður eins og vér. Og hann

x

Norðri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.