Norðurland


Norðurland - 21.02.1903, Blaðsíða 3

Norðurland - 21.02.1903, Blaðsíða 3
+ Húsfrú Ouðrún Sigurðardótiir á Möðruvöllum í Hörgárdal, kona Stefáns Stefánssonar eldra á Möðruvöllum, lézt kl. 10 í gærmorgun úr lungnabólgu eða afleiðingum hennar, rúm- lega sjötug að aldri. — Æfiat- riða þessarar merkiskonu verð- ursíðargetiðnánarhéríblaðinu. því, að hver þurfandi maður fengi bráðabirgðastyrk þar, sem hann er búsettur, en svo sé öllu fátækrafram- færinu jafnað niður á stór svæði t. d. sýslu hverja. Það mætti líka benda á þá aðferð, að enginn hreppur væri skyldugur að leggja meira fram til fátækrafram- færslu, en eitthvað ákveðið fyrir hvern verkfæran mann, hvert lausafjár hundr- að og hverja krónu í skattskyldum tekjum; en hrökkvi það ekki til, sé því, sem til vantar, jafnað á sýsluna. En með því fyrirkomulagi hlytu allir að eiga framfærslurétt f einhverjum sérstökum hreppi; en aðalgallinn á þvf er aftur flutningur manna af einu landshorni á annað. -— Upp á þvf hefir verið stungið, að þurfamenn skyldu framfærast þar, sem þeir hefðu dvalið lengst á árabilinu frá 16—60 ára; þvf var jafnvel hald- ið fram, að þetta mundi að mestu leyti koma í veg fyrir fátækraflutn- inginn. Þó það fyrirkomulag sé tals- vert betra en núverandi ástand, þá getur komið fyrir, að maður, sem eftir núgildandi lögum væri orðinn sveitlægur í einum hreppi, yrði með því fyrirkomulagi að flytjast langa leið, ef hann vinnur fyrst t. d. 24 ár í fæðingarhreppi sínum en 20 ár í öðr- um hreppi. En komið getur það fyrir, að menn vinni sér sveitfesti með 1—2 ára dvöl, strax eftir 16 ára aldurinn. Það virðast vera aðaðlatriðin í fá* tækramálinu, að fátækraframfærslan komi sem jafnast niður á landsmenn og að sveitfestisákvæðin verði svo skýr, að girt verði að mestu fyrir deilur þær, sem orðið hafa hreppa á milli út af þurfamönnum. I Stefnuskrárnar. í síðasta hefti »Eimreiðarinnar« hefir dr. Valtýr Guðmundsson ritað grein um stefnuskrár þingflokkanna frá síð- asta þingi. Því er þar haldið fram, að sá mikli munur sé á þeim tveim skjöl- um, að í stefnuskrá Framsóknarflokks- ins sé framförunum haldið fram, en hin — Heimastjórnarflokksins — sé afturhalds-stOnuskvii. Þetta er mjög fjarri þeirri skoðun, er »Norðurland« hefir uppi látið, frá því er stefnuskrárnar voru birtar og fram á þennan dag. Og vér verðum afdráttarlaust að láta þess getið, að ritgjörð dr. V. G. hefir ekki breytt skoðun vorri. Aðaleinkennið á báðum þessum stefnuskrám er það í vorum augum, að þær fara báðar jafn-eindregið í framfaraáttina, enda vitum vér ekki betur en einmitt framfaramennirnir í Heimastjórnarflokkinum hafi samið stefnuskrá þess flokks. 87 NI. 3. Hulda Laxdal, Akureyri. 4. Jónína Eyjólfsdóttir, Akureyri. 5. Lovísa Agústsdóttir, Siglufirði. 6. Ólöf Sigbjarnardóttir, Ytra-Nýpi, Norður-Múlasýslu. 7. Sofffa Jóhannesdóttir, ísafirði. 8. Þuríður Einarsdóttir, Reykjahlíð, Suður-Þingeyjarsýslu. I skólanum eru nú fleiri stúlkur en verið hafa, síðan fyrirkomulagi hans var breytt þannig, að stúlkur fá ekki að vera styttri tíma en alt skólaárið og verða að taka þátt í öllum náms- greinum, sem kendar eru. Þetta virðist bera gleðilegan vott um, að mönnum skiljist æ betur og betur, að eins til tveggja mánaða vera á skóla sé oft og tíðum að eins til að eyða tíma og peningum, en að námstíminn ætti þar á móti að vera minst 2 vetur, eins og gert er ráð fyrir hér við skólann. í vetur hafa fyrirlestrar verið haldn- ir öðru hvoru fyrir námsmeyjum : í sögu, (skólstjóri J. A. Hjaltalín), landafræði (kennari St. Stefánsson) og heilsufræði (læknir Steingr. Matthíasson) og verður þeim haldið áfram. H. Árnadóffir. 5» Pólifískur fundur. Laugardaginn þann 14. þ. m. hélt sýslu- maður Kl. Jónsson fund með kjósendum í Svarfaðardal. Fundurinn var haldinn í þing- húsi hreppsins, og mættu þar yfir 60 manns. Sýslumaður skýrði þar fyrir kjósendum, hversu árlðandi væri að kjósa nú á þing þá menn, er framfylgdu af alhug þeim málum, sem að sjálfsögðu hljóta, auk stjórnarskrármáls- ins, að verða á dagskrá næsta þings, svo sem mentamál og atvinnumál latidsins. Svo virtist, sem allir fundarmenn væru einhuga í því, að kjósa á þing sýslumann og Stefán Stefánsson í Fagraskógi. Enginn af þeim, sem á fundinum mætti, lét í ljós, að hann væri fylgjandi Hannesi Hafstein til þing- mensku fyrir þetta kjördæmi. Kaupfélag Svalbarðseyrar hélt fund í Fagraskógi um síðastliðna helgi. Fundurinn stóð 3 daga. Kaupfélags- stjóri Friðbjörn Bjarnarson á Grýtubakka var endurkosinn og starfslaun hans færð upp í 1000 krónur úr 700 krónum. Um Hólaskóla hafa nú sótt 23 nýir, auk þeirra 12, sem í skólanum eru í vetur. Urn aukakensluna í vetur, handa unguni bændum og bænda- efnurn, hafa sótt 40. Vegna þessara miklu aðsóknar er fyrirsjáanlegt, að húsrúmið verð- ur of lítið. Fyrir þvl er ákveðið að láta gera við baðstofu, búr og eldhús í Nýjabæ, sem stendur rétt hjá skólahúsinu, svo að unt verði að taka á móti nemendum. og lagðist I köf. Fór þá að bera á því, að hann hafði undarlega fjarsýni og framsýni. Sá hann atburði, er gerðust fjarri honum, og sagði frá þeim á sömu stundu. Einnig sagði hann fyrir óorðna hluti, og þótti margt ganga furðu nærri því, er hann spáði. Fyrir fáutn árum fórst maður á Vaðlaheiði á þann hátt, að hann hrapaði niður I gil og beið bana af. Hallgrímur var þá að heimili sínu, Völlum; sama kvöldið, er slysið vildi til, mælti hann upp úr þurru á þá leið, að ósköp væri að sjá þetta, það væri maður að hrapa á Vaðlaheiðinni. Hann sagði og, að maðurinn hefði beðið bana af fallinu. Eld- inn mikla á Akureyri sagði hann fyrir, og hagaði eldurinn sér mjög á þann veg, sem hann hafði sagt að verða mundi. Fleira mætti tilfæra því til sönnunar, að Hallgrímur heitinn hafi á síðustu árum æfi sinnar verið fjarsýnni og framsýnni en alment gerist. Dáinn er tómthúsmaður Benedikt Ólafs- son á Akureyri, einn af elztu borgurum bæjarins, hafði lengi verið heilsulítill, en talinn duglegur maður á yngri árum og jafnan vel látinn. Einnig er dáinn fóhannes fónsson á Hrana- stöðum I Eyjafirði, er þar bjó lengi ágætu búi og mörgum er að góðu kunnur. Hans verður nánar minst síðar í „Norðurl.". í gærdag andaðist hér I bænum merkis- konan ekkjufrú Margre't Halldðrsdðttir, systir cand. Jóhannesar Halldórssonar hér I bæ, prófasts Daniels Halldórssonar á Hólmum og þeirra systkyna. Hún var hátt á áttræðis- aldri. Æfintýri á gönguför hefir verið leikið einu sinni nú I vikunni I leikhúsinu hér. Tíðarfar óstöðugt, enda allkvefhætt og kvillasamt hér um slóðir. Brauðgerðarfélag Akureyrar hélt 2. aðalfund sinn í gærdag. Reikningar voru fram lagðir fyrir það 6 mánaða tímabil, sem félagið hefir starfað, og skýrslur gefnar um atvinnurekstur þess. Ákveðið var, að af ágóða félagsins skyldi borga hluthöfutn 5% vexti fyrir síðastliðið ár. Stjórn og endurskoðendur voru endur- kosnir, þeir sem verið hafa frá stofnun fé- lagsins: framkvætndarstjóri kaupmaður Frið- rik Kristjánsson, fulltrúaráð sýslumaður Kl- Jðnsson, kaupmaðnr Snorri Jðnsson og kaup- maður Þorv. Davíðsson; endurskoðendur bankastjóri Júlíus Sigurðsson og kaupmaður Magnús B. Blöndal. Fundurinn samþykti sölu nokkura hluta- bréfa, setn gengið höfðu kaupum og sölum, og virðist eftirsókn eftir hlutabréfum félags- ins nú fyrir ákvæðisverð. Það leynir sér ekki, að báðir þing- flokkar, allir þingmenn á síðasta þingi, framfaramenn og íhaldsmenn, haa litið svo á, sem framfarahugurinn sé svo ríkur hjá þjóðinni nú, þegar þjóðræð- ið er loks viðurkent að fullu, að ekki eigi við að bjóða Islendingum annað en framfara-stefnuskrá. Þessu á, að vorri skoðun, að minn- ast með eindregnum fögnuði. Hvernig sem afstaða manna er til þingflokk- anna, á að kannast við þetta sem sögulegan, ómótmælanlegan viðburð, og hann stórmerkilegan. Stefnuskrár þingflokkanna sýna hámark framfara- öldunnar hér á landi, eins og hún hefir enn verið. Hamingjunni sé lof fyrir þær báðar. Það er enginn hægð- arleikur að taka aftur þau framfara- orð, sem þar hafa verið töluð. Alt annað mál er það, að vér trú- um ekki öllum jafn-vel til þess að koma þeim framförum í framkvæmd, sem þingflokkarnir hafa heitið í þess- um stefnuskrám. Vitaskuld skiftir það eitt út af fyrir sig engu í vorum aug- um, hvorn þingflokkinn menn hafa hingað til aðhylst. Hin gömlu deilu- mál flokkanna eru útkljáð. En vér höfum enga trú á því, að þeir menn, sem alla sína æfi hafa verið íhalds- menn að eðlisfari og sannfæring, fari alt í einu að verða framfaramenn fyrir það eitt, að þeir skrifa undir fram- faraskjal. í stað þess að vera að leita að afturhalds-tilhneigingum í verulegu framfaraskjali — eins og stefnuskrá Heimastjórnarflokksins — eigum vér nú að athuga, frá hverjum mönnum von er á framförum fyrir þessa þjóð, og frá hverjum er von á íhaldi og framfaratregðu. Eftir því einu eigum vér að haga oss á kjörfundunum í vor. Námsrneyjar I kvennaskóla Eyfirðinga á Akureyri. Nöfn eftir stafrofsröð. 1. deild. 1. Aðalheiður Gísladóttir, Akureyri. 2. Aldís Einarsdóttir, Stokkahlöðum, Eyjafjarðarsýslu. 3. Brynhildur Jósefsdóttir, Akureyri. 4. Dýrleif Pálsdóttir, Möðrufelli, Eyja- fjarðarsýslu. 5- Guðrún Björnsdóttir, Skeiði, Barða- strandarsýslu. 6. Guðrún Sigurgeirsdóttir, Hjaltadal, Suður-Þingeyjarsýslu. 7. Helga Hallgrímsdóttir, Akureyri. 8. Jóhanna Ólafsdóttir,Hjalteyri,Eyja- fjarðarsýslu. q. Karítas Traustadóttir, Garði, Suður- Þingeyjarsýslu. 10. Pálína Magnúsdóttir, Hraukbæjar- koti, Eyjafjarðarsýslu. 11. SesselíaEggertsdóttir,Ytra-Krossa- nesi, Eyjafjarðarsýslu. 12. SigríðurTraustadóttir.Garði.Suður- Þingeyjarsýslu. 13. Stefanía Gfsladóttir, Steinsstöðum, Eyjafjarðarsýslu. 14. Svafa Hermannsdóttir, Syðri-Varð- gjá, Eyjafjarðarsýslu. 15. Svafa Hansdóttir, Akureyri. 16. Þórdís Árnadóttir, Litladal, Eyja- fjarðarsýslu. 2. deild: 1. Aðalbjörg Sigurðardóttir, Mikla- garði, Eyjafjarðarsýslu. 2. Hólmfríður Ingimundardóttir, Brekku, Norður-Þingeyjarsýslu. Samsonsmálið var dæmt í héraði á gamlársdag á Patreksfirði, af Halldóri sýslumanni Bjarna- syni, er var skipaður setudómari í því, með þeim hætti, að ýms meiðandi um- mæli og aðdróttanir í bréfi frá Hannesi sýslumanni Hafstein til amtmanns út af kæru Samsons kaupmanns Eyólfssonar á hendur honum voru dæmd dauð og ó- merk, sýslumaður sektaður um 20 kr. (vara- hegning 6 daga einfalt fangelsi) og dæmd- ur til að greiða 30 kr. í málskostnað. Mál- inu verður áfrýjað. Mannaláf. Nýlega andaðist Hallgrímur Þórðarson á Völlum I Eyjafirði, nær því 83 ára gamall, fyrrum bóndi 1 Gröf I Kaupangssveit. Hall- grímur heitinn var á yngri árum talinn hraustmenni mikið, harðger og duglegur. Fyrir nokkurum árum varð hann blindur Spæjarinn. Skáldsaga eftir Max Pemberton. [Framhald.] í bili milli gluggatjaldanna gat hann greint hengilampann og gyltan speg- ilinn, þar sem Marian hafði raðað ljós- myndum sínum. Einu sinni sá hann hana ganga hratt fram hjá glugganum. Hann langaði helzt til að kæra sig kollóttan um öll hyggindi, til þess að geta fengið að tala við hana enn einu sinni, áður en hún sofnaði. Hann gisti í húsi kastalastjórans, því að hann var í herstjórnarráðaneytinu; samt var hann lengi að taka í sig hug og dug, til þess að fara inn eða reyna að fá vitneskju um, hvað Bonzo hefði gert. Ljósglætan, sem lagði út frá glugga ensku stúlkunnar, var í hans augum eins og lampi í einhverjum helgidómi. Hann kvaldi sig með þeirri hugsun, að Marian svæfi þar, en dómarar hennar stæðu ógn- andi fyrir aftan hana. Hann hugsaði um

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.