Norðurland


Norðurland - 06.12.1902, Blaðsíða 2

Norðurland - 06.12.1902, Blaðsíða 2
Nl. 42 henni er mikið eða lítið af köfnun- arefni. Einkum ber á þessum inun hjá grasaættinni. Bciri eru fóðurefn- in aftur hjá íslenzku jurtunum en þeim útlendu að því leyti, að þau eru meltanlegri, og kemur þetta jafnt fram hjá grasaættinni og hálfgrasa- ættinni. Af þessum tveimur ættum hafa verið rannsakaðar 13 tegundir, en um aðrar ættir verður ekkert sagt að svo stöddu. Þótt menn græddu ekki meira á ritgjörðinni en þessa þekkingu, þá væri það nóg til þess að gera hana að merkisritgjörð; því að þess verð- ur að gæta, að margar af jurtum þeim, sem voru rannsakaðar, eru hinar beztu fóðurjurtir, sem vaxa á íslandi. En svo lítur út, sem ýmislegt annað sé að græða á henni. Tvær starartegu n d i rn ar: gu lstör og 1 j ósastör, hafa verið rannsakaðar í tvennu lagi, og var annað sýnishornið af hvorri- tveggja tekið í tjörn, en hitt á þuru landi. Við rannsóknina kom það í ljós, að í tjarnastörunum var miklu tninna af köfnunarefni en í hinum, og getur þessi vitneskja haft tals- verða þýðingu, þegar þess er gætt, að þessar starartegundir eru einhverj- ar hinar helztu fóðurjurtir á íslandi, einkum sú fyrri. Enn verður að minnast á heyrann- sóknirnar. Heyið var af Möðruvalla- túni, og var slegið 29. júlí. Aðaljurtin var snarrótarpuntur, en nokkuð innan um af öðrum jurtum. fTemur vikurn áður tíndi Stefán snarrótarpunt á svipuðum stað á túninu, og sendi hann líka til rann- sóknar. Við rannsóknina birtist, að í heyinu var helmingi minna af köfn- unarefni en í puntsýnishorninu, eða ltelmingi minna fóðurgildi með öðr- um orðum. Þessi mikli munur er, ef til vill, að nokkuru leyti því að kenna, að heyið var ekki hreint puntliey, en aðallega mun hann stafa af því, að heyið var slegið þremur vikutn seinna en punturinn var tekinn, og sýnir þetta meðal annars, hve afar- áríðandi er að slá hey af túnum og engjutn sem fyrst á sumrin. Menn hafa að vísu vitað áður, að mikill munur er á snemmslegnu og síð- slegnu lteyi, en tnönnum hefir varla verið ljóst, að munurinn væri svona mikill. Ein jurtin, sem ratmsökuð var, var mýrasauðlaukur, og lítur svo út, sem hún ltafi fengið nafn þetta af því, að menn hafi talið hana góða fóður- jurt. Rannsóknin staðfesti alveg þessa reynslu. Nú eru ýmsar aðrar jurtir, sem heita svipuðum nöfnum, svo sem smjörlauf, sntjörgras, sauða- mergur og fleiri jurtir, og væri mjög fróðlegt að vita, hvort þessar jurtir reyndust jafn-vel við efna- fræðislega rannsókn og nöfnitt benda á. Rannsóknir þær, sem hér er um að ræða, ná að eins yfir einn tvíkímblöð- ung (loðvíði), en í þeitn flokki eru einmitt margar jurtir, sem haldnar eru ágætar fóðurjurtir, t. d. smári og vallhumall, og liggur í augum uppi, að brýna nauðsyn ber til þess að rannsaka bæði þessar og margar fleiri jurtir, því þá fyrst komast menn úr þeirri villu, sem menn vaða nú í í þessu efni. það væri því bæði óvizka og sntán að láta þessar rannsóknir falla nið- ur, svo framarlega, sem menn vilja leggja nokkura verulega rækt við íslenzkan búskap, og væri æskilegt, að fé fengist til þeirra framvegis á einhvern hátt. Eg veit til þess, að í sumar var safnað sýnishornutn af talsvert mörgum íslenzkum fóður- jurtum, og munu þær vera komnar til Svíþjóðar. Eflaust verður birt skýrsla um þær með tímanum, og má ganga að því vfsu, að hún verði jafn-fróðleg og jafn-þýðingarmikil, og þessi er. % Skitupestin. Slantnoknir dýralæknis. Lesendur »Norðurlands« rekur vafa- laust minni til þess, að búist var við, að Magnús dýralæknir Einarsson kæmi norður í Þingeyjarsýslu síðastliðið vor, til þess að rannsaka skitupest í sauð- fé. Ur því varð ekki. Þegar útséð var um þá ferð, frétti dýralæknirinn, að lík veiki hefði gengið í sauðfé í Borgar- firði, og varð það þá úr, að hann fór þangað, til þess að reyna að verða einhvers vísari um orsök veikinnar. Hann skýrir svo frá rannsóknum sín- um 1' bréfi til Landsbúnaðarfélagsins í sumar, bréfi, cr »Norðurlandi« hefir verið gerður kostur á að sjá: »Við rannsóknir þessar dvaldi eg í Stafholtstungunum 1' 10 daga (13/5-22/s). Þá — um miðjan maí — var alstaðar búið að sleppa fé því, er sjálfbjarga var, enda þótt mörgu af því væri ekki bötnuð skitan til fulls, því að reynslan hafði sýnt, að þá batnaði því fljótast og bezt, er það kom út á græn grös eða gróandann. Á ýmsum bæjum var þó haldið eftir nokkurum gemlingum, þeim, er verstir voru og ekki gátu talist sjálfbjarga, og af þessum flokki voru þeir fáu sjúklingar, sem eg fekk til athugunar. Fyrsta verk mitt vár auðvitað að kaupa nokkura skitugemlinga og drepa, til þess að rannsaka innyflin. Alls keypti eg 5 af 4 bæjum. Sjúkdómsbreytingar á innyflum þeirra allra voru nær ná- kvæmlega alveg hinar sömu: Vatns- þunt blóð; talsvert vatn í kvið og brjóstholi; öll fita ummynduð, orðin eins og slímkent soðhlaup; lymfi-kirtl- ar bólgnir og margir blóðsprengdir, einkum vinstrar-kirtlarnir; lítið sem ekkert fóður í görnum, en það, sem þar var, vatnsþunt; slímhimna vinstrar og garna bólgin og víða sáust smá- sár og blæðslur (hæmorrhagier)«. Því næst lýsir dýralæknir heilsufari sjúklinganna nokkuru nákvæmar en hér virðist þörf á, og bætir svo við: »í öllum lömbum fann eg sæg af smáum ormum í vinstrinni; þó ekki í nr. 5, en þess skal getið, að það drapst, eftir að eg hafði haft það í nokkura daga til að gera á því lækningatilraunir. Ormar þessir voru örsmáir, hárfínir, svo að þeir sáust ekki með berum augum nema ísó- leraðir á glerplötu; ættarnafn þeirra er strongylus. — í blindþarmi 4 lamb- anna fann eg nokkura trichocephali, en lítið kvað að þeim, enda eru þeir taldir fremur meinlausir. — í stór- og endaþarmi allra lambanna fann eg meir eða minna af »stórum ormum«, er voru alt að þumlungi á lengd og talsvert digrir. í einu lambinu fann eg band- orma, og Iungnaorma (strongylus filaria) fann eg í lungum 4 lambanna. Aðalorsök skitupestarinnar í lömb- um þessum var án efa smáormarnir í vinstrinni, en auk þeirra var í 3 til- fellum svo mikið af stórum ormum, að talsmál var um, að þeir hefðu getað valdið niðurgangi. Lækningatilraunir gerði eg á 4 lömb- um auk þess (nr. 5), sem áður er getið. En þar sem sjúklingarnir voru svo að fram komnir, að lítil líkindi voru til, að þeim væri viðhjálpandi, enda þótt það tækist að drepa í þeim ormana, get eg ekki dregið neina ákveðna ályktun af tilraununum. Eg skal þó taka það fram, að nokkur líkindi voru til, að nr. 5 hefði getað batnað, ef það að eins hefði haft lffskraft til að rétta við, því að við krufninguna kom það í Ijós, að flestallir ormarnir voru annaðhvort drepnir eða drifnir úr því, enda hafði eg séð koma frá því sæg af ormum. Um hin 4 lömbin er það að segja, að 2 batnaði en 2 dóu nokkuru eftir að eg var farinn, eftir því, sem eg hefi síðar frétt. Að því, er framhald á rannsóknum þessum snertir, þá liggur að sjálf- sögðu fyrst fyrir, að rannsaka víðar, og sem víðast á landinu, hvort skitu- pestin í þeim og þeim landshluta stafar af sömu orsök, því að óreyndu veit enginn, hvort t. d. skitupestin í Múla- sýslum og Þingeyjarsýslum er af sömu rótum runnin. Þá ríður á, að fá skýrslu um veikina yfirleitt, en þær er bezt að fá um leið og sýkin er rannsökuð. Loks er nauðsynlegt, að gera lækninga- tilraunir í stærri stýl, en þær verða að fara fram á þeim tíma, sem skepn- urnar eru í nokkurn veginn lífvænlegu standi, það er að segja fyrri part vors eða seinni part vetrar.« Við þessa skýrslu dýralæknisins leyf- ir »Norðurland« sér að bæta því, að vonandi er, að ekki verði undir höfuð lagst að leiða þessar rannsóknir vand- lega til lykta. Skitupestar-tjónið er einn af hinum þyngstu sköttum menningar- leysisins, eins og »Norðurland« sýndi fram á fyrir nokkurum mánuðum. Hér má ekki leggja árar í bát, fyr en allar þær ráðstafanir hafa verið gerðar, sem i voru valdi standa, til þess að uppræta þetta skaðræði úr landinu. * JCúsbruni á jíúsaoik. Verzlunarhús Örum & Wulffs brunnin. Aðfaranótt miðvikudagsins 26. f. m. brunnu verzlunarhús Örum & Wulffs verzlunar á Húsavík, 6 að tölu. Um brunann er »NorðurIandi« skrif- að á þessa leið: »K1. 2 um nóttina, milli 25. og 26., varð vart við eldinn af manni, sem vaknaði af tilviljun og fór þegar á fætur og vakti verzlunarstjórann og fleiri. Stóð þá blossinn út um skrif- stofugluggana. Fyrsta björgunartilraun var að ná púðri, er var á efsta lofti krambúðar- innar; en er það tókst ekki, vegna reykjar, var farið að velta öllum stein- olíufötum burt (niður í fjöru), og er það var búið, unnu flestir að björgun á kornmat, sem tókst þannig, að um 400 tunnur náðust. Margir fóru einnig að bera vatn á íbúðarhús verzlunar- stjórans, er tókst að verja. Einnig var veitingahúsið vatni ausið, og brann það ekki. Svo varð og mylna verzlun- arinnar varin, með framúrskarandi dugn- aði. En allmikið skemdist hún. Ekki vita menn, hvernig eldurinn hefir komið upp. En í skrifstofunni hefir það líklega verið. Lítið bjargaðist fémætt fleira en kornmaturinn, nema salt nokkuð, kol — ekki þó mikið — saltfiskur líklega talsverður og svo steinolían.« Nákvæmar fregnir hafa ekki um það komið, hvað farist hafi. En sjálfsagt hefir það verið mikið, því að sagt er, að aldrei hafi verzlunin verið jafn-vel birg að vörum eins og nú. Verzlun- arbækurnar er sagt að hafi skemst svo, að þær séu að mestu ólæsilegar, og voru þær þó í járnskáp. — Önnur fregn, sem sjálfsagt má telja áreiðanlega, segir, að 570 tunn- um af kornmat hafi verið bjargað, og hafi það verið nálægt helmingi korn- vörubirgðanna. Bréfhirðing var hjá verzlunarstjór- anum, hr. Stefáni Guðjohnsen. Póst- flutningur sá brann, er þar var, frí- merki og póstbækur. Gizkað er á, að tjónið muni ekki nema minnu en 80-100 þúsundum. Þetta er eitthvert mesta eldvoða- tjón hér á landi, annað en Akureyrar- bruninn mikli í fyrra. Nokkurir menn höfðu átt geymda muni í húsum verzlunarinnar og hafa mist þá. Harðasta útreið hefir að sögn fengið verzlunarmaður Bjarni Benedikts- son; tjón hans talið um 2000 kr. I Búnaðarframfaragrein Björns Jenssonar aðjunkts í Isafold hefir verið tekin til umræðu á fundi Landsbúnaðarfélagsins í Reykjavík. Skrifað er að sunnan, að báðir ráðu- nautar félagsins, Sigurður Sigurðsson og Guðjón Guðmundsson, hafi þar and- mælt greininni. í »Plógi«, landbúnaðar- blaði Sigurðar skólastjóra Þórólfssonar, er tekið í málið á sama hátt að aðal- efninu til eins og Stefán Stefánsson hefir gert í »Norðurlandi«. Blaðinu farast meðal annars svo orð: »En það sér hver heilvita maður, að óskynsamlegt hefði það verið af bú- fræðingunum að hvetja bændur til þess að hætta að slétta tún sín, á meðan önnur jarðræktaraðferð var ekki reynd, að eins til í hugsjónalífi manna og á pappírnum. Sannleikurinn er nú sá, að alla reynslu vantar enn þá í grasfræ- sáningu og alla þar að lútandi innlenda reynslu. Hið opinbera verður í þessu að ganga á undan, leggja fyrsta stein- inn svo stöðugan og vissan, að ofan á hann megi hlaða óhult. Eg veit ekki betur en að byrjað sé á þessu, þar sem hr. garðyrkjufræðing- ur Einar Helgason hefir látið sér mjög ant um þess háttar tilraunir við til- raunastöðina hér í Reykjavík. En það verður nokkur ár þar til er þeirri til- raun er lokið, svo á henni verði veru- lega bygt, og hún skapi nauðsynlega innlenda þekkingu í þessu efni. —- Þar til full innlend reynsla er í þessu fengin, verða bændur að halda áfram í sama horfi, sem þeir hingað til hafa haldið. Og að þúfnasléttunin, þótt léleg sé, beri engan arð og sé verri en ekki neitt, nær engri átt. En tímarnir krefj- ast þess, að öðruvísi sé að farið, ef hægt er, að öll störf í búnaðinum séu framkvæmd af þekkingu, þannig, að sem mest sé unnið með sem minstri

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.