Norðurland


Norðurland - 31.10.1903, Side 2

Norðurland - 31.10.1903, Side 2
NI. 22 Verri undirbúning undir harðan vet- ur og ilt vor, er tæplega hægt að hugsa sér fyrir sveitabóndann, sem lifir eingöngu á fénaði sínum. Ekki er útlitið glæsilegra, þegar litið er til sjávarins og þeirra, sem á hann treysta. Fjörðurinn lagður nú þegar út eftir öllu, skautasvell komið hér á Pollinn og enginn maður, er á sjó rær, verð- ur lífs var. Svo hefir verið í alt haust að hei-ta má og afli verið mjög rýr í alt sumar. Fisklaust fram eftir öllu sumri. Það er auðsætt, hvar lendir fyrir þurrabúðarlýðnum, ef þessu fer lengi fram, mönnum, sem ekkert eiga og ekkert hafa við að stýðja nema sjáv- araflann. Þeir hljóta að leita aðstoð- ar hjá sveitunum. En til þess að sveitabændurnir, bændurnir, sem einhvern búskap eiga, geti rétt öðrum hjálparhönd, verða þeir sjálfir að standa föstum fótum og hafa bústofn sinn vel trygðan, hvað sem á dynur; annars er alt í bersýni- legum voða, ef harðindin haldast og við því á ao búast. Eg hefi verið að furða mig á því í haust, hve bændur hér úr nærsveit- uwum seldu lítið fé, og eg hefi verið að spyrja mig fyrir um það, hvort menn slátruðu meira heima en vant er, því mér virtist óhugsandi, að eins margt mætti setja á hinar litlu og lélegu heybirgðir, eins og á mikið og gott hey undanfarið. En eg hefi oft- ast fengið það svar, að menn slátr- uðu heima líkt og vant væri, en féð væri með færra móti, miklu fargað í fyrra og geldneytum mjög í sumar, svo menn gætu miðlað sauðfé nokk- uru af hinu venjulega kúafóðri. Nokk- urir hygnustu og beztu búmenn vorir, hafa þó sagt mér, að þeir »hafi drep- ið alt að ám og kúm, það sé óðs manns æði að setja lömb á það hey, sem þeir hafi, því þau mundu drepast af því, en eldra fénu, sem gæti máske dregið fram lífið á ruddanum, væri stofnað í enn meiri voða«. Þetta hefir mér þótt viturlega mælt og betur að þetta ætti ekki víðar við, en hjá þessum heiðursmönnum, og því hefi eg skrifað þessar Iínur, að eg er hræddur um að svo sé. Eg má ekki hugsa til þess, að hinn mikli áhugi, starfshugur og fram- faraandi, sem komið hefir fram hér á Norðurlandi hin si'ðustu ár og sýndi sig svo bersýnilega við stofnun Rækt- unarfélagsins síðastliðið vor, kafnaði alt í einu niður, félli bókstaflega úr hor fyrir eintómt fyrirhyggjuleysi, undir eins og harðindi bæru að hönd- um. Nei, það má með engu móti eiga sér stað! Menn verða nákvæmlega að leggja niður fyrir sér, hve miklum peningi þeir geti fleytt á þeim fóður- birgðum, sem þeir hafa, hvernig sem viðrar, og ekki gleyma því, að fóður- gildi heyjanna er með lakasta móti. Komist þeir að þeirri niðurstöðu, að of sé á sett, þá er fyrst fyrir að farga svo miklu, sem frekast má, án þess stofninn skerðist mjög tilfinnan- anlega, en nægi það ekki, þá að sjá sór tafarlaust fyrir fóðurbæti. Heppi- legast væri, menn slægju sér sam- an, helzt heil sveitarfélög, og pönt- uðu nægar fóðurbirgðir fyrir hrepp- inn. Ættu sveitarstjórnirnar og aðrir forvígismenn sveitanna, að gangast fyrir þessu. Þar sem varla er við því að búast að allir séu svo hygnir að ætlast á, hvort þeir þurfi nokkurn fóðurbæti, eða hve mikinn, er á- ríðandi að beztu menn í sveitunum skoði fóðurbirgðir manna og ætlist á, hve miklu henni þurfi við að bæta. Þegair sú áætlun er fengin, má panta fóðrið og gerir ekki til, þótt það sé ríflegt. Eg tel víst, að kaupmenn yrðu fúsir á að útvega það, þegar þeir gætu átt borgunina vísa. En bregðist þeir, ættu kaupfélögin að geta tekið pöntunina að sér. Bezt álít eg að panta rúg. Ef ekki þarf til hans að taka til skepnufóðurs eða ef eitthvað yrði afgangs af hon- um, má Ieggja það til heimilisins. Nota- drýgst væri að gefa hann kúnum og byrja það tímanlega, en láta það af töðunni, sem sparaðist við rúggjöfina, ganga til sauðfjárins. Það mun Iáta nærri, að rúgpund samsvari 2—3 pd. af góðri töðu og 3—4 og ef til vill 5 pd. af léttri og hrakinni töðu eða útheyi. A það verður ekki ætlað með vissu, en eitt er víst, að hrakið hey, sem mist hefir mikið af hinum beztu og auðmeltustu næringarefnum sínum og er orðið mjög lélegt fóður, getur komið að góðum notum með kjarn- fóðri, sem einmitt hefir í sér fólgin ýms þau efni, sem það hefir mist. Það notast því margfalt betur með kjarnfóðrun en eitt sér. — Lýsi og síld væri og ágætt að hafa með, en þess verður líklega ekki kostur. I síðasta blaði »Norðurl.« er skýrt frá því, að amtmaður hafi skorað á sýslumenn að brýna fyrir sýslubúum sínum að sjá fénaði sínum fyrir nægu fóðri. Eg varð glaður, þegar eg Ias þetta, og eg vona að menn taki þess- ari áréttingu minni vel. Eg get ekki að því gert, eg er á nálum, hættan, sem yfir vofir, er svo mikil, ef menn fara ekki hyggilega að ráði sínu og sjá sér ekki farborða í tíma. Það er svo mikið í veði: hag- sæld og þrif tveggja landsfjórðunga um langan aldur. í mínum augum er almennur horfellir hin mesta þjóðar- smán, talandi vottur um fyrirhyggju- leysi og framtaksleysi þeirra, sem hlut eiga að máli. En ekkert bæri ljósari vott um vax- andi menningu og mannrænu en góð skepnuhöld á komandi vori eftir ann- að eins sumar og haust og harðan og langan vetur í ofanálag. Eg óska af heilum hug og vona fastlega að hægt verði að leiða það vitni. A fyrsta miðvikudag í vetri. Stefán Stefánsson. Elzfi Goodfemplar landsins. í „Frækornum", blaði hr. D. Östlunds á Seyðisfirði, er mynd af elzta Ooodtemplara landsins, hr. Fnðbirni Steinssyni, og grein um hann. F. St. hefir verið f Reglu Good- templara síðan er hún var stofnuð hér á landi og ávalt verið einn af hennar ágætustu mönnum. Myndin af þessum merkismanni er ekki nærri því eins góð og æskilegt væri. \ Jarðlausf hefir verið að mestu þessa viku hér á næstu bæjum, en frammi í firðinum er snjórinn ekki eins mikill. Fyrir austan Vaðlaheiði sagður mikill snjór. Mönnum þykir veturinn ganga örðuglega í garð ofan á sumarið eða sumarleysið. X fiý rif um náttúru íslands. 1. Helsti Pétursson: Fort- satte Bidragtil Kundskaben oin Islands „glaciale Pala- gonit-formation". - Qeol. Fðren. Förhand Nr. 215. Stockh. 1902. Eins og menn mun reka minni til, kom kandidat Helgi Pétursson jarð- fræðingur fram með þá kenningu fyrir þrem árum í Eimreiðinni, að sumt og ef til vildi mikill hlu»i af móberginu íslenzka, sem dr. Þorvaldur Thorodd- sen og eldri jarðfræðingar höfðu hald- ið fram að væri samrunnin eldfjalla- aska, væri harðnaðar jökulurðir. Bygði hann þessa kenningu á athugunum sfnum og rannsóknum í Arnessýslu ofanverðri sumarið 1899. — Hann ritaði allítarlega um málið á ensku og rökstuddi þessa kenningu sína betur en kostur var á í Eimreiðinni. Vakti sú ritgj'órð allmikla eftirtekt meðal jarðfræðinga, sem þóttu upp- götvanir Helga merkilegar. Dr. Þorvaldur Thoroddsen ritaði þegar á móti kenningu Helga í Eim- reiðinni og sfðan í sænska ritið, sem flytur þessa nýju ritgjörð Helga. Hélt hann því fram, að kenning Helga væri sumpart á veikum, sumpart á engum rökum bygð. •— Athuganir hans væru heldur engin nýjung, því bæði hann sjálfur og aðrir jarðfræðingar hefðu fundið á ferðum sínum hér jökulurðkend hnullungaberg hingað og þangað um ísland lík þeim, sem Helgi fann í hreppunum f Arnessýslu og bygði kenningu sína á. í ritgjörð þeirri, sem hér liggur fyrir, bendir Helgi á, að dr. Þ. Th hafi 1899 1' »yfirliti yfir rannsóknir sínar«, er kom út í ensku tímariti áður en Helgi skýrði frá athugunum sfnum, Iýst því yfir, að hann hefði hvergi fundið slíkar bergmyndanir á /s- landi, en nú þættist hann hafa tekið eftir þeim, þegar búið væri að benda á þær. Hér væri hann þrí í beinni mótsögn við sjálfan sig. Hið sanna væri, að bæði honum og öðrum hefði sést yfir þessar myndanir, þó undar- legt væri, eða ekki skilið uppruna þeirra og eðli, uppgötvun sú væri því spánný, hvað sem dr. Þ. Th. segði. Jafn-framt þvf að svara dr. Þ. Th. reynir Helgi að styðja móbergskenn- ingu sína með nýjum rökum, sem hann hefir safnað síðan á rannsóknarferðum sínum og telur ýmislegt sannað og ýmsar eldri kenningar hraktar, sem dr. Þ. Th. telur ósannað og óhrakið og heldur fast við. Dr. Þ. Th. álítur t. d. að yfirborð landsins hafi verið fullmótað eða aðallega verið búið að ná þeirri sömu lögun, sem það nú hefir, þegar ísnúnu dolerit- eða grá- grýtishraunin (Reykjavíkurgrjót) urðu til. Þessu neitar Helgi og nefnir mörg fjöll og dali, sem myndast hafi seinna. Dr. Þ. Th. heldur því enn fremur fast fram að hraun þessi séu tilorðin fyrir ísöldina. Þá kenningu kveðst Helgi hafa hrakið með svo »gildum rökum, að það þurfi annað meira en gamlar skoðanir, er stafi af athuganaleysi, til þess að hnekkja þeim, hve fast sem þessum skoðunum sé framhaldið« ; bend- ir hann á ýmsa staði, þar sem hraun þessi liggi ofan á hörðnuðum jökulurð- um, jöklar hljóti því að hafa verið til áður en hraunin mynduðust og þetta nægi til þess að hrekja algerlega kenningu dr. Þ. Th. Margt mætti fleira nefna, sem þess- um vísindamönnum ber á milli, en þetta verð eg að láta nægja. Mun mörgum, sem fylgt hafa með áhuga hinu mikla rannsóknarstarfi dr. Þorv. Thoroddsens þykja fróðlegt að heyra, hver úrslit verða þessarar deilu og hver réttara hefir fyrir sér, því á það legg eg engan dóm. En eitt er víst, og það hefir deila þessi sýnt, að jarðfræði íslands á enn margar óráðnar gátur og er vonandi og alt útlit fyrir, að Helga Péturs- syni megi auðnast að ráða ýmsar þeirra áður en lýkur. II. Bjarni Sæmundsson: Bidrag til Kundskaben om de isl. Hydroider. - Vidensk. Medd. fra Naturh. Forening i Kbh. 1902. Hydroidur eru smá hveljudýr, er teljast til sama flokks og marglittur. Smádýr þessi sitja föst á þangi, stein- um, skeljum o. fl. í sjó og sum í vatni og þá fest við ýmsar vatna- jurtir. Hér hefir þessum dýrum verið lítill gaumur gefinn hingað til. Dýralíf landsins er yfir höfuð mjög lítið rann- sakað eins og von er. Síðan Eggert Ólafsson leið, hefir enginn íslending- ur lagt stund á dýrafræði svo telj- andi sé, nema skáldið Benedikt Grön- dal, er safnað hefir miklu og ritað talsvert, bæði um fiska hér við land, og þó einkum um íslenzka fugla. Bjarni kennari Sæmundsson er sá fyrsti ís- lendingur, er Iagt hefir stund á dýra- fræði einvörðungu, og hefir þegar rit- að ýmislegt, bæði á dönsku og ís- lenzku, um dýralíf landsins. í ritgjörð þeirri, sem hér liggur fyrir, telur hann 60 »hydroida« eða blómhveljutegundir, sem hann sjálfur og ýmsir aðrir hafi fundið hér við land. Ein af þeim er ný fyrir vísind- in og fyrst fundin af Bjarna. Áður voru að eins 25 teg. kunnar hér, svo þetta er ekki svo lítil viðbót. Höf. skýrir frá, hvar hver tegund hafi fundist og hver hafi fundið hana. Enn fremur getur hann þess, hvar dýrið hafist við, hvort heldur skamt frá landi eða á nokkuru dýpi o. s. frv. Myndir fylgja ritgjörðinni mjög vel gerðar af 5 tegundum. Eg get búist við, að einhverjir kunni að spyrja sem svo: »Hvað eigum við að gjöra með að vita um þessi smá- kvikindi?* Enginn mun neita því, að gagnlegt sé að vita um líf og lifnaðar- háttu hinna æðri dýra í sjó og vötn- um, er við höfum bein not af. En ekkert verður um það vitað til fulln- ustu fyr en glögg þekking er fengin á hinum óæðri dýrum, því á þeim byggist líf hinna æðri dýranna og fyrir þá sök er nú á tímum mikíl stund Iögð á að rannsaka smáverur vatns og sævar. Yfir höfuð sannfærast menn æ betur og betur um það, hve afarvíðtækt veldi hinna smáu og oft ósýnilegu lífagna er, hvort sem þær teljast til dýra eða jurta ríkisins og að þekkingin ein getur sett því veldi takmörk, hvort heldur er til þess að verjast voða þess eða gera sér það undirgefið til gagns og nytsemdar oss hinum stærri og æðri verum. Stefán Stefánsson. X

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.