Norðurland


Norðurland - 09.08.1902, Blaðsíða 2

Norðurland - 09.08.1902, Blaðsíða 2
Nl. síðan send á hæla sýslumannsins . . . til Grunnavíkur, þar sem er næsti þingstaðurinn, og brá sýslumaður þegar við til að hefja rannsóknir þessar«. »Eg hélt nú að vísu sízt af öllu,< segir Sk. Th. enn fremur, að sýslu- maður H. Hafstein teldi sig rétta manninn til að sitja í dómarasæti í ísafjarðarsýslu við slíka rannsókn, og skal eg nú greina hér orsakirnar til þeirrar skoðunar minnar. Aður en sýslumaður H. Hafstein kom til ísafjarðarsýslu, og hóf þar kosningaundirróður sinn, þektist það þar eigi, að neinum kjósanda væri greiddur farareyrir, eða veitt ókeypis far til kjörfundar; en er sýslumaður bauð sig fram við þingkosningarnar 1900, tók hann upp á því, samfara öðrum kosningaundirróðri, að kjós- endur hans úr Grunnavíkur- og Sléttu- hreppum fengu ókeypis flutning til og frá kjörfundi, auk þess er sýslu- maður hýsti þá síðan í heyhlöðu sinni.« »A undan þingkosningunni í vor gerði nú einn af fremstu bændum og fylgismönnum okkar síra Sigurð- ar Stefánssonar í Sléttuhreppi, Árni bóndi Sigurðsson í Skáladal, mér viðvart um það, að þar sem hverj- um manni, er vildi kjósa þá Haf- stein og Mattías, væri, af hálfu sýslumanns og hans liða, boðinn ókeypis flutningur til og frá kjör- fundi, þá hefðu ýmsir, er ætluðu að kjósa okkur síra Sigurð, farið fram á það, að verða hins samá aðnjótandi, og skrifaði eg þá Árna bónda bréf, og sendi honum 70 kr., til þess að greiða fargjöld þeirra kjósenda, er hefðu ákvarðað sig til þess, að kjósa okkur síra Sigurð; en lagði jafnframt ríkt á við hann í bréfinu, að féð mætti alls ekki nota til annars en fargjaldagreiðslu, eða þá til sendiferða, er hann teldi nauðsynlegar, til þess að annast um kosningaundirbúninginn, og benti honum jafnframt á það, að ekki mætti verja neinu til að vinna menn til fylgis við okkur síra Sig- urð, eða til atkvæðakaupa, og benti eg honum á ákvæði hegningarlag- anna, er þar að lúta. Loks mæltist eg og til þess, að hann legði út fyrir mig til bráðabirgða, ef fé þetta hrykki ekki, þar sem mér var þá ókunnugt um, hve margir fylgis- menn okkar síra Sigurðar væru í Sléttuhreppi — sem hefir nær 50 kjósendur —, og auðvitað því ó- kunnugra, hve margir vildu nota sér þá fargjaldsgreiðslu, er þannig stóð til boða«. Þetta er þá það, sem Sk. Th. seg- ist hafa gert — að leggja fram pen- inga þess að koma mönnum á kjör- stað og til sendiferða við kosninga- undirbúninginn. í »Vestra« er málið skýrt frá 182 hinni hliðinni. Greinin þar er auð- sælega annaðhvort skrifuð af Hann- esi Hafstein sjálfum eða þá með hans ráði, því að ekki er að eins sagt þar frá réttarrannsóknum sýslu- manns, hel.dur ög frá fyrirætlunum hans. Og þessi »Vestra«-grein stað- festir gersamlega það, sem Sk. Thor- oddsen segir. Þar stendur, að við rannsóknir sýslumanns hafi það kom- ið í ljós, »að ýmsum kjósendum hafi verið lofað ýmist óákveðinni þóknun eða ákveðinni peningaupp- hæð tit þess að fara á kjörfund, og ekki verður séð, að neinn hafi borið það, að peningar hafi verið borgaðir til annars en að standast kostnaðinn af kjörfundarferðinni. Ut úr þessu urðu langar umræð- ur þingsetningardaginn. Og jafnframt því sem kosning Sk. Th. var tekin gild, samþykti meiri hluti þingsins, andstæðingar hans, áskorun um, að þessum rannsóknum yrði haldið á- fram. Meira en lítið er athugavert við þetta mál. Sýslumaður byrjar sjálfur á þeim sið að kosta fé til að koma kjósend- um sínum á kjörfund. Hann gerði það í fyrra og hann gerði það í ár. Kjósendur hans fengu ókeypis far báðar leiðir og »frítt uppihald á ísafirði« m. m. Almælt er í ísa- fjarðarsýslu, að kosningarundirbún- ingurinn síðasti hafi kostað hann hátt á annað þúsund króna. Það liggur í hlutarins eðli og þarf engra skýringa við, að þar sem slíkri aðferð er beitt öðrumegin, verður hinn flokkurinn að haga sér á líkan hátt, hvort sem ljúft er eða leitt, svo framarlega sem hann á að haf’a nokkura von um sigur. Og þar sem kostnaðurinn við að sækja kjörfund er jafn-gífurlegur fyrir fá- tæka menn, eins og hann er hér á landi eftir þeim óhæfilegu kosningar- lögum, sem vér eigum við að búa, er í rauninni ekkert eðlilegra en að að því dragi, sem gerst hefir í ísafjarðarsýslum —• fátækum kjós- endum verði að einhverju leyti bætt það fjártjón, sem þeir biða við það að sækja kjörfundinn. Þegar nú þessa er gætt, gegnir það hinni mestu furðu, að sýslumað- ur Isfirðinga skyldi geta fengið af sér að fara að hefja slíka rannsókn, sem hér er um að ræða. Það eitt út af fyrir sig, að hann er keppi- nautur Sk. Th., og enginn þar af leiðandi getur skoðað sýslumann al- veg óhlutdrægan, þó að hann væri allur af vilja gerður, hefði átt að vera nóg til þess, að hann hefði að minsta kosti látið aðra fást við þá rannsókn. En út yfir tekur, að hann sé rannsóknardómari í mál- inu, þrátt fyrir það, að hann hefir sjálfur beitt alveg sömu aðferð sem þeirri, er verið er að rannsaka. Og ekki bætir það úr skák, að sýslu- maður skuli þegar fara með málið í blöðin, rita eða láta rita' mjög svæsna illdeilnagrein út af málinu með hinum megnustu getsökum. Á slíkan hatt eru rannsóknardómarar ekki vanir að haga sér í sakamálum, og flettir sýslumaður með þeirri að- ferð allóþyrmilega sjálfur ofan af því, af hverjum toga þessi málsrekst- ur er spunninn. Meiri hluti þingsins samþykti til- lögu um, að þingið »sætti sig eftir atvikum við ráðstafanir þær, sem hlutaðeigandi amtmaður þegar hefir gert, í því trausti, að þær leiði til að komast fyrir hið sanna í málinu«. Vitanlega er æfinlega æskilegt »að komast fyrir hið sanna«. En ekki getum vér hugsað oss, að hér verði »komist fyrir« neitt það, er stjórn »Heimastjórnarflokksins« svo nefnda hefir ekki að hafst í marg- falt ríkari mæli en Sk. Th. í Isa- fjarðarsýslum. Sú saga var spunnin upp í vetur og mun fyrst hafa verið birt í aðal- málgagni »Heimastjórnarflokksins« í Reykjavík, að Framfaraflokkurinn hefði yfir 6000 kr. að ráða til kosn- inganna, fé, sem hann hefði fengið að mútum. Nú vita allir, að sú saga var helber ósannindi. Sannleikurinn er sá, að Framfaraflokkurinn hefir alls ekkert fé haft til þess að vinna að kosningunum, engan fyrirbúnað haft um fjárframlög, og segjum vér honum það ekki til lofs. Þar sem um nokkurn kosninga-kostnað hefir verið að tefla, hafa einstakir menn að sjálfsögðu lagt hann á sig, hver í sínu kjördæmi. En með »Heimastjórnarflokkinn« hefir þessu verið alt annan veg far- ið. Þar var skotið saman miklu fé síðastliðið haust og stjórn flokksins í Rvík hefir haft það til umráða. Alkunnugt er, að það hefir verið óspart notað, alls ekki skorið við neglur sér, til flugrita, sendiferða, kjósendaflutninga. Til dæmis hér í Eyjafjarðarsýslu var vitanlega unnið að kosningaundirbúningi í vetur fyrir peninga. Þá má geta nærri, hvort það hefir ekki verið gert í öðrum kjördæmum, þar sem þörfin var sýnilega brýnni fyrir flokkinn. Og kunnugt er oss um það, að maður hér á Akureyri bauð manni í Austur- Skaftafellssýslu 50 kr. til þess að ganga í þjónustu flokksins þar í kjördæminu. Allir kunnugir vita, að það fé ætlaði ekki Akureyrarmaður- inn að leggja fram sjálfur. Miklu meira mætti segja í þá átt, ef þörf virtist til bera. »Norðurlandi« heflr ekki virzt ástæða til að rekast í slíku, hefir í raun og veru ekki talið það annað en eðlilega viðleitni við að styrkja flokkinn. En þar sem nú stjórn »Heima- stjórnarflokksins« vitanlega hefir not- að stórfé við kosningarnar, verður það nokkuð kynlegt, að flokkinum skuli verða svo mikið um það að (frétta, að Sk. Th. hefir hjálpað ein- hverjum af kjósendum sínum til að komast á kjörfund, sem vitanlega er í alla staði löglegt. Og þess vegna verðum vér að ætla, að þingið hafi viljað »komast fyrir hið sanna« í allri kosningarbaráttunni í Isafjarð- arsýslum — að það ætlist til, að eigi síður sé rannsakað atferli fylgis- manna sýslumanns en þeirra, er móti honum börðust. Eftir þeim sögum, sem þegar eru komnar á prent, er alveg sjálfsagt að rannsaka málið frá báðum hliðum, úr því að ástæða þykir til að vera nokkuð að hreyfa við þessu, enda vitanlega auðvaldið í sýslunni sýslumanns-meg- in. Ætlist ekki þingið til þess, er hér að ræða um ofsókn og yfirdrep- skap, sem þinginu er ekki ætlandi og sóma þess ekki samboðinn. \ Nýjar bækur. Saga ísl. sjónleika. Leipzig, 1902. Geschichte der Is- Íá.ndischerDichtungder NeuzeitMlt.it W.Drama- tik. Von M. Phil. Carl Köchler. Fyrsta hefti bókar þessarar lýsti skáld- sögum vorum og höftindum þeirra, eins og kunnugt er. Þetta hefti ber vott um enn þá meiri elju höfundar og fyrirhöfn. Meistari Kiicher er óþreytandi iðjumað- ur og fult eins samvizkusamur í rann- sóknum sínum sem vor frægi vinur, landsmaður hans Poestion. Eigum vér þeim nrönnum mikið að þakka. Höfund- urinn rekur sögu vorrar seinfæru og lítilsigldu sjónleikalistar ex ovo eða frá hennar fyrsta vísi á 18. öld og gleymir engu, sem samið hefir verið þess kyns, hvort sem prentað hefir verið eða ekki kornist svo langt. Hann leitar við að sanna, hvernig famþróun listar og kunn- áttu hafi smámsaman og æ betur og ljósara birzt alla hina liðnu öld á enda, alt frá Skraparotsþuium Skálholts sveina til „Jóns Arasonar" og „Sverðs og Bag- als". Annað tnál er það, að minsti hluti þess fjölda af stærri og minni sjónleik- um, er hann nefnir, er talinn hlutgeng- ur setn listasmíði. En ekki skortir höf- undinn elju og vandvirkni til að segja nákvæmlega — stundum of nákvæmlega — frá efni og gangi hvers leiks fyrir sig. Hann tilfærir æfinlega hnífrétt nöfn og ártöl (þar sem eg þekki til) og gleymir ekki að geta þess, hve oft og hvar leik- arnir hafi verið sýndir, ef hann veit það. Mest og verulegust meðntæli fá bæði hin nýnefndu yngstu leikrit; næst þeim (af sögulegum sjónleikum) nefnir hann „Helga nragra" (M. J.), Gízur Þorvalds- son (eftir Eggert Brím) og Ingimund gamla (H. Briem). Höfundi þykir kynlegt, hve lítið Islendingum þykir til sögu og sorgarspilanna koma, enda sýmst þeir vera miklu vöruvandari en þar seni

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.