Norðri - 03.02.1912, Side 2

Norðri - 03.02.1912, Side 2
10 NORÐRI 3 NR. NORÐRL Áformað er að Norðri komi út 1912, 42 arkir. Verð 2 kr. 50 au. Verð á auglýsingum í Norðra er 40 au. csnti- meter, reiknast eftir eins dálks breidd- Afslátt fá þeir cr mikið auglýsa. Afgreiðsla Norðra er í Brekkugötu 7 hjá Sveini Sigurjónssyni. ■y * <• 1 ♦ <- > ♦ <• j t- > ♦>» -V&r-y* <- •> ♦ < > ♦ f- > ♦ <- 35, þá mundi kosnaðaraukinn hafa lítill orðið. I stjórnarskrárfrumvarpi því, sem sam- þykt var á síðasta þingi var ákveðið, að kjósa skyldi 10 menn til þingsetu í efri deild með hlutfallskosningu, og átti alt landið að vera eitt kjördæmi. En nú er eftir að semja kosningalög- in, það mun aukaþinginu ætlað. En hver verður þá aðferðin? Rað virðist ósanngjarnt gagnvart kjós- endum að meðmælendur listanna ráði fulltrúavalinu að mestu leyti og er því sú aðferð, sem nú er viðhöfð, lítt við- unandi. Hin aðferðin, sem stjórnin stakk upp á í frumvarpinu frá 1907 verður að mínu áliti lítt framkvæmanleg, þegar landið á að verða eitt kjördæmi, kjósendum á að fjölga meira en um helming, og eigi er hægt fyrir að sjá, hvað listar og fram- bjóðendur verða margir. Pá er að finna aðferð, sem bæði sé sanngjörn og framkvæmanleg. Eg hefi athugað þá aðferð nokkuð og þykist hafa fundið auðvelda og sanngjarna hlutfallskosningaraðferð. Aðferðin er þessi: framan við nöfn frambjóðenda skal töluröð eða uúmer þeirra sett. — Pegar á kjörþing er kom- ið, skal festa upp alla listana kjósendum til athugunar. Pegar kjósendur koma inn í kjörherbergið, skulu þeim afhentir kjörseðlar og á þeim standa A-listi B- listi o. s. frv. Kjósandinn sem áður hefir athugað frambjóðendalistann, setur merki það, sem lögin ákveða—strik eða kross — við nöfn þess lista, er hann gefur atkvæði sitt, og um leið setur hann aft- an við listanafnið númer þess manns- ins, sem hann ákveður að fái heilt at- kvæði sitt, eða standi fremstur á listan- um. Lítur þá atkvæðagreiðslan t. d. þann- ig út: X A-listi 3 eða -|- B-listi 5 eða V C-lista 2, eftir því hvern lista og hvern frambjóðanda hann kýs. Regar kjósandinn fær eigi að breyta meira til en þetta, þarf yfir kjörstjörn- in eigi að telja saman fleiri atkvæði en þeirra sem settir eru nr. 1 á hvern lista og verða þá atkvæðin sem saman þarf að telja jafnmörg og kjósendur eru. Atkvæðabrot þeirra sem neðar standa á lista, er hægt að finna á eftir með mjög óbrotnum og einföldum reikningi. Að- ferðin er þannig: Fyrst er skrifuð tala heilu atkvæðanna sem hver frambjóðandi hefir fengið, og mynda þær tölur skálínu niður á við frá vinstri til hægri handar. Pessar töl- ur samanlagðar eru atkvæði þau, sem listinn hefur fengið. Pá byrjar útreikn- ingurinn á brotunum. Stendur deilirinn við hvert mannsnafn efst í hverjum dálki; breytist deilir, er hann settur milli sviga Athvæði hvers frambjóðenda eru svo lögð saman ofan frá niður eftir. Pótt nú frambjóðendur væru 40 og stæðu á 4 listum, mundi það taka upp svo sem 2 klukkustundir að reikna at- kvæðin á þeim öllum;enþess er naum- ast þörf að það sé gjört, fyr en öll at- kvæði af landinu eru saman komin hjá stjórnarráðinu, sem að þvf loknu fyndi hlutfallstöluna og ransakaði, hve margir fulltrúar væru kosriir á hverjum lista, og þá um leið sýndi atkvæðafjöldinn hverj- ir hefðu hlotið kosninguna. í dæminu hér að framan, lét eg þá sem neðst voru á listanum hafa mest fylgi til að sýna að þeir geta náð kosn- ingu, ef að nógu margir kjósendur sam- eina sig um þá. Næðu 5 menn á þess- um lista kosningu, yrðu það nr. 1, 2, 3, 9 og 10. Eg geng út frá því að þeir kjósend- ur, sem helzt vildu kjósa fyrsta mann á lista, settu enga tölu aftan við lista- nafnið, og yfirkjörstjórnin ritaði upp aðeins atkvæði fyrsta mannsins á list- anum. Pegar fáir menn standa á lista, og 1 eða 2 ná kosningu, geta það eins vel orðið þeir, sem neðst standa. Það má sýna með því, að taka nokkra af hinum nýkosnu þingmönnum og telja þeim þau atkvæði, er þeir fengu við kosningarnar í haust. c 'O in IM ro cn © íO o o c o œ cn bfl 3 J5 *0 3 O 3 '° io 3 o 00 js 55 </) Cn OO 00 o a» CNI o co T-l Tf r- cs co ^2 O CN 'rt 00 • • TH CN co ON co O CN CN 00 A-listi. Ara Daða Flosa Hjatla Jensar Lýðs Njáls Páls Snorra Vagns : 1 : 2 : 3 : 4 : 5 : 6 : 7 1 :8 : 9 : 10 1. Ari Bergssou 24 12 8 6 4,8 4 3,4 3 2,8 2,4 2. DaðiErlingsson (»2) 67,6 135 45 33,7 27 22,5 19,3 16,8 15 13,5 3. Flosi Geirsson 128 (: 3) 85,3 256 64 51,2 42,6 36,6 32 28,4 25,io 4. Hjalti ísaksson 185 123,3 (:4) 92,5 370 75 61,6 52,8 46,2 41,i 37 5.Jens Kárason 244 162,« 122 (:5) 97,6 488 81,3 69,7 61 54,2 48,8 ó.LýðurMarteinss. 300 200 150 120 (.6) 100 600 85,7 75 66,6 60 7. Njáll Ófeigsson 362,5 241,6 181,2 145 120,8 <:/) 103,5. 725 90,6 80,5 72,5 8. Páll Rafnson 424 282,6 212 169,6 141,3 121,i <:8) 106 848 93,3 S4,s 9. Snorri Teitsson 479 319,3 239,5 191,6 159,6 137 119,7 <:9) 106,4 958 95,8 10. Vagn Þorgilss. 540 360 270 216 180 154,3 135 120 010) 108 1080 Samtals 2754 1922 1576 1413 1348 1328 1353 1399 1448 1520 011 atkvæði listans 5484. Hefði þessi listi fengið tvo fulltrúa væri það sá fyrsti og síðasti. Atkvæða- tala þingmanna nú, fer að nokkru eftir kjósendafjölda í kjördæmunum.ogmundu þau koma öðruvísi út, ef landið væri eitt kjördæmi. Eg álít rétt að varamenn efri deildar væru kjörgengir til neðri deildar, því svo getur farið að miklir hæfileika menn og góðir stjórnmálamenn hljóti vara- mannskosningu. það væri ranglátt, bæði gagnvart þeim sjálfum og þjóðinni í heild sinni, að útiloka þá frá þir.gsetu í 6—12 ár. Hver mun geta meinað þeim að leggja niður umboð sitt, væri skorað á þá að bjóða sig fram til þing- mensku í neðri deild? Óheppilegan álít eg frestinn, sem stjórnarskrárfrumvarpið ákveður milli hlutfallskosningarinnar til efri deildar og hinar óhlutbundnu til neðri deildar. Pað getur naumast hjá þvf farið, að önnur hvor kosningin fari fram um heyskapartímann. Miklu hentugri var 4 mánaða frestur — t. d. júní til október. Eg er nú orðinn langorður um þetta mál, og þótt margt fleira mætti um það segja, læt eg úttalað um það í bráð. B. E. »Perpetuum mobiIe« Vísindunum fleigir stöðugt áfram. Fyrir nokkrum árum héldu menn ó- hugsandi, að flugvelar gætu náð þeirri fullkomnun, að þær mundu eftir nokkur ár geta komið að verulegum notum. En nú er kunnut hve stórstígar fram- farir hafa orðið í þeirri grein, og stór- veldi heimsins láta byggja »stóra flota« af loftskipum. Á sama hátt telja menn nú á tímum óhugsandi og óðs manns æði að ímynda sér að hin svonefnda • eilífðarvél* (»Perpetuum mobile«) verði nokkurntíma fundin upp. Eins og kunn- ugt er, hafa ýmsir menn um langan tíma, árangurslaust, brotið heilann um vél þessa, sem á að hafa sjálfhreyfiafl, þ. e. getur gengið og starfað af afli því, er hún framleiðir sjálf. Jafnvel þótt að menn telji þetta óhugsandi, eins og áð- ur er sagt, er nú útlit fyrir að ungur maður. Stanley Hitchcock í Lundúnum, hafi leyt þessa gátu. Vél þessi er mót- or, og hefir hinn frægi uppfyndinga- maður, Sir Harram Maxim, rannsakað hana, og hælir mjög í enskum blöðum. Hann segir að mótorinn hafi starfað dag og nótt í margar vikur. Sir Harram Maxim hefir átt langar samræður við þennan unga uppfyndingamann, og þykist sannfærður um, að fullyrðingar hans um það, áð mótorinn bæði starfi og framleiði ávalt nýtt afl af eiginram- leik, séu alveg áreiðanlegar. Stanley Hitchcock vill ekki láta vél sína koma fyrir almenningssjónir, fyr en hann hefur fengið einkarétt (Patent) á henni, en um hann (einkaréttinn) var honum synjað, af því, að hann nefndi vélina »Perpetuum mobile«. Hann hef- ir því skrifað aðra umsókn; nefnir hann nú vélina sjálfhreyfismótor, og hefur fylstu von um einkarétt á henni. — Lauslega þýtt. I. H. Jóhann Sigurjónsson frá Laxamýri, er að verða frægt Ieik- ritaskáld erlendis. Hið nýja leikrit hans »FjalIa-Eyvindur«, fær mikið hrós hjá merkustu ritdómurum Dana og víðar. Leik þennan kvað eiga að sína í París innan skams, og í Kaupmannahöfn verður hann leikinn. Jóhannes kvað enn hafa leikrit í smíðnm, og taka efnið úr þjóðsögum vorum. í bókaverzlun Sig. Sigurðssonar. fæst: NordiskMönster Tidende, Fami liejournal, Krig og Fred, Frem, Hjemet, Breiðablik o. fl. blöð. Par fæst og: Bændaförin, Mín aðferð, Skú'i fógeti og fleiri nýjar bækur. „Norðurljósið" heitir nýtt mánaðarblað með mynd- um, sem Mr. Arthur Gook, trúboðinn enski hér á Akureyri gefur út. Ræðir það um trúarmál, lækningar og fleira, og er vandað að frágangi. Árgangur- inn kostar 50 au. Gook fæst dálítið við Iækningar hér í bæ, og leita fátækl ingar oft til hans, því hann lætur þá fá ráðleggingar og meðul fyrir ekki neitt. Húsbruni í Viðey. 28. f. m. brunnu þar tvö stór fisk- verkunarhús. eign hins svonefnda »Milj- ónafélags«. í húsunum brann mikið af verkuðum og óverkuðum fiski. Húsin voru vátryggð, en fiskurinn ekki. Skað' inn metinn um 40 þúsund. Með Vestu ætla ýmsir að ferðast héðan næstu daga. O. C. Thorarensen konsúll fci fyrst til R.víkur, og svo þaðan til út landa. Hyggst að dvelja erlendis nokkra mánuði. Guðmudur Ólafsson timbur- maður ætlar með skipinu til útlanda. M. Jóhannsson kaupmaður og Sigtr. Jóhannesson tirnburmeistari fara til Vest- ur- og Suðurlandsins með Vestu, og ef til vil fleiri. Alment vöruverð á Akureyri gegn borgun út í hötid. Rúgur kilo. 19 au. Rúgmjöl — 20 - Bankabygg — 24 - Hálfbaunir — 30 - Heilbaunir — 32 - Hveiti gott — 32 - Hveiti lakara — 24 - Hafi amjöl — 30 - Hrísgrjón heil — 30 - Maísmjöl — 19 - Kartöflur (útlendar) — 11 - Kaffi — 170 - Sykur — 66 - Brennivín lítir 240 - (Verð á kornvöru miðað við að heil- pokar séu keyptir.) lnn lendar vörur; Saltkjöt kilo 50 au. Smjör — 140 - Tólg — 70 - Hákarl (af Siglufirði) i — 30 - Taða úr sveitum — 7 - Gott starhey — 6 - Nýmjólk litir 15 - Nýtt skyr úr Eyjaf. — 15 - Rúgbrauð 2 kilo 40 - Raflýsing var sett upp á Eskifirði í sumri er var, og byrjað að kveikja þar í vetur. Flestir húseigendur þar hafa fengið raf- lýsing í hús sín og láta vel yfir. 16 kerta Ijós kosta 4 krónur. Horfur á að fyrirtækið beri sig ágætlega. Vesta er væntanleg hingað í nótt komandi. Meðal annara farþegja með henni eru alþingismaður Jón Jónsson Múla, og kaupm. Helgi Hafliðason Siglufltði,

x

Norðri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.