Norðri - 25.09.1913, Blaðsíða 2

Norðri - 25.09.1913, Blaðsíða 2
Nr. 30 NORÐRI 100 orbátar stundað lóðarfiskirí, og fengið heldur góðan afla; en hann er allur ó- þurkaður og þar af leiðandi óseldur. Langt verða þeir að sækja til fiskjar að sumrinu, 30 kvartmílur og þar yfir svo róðurinn tekur næstum sólarhring, og þó er lóðin beitt í landi, svo ekki er viðstaðan nema meðan losaður er fisk- urinn úr bátnum. Lítill er hér landbún- aður utan mikil kartöflurækt. í Keflavík eru 6 kýr og als munu vera 22 í hrepp- num, um sauðfjár tölu er mér ekki vel kunnugt en áætla mætti 5 — 6 hundruð með lömbum meðtöldum. Enginn mað- ur er hér sem kallast geti ríkur, en nokkrir efnamenn, en fáir eru hér aftur ósjálfbjarga. Sveitarútsvör há, sem mikið stafar frá 2 flokks símastöð og dýrum barnaskóla, steinsteypu húsi, sem tekur 100 börn í fjórar stofur, kostar nálægt 13,000 kr. Par eru 3 kennarar. Ungl ingaskóli er í sama húsi með 1 kennara Sýslusjóðsgjald er hér í sýslu mjög hátt sem kemur af vegalagningu, sem sýsl an hefir kostað að hálfu móti landssjóð ennfremur bætist við stór upphæð til símans frá Hafnarfirði að Oerðum, við hér Gullbringusýslubúar höfumað mörgu leyti verið olbogabörn þingsins þegar kemur til fjárveitinga. Eitt má það með nýmælum telja, að hér hefir verið haldið úti mótorbát mest af Garðshrepp til að verja landhelgi í Garðsjó fyrir botnvörpungum. Að því hafa sýnilega verið mikil not, þó það geti ekki verið fullnægjandi vörn gegn þeim. Haustveðrátta hefur verið hin hagstæðasta síðan 14. þ. m. að stuttu en snörpu áfelli létti. Heyskaparlokin urðu því hin þægileg- ustu og allir náðu heyjum sínum með góðri verkun. Við Faxaflóa er mælt, að tveir góðir þurkdagar hafi komið um miðjan mánuðinn og hafi þá mikið af fiski þornað til fulls. Reknetaveiði er enn nokkur hér úti í fjarðarminni. Síldin er fremur að falla í verði erlendis stendur þó enn í 18 til 20 kr. Sláturtíð stendur nú sem hæst á Akureyri. í Kaupfélagi Eyfirðinga er nú slátrað á dag jafnaðarlega 550 fjár. Dilkar reyn- ast öllu þyngri en í fyrra. Sauðir hafa verið keyptir til slátrunar af Akureyrar- kaupmönnum á 34 aura kilo lifandi vikt og heimaviktað. Gæruverð uppkveðið á Húsavík 90 aur. kilo. Markasverð á kornvöru í Kauupmannahöfn 1 l.þ.m. Rúgur 100 kilo kr. 11,90 Rúgmél . . « — — 21,50 Alexandra hveiti « — — 19,75 Heilrís, ...«-- 22,00 Bankabygg . « - - 17,00 Maís heill . . « — - 10,80 Maís malaður « — — 11,50 Baunir ...«-- 22,00 Verzlunarfréttir Kaupmannahöfn 5. sept. S a 1 tf i s k u r . Eftirspurnin er tæp- lega eins mikil og áður, en prísinn hef- ur þó eiginlega ekki lækkað neitt veru- lega. Stór fiskur kr. 88,00, smáfiskur 76,00, millifiskur 80,00, upsi '48,00. Hnakkakýldur stór fiskur 92-93,00, millifiskur hnakkak. 82,00, Wardfiskur 68 — 70. Fiskurinn þarf að vera af beztu tegund til að ná þessu verði. Sé hann ekki prima er verðið lægra. Lýsi. Eftirspurn lítil. Ljóst þorska- lýsi 32,00, dökt 30,00 hver 105 kilo, hákarlalýsi 32,00 Ijóst og 28 — 30,00 dökt. Sellýsi eins, miðað við hver 100 kil. Meðalalýsi 45 — 50 kr. hver 105 kilo. Ef það er afbragðs góð vara kann að fást heldur meira. Æ ð a r d ú n n vel hreinsaður 37 kr; kilo, Sundmagi. 1,40 kr. kilo fyrir góða vöru, lakari 1 kr. Prjónlés. Alsokkar 75 au. hálf- sokkar 60, sjóvetlingar 38, fingravetling- ar 60 — 65 en eru minst eftirspurðir. U 1 1. Norðlenzk vorull þvegin hefur selst á 96 au. pd. af prima og 91 eyr. sekunda, sunnlenzk á 86 au. pd. Alt miðað við brúttó vigt. Pað liggur mikið óselt hér enn og sem stendur er varla hægt að fá hér nokkurt boð. Spánar og Ítalíufiskur. Stór fiskur austfirzkur 97 mörk, vestlenzkur 100 mörk, smáfiskur 75, ísa 65 kr., Wardsfiskur 65 kr. Saltkjöt. Dilkakjöt prima sex- höggvið 77,00, fjórhöggvið kindakjöt 75 kr. tn. (224 pd.) Læri söltuð 90 kilo. Rúllupilsur 1,10 au. kilo. Fiskurúrsalti. Málsfiskur 60 kr. Smáfiskur 53,00, ísa 45,00, miðað við góða vöru. Selskinn dröfnótt 6 — 6,50 hvert. S í 1 d stór 25 au. kilo nettó. Milli- síld er mjög eftirspurð og ef hún feng- ist góð, mundi prísinn verða um 40 kr. tunnan. Bjarni Sæmundsson kennari og fiskifræðingur hefur í sumar ferð- ast um Pingeyarsýslu fiskirannsóknarferð. Tók hann sér far í Hafnarfirði 13. júlí til Raufarhafnar. Par og á Húsavík hafði hann rannsóknir um aldur þorsks og síldar og hélt svo til Mývatns. Athug- aði þar silungsklak, sem er á allmörg- um bæum og gatst honum vel að því. Raunar er útbúnaður allur mjög óbrot- inn og ódýr, en virðist þó geta kom- ið að verulegum notum. Taldist svo til að frá síðasta klaki hefði komist upp um 100 þús. seyði. Klakið er aðallega á Skútustöðum, Garði, Kálfaströnd Grænavatni og Geirastöðum; eru klak- stöðvar hafðar þar við kaldavermsl. Um 60 þús. af silungi munu Mý- vetningar veiða árlega og er klak þetta því góður styrkur til viðhalds silungin- um, en auðvitað ferst mjög mikið af seyði því, sem út er klakið, verður það að bráð bæði silunginum sjálfum, kríum og öndum, einkum fiskiöndum, (topp öndum). »Lögr.« Færeyingurinn kapteinn Eversen, sem í nú í nokkur ár hefir rekið hér herpinótasíldveiði á tveimur eimskipum og saltað og verkað síldina á Oddeyrartanga, fór heimleiðis til Englands í dag. Hann ráðgerir að reka hér síldveiði af 5 eimskipum næsta ár hefur og nú leigt tvær bryggjur í við- bót, þar sem útvegurinn á að stækka um meira en helming. í raun og veru mun þetta vera enskur útvegur þótt skip- in séu talin frá Færeyjum til þess að geta notað landhelgina hér. Nýr markaður fyrir hey. Reykvíkingar eru um þessar mundir að kaupa hér allmikið af heyi, sem fara á með síðustu ferð Flóru, og fæst varla flutningur á öllu sem óskað er. sláturhúsi verður fyrst um sinn selt daglega KJ0T og MÖR. Þeir sem vilja kaupa s- |-á--t--u--r af bændum ættu að nota tækifærið, fyrrihluta kauptíðar, á meðan þeir flytja þau eigi öll heim. Verzlun J. V. Havsteens á Oddeyri ■ kaupir í alt haust nýjar velskotnar RJÚPUR n eð hæsta verði eins og að undanförnu, mót peningum og vörum með peningaverði og upp í skuldir. Bezt verður gefið fyrir þær frá 6. —20. október, og svo aftur frá 6. —20. nóvember næstk., þegar Rjúpurnar eru orðnar alhvítar. D. D. ¥. A. Akureyri. Skrifstofa f Strandgötu 23. Talsími No. 96 Símnefni „Petroeum.“ Innaristokksmunjr sófi, stólar o. fl. óskast td leigu í vetur. Afgreiðsla Norðra gefur upplýsingar- Hjólheststaska með mörgum lyklum fundin. Prentsmiðjan vísar á. Að kaupa pappír, ritföng og póstkort hjá Sveini Sigurjónssyni. Hafnarstræti 103 þýðir peningasparnað. Frá Kristjaniu hefi eg nú fengið ágætt efni (ask og birki) í vagna- og kerruhfól. Eg smíða því hjól af öllum sortum og geri við þau sem brotin eru. Hestakerrur og handkerrur fást hjá mér, ef pantað er í tíma. Erlingur Friðjónsson. Klæöavefari Yiborg, Danmörk senda að kostnaðarlausu, en gegn eftirkröfu 3,15 metra langt og l,3g nietra breift dökk- blátt eða brúngrátt og alullar bukkskinn sem er fallegt og sterkt í kalrmannsföt fyrir 15 kr. eða 4 metra svart, marinblátt dökk- brúnt eða grænt alullar fínasta [klæði í kvenkjóla fyrir 10 kr. Ull er tekin á kr 1,25 kíló, ullartuskur 50 au. kíló í skiftum. Vetrarmaður eða jafnvel ársmaður óskast. /. V. Havsteen Oddeyri. Tapast hefur um borð • s/s Hólar á leið frá Seyðisfirði til Akur- eyrarþ. l.ágúst s.l. 1 pakki saumaður í striga. Merktur: Fridtiof Nieisen Passagergods Seydisfjord. Innihald pakkans var 3 skinn. Ef einhver skyldi finna pakka þennan á einhverjum Þeim höfnum milli Seyð- isfjarðar og Akureyrar, sem strandferð- arskipin koma við a, er viðkomandi vinsamlega beðin að gjöra undirrituðum aðvart gegn fullum ómakslaunum. Reykjavík 14. sept. 1913. Fridtiof Nielsen Pósthússtræti 15. Húsnæði óskast nú þegar fyrir einhleypa. Afgreiðsla Norðra gefur upplýsingar.

x

Norðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.