Norðurland


Norðurland - 01.08.1903, Blaðsíða 4

Norðurland - 01.08.1903, Blaðsíða 4
f Nl. 180 falið á hendur að útvega til Norður- og Austuramtsins 106,700 pund af tóbaki til fjárböðunar og 200 katla til þess að sjóða í tóbakið. Ef fjáreign skyldi hafa aukist eftir seinasta fram- tali, þá eiga hreppstjórar að gefa sýslu- mönnum skýrslu um viðbótina, en sýslumenn aftur amtmanni, því að þá þarf að bæta tóbaki við. Til þess, að böðunin geti farið í lagi, á hver hrepps- sjóður að útvega ker til böðunar, tvö fyrir hver 2000 fjár í hreppi hverjum. Þau eiga að vera 20 þuml. að hæð og helzt með járnhandföngum á end- unum, 14 þuml. frá botni og víðari að ofan en að neðan. Kerin mega vera bæði sporöskjulöguð og ferstrend. Þau sporöskjulöguðu eiga að vera 35 þuml. á lengd að innanmáli en 26 þuml. á breidd á sama veg. Þau ferstrendu eiga að vera 36 þuml. að lengd en 27 þuml. að breidd, hvortveggja að innanmáli. Norðurland ræður öllum Norðlend- ingum og Austfirðingum, sem vilja halda fjárkláðanum hér í landi ár eftir ár og öld eftir öld til þess að fara ekki eftir þessu. Prófessor Finnur Jónsson kom hingað með sunnanpósti 27. júlí, og hefir hér nokkura viðdvöl. fslenzkt þjóöerni. Norðurlandi hefir verið send bók, er svo heitir. Hún er eftir }ón Jónsson sagnfræðing, og er samsafn af alþýðufyrirlestrum þeim, er hann hélt í Reykjavík vetur, er var. Kostn- aðarmaður Sigurður Kristjánsson. Bókin virð- ist vera mæt mjög, og verður seinna minst ítarlegar á hana í Norðurlandi. »Sen< og „son.< Ef konurnar viðhafnar komast í stöður, þær kynlega breytast, og skifta um föður, já, breytast svo þvert og svo beint nióti vonum, að bónda síns föður þær verða að sonum. Pær sérrétti kasta, og sjálfstæði fleygja. Þær sjálfri sér týna og ætt sinni deyja. Ef virðingar dingluðu krossar á konum, þá, kann ske, menn yrðu að dætrum úr sonum. (Ó.) Aflabrögð. Mjög mikil hafsíldarganga hefir komið hér inn á fjörðinn seinustu dagana. Þó hafa nótaúthöld aflað lítið enn þá, því að síldin er stygg, og gengur illa að landi. Talsvert hefir aftur aflast í lagnet utantil á firðinum, og í gær var mikill Iagnetaafli hér á Poll- inum, enginn í dag. f netakvíarnar við fjörð- inn hefir aflast að marki, 100—200 tunnur í hverjar, og er þó óvíst um sumar. Þorsk- afli talsverður. Fá fiskiskip komið inn: Talis- man með 13,000 og Qestur frá Hjalteyri með Iítinn afla. Tíðarfar hefir verið hlýrra en í fyrra sumar vik- una, sem leið, en mjög þurklaust yfirleitt, einkum fyrra hluta vikunnar, stundum þoka ofan undir bæi fram eftir öllum degi. Seinna hluta fimtudagsins glaðnaði til, og hefir haldist nokkur þurkur siðan. í miðri vikunni var óvfða töðubaggi kominn í tóft, en tún víðast alslegin eða slegin að mestu. Seinna hluta vikunnar hefir mikil taða ver- ið bólstruð, og sumstaðar hirt nokkuð. Gleði verzlunarmanna á Akureyri. Mánudaginn 3. ágúst halda verzl- unarmenn á Akureyri fyrstu allsherjar- gleði sína, og verður öllum búðum lokað þann dag. Slík gleði hefir hvergi verið haldin fyr hér á landi en í Reykja- vík, í nokkur ár. 5 manna nefnd hefir verið kosin úr félagi verzlunarmanna Akureyrar til þess að sjá um gleðina, og er hún svo skipuð: Vilhelm Knud- sen verzlunarmaður, Asgeir Pétursson kaupmaður, Baldvin Jónsson verzlunar- maður, Vigfús Sigfússon veitingamað- ur og Jón Stefánsson verzlunarmaður. Aliir verzlunarmenn á Akureyri eru velkomnir, þótt þeir séu ekki í félag- inu og svo aukafélagar. Hver má taka með sér þrjá gesti. Gleðin byrjar á Hótel Akureyri kl. 11 f. h. Þaðan verður gengið í skrúðgöngu út á Odd- eyri, og hefst samkoma þar kl. 12. Ræðuhöld og söngur. Flest kvæðin spánný. Veitingar í tjöldum. Oddeyrar- samkomunni lokið kl. 5. Kl. 7 e. h. verður aftur byrjað á Hótel Akureyri. Ræður, söngur og dans fram til mið- nættis. »Norðurland< óskar glæsilegs veð- urs og góðrar skemtunar. Siglingar. Tiltölulega fá gufuskip á ferðinni síð- ustu viku. »Egil< kom og fór, eins og til stóð. Þessi skip norsk hafa komið hing- að til fjarðarins til síldveiða: »Björgvin<, >Leif<, »Alf< og »Hæggholmen<. Beskytt- eren kom hingað í dag. Pósfmál. Nýlega hefir póststjórnin sent nýja „stimpla" til allra bréfhirðingarmanna á landinu, og er ekki breytt til batnaðar. Á gömlu stimplun- um stóðu nöfnin á bréfhirðingarstöðunum, og voru niargir þeirra fallegir, en á nýju stimplunum standa að eins tölur, sem erfitt er fyrir alþýðu manna að botna í að minsta kosti í bráðina. Hæst tala á nýju stimplun- um er 173. Póststjórnin er farin að gefa út nýtt blað, Póstblaðið. Út eru komin 3 nr. síðan á nýári. í blaði þessu standa allar þær nýj- ungar, er snerta póstmál, og eiga þeir, sem fást við póstafgreiðslu, að halda því saman, enda er þeim sent það ókeypis. JCvergi meira úrval af vörum en i Höepfners verzlun. TRJAVIÐUR. s/s „Hermes" er nýkominn frá Kristjaníu hlaðinn með timbur til J. Gunnarssonar & S. Jóhannessonar Akureyri og er því gott fyrir pá, sem þurfa að kaupa trjávið að kaupa hann hjá peim, pví þeir selja MJÖG BILLEGA móti peningum. þlýkomið til HÖEPFNERS VERZLUNAR mikið úrval af allskonar skófatnaði, svo sem: Karlmannaskór svartir og brúnir, margar sortir. Kvenskór svartir og brúnir, margar sortir. Barnaskór svartir og brúnir, margar sortir. Filtskór og Morgunskór fyrir karl- menn og kvenmenn, og enn fremur Brunelskór og Brunel- stígvél fyrir kvenfólk. Joh. Christensen. TIL SÖLU: 4 bátar með seglum og öllum út- búnaði til síldar eða fiskiveiða. Sömuleiðis net, kútar og dregg. Alt nýtt og vel vandað. Akureyri 25. júlf 1903. Jóhann Vigfússon. Afsláttarhesta kaupir undirritaður á komandi hausti. Joh. Christensen. erject skilvindan ENDUR- BÆTTA fæst að jafnaði við Oudm. Efterfl.s verzlun. Með s/s „Egil" kom nú til Oudm. Efterfls. verzlunar mikið af ýmsum TRJÁVIÐ, sérstaklega mikið af óunnum viði. Akureyri 8. júní 1903. Jóhann Vigfússon. Tilbúin karlmannaföt góð en þó ódýr, hjá Otto Tulinius. Cminr keypt f CARL höepf- OIIIJUI NERS verzlun. Joh. Christensen. Oll innlend vara tekin hæstu verði við Gudmanns Efterfl.s verzlun. Akureyri 10. júlí 1903. Jóh. Vigfússon. €T*rá og með næstkom- andi nýári borgar Sudmanns (jfterfl. s uerztun enga uexti af inni- eign. Akureyri 10. júlí 1903. Jóhann Vigfússon. Múrsteinn — þakpappi - veggjapappi - eldavélar — sauma- vélar hjá Otto Tulinius. BjörnOIafsson Strandgötu nr. 11 tekur að sér viðgerð á gull- og silf- urstássi, forsilfruðum borð- búnaði og viðgerð á blikk- ílátum, að gylla og forsilfra. Þeir, sem skulda CARL HÖEPFNERS verzl- un, og lítil sem eng- in skil hafa gert nú í sumarkauptíðinni, eru fastlega ámintir um að borga hið allra fyrsta. Joh. Christensen. U*.. og aðrar , smjor fslenzkar vörur kaupi eg mót vör- um með peningaverði. Munið hið lága pen- ingauerð. Otto Tulinius. p X* í (( Hinn eini útsölu- „I 0FT6CI. maður á Akureyri fyrir skilvindur frá Burmeister & Wain selur hina ágætu endurbættu „Perfect" skilvindu tneð betri kjör- um en nokkur annar. Sigva/di Pórsteinsson. Sunnudaginn 26. júlí hvarf úr forstofunni á Hótel Akur- eyri talsvert stór kassi merkt- ur Ólafi Davíðssyni á Hofi. Þeir, sem hafa tekið kass- ann til handargagns, eða vita eitthvað um hann, eru beðnir að gera Ólafi aðvart eða Sigurði Sveinssyni á Hótel Akureyri. Góð orð og bítalingur. Prentsmiðja Norðurlands.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.