Norðri - 04.06.1910, Page 2

Norðri - 04.06.1910, Page 2
82 NORÐRI, NR. 21 Húsgögn svo sem legubekkir, borð stólar, skápar, hillur o. fl. frá stórri húsgagna /erksmiðju í Kaupmannahöfn er til sölu. ódýrara en áður hefir þekst hér. Ennfremur rúmstæði, járnrúm, undirdýnur o. fl. Ymsir merkir íslendingar hafa keypt húsgögn sín hjá þessari verksmiðju og Ijúka á hana lofsyrði. Eggert Stefánsson. það ætlun vor, að fremur bæri að tryggja fóður búfjár með heyforðabúri en korni, eða að minsta kosti jafnhliða. Regar á- reynir í vorharðindum er búfé langtum vandfóðraðra á korni en heyi sem eigi er vant kraftfóðri. Svo mundi og hey- forðabúrsstofnun ýta undir heyafla og jarðrækt einstakra manna. I byrjun mætti koma upp heyforða- búri á þann hátt, að sveitasljórn, eða félag í hrepp, semdi við tvo^eða þrjá bændur uð hafa hvorn umsigt. d 100 hesta af heyi, sem þeir settu eigi á að haustinu, ef þeir svo fyrna heyið að vori, eða nokkuð af því, ættu þeir að fá frá fóðurbirgðafélaginu eitthvert ákveðið gjald t. d. 50 au. fyrir hestinn,-en selji þeir félaginu heyið í vorharðindum fá þeir auðvitað ekkert fyrningargjald. Vér erum í engum vafa um, að margir bænd- ur mundu fúsir til að hafa hey á vetr- um umfram þarfir til að láta af hendi í vorharðindum ef þeir ættu von á að fá h^efilegt gjald fyrir að fyrna það. Svo gætu þeir alt af eytt fyrningunum sjálfir næsta vetur en fyrnt aftur nýtt hey. Pað kynni og jafnframt að gefa þessu fyrirkomulagi byr í seglin að þá er vakin von um að einstakir menn í sveitunum geti hagnast ofurlítið á slfk- um félagskap. En hver borgar svo heyfyrningamönn- um hreppanna kaupið fyrir að fyrna? Pað verður annaðhvort félag einstakra manna að gera eða sveitastjórnirnar verða að fá heimild til að jafna því gjaldi niður á búfjáreigendur í hrepp- unum, Norðri leyfír sér að varpa þessar tillögu fram til athugunar fyrir þá sem eitthvað vilja framkvæma í því nauð- synjamáli að tryggja betur búfé bænda í vorharðindum. Bókmentir. Jón Trausti: Borgir. Síðastliðið ár kom út ný skáldsaga eftir Jón Trausta, er nefnist «Borgir.» Er það »tendens«-saga eins og reyndar fleiri sögur hans. Sýnir hann þar fram á ókosti þjóðkirkjunnar, þessarar eld- gömlu úreltu stofnunar og bendir á nýtt fyrirkomulag, fríkirkju, sem spor í áttina til þessarar leiðar, er lengi hef- ir á dagskrá verið, aðskilnaðs rfkis og kirkju. Sagan gerist í smákaupstað ( Grundar- firði) og berjast þeir þar fyrir fríkirkju hugmyndinni kaupmaðurinn, ritstjórinn og fleiri helztu menn og fá unga að- stoðarprestinn í lið með sér, en sem þó bregzt, þegar á aðalhólminn er komið. Gamli presturinn, sem er tilv. tengda- faðir hans, og vill halda öllu í gamla horfinu er sem sé kominn á fundinn, þótt gamall sé, og þá er honum öllum lok- ið. Ræða hans á fundinum fer því í öfuga átt við það sem upphaflega var til- ætlast. Ritstjórinn heldur hvassa ræðu gegn kirkjunni og gamli presturinn heldur uppi vörninni, er forvörður kirk- junnar. Hann vill að hinar gömlu borg- ir hennar standi þar sem þær eiu, en láti ekki undan kröfum breytingaand- ans í neinu svo hún geti haldið sér sem lengst: Hann áh'tur ótímabært að fela þjóðinni kirkjumálin nú; það væri sama sem að gera hana heiðna að nýju. Endalyktin verður sú, að tillaga um nefndarkosning til að undirbúa fríkirk- justofnun er feld á fundinum. Sagan sýnir þannig snarpa árásá þjóð- kirkjuna, sem hún stendur vel af sér eins gömul og rótgróin eins og hún er. Torfi, gamli presturinn, sagði líka um þessa árás: «Borgir hrynja ekki fyrir stóryrðum«; og er það sannmæli. Pað þarf meira en nokkurra mauna áhlaup til að róta við gamla fyrirkomulaginu. Borgir gömlu þjóðkirkjunnar standa enn. Betta er aðalefni sögunnar, en auk þess er íléttað inn ýmsum atvixum. Með- ferð efnisins finst mér góð I já höf. en fáeitt atriði get eg ekki felt tnig við og er rétt að geta þeirra. Höf. minnist helzt til oft á ræðu aðstoðarprestsins er hann nefnir: Réttlæting Faríseanna og .hefði get- að gert það sjaldnar. Höf. virðist og líta smáunt augum á sálma þá, sem eru í sálmabókinni og kallar þá leirburð. Finst mér það of djúpt tekið í árinni, því þeir eru flestir eftir góðkunn skáld. Málið er gott á bókinni, ytri frágang- ur góður, og er hún mjög skemtileg aflestrar og þess verð að kaupa fram yfir margar aðrar bækur, er nú koma út, fyrir margra hluta sakir Specíator. Aukaþingskrafa úr Húnaþingi Rúmir30alþ.kjós. í Húnavatnssýslu héldu nýlega fund á Blönduósi til þess að skora á þingmenn kjördæmisins að beita sér fyrir að aukaþing kæmist á í sumar. Tilaga til fundarsamþyktar var borin upp svohljóðandi: »Fundurinnn skorar á þingmenn kjör- dæmisinsað beitast fyrir því, að auka- þing verði haldið á þessu sumri til þess að athuga gerðir landsstjórnar- innar í bankamálinu og fleiru, og að þingið jafnframt taki til meðferðar ýms önnur mál, sérstaklega stjórnar- skrármá ið, svo a jkaþingið valdi þjóð- inni ekki sérstökum kostnaði. Astæðurnar fyrir því, að fundurinn krefst aukaþings eru í fyrsta lagi, að landsstjórnin hafi misbeitt valdi sínu, brotið þingræðið og fótum- troðið dómsvaldið í Iandintt með því að varna hinum þingkjörnu gæzlu- stjórum hluttöku í stjórn bankans eftir 1. jan. þ. á. og setja óviðkom- andi menn í þeirra sæti f ba tkastjórn- inni, og í öðru lagi með því að ó- hlýðnast úrskurði fógeta, löglega upp- kveðnumog síðan landsyfirréttardómi. Einnig álítur fundurinn að ráð- herra ísiands hafi, að því er snertir samninginn við Thorefélagið, ekki fulinægt ákvæðum fjárlagan ta.« tillagan var samþykt með 28 atkv. gegn 2. Tilboð frá danska Landbúnaðarfélaginu. Rað er vert að eftir því sé tekið á íslandi, að hið konunglega danska Land- búnaðarfélag tekur að sér að útvega unglingum, sem landbúnað vilja nema, vinnumensku á góðum bóndabæjum í Danmötku — fyrir 1. nóvember hvert ár. Þessir menn vinna 2 ár — á vegum félagsins — sitt árið á hvorum stað. Launin eru 175 kr. fyrir fyrra ár- ið, 200 kr. hið síðara. Nemendur eiga að haldadagbók. Bæði ungir íslendingar og Færeying- ar geta komið til greina, ef þeir kunna dönsku og hafa verið eitt ár áður við landbúnaðarnám í Danmörku. Pennan undirbúning vill félagið taka að sér að útvega með hæfilegutn kjörttm. Þeir nemendur, er óska að fá vinnu- mensku 1. nóv. 1910, verða að vera 17 vetra, og eiga að senda sóknarskjal er þeir sjálfir hafi ritað, til félagsins (Vestre Boulevard 34, Köbenhavn B), innatt loka ágústmánaðar, og láta fylgja með því 1. skýrla um fæðingarstað, fæðingar- ár og foreldranöfn, 2. vitnisburð um hegðun, siðgæði og skólalærdóm, 3. læknisvottorð uni vöxt og heilsu- far. 4. vottorð frá fyrri húsbændum tim, að pilturinn sé vel vinnufær. 5. ef umsækjandi er ekki fullra 18 vetra, verður vottorð um sam- þykki frá föður hans eða lögráð- anda að fylgja með. Nemandinn verður að hlíta hinum dönsku vinnuhjúalögum. Rað er ekki ólíklegt, að þetta geti orðið til góðs gagns fyrir unga íslend- inga. Aflabrögð. Hlaðafli af þorski “hefir verið fyrirfarandi daga á Anst- fjörðnm. 5 — 11 skpd. á mótorbát f róðri á Reyðarfirði ng Norðfirði og 4 —5 á Seyðisfirði. Smásíld fékst til beitu á Reyðarfirði og Seyðisfirði. Þilskipin við Faxaflóa. hafa aflað mæta vel í vor, þó er lát- ið mest af aflabrögðum íslenzku botn- vörpueimskipanna, sem ausa upp stór- þorskinum svo tugum þúsunda skiptir, og eru nú nú farin að verka hann til söltunar og gera hann að bezta Spán- arfiski. A Vestfjörðum hefir vetrar- og vor-vertíðin á mótor- báta orðið í lakasta lagi, bæði fyrir beitu- skort og ógæftir. Vestfirðingum þykir og þilskip sín hafa Htinn afla og kenna. mest um ógæftum. Norðlenzku þilskip- in, sem verið hafa fyrir vestan Horn í vor við þorskveiðar hafa aflað nokkuð, þótt yfirleitt sé aflinn fremur lítill. Hákarlaskipin eru að koma inn til Eyjafjarðar og Siglufjarðar þessa daga með góðan afla, og má vera, að betur rætist úr með þá veiði en áhorfði í vor, því að ís hvað nú rekinn af hákarlamiðum. Enn er með öllu fiskilaust á þorska- miðum Eyjafjarðar. Aðsent. Sólarljóð um sumarmdl, sem oss örfa geðið, einhver H(raust) og H(eiðrik) sdl hefir eflaust kveðið. Símfréttir. (Rvtk. 31. mat.) Kosningar til þjóðþingsins í Danmörku eru nýlega afstaðnar. Hinn gamli vinstri mannaflokkur hefir á síð- ustu árum verið þrískiftur. Hefir Neer- gaard verið helzti maður þeirra stilt- ustu. J. C. Christensen fyrir hinum svo nefnda endurbótaflokki. þessir tveir flokkar voru í bandalagi við kosningarn- ar og unnu 56 sæti (höfðu áður 49). Búast og við að fá einn Færeying í við bót og hafa þá helming atkvæða í þing- inu. Hægri menn náðu eigi nema 13 sætum (höfðu áður 20). Róttækir vinstri- menn, sem nú hafa ráðaneyti úr sín- um flokki, og rauf þingið til að freista gæfunnar og vinna fleiri sæti, náði að- eins 20 (eins og þeir höfðu áður). Jafn- aðarmenn fengu sömu tölu og áður, 24. Talið er nú víst að stjórnin segi af sér hið bráðasta. Meðal nafnkendra manna, sem féllu við þessar kosningar má nefna: Sigurd Berg fyrv. ráðherra. Ove Rode, ritstjóra iPolitiken» og kaptein Schak. Prestkosning til Staðar í Grindavík hefir farið fram. Brynjólfur Magnússon prestaskólakandi- dat fékk flest öll atkvæði. Arnarstapa- og Skógarstrandar- umboð er veitt síra Jóni Magnússyni uppgjafapresti í Bjarnarhöfn. Læknishéruð veitt. Nauteyrarhérað Sigvalda Stefánssyni, læknaskólakandídat, Strandasýsluhérað, Magnúsi Péturssyni læknaskólakandidat. Látnir eru hinir góðkunntt bænda- öldungar í Húnavatnssýslu Páll Olafs- son Akri, og Jón Ólafsson Sveinsstöð- um. Heintili þeirra hefir lengi verið með mestu myndarheimilutn norðan lands, báðir bættu þeir bújarðir sínar til mikilla muna. Samtíningur. Bómullarfrœmjöl nefnist ný tegund af mjöli, sem Am- eríkumenn eru nýlega farnir að nota, og hafa heilsað með fögttuði í dýrtíð þeirri, sem hefir verið á allri kornvöru að undanförnu. Þv' er lýst svo, að það sé bragðbezta, næringamesta og auðmelt- anlegasta mjöl, sem búið er til úr jarðar- ávexti, og það sem mest er umvert er að það er ódýrt, kostar hálfu minnaen gott hveitimjöl. Búist er við, að það fái fljóta útbreiðslu á verzlunarmarkað- inum, enda er þegar farið að framleiða það í stórum stíl í Texas. Ríkisstjórnin þar hefir látið nákvæm- lega ransaka þetta nýja næringarefni, og efnafræðisstofnunin hefir nýlega látið uppi álit sitt um það á þá leið, að nær- ingarefni þess líktist meira krafti kjöts- ins en hveitisins og væri þó enn kröft- ugri fæðafyrir þroskun og viðhald vöðv- anna. Að bómullarfræ verði notað til mann- eldis hefir ákaflega mikla þýðingu fyrir þá landshluta, þar sem bómull er rækt- uð, það sem bómullarplantan gefur af sér, er meirihlutinn fræ, og hefir það nú hækkað í verði, svo aðhverlOOpd. kosta nú kr. 3,50 í staðinn fyrir 65 au. Taft Bandarikjaforseti komst í hann krappan hérna á dögun- um. Haun hafði lofað eldgömlu kven- frelsisfélagi að halda ræðu á ársfundi þess, og fagnaði kvenþjóðin honum þar sæmilega, enda var það í fyrsta sinni að forseti Bandaríkjanna hafði haldið ræðu

x

Norðri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.