Norðri


Norðri - 04.06.1915, Qupperneq 2

Norðri - 04.06.1915, Qupperneq 2
46 NORÐRI Nr. 23-24 Fyrirvarinn ykkar er ekkert samninga- mál við okkur. Við skiftum okkur ekk- ert af honum. Auðvitað göngum vér ekki að neinu, því hér er ekkert samn- ingamál á ferðinni. Yfirlýsingin ykkar (fyrirvarinn) getur þó ekki aftrað ráð- herra ykkar að fá stjórnarskrána stað- festa ef það dettur í hann. Hún getur heldur eigi aftrað því að konungurinn, sem er annar aðili löggjafarvaldsins geri einhverja yfirlýsingu ef honum sýnist svo eins og alþingi, og einhver ráð- herra vill undirrita hana með honum. í þessu fyrirvaramáli er ekki úr vegi bæði fyrir »Ingclf« og aðra að athuga sem bezt hvar við stöndum, hvað fyrir- varinn hefur að geyma þegar búið er að taka af honum umbúðirnar og leysa af honum hnútana, athuga að hann ér í raun og veru ekkert annað en yfir- lýsing þingsins um að alþingi haldi fast fram þeirri skoðun að uppburður mála vorra fyrir konungi sé sérmál. Þessa yfirlýsing verður ráðherra auð- vitað að tilkynna konungi áður en stjórnarskráin er staðfest. Læt eg svo staðarnumið að sinni og vona að enginn beri mér á brýn að nú sé ófriðlega mælt. Kári. Breytingin síðasta á vörutollslögim Eftir að »Norðri« um daginn flutti breytingu þá, sem síðasta alþingi gerði á vörutollslögunum, og skýrði frá því, hvernig 1. gr. laganna er nú, hafa marg- ar fyrirspurnir komið til blaðsins um það, hverjar séu helztu breytingarnar frá því, sem var lögleitt 20. okt. 1913 og því sem öðlaðist gildi 1. jan. 1915. Spurningum þessum skal nú reynt að svara stuttlega. Þá er fyrst að segja, að smjörsalt er frá 1. jan. 1«15 tollað, sem annað salt í 4. lið 1. gr.. Pá hefir annar liður breyzt talsvert til hins verra. í lagabreytingunni frá 20. okt. 1913 sem var stjórnarfrumvarp, var svo ákveð- ið, að undir 2 lið 1. gr. skyldi telja allskonar skepnufóður. Eftir síðustu lög- unum eru aöeins taldar nokkrar ieg- undir skepnufóðurs í þennan lið, og lenda þá hinar sortirnar í 6. lið 1. gr. Lagabreytingin 20. okt. 1913 taldi í 2. lið segldúk, striga, fiskinet, járnkarla, sleggjur og steðja o. s. frv. Nú eftir 1. jan. 1915 er sú breyting á komin, að strigi og segldúkur eiga að fara í 3. lið 1. gr. en fiskinet, járnkarlar, slegg- jur og steðjar í 6. lið. Það er í meira lagi einkennilegt, hvern- ig síðasta alþingi hefir fengist til þess, að breyta vörutollslögunum, sem allur þorri manna var strax óánægður með, á enn verra veg, og aflaga það, sem landsstjórnin hafði komið í gott horf. Sem dæmi þess, hversu lögunum hefir hrakað, má nefna, að tilbúin segl eða réttara segl frá útlöndum eru nú sett í 2. lið 1. gr. en segldúkur, efnið t segl- in sem saumuð eru hér á landi, er sett í 3. lið 1. gr. en í 3ja lið er gjaldið 12 falt^meira en í 2. lið. Ekki erverið að styðja innlendan iðnað. Retta sem hér hefir verið talið, er aðalbreytingin 1. jan. 1915, en jafnframt skal kaup- mönnum bent á, að kynna sér úrskurði stjórnarráðsins útaf vafaatriðum, er geta fyrir komið, þegar farið er að ••praktí- serat vörutollslögin. Ressir úrskurðir stjórnarráðsins eru prentaðir í B-deild stjórnartíðindanna. Vetrarkveðja Þegar eg komst á snoðir um, að hér átti fram að fara hylling vorgyðjunnar, að hér átti að flytja vorinu fagnaðar- kveðju, þá þótti mér það eigi síður vel við eigandi að geta jafnframt þess gests- ins, sem hjá oss hefur dvalið, eða með oss búið undanfarið, en er nú nýlega frá oss farinn. Eg veit að þér munuð kannast við kunningja vorn, hann Vetur, sem heils- ar upp á oss á hverju ári. Eg veit að þér munuð þekkja gamla manninn, sem klæddur er á þjóðernisvísu, í drifhvítu rykkilíni, alsettum glitrandi krystalsperl- utn. Hann talar við oss hreina íslenzku, en hirðir ekki um útlendar afturgöngur og uppvakninga, Skottur né Lalla, það er að skilja aðfengnar slettur og bögu- mæli. Stundum getur hann orðið nokkuð bituryrtur við oss, gamli maðurinn, en vér tökum því ekki ávalt með þökkum. Vér skiljum hann ekki, því að vér er- um farin að verða of erlend í anda og allri háttu. En þetta geðjast honum mið- ur vel og vill vanda um við oss. Hann vill ala oss upp og aga eins og góður og umbyggjusamur faðir. Gera oss hraust fslands börn, sem þolum að stíga fæti freðinn svörð, eða íslenzka grund, án þess að blása í kaun. Hann spornar af alefli á móti því, að vérverðum værugjarnir kramaraumingjar, sem þolum varla að drepa hendi í kalt vatn, hvað þá horfa framan í hríðar- kólgu með dálitlum gusti. Hann veit, að vér erum og verðum aldrei annað en íslands börn, og enn- fremur, að fóstra vor eða föðurland þarfnast hraustra og dugmikilla dætra og sona, ef vel á að fara. En þegar vér verðum upp úr því vaxin, að þola kulda og harðneskju, þá virðist honum, gamla manninum, með reynsluna að baki, sem fokið muni verða í flest skjól. Ressvegna gefur hann oss ársleyfi við og við, líkt og tíðkast, mán- aðarleyfi við æðri skóla þessa lands. En tilgangur hans með þessum ársleyf- um, er langt frá því að vera sá, að vér eigum að leika oss og lifa hirðuleysis- lega heldur ætlast hann til, að þau séu undirbúningstími handa oss svo að vér stöndumst prófið, sem hann heimtar af oss við og við, en föllum ekki í gegn. í fyrra kallaði hann oss til prófs og reyndi á kunnáttu vora í fornum fræð- um, og þar sem hann sá á fyrri ára prófskýrstum sínum, að vér höfðum lítið eitt þokast í áttina fram á leið, en ekki aftur á bak, þá gaf hann oss ársleyfi í þetta sinn og talaði blíðlega til vor oft- ast nær. Kom þó fyrir, að honum rynni í skap' einstöku sinnum. En hvar er líka þann lærimeistara að finna, sem aldrei gremst við lærisveina sína? Og hvaða kennifaðir hefir jafnmarga nemendur, eins og hann, blessaður karlinn. — En misjafn er sauður í mörgu fé. Og þetta þekti gamli maðurinn mörgum betur, Veit hann þvf hvað við á og hvernig hann skal haga sér, í sínu uppfræðslu og uppeldisstarfi. Nú vil eg að lokum þakka gamla manninum fyrir þessa viðdvöl hans og óska honum allra heilla; biðja hann aftur heilan rísa úr rekkju sinni og mæla við oss á íslenzka tungu, svo að vér týnum henni ekki alveg niður, og lend- um ekki inni á afvegum útlends apa- skapar og tildursmensku. Eg óska svo að Vetur, vinur vor, verði oss mildur og Ijúfur, og laði oss fremur að sér með blíðu en ógnarstríðu, svo að vér getum staðist þyngstu fulln- aðarpróf Jians með eins góðum vitnis- burði, og það væri einungis létt og lítilfjörlegt inngöngupróf, sem vér hefð- um gengið undir, að því ioknu. Eg veit, að þetta er vilji Vetrar. F*essi er hans heitasta löngun og ein- asta ást. Vér getum engu betur launað honum alla umhyggju hans og fyrirhöfn, en að styðja hann og styrkja að takmarki hans. Og það er ósk min til vor allra, þegar vér höfum heilsað sumrinu, sem til vor kemur með blóm við barm, þá ættum vér allir eða öll, að setja oss það mark, sem Vetur vill leiða oss til, og hefir einatt verið að vinna að, und- anfarandi aldir. Öll að vinna að því, að einasta óskin hans og bezta óskin vor fái sem fullkomnasta fyllingu. Guð gefi að sú ósk megi rætast. E. 260 glæpavegi, frá því fyrsta. Heldurðu að það mundi ekki vekja athygli" og eftirtekt?* »Jú, það sama sem öll önnur hneyxli: að gera skrílnum til gamans. En við skulum ekki vera eyða orðum að þessu, því það er þér ekki mögulegt að þvinga mig til að láta Konstönsu koma. Gerð þú alt hvað þú getur ilt honum ívari, það verður þó einmitt þú sjálfur, sem fær verstu útreiðurnar af því.« »Og hvernig þá það, ef eg má spyrja?* »Nóttina sem stolið var úr grafarkapellu baróns R., var eg í kirkju- garðinum,* sagði hún og stendur upp. »Ef þetta fer í mál, neyðir skyld- an mig til að bera vitnisburð um það, sem eg þá heyrði og sá.« Hún leit á Evert með talandi augum, um leið og hún gekk út og og inn í svefnherbergi sitt, sem hún tvílæsti á eftir sér. En Evert sat eftir, náfölur og orðlaus. Loksins fer hann, steitir hnefann á eftir henni og segir: »DjöfulIinn þinnl* XIV. Næstu 2 daga á eftir þetta, sáust þau ekki hjónin. Olga var altaf inni í svefnherbergi sínu og Evert langaði ekkert til að sjá hana. Priðja daginn fékk Olga bréf frá Stefaníu um það, að hún bað hana að láta Evert afreka ýms erindi fyrir manninn sinn. Olga hugsaði sig lengi um, hvort hún ætti að gera þetta. En loks- ins fór hún þó af stað út úr herbergi sínu, til að leita að Evert í hin- um öðrum herbergjum, sem hann var vanur að veræ í. Þegar hún kom að dyrum á gestastofunni, heyrði hún mannatal þar inni. Hún hlustaði dálítið og þekti strax, að það var málrómur Knúð R. baróns, sem var á ráðstefnu með manni he'nnar. Hún heyrði glöggt Knúð R. segja: »Það er þá svona: þú lýsir eftir þeim stolnu uppdráttum og það 265 hvert okkar beigir sig fyrir öðru. En vonaðu einkis góðs af mér, því eg hef enga meðaumkun með systir yðar. Evert Axelhjelm.« Þegar Evert hafði sett innsigli sitt á bréf þetta, kemur þjónninp inn og segir: • Verkfræðingur Ivarson óskar að fá að tala við baróninn.« Evert stóð kyr. Hann hélt hann hefði ekki heyrt rétt og segir: »Hver vill tala við mig?« Þjónninn tók upp aftur það sem hann hafði sagt. »Er hann vitlaus,« sagði Evert. »Segðu honum að eg taki ekki á móti honum.« Þjónninn fór en kom á augabragði aftur með bréfspjald, er aðeins fáein orð voru skrifuð á, en þau voru ensk. Evert las þau og segir: »Látið verkfræðinginn koma inn.« En orðin, sem stóðu á bréfspjaldinu, voru þessi: »Þér skuluð tala við mig, annars læt eg sækja lögregluna, til þess að fá mína stolnu uppdrætti aftur.« Rétt á eftir gekk Ivarson inn um dyrnar og læsti þeim á eftir. Fyrst stóðu þessir tveir menn kyrrir og störðu hver á annann, eins og til að mæla, hjá hverjum þeirra væri dýpra hatrið, sem þeir höfðu borið hver til annars frá barnæsku. »Það er ótrúleg dirfska,« byrjar Evert og gengur rétt að hinum, »að koma inn til manns þeirrar konu, sem hann hefir tælt. Eg gerði réttast í að láta þjóninn reka yður þveröfugann ofan stigann.* »Og já, það væri sjálfsagt full ástæða til þess, ef eg væri sá sem þér segið. En það vitið þér sjálfur, eins vel og eg, að er hrein og bein lýgi. Kona yðár er hrein eins og engill. En hræðslan sem greip hana, þegar hún vissi um yðar illmannlegu árás á mig, kom henni tii þess að fara til mín og aðvara mig. Það er ekki til neins fyrir yður að látast vera sá, er konan hafi svikið, því það situr illa á yður.« »Ef þér haldið áfram að tala í þessum tón, læt eg flegja yður út.« »Viljið þér minnast þess, sem eg skrifaði á bréfspjaldið og vera svo góður að hlusta á mig rólegur. — Síðan eg kom til Svíaríkis aftur, hafið

x

Norðri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.