Norðurland


Norðurland - 21.06.1902, Blaðsíða 1

Norðurland - 21.06.1902, Blaðsíða 1
NORÐURLAND. Ritstjóri: Einar Hjörleifsson. 39. blað. ^kureyri, 21. júní 1902. L. ár. /Uþingiskosningar. Norður-Múlasýsla. Ólafur Davíðsson kosinn með 148 atkv. og Jón hreppst. Jónsson með 140 atkv. Tvívegis var kosið. Við fyrri kosninguna náði Ólafur Davíðs- son meiri hluta atkvæða. En kos- ið var um milli Jóns Jónssonar, sem fengið hafði 125 atkv. og Jóhannesar sýslumanns Jóhannes- sonar, sem hafði fengið 121 atkv. Við síðari kosninguna hlaut sýslu- maður 134 atkv. Við fyrri kosn- inguna fekk síra Einar Pórðarson 95 atkv. og Einar prófastur Jóns- son 63, en tóku framboð sitt aft- ur að henni lokinni. Norður-t»ingeyjarsýsla. Árni Jónsson prófastur kos- inn með 56 atkv. Friðrik Guðmundsson kaup- maður á Þórshöfn fekk 9. Suður-Múlasýsla. Guttormur Vigfússon kosinn með 157 atkv. og Ari Brynjólfsson með 153 atkv. Axel sýslumaður Tulinius fekk 63 atkv. og síra Jón Guðmunds- son 49. Kjósar 02 Qullbringusýsla. Björn Kristjánsson kosinn með 215 atkv. og Þórður Thoroddsen með 175 atkv. Jón Pórarinsson skólastjóri fekk 121 og Halldór Jónsson banka- gjaldkeri 67. Vestur-Skaftafellssýsla. GuðlaugurGuðmundsson sýslu- maður kosinn. Um atkvææðafjölda þar hefir enn ekki frézt. Austur-Skaftafellssýsla. Þorgrímur Þórðarson héraðs- læknir kosinn með 52 atkv. Jón brófastur Jónsson í Skafta- felli fekk 35 atkv. Mýrasýsla. Magnús Andrésson prófastur kosinn með 67 atkv. Jóhann Eyjólfsson í Sveinatungu fekk 46. Daiasýsla. Björn Bjarnarson sýslumaður kosinn með 82 atkv. Jens Pálsson prófastur fekk 77. ísafjarðarsýslur. Skúli Thoroddsen kosinn með 235 atkv. og Síra Sigurður Stefánsson með 230 atkv. Hannes Hafstein sýslumaður fekk 137 og Matth. Ólafsson 118. Glímusöngur. (Fluttur fyrir minni glímunnar 19. maí 1902.) i Lifa enn hjá lýði listir horfnra tíða, hreysti' og hugumprýði hetjulandsins fríða. Hetjan forn í foldarskauti sefur, frægðardæmið Saga verndað hefur. Enn þá geymast íþróttanna merki: íslenzk glíma lifir hér í verki. Oft var orku’ og brögðum ójafn leikur háður, þegar fangbrögð flögðum fyrðar buðu áður. Orkuramir, glímumjúkjir garpar gerðu skessum kviður viðnáms-snarpar. Vakurlega þeim svo loftmjöðm léku, lipurt sér í krókum undan véku. Glatt á Glæsivöllum garpar snjallir drukku, en hjá ærðum tröllum engir við þeim hrukku, þegar birtist Geirröðar- í -görðum Goðmundur með piltum sviftihörðum. Sonur Noregs glímubrögðum beitti. Bæjarmagns á listum tröllþjóð steytti. Glatt var þjóð á þingi, þrek og fjör á kreiki, þegar þróttarslingir þreyttu fornmenn leiki. Enn er glíman íslenzkt þjóðargaman, enn þá snarpt og fjörugt »gripið saman«, stæltir vöðvar, fjör og táp í taugum, trú og dygð í sigurfránum augum. Lifi list og snilli löngu horfnra tíða! Glíman haldi hylli hugumstórra lýða. Kappi’ og forsjá krappan leik vér heyjum, knáum tökum, mjúkum liðasveigjum. Komi jafnan krókur móti bragði, karskur sveinn þá ber af hverju fiagði. Æfin öll er glíma ósamþýddra krafta; milli misjafns tíma, milli frelsi’ og hafta. Segjum, hvar sem höft og hættur vaka: Hver vill fást við mig, og á mér taka? Fylgjum dæmi Ása-Þórs, sem Elli endur fyrir löngu beygði að velli. Sigurður Jónsson. X Kafli úr ræðu . Páls amtmanns Briems ákjörfundiíHúnavatnssýslu 7. júní 1902. II. (Síðari kafli.) Eins og eg hefi tekið fram í bréfi til yðar Húnvetninga, þá álít eg, að hér eftir eigi sá flokkurinn að ráða, sem er í meiri hluta, en þessa meiri hluta eigi menn að afla sér á drengi- legan hátt. Bardagaaðferð flokkanna þarf að vera drengileg. Annars er þjóðinni háski búinn, og vil eg nú benda á ástæðurnar. Þér þekkið allir Sturlungaöldina hér á landi. Þá voru takmörkin fyrir því, sem menn Ieyfa sér, hverjir gagnvart öðrum, nálega horfin. Menn sviku hverjir aðra í trygðum, svikust hverjir að öðrum, lögðu eld að húsum, brendu menn inni, misþyrmdu mönnum, rændu og gerðu hverjir öðrum það tjón, sem unt var. Þá var hér innlend stjórn, búsett í landinu sjálfu, en búsetan var þar ekki einhlít. Flokka- drátturinn kom þjóðinni sjálfri í koll, og afleiðingin var sú, að land- ið misti frelsi sitt. Eg vonast til þess, að allir menn, sem hér eru samankomnir, séu mér samdóma um það, að bardagaað- ferðin á Sturlungaöldinni hafi verið háskaleg fyrir þjóð vora. En í raun réttri gildir hið sama um alla baráttu og allan ófrið, hvort sem hann er milli landa eða innanlands. Þess vegna er svo, að það er ein af kröfum siðmenning- arinnar að gera stríðin, sem háð eru, mannúðlegri. Þér munuð hafa heyrt getið um alþjóðarétt. Eftir því sem siðmenningin eykst, eftir því verður hann yfirgripsmeiri. En þessi alþjóðaréttur miðar til þess, að gera öll viðskifti þjóðanna sið- vænlegri og friðvænlegri. Hann mið- ar til þess, að koma tortrygninni milli þjóðanna fyrir kattarnef og vekja traust og bróðurhuga milli þeirra. Og sömu frumreglur gilda um baráttu stjórnmálaflokka innan- lands. Ef þeir svífast einskis, þá er þjóðinni sjálfri háski búinn. Ef menn ljúga hverjir upp á aðra og rægja hverjir aðra, þá kemur hatrið. Menn vilja ekki vinna saman, menn setja sig ekki úr færi um að svifta hverjir aðra atvinnu og gera hverjir öðrum það ilt, er framast má verða. Mér er nú ómögulegt að sjá annað, en að bardagaaðferðin nú í vetur og vor bendi á taumlausan flokka- drátt, sem geti orðið háskalegur fyrir þjóðina. Og þess vegna finst mér um fram alt nauðsynlegt, að þjóðin sjálf taki í taumana og setji flokkadrættinum ákveðin takmörk. Eg skal nú setja fram skoðanir mínar í fáum orðum. Eins og yður er kunnugt, eru ákaflega margar af greinum þeim, sem ritaðar eru um deilumál flokk- anna, alveg nafnlausar. Það vill enginn bera siðferðislega ábyrgðina af greinum þessum. Enda er svo oft, að greinarhöfundarnir eru að svala sér persónulega á öðrum eða létta af sér einhverjum andlegum óhroða, sem þeir skammast sín fyr- ir og vilja þvf heldur vera í myrkr- inu. Flokkarnir geta auðsjáanlega ekki haft ábyrgð á þessum greinum. En af því að greinarhöfundarnir berjast undir merkjum flokksins, þá verður flokkurinn að sýna afstöðu sína til þeirra. Flokkurinn verður að sýna það, hvort þeir telji þessa menn sem reglulega liðsmenn eða sem ræningja og mannorðsþjófa. Þetta er fyrsta krafan í öllum ófriði. Þér munið allir hafa heyrt getið um voldugasta ríkið í fornöld, Rómaveldi. Rómverjar voru hernað- ar þjóð. En hvað er það, sem ber mest á í hernaði þeirra? Það var aginn. *Þér hafið ef til vill heyrt frásöguna um Manlius Torkvatus, herforingja Rómverja, sem var uppi 3—400 árum fyrir Krists burð. Hann setti þau hernaðarlög, að enginn mætti berjast við fjandmennina nema í fylkingu og undir merkj- um. Sonur hans braut lögin. Hann stóðst eigi frýjuorð eins manns í óvinahernum og feldi hann í einvfgi. Faðir hans lét taka hann af lífi. Þetta var hart. En aginn var feng- inn og grundvöllurinn var lagður að veldi Rómverja. Það getur einnig verið, að mönn- um þyki hart, að blaka hendi við þessum nafnlausu greinarhöfundum. En þetta er nauðsynlegt. Flokkarnir verða að sýna afstöðu sína til þeirra. Þeir verða að neita sér um að hafa þessa pólitísku stigamenn í liði sínu. Þeir verða að neita sér um þetta vegna þjóðarinnar og ættjarðarinnar.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.