Norðri - 25.09.1913, Side 1

Norðri - 25.09.1913, Side 1
vm. 31 1913. Akureyri, 25. septtmber. Lög þau er sett voru af Alþingi 1913. 1. Lög um sérstök eftirlaun handa skáld- inu Steingr. Thorsteinsson rektor. 2. Lög um breyting á tolllögum fyrir ísland nr. 54, 11. júlí 1911, 1. gr, 15. 3. Lög um breyting á lögum nr. 30, 16. nóv. 1907, um lán úr lands- sjóði til byggingar íbúðarhúsa á prestssetrum landsins. 4. Lög um sölu á þjóðjörðinni Reykj- um í Hrútafirði. 5. Lög um löggilding verzlunarstaða í Karlseyjarvík við Reykhóla og í Haga- bót í Barðastrandasýslu. 6. Lög um breyting á 1. gr, laga um vitagjald frá 11. júní 1911. 7. Lög um samþyktir um eftirlit úr landi með fiskiveiðum í landhelgi. 8. Lög um breyting á lögum nr. 18, 9. júli 1909, um styrktarsjóð handa barnakennurum. 9. Lög um breyting á iögum nr. 32, 20. okt. 1905, um málaflutningsmenn við landsyfirdóminn í Reykjavík. 10. Lög um stofnun landhelgissjóðs ís- lands. 11. Lög um breyting á lögum nr. 26, 11. júlí 1911, um skoðun á síld. 12. Lög um bæjanöfn. 13. Lög um ábyrgðarfélög. 14. Lög um umboð þjóðjarða. 15. Lög um gjafasjóð Jóns Sigurðsson- ar handa fátækum í Eyjafjarðarsýslu. 16. Lög um breyting á lögum nr. 39, 10. nóv. 1903, um leynilegar kosn- ingar og hlutfallskosningar til bæjar- stjórna í kaupstöðum. 17. Fjáraukalög fyrir árin 1912ogl913. 18. Lög um sjódóma og réttarfar í sjó- málum. 19. Siglingalög. 20. Viðaukalög við lög nr. 24, 9. júlí 1909 um samþyktir um kornforða- búr til skepnufóðurs. 21. Girðingarlög. 22. Lög um samþyktir um herpinóta- veiði á Eyjafirði og Skagafirði. 23. Lög um friðun æðarfugla. 24. Lög um hagstofu Islands. 25. Lög um breyting á lögum um vöru- toil 22. okt. 1912. 26. Lög um mannskaðaskýrslur og rann- sókn á fundnum líkum. 27. Fjáraukalög fyrir árin 1910 ogl911. 28. Lög um heimild til að veita éinka- rétt, til þess að vinna salt o. fl. úr sjó. 29. Lög um samþykt á landsreikningn- um fyrir árin 1910 og 1911. 30. Lög um lögreglusamþykt og bygg- ingarsamþ. fyrir Vestmannaeyjasýslu. 31. Lög um mannanöfn. 32. Lög um að landssjóður leggi Lands- bankanum til 100 þús. kr. á ári í næstu 20 ár. 33. Lög um friðun fugla og eggja. 34. Lög um vatnsveitingar. 35. Landskiftalög. 36. Lög um strandferðir. 37. Lög um breyting á 16. gr. lagá nr. 29, 16. nóv. 1907. 38. Lög um hvalaveiðamenn. 39. Lög um heimild fyrir landsstjórnina til að selja prestinum að Kolfreyju- stað landspildu í Innri-Skálavík. 40. Lög um breyting á lögum 22. okt. 1912 um ritsíma og talsímakerfi ís- land. 41. Hafnarlög fyrir Vestmannaeyjar. 42. Lög um forðagæzlu. 43. Lög um bjargráðasjóð íslands. 44. Lög um breyting á lögum nr. 18, 3. okt. 1903, um kosningar til Al- þingis. 45. Frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breyting á stjórnarskrá um hin sér- staklegu málefni íslands 5. jan. 1874 ogstjórnarskipunarlögum 3.okt. 1903. 46. Lög um rafurmagnsveitu í kaup- stöðum og kauptúnum. 47. Lög um sauðfjárbaðanir. 48. Lög um breyting á og viðauki við lög 22. nóv. 1907 um bæjarstjórn í Hafnarfirði. 49. Lög um eignarnámsheimild fýrir bæj- arstjórn ísafjarðar á lóð og mann- virkjum undir Hafnarbryggju. 50. Lög um breyting á fátækralögum 10. nóv. 1905. 51. Lög um viðauka og breyting á lög um aðflutningsbann á áfengi nr. 44. 30. júlí 1909. 52. Lög um heimild fyrir veðdeild Lands- bankans til að gefa út 4. flokk (Seríu) bankavaxtabréfa. 53. Fjárlög fyrir árin 1914 og 1915. Ummæli danska blaðsins »Nationalt.« um strandferðir íslands. Pettadanska stórblað minnist á strand- ferðir íslands 6. þ. m., og kveður þar nokkuð við annan tón en í íslenzku blöðunum. Oss kom í hug, að ekki væri von að samvinna og traust þróaðist vel milli ísl. og Dana meðan jafnmismunandi skoð- anir ríkja um það sem gerist í viðskift- um og samningum milli danskra manna og íslenzkra. ísl. blöð eru að vanda stórorðari um við’ourðina og skilja þá eigi til fullnustu eða tildrög þeirra, en dönsk blöð synjga gamla lagið um vanþakklæti vort fyrir aðstoð og hjálp, sem þeir láti oss í té, en sem líkur má færa fyrir að þeir hafi fengið að fullu endurgoldna. ísl. blöðin tala um kjaftshögg, og frá Dönum andi kalt og fúlt, en þeir um að vér rekum þá á dyr eftir margra ára góðgerðastarf oss til handa. Slíkt og þvílíkt blaðahjal bætir eigi samkomulagið. »Nationaltid.« farast svo orð: »Með undrun lásu menn í gær sím- skeyti frá Reykjavík um að Björgvinar- eimskipaíélag hefði tekið að sér strand- ferðirnar við ísland fyrir 30 þús. kr. tillag. Eins og kunnugt er, hafði eim- skipafélagið »Thore« tekið að sér þess- ar ferðir 1909 fyrir 60 þús. en varð í fyrra að biðja um lausn frá samningi þeim til að verða ekki gjaldþrota. Jafnhliða skýrir símskeytið frá stofnun ísl. eimskipafél., sem eigi að taka að sér milliríkjaferðirnar og sem eigi að styrkja úr landssjóði íslands bæði með árlegu tillagi og hlutabréfakaupum. Eftir þessum tíðindum verða menn að trúa því, að hið Sameinaða, sem um meira en mannsaldur hefur annast bæði milliríkjaferðirnar og strandferðirnar, sé að fullu sett út úr spilinu, og eru það óneitanlega lélegar þakkir fyrir samvinnu félagsins og aðstoð til eflingar auknum vöruflutningum sfðustu 10 árin. Vér höfum út af þessu símskeyti átt tal við framkvæmdarstjóra Cold, sem fórust orð á þessa leið: »»F*aðvillnú svo vel til, að allir hlut- aðeigendur virðast vera ánægðir. Hinu sameinaða þykir vænt um að vera laust við strandferðirnar, sem það í fyrra tók að sér nauðugt, af því oss fanst það standa oss næst að hjálpa upp á sak- irnar (fölte os nationelt forpligtede) þeg- ar stjórn íslands hafði engin tilboð ann- arsstaðar frá. Eftir fregnum frá íslanai hefur alþingi nú fengið tilboð sem gleð- ur það, Og þar sem Björgvinarfélagið vill gera samning verða menn að ímynda sér, að það gleðji það einnig, að sá samningur komist á. Við höfðum strandferðirnar þangað til 1909, og það snerti oss þá illa, að oss var þá kastað út, ekki fyrir að það skaðaði oss peningalega, þar sem þær ferðir hafa ávalt verið lélegt fyrirtæki, heldur af því að oss þótti oss misboð- ið (var et prestige Spörgsmaal). Að Strandferðirnar borguðu sig illa sýndi það, að Thore varð að biðja um upp- gjöf á samningunum.«« Svo skýrði herra Cold frá því er hann hafði heyrt um, hvernig Björgvinarfé- lagið mundi haga strandferðum hér. F*á spurði blaðamaðurinn: »Hvernig verður afstaða hins sam- einaða framvegis með tilliti til íslands- ferða?« Svarið var: »Um það vil eg ekkert ségja að svo stöddu, það verður tíminn að leiða í ljós.« Af þessum ummælum framkvæmdar- stjórans er það Ijóst, sem getið er til i grein i síðasta blaði Norðra, að hið sameinaða hefur viljað losast við strand- ferðirnar og líklega leitað eftir átyllu til þess, og að því hefur fundist sér mis- boðið um árið, þegar Thorefélagið var tekið fram yfir það, og fundist, að sig ætti að hafa sem varaskeifu. Petta munu tildrögin til að félagið sendi ráðherra simskeyti það, er blöðunum þótti svo móðgandi fyrir þingið. En óþarfi er fyrir danska blaðamenn að vera að ala á því að hið sameinaðá hafi gert velgerðaverk að hafa hingað samgöngur. Pví það vita allir, að mik- il viðskifti hafa verið milli ísl. og Danm. og þau geta verið Dönum eins í hag og okkur, og auk ‘þess hefur danska stjórnin fyrir löngu skuldbundið sig til að sjá um póstflutning til íslands og veitt því sameinaða styrk til þess. Mörg- um þykir sá styrkur hafa verið óveru- legur, enda póstflutningar Dana hingað í minsta lagi. Vetrarferðir t. d. norður fyrir land mjög af skornum skamti. Bréf úr Keflavík við Faxaflóa 10. sept. 1913. Tíðarfarið hér sunnan lands má heita ein óslitis ótíð síðan smemma á jóla- föstu síðastliðið ár; veturinn var storma, snjóa og umhleypingasamur, þar afleið- andi eyddist mikið fóður svo hey gáf- ust víðast upp og fénaðar höld sum- staðar í lakara lagi. Aflabrögð á vetrar- vertíð víðast rýr, sém að nokkru var að kenna gæftaleysi. Fyrir innan Garðskaga á öllum Faxaflóa varð afli með allra rýrasta móti á opna báta, en á mótor- báta betri, sem gátu sótt betur og farið lengra. Ekki batnaði tíðarfarið þó sum- arið kæmi, því síðan má heita að hafi verið óslitin rosi og stormar, og óvenju kalt veður, og það svo að engin af nú- lifandi mönnum man slíka tíð. Gras- vöxtur hefir þó víðast orðið sæmileg- ur, en létt verða hey og hrakin. Útlit er fyrir að vöxtur í görðum verði mjög rýr og farið að bera á skemdum og kláða á kartöflum. Svo rnikil vandræði eru með fiskþurkun að slíks eru engin dæmi. T. d. ekki þur hjá nærri öllum enn, fiskur fengin á vetrarvertíð. Pegar gefið hefir á sjó í sumar hefir verið reitingsafli hér við sunnanverðan Faxa- flóa, en gæftir fyrir opna báta sjaldan. F>að eru fljótséðar voðaafleiðingar af þessari tíð, fénaðar förgun í frekasta lagi, en bót er það í máli, að hátt verð er á fé. En alt öðru máli er að gegna með fiskinn, þótt hátt verð sé á honum, alt að 80 kr. skpd. fyrir stóran fisk, þá er fiskurinn ekki þur ennþá og engar sjáanlegar líkur til að hann þorni þetta ár, nema það sem þurkað verður í þurk- húsum, sem verður minst af því sem óþurt er. Afleiðingin af þessu er, að öll viðskifti teppast, bændur verða að selja með afföllum, og kaupmenn að borga skaðabætur fyrir að hafa ekki til fyrir- fram seldan fisk á réttum tíma. Sunnudaginn 7. þ. m. druknaði á heimleið úr Keflavík til Garðs Þorsteinn Olafsson sem lengi bjó á Meiðastöðum og þar eftir í Miðhúsum í Garði, þeir voru tveir á bát, en annar var tekin af kjöl. Porsteinn hefur mátt langan tíma telja einn af færustu og hepnustu for- mönnum í Garði og var að honum mikill mannskaði. Eitthvað verð eg að fræða Norðra um Keflavíkurhrepp og skal þá fyrst geta þess, að hreppbúar eru nál. 500 tals, þar af nál. 450 í Keflavík. Aðalat- vinnuvegur er sjávarútvegur, sfðastliðna vetrarvertíð gengu hér 7 mótorbátar, 5 áttræðingur, 3 sexmannaför, 5 fjögra- mannaför og 5 minni bátar. Mótorbát- arnir öfluðu flestir heldur vel en allir aðrir sárlítið, f sumar hafa þessir 7 mót-

x

Norðri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.