Norðri - 28.01.1910, Síða 2

Norðri - 28.01.1910, Síða 2
15 NORÐRI. NR. 4 þegar til sakanna kemur, sem fram hafa verið bornar, á hendur bankastjórninni, er það líka Ijóst, að sumar þeirra, að minsta kosti, eru alveg út í loftið, sem kallað er. Þótt það væri þannig rétt t. d. að landsstj órnin hefði ekki úr- skurðað reikninga bankans, undanfarin ár, þá sér hver maður að s ú sök bitn- aði ekki með réttu ástjórn landsbank- ans. Augljós lýgi er það líka, öllum þeim er með hafa fylgst og skyn bera á þessháttar, að Sparisjóður bankans hafi ekki verið «gerður upp« um fleiri ár. Þótt einhver skekkja hafi fundist í þeim reikningum, er það alt annað en að þeir hafi ekki verið gerðir upp. Um þær sakir að vfxillán hafi verið veitt ólöglega, og Iög og reglur um sjálfs- skuldarábyrgð hafi verið «margfaldlega« brotin, er ekki hægt að dæma til ful'.s að svo stöddu, þeim sem fjarlægir eru. En ekki hefir mál ráðherra verið af svo mikiili varkárni yfirleytt, að rétt sé að trúa þessu sannanalaust, þvert ofan í neiíun gæzlustjóra. Líkt og um síðastnefnt atriði, er um «veðsetningu« varasjóðs að segja. Rað mál er enn óupplýst að talsverðu leyti, en miklu meiri líkur til að veðsetning- arsagan sé af misskilningi sprottin, ef hún er ekki tómar ýkjur og blekkingar, og væri hún sönn, á þann hátt er ráð- herra heldur fram, væri það sjálfsagt dómsmál, hvort veðsetningin væri held- ur réttmæt eða óréttmæt. Bankastj. held- ur því fram, svo sem kunnugt er, að um eiginlega veðsetningu sé ekki að gera. Og þýðing ísafoldar á skeytinu frá Gluckstad bankastjóra, bendir líka nijög í þá átt, að ráðherra standi þar mjög höllum fæti. »Til Sikkerhed« þýð- ir ekki »að veði«, eins og ísafold læt- ur vera, heldur »til tryggingar« sem er miklu yfirgripsmeira og ekki annað en það, sem öllum varasjóðum er ætlað að vera. Ennfremúr er það ósannað enn, að ekki hafi legið nóg tilhlýðilegt verð- mæti í bankanum sjálfum, fyrir vara- sjóðnum. — Ekki er tilraun ráðherra og ísafoldar til að gera »geisimiklar fagnaðarviðtökur« úr samkomunni á Lækjartorgi, heldur til þess lagin, að efla traustið þeim megin. Raunar er það eríitt fyrir fjarverandi menn, að sjá hvað sannast er um þann fund, svo ó- líkt, sein blöðunum segist frá honum. En jafnvel á ísafold má þó sjá, að á- lyktun fundarins hefir ekki mætt neinni verulegri mótspyrnu á furidarstaðnum, $rátt fyrir það, að opinbert hlaut það að vera í bænum fyrir fram, hvert fund- urinn stefndi. Og virðist þetta vera full sönnun fyrir því, að ályktunin hafi haft samúð yfirgnæfandi meiri hluta, og fagnaðarlætin við ráðhei rahúsið hafi e k k i getaðverið margra verk. — Út yf- ir alt hitt tekur þó sú viðleitni ráðherr- ans og hinnar nýju bankastjórnar, að varna þeim Kr. J. og E. Br. að gera skyldu sína við bankann eftir nýjárið; því með því er beinlínis brotist inn á verksvið, er þingið skapaði sjálfu sér með hinum nýju bankalögum. Og fyr- irhyggjulítið gengur Norðurland í vatn- ið fyrir ráðherrann, þegar það kallar þetta lítilsháttar »formsatriði«, og rétt- lætir það með því, að landsstjórnin fari með vald þingsins, þegar það er ekki saman; og huggar svo fólkið að síð- ustu með því, að »full vissa» sé fyrir, að landsstjórninni detti ekki »annað í hug«, en að þingið kjósi gæzlustjóra þegar það komi saman. — Einkenni- legt er það, að hún kemur frá «NI.» þessi hugmynd um að stjórninni kynni þó að hafa komið »annað íhug,» og það hefir ólíklega nokkrum hugkvæmst öðrum, en líklega þurfa fáir að sækja fróðleik til Norðurlands utn það, að þing- ið kjósi gæzlustjóra þegar það kemur saman — hvortsem landsstj. kemur »annað í hug« eða ekki. Hitt mun mörgum sýnast, að það vald þingsins sé ekki þýðingarmikið, ef ráðherra get- ur vikið 1 inum þingkosnu mönnum frá, strax og þingi slítur, og látið svo sína menn gegna starfinu til annars þings. Og furðu lítilþægur er ritstjórinn með þingræði sitt og þjóðræði yfirleytt, ef sú skoðuri, að þetta sé lítilvægt »forms- atriði« í samhljóðan við aðrar þjóðræð- isskoðanir hans. Annars er svo að sjá, semritstjóranumfinnist,að um >>fordæmi« í þessu efni, geti ekki verið að ræða, nema gæzlustjóranrir geri sig seka um vanrækslu og að það sé þá »ákjósan- legt«. Hitt munu þó fleiri ætla, að stjórn geti skeikað frá hinu rétta í áliti sínu um vanræksluna, og að það sé einmitt, sem þingið vildi ekki eiga undir. En þó hefir því eflaust fundist, að það væru nóg tök á bankauum handa ráðherra, að geta vikið bankastjórunum frá, þótt eigi hefði hann jafnframt vald yfir þess eigin tr úna ðarmöri n u m við bankann. — Svo ilt setn alt þetta mál er, má þó ýmislegt gott af því læra. I fyrsta lagi æ 11 i það að geta opnað augu þjóðarinnar fyrir því, að hún er nú kotnin svo langt í pólitísk- um gapaskap, að henni er það mikii- vægt lífsskilyrði að snúa við. Svo eru fulltrúarnir sem fólkið er. F*að er ekki ráðherrann e i n n sem ber ábyrgð á sínum störfum, heldur þjóðin öll, þó hans flokkur sé það einkutu vitanlega. í öðru lági er þetta mál sláandi sönnun þess, hve vor þjóð- lega sjálfstjórn stendur á ótryggum fót- um, og hve nauðsynlegt oss er, að færa hana betur út á grundvöll sannarlegs þjóðræðis. Þegar æðsti maður lands- ins vinnur jafn ábyrgðarmikið verk og nú hefir orðið, þarf þjóðin að hafa ráð á að grípa fljótlega í strenginn, á hvern þann hátt, er henni þykir rétt; samsinna ráðherranum, ef henni sýnist svo, en taka fram í fyrir honum elia. En slík ráð eru aðallega: tíðari þing og tíðari kosningar. Kosningar 3. hvert ár og þing á hverjuári, er mark, sem aliir s a n n i r þjóðræðis- menn ættu að hafa fyrir stafni — að ógleymdu afnámi konungskjörinna þing- manna o. m. fl. En nú er spurn: Hvað á að gera í þessu sérstaka tilfelli, sem nú er fyrir höndum? Sumir vilja safna liði undir áskorun til ráðherra að leggja niður völdin og eitthvað mun vera byrjað á því starfi. Vel má vera að fá mætti mikinn hluta þjóðarinnar undir slíka áskorun; en ýmsir erfiðleikar eru á því, enda ekki líklegt, að ráðherratæki slíka áskorun til greina. Hitt er líklegra, að hann hyggi á einræði og fáræði meðan kostur er, þrátt fyrir alt sitt þjóðræðis- hjal. Að minni hyggju væri réttara, að snúa sér að þingflokki meiri hlutans. Hann ber mesta ábirgðina á Birni og hefir líka á honum sterkastan hemilinn. Kjördæmi meiri hlutans ættu öll að rísa upp og skora á þingmenn sína að gera annað tveggja: grípa í strenginn með á- skoruntil ráðherra um aðkveðjatil auka- þings, eða leggja niður þingmenskuna ella. Er þeim þess vel unnandi, að þeir taki heldur fyrri kostinn, ef þeir kynnu sóma sinn. Þetta mál ætti ekki að vera flokksmál á hinum forna grundvelli. Það er og á að vera sómaspursmál fyrir þjóðina a I 1 a, fyrst og fremst. Einarstöðum 22. jan. 1910. Sigurjón Friðjónsson. Þingmálafundur Eyfirðinga. Ár 1910, þann 24. jan. voru sam- kvæmt áskorun frá 2. þingmanni Eyja- fjarðarsýslu mættir á Akureyri kjörnir fulltrúar úr 7 hreppum sýslunnar. Þessir voru mættir: Úr Öngulstaðahreppi: Einar Árnason, Eyrarlandi, Jón Jónatansson, Öngulsstöðum. Úr Hrafnagilshreppi: Pétur Ólafsson, Hranastöðum. Einar Sigfússon, Stokkahlöðum. Úr Glæsibæjarhreppi: Eggert Davíðsson, Krossanesi. Kristján Jónsson, Glæsibæ. Úr Skriðuhreppi: Guðm. Guðmundsson Púfnavöllum. Stefán Bergsson, Pverá. Úr Arnarnesshreppi: Guðm. Maguússon, Ásláksstöðum. Ásgrímur Sveinsson, Prastarhóli. Úr Svarfaðardalshreppi: Hallgrímur Halldórsson, Melum. Porgiis Porgilsson, Sökku. Úr Hvanneyrarhreppi: Páll Halldórsson, Siglufirði. Steinn Einarsson Siglufirði. Úr Þóroddstaða- og Saurbæjarhrepp- um vorú ekki mættir fulltrúar. Fundinn setti alþingisn;aður Stefán Stefánsson Fagraskógi. Fundarstjóri var því næst kosinn Guðm. Guðmundsson Þúfnavöllum, og nefndi hann til skrif- ara Guðm. Magnússon og Hallgrím Halldórsson. í fundarbyrjun kom franr fyrirspurn um, hvort halda skyldi fundinn fyrir luktum dyrum, og var eftir nokkrar umræður samþykt að halda hann í heyr- atida hljóði. Pá lýsti fundarstjóri yfir því, að til- efni þessa fundar væri að ræða um að- farir landsstjórnarinnar gagnvart Lands- bankánuin og fyrveratidi stjórnar hans. Eftir ítarlegar nmræður um þetta mál var eftirfarandi tillaga samþykt með öll- um atkvæðum. »Par sem alþingi eitt hefir rétt til þess, samkvæmt lögum, að veljagæzlu- stjóra Landsbankans og víkja þeiin frá, en ráðherra hefir tekið sér þetta vald, og þannig gengið á rétt þingsins; framkvæmt þetta á þann hátt, að láns- trausti og heiðri þjóðarinnar er stofn- að í voða, þá mótmælir fundurinn harðlega þessari stjórnarráðstöfun.» í öðru lagi var samþykt með öllum atkvæðum þessi tillaga. «Fundurinn lýsir megnri óánægju yfir samningum ráðherra við gufu- skipafélagið Thore, og Iítur svo á, að hann með þeim hafi brotið fjár- lögin, og auk þess eigi uppfylt skil- yrði þingsins að öðru leyti. Af framangreindum ástæðum, með- al annars, lýsir fundurinn yfir fylsta vantrausti á ráðherra Birni Jónssyni og skorar á hann, að hlutast til um að kvatt verði til aukaþings þegar á næstkomanda vori.» Fleiri mál voru ekki til umræðu. Fundargjörðin upplesin og samþykt. Fundi slitið. Guðm. Guðmundsson. Guðm. Magnússon. Hallgr. Halldórsson. Samsteypunefnd úrsýslunefnd Eyjafjarðar og bæjarstjórn Akureyrar er þessa dagana að bræða um verksmiðjumál Eyjafjarðar. Enn þykir ó- víst hvað úr því máli rekst eða hrekk- ur fyr en á sýslufund kemur. Darwiri 1809------1909 Þegar aldarminning þessa mikla fræði- manns var haldin í sumar sem leið á Englandi og í flestum öðrum mentuð- um löndum, þá var ekki einungis minst frægðar hans sem náttúrufræðings, held- ur og þeirra áhrifa, sem hinar nýju kenningar hans — meir og minna sýnd- ar og sannaðar með vísindalegum rök- uin ogdæmum — höfðu á lífs — og heims- skoðanir nútímans yfirleitt. Aðalkenn- ingar D. eru um «uppruna tegundanna« (Origin ofSpecies), um »náttúruvalið« (Natural Selection), að «það lifi lengst sem hæfast er« (Survival of the Fittest) og um «uppruna mannsins« (Descent of Man). Alkunnugt er hve mikin ófrið þær kenningar vöktu, jafnvel bannfær- ingar af hálfu rétttrúaðra manna. Einn- ig kannast menn við kenninguna, sem þeir Spencer og Huxley bygðu á fræð- um Danwíns — þá kenningu, sem nú er samþykt um allan heim eins og boð- orð eða trúargrein vorra daga, sem sé þ r ó u n a rkenningin (Evolútíón). En þótt svo langt sé komið, fer því fjærri að almenningur skilji til hlýtar fræði Darwíns eða hver sannindarök í henni felast, enda stóð hún til stórra bóta — og stendur enn, því að það er bæði, að náttúran geymir enn ótal- margar óleystar gátur, enda snertir nátt- úrufræðin síðan miklu fremur en áður ýmsar hliðar annara vísinda og þekk- ingarefna. Hér skal einungis bent á hina nýju fræði í sambandi við siðafræðina — Pá vísindagrein, sem ásamt sálarfræð- inni, er kölluð nútímans þyngsta verk- efni. Sú lífsskoðanastefna, sem sérstak- lega hrósaði happi þegar kenningar D. komu á loft, var materíustefnan. Sérstak- lega lofuðu mennafþeim «skóla« kenn- inguna um «rétt hins sterkára,« svo og það, að guð var sjaldan nefndur í bók- um D.; ymsir fóru og að styðja kenn- ing hagsfræðingsins Malthusar, er réð til að leggja niður allar líknarstofnanir, til þess að þjóðirnar mætti sem fyrst los- ast við þá, sem ekki væru sjálfbjarga (hæf- ir); í náttúrunni réði ofsi og eigingirni mestu. Svo kendi Nietzsche. Þó komust þeir, sem ekki voru öll- um æstari og svartsýnni, brátt að ann- ari frumsköðun, er þeir lásu betur bæði náttúrunnar eigin bók og rit Darwíns. Hvað kennir hann? Hann kennir, að þótt hinn sterkari sigri í stríði lífsins, meini hann ekki a f 1 i ð tómt eða of- beldið, heldur yfirleitt hæfileika eða yf- irburði þá sem þar eða þar komi að haldi. Sjálft Ijónið neytir ekki aflsins eins, er það hremmir bráð sína, held- ur og vitsmuna og slægðar, hvað þá heldur hin veikari dýr. Gegnum alt dýraríkið má finna tvær stefnur, svip- aðar þeim frumhvötun, sem hinn forni spekingur Grikkja Empedókles nefndi f i I i a og n e i k o s eða velvilja og ó- vild. Sjálfselskan og velvild til einhvers annars (Egoismi og Altruismé kallast það á öðrum málum) eru allsherjar drættir í ríki náttúrunuar. Og fáir eru svo fáfróðir að þeir þekki ekki nóg dæmi þeirra sanninda, t. d. m ó ð u r - á s t i n a, eins hjá dýrum sem mönn- ura, eða hinn mikla og margvíslega fél- lagskap dýra, fugla og fiska. Þessu neitar að vísu enginn. En hvert stefnir þetta lögmál? Spyrjum sögu vors kyns — seg- ir Darwín. Pessar tvær stefnur mynda sögu mann- kynsins, og D. bætti við: »Því nieiri yfirburði, sem velvild og félagsskapur nær, því fyr mannast jjjóðirnar og því drýgri og dýpri verður siðmenning þeirra

x

Norðri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.