Norðurland


Norðurland - 09.07.1904, Side 1

Norðurland - 09.07.1904, Side 1
NORÐURLAND Ritstjóri: Einar Hjörleifsson. 41. blað. Ákureyri, 9. júlí 1904. Búnaðarmálafundur á JVlöðruvöllum í Hörgárdal Sunnudaginn 17. þ. m. 1. Sigurður ráðunautur Sigurðsson held- ur fyrirlestur um Mjólkurbú og væntanlega setur eitt á laggirnar. 2. Ouðjón búfrœðiskandídat Ouðmunds- son talar um kynbætur búpenings og gefur leiðbeiningar um val á kynbótagripum. — Nokkurir gripir verða til sýnis. Umræður verða á eftir hvorum fyrir- lestri. Áríðandi að sem allra flestir komi. Möðruvöllum 8. júlí 1904. Stefán Stefánsson. <3\ * Fundur (Ð to * Verður haldinn á Grund í Eyjafirði laugardaginn 16. júlí, kl. 3 e. m. Þar heldur Sigurður Sigurðsson ráðanautur fyrirlestur og umræður um rjómabú, Guðjón búfr. Guðmundsson um kyn- bætur, og fl. Viðstaddur verður á fundinum Iector ÞórhallurBjarnarson, formaðurbúnaðar- félags Islands. Allir þeir, sem ant er um framfarir í búnaði íslendinga, eru beðnir að sækja fundinn í réttum tíma. p. t. Akureyri 6. júlí 1904. Fyrir hönd fundarboðenda. Jónas Jónasson. Háttvirtir kaupendur Norðurlands, sem eru í skuld fyrir blaðið, geri svo vel að hafa pað hugfast, að síðasti gjalddagi að 3. árg. er fyrir miðj- an júlí. Itilefni af auglýsingu í Norð- urlandi 39. tölubl. dagsett 21/e p. á. frá 3 kaupmönn- um ÚTLENDUM á Ak- ureyri um ullarverð, læt eg undir- ritaður, fyrir hönd hlutafél. Örum & Wulff í Húsavík, ekki hjá líða að gera kunnugt: að eg hefi fastlega ásett mér AÐ GERA ÖLLUM JAFN- HÁTT UNDIR HÖFÐI MEÐ ULLARVERÐ í KOMANDI SUMARKAUPTÍÐ, HVORT HELDUR ERU EYFIRÐING- AR EÐA ÞINGEYINGAR. Húsavík 4. júlím. 1904. Sf. Suðjohnsen. ITinraunastöði M er opin á sunnudög- um frá kl. 4-6 e. h- • • • • #^ • ♦ ♦•♦ ♦ ♦ ♦ ♦ r^íjjii... %|i-”*«(|ji'- ■njn" •njii-'iijji-- ♦ ♦ ♦♦ ♦♦♦♦ ♦♦ ♦♦ ♦♦♦♦■ Y'^>i|nirs|rT’'rT1ii.mr^Ki. ðFrá öðrum löndum. Yfirlandstjóri Finnlands, Bobrikoff hershöfðingi, alræindur harðstjóri, var inyrtur 16. f. m., skotinn þrem skotum, sem hann lézt af daginn eftir. Maðurinn, sem verkið vann, hét Eugen Schaumann, ungur lögfræð- ingur og aðstoðarmaður í einni stjórnardeildinni í Helsingfors. Hann réð sjálfum sér bana tafarlaust á eftir. ^ Voðaslys varð nálægt New York 15. f. m. Skemtiskip var þar á ferð með kennara og nemendur lútersks sunnudagsskóla. Eldur kviknaði í skipinu, þar sem hamrar voru beggja vegna, og Hellgate (Vítishlið) heitir. Þarna brunnu til bana, köfnuðu og druknuðu um 1000 manns, lang- flest börn. Af skipshöfninni sjálfri týndi að eins einn maður lífi, og Þykir það bera vitni um slælega framgöngu hennar við að bjarga fólkinu, enda hafði hún verið sett í varðhald til rannsóknar, þegar síð- ast fréttist. Tvær orustur hafa orðið á landi með Rússum og Japansmönnum ný- lega, önnur 13. og 14. f. m. við Port Adams, meira en 11 mílur danskar fyrir norðan Port Arthur, hin rétt um sömu mundir á Lia- otungskaga vestanverðum við Wafan- kau. Rússar biðu lægra hlut í báð- um orustunum. Mannfall varð mikið við Wafankau, um 3000 af Rússum og að minsta kosti um 900 af Jap- önum. En í hinni orustunni er sagt, að mannfall hafi ekki orðið mikið. Rússum hefir tekist að sökkva í Japanshafi þremur eða fjórum lið- flutninga og vöruskipum fyrir Jap- önum. Japanar mistu þar full 1000 manna. Að eins ein skipshöfnin þá grið. Hinir vildu heldur týna lífinu. \ £nn umJHHHiji búnaðarskólamálið. ii. (Síðari kafli.) Eins og margsinnis hefir verið bent á og kvartað um, fjölgar fólk- inu stöðugt í bæjunum en vinnukraft- ur í sveitunum þverrar, landbúnaðinum til stórtjóns; þessu fer fram þrátt fyrir sveitabúnaðarskólana, eins og þegar er fram tekið. Hvernig geta menn látið sér detta í hug, að úr þessu verði bætt með sífeldum umkvörtunum um það, hve bæirnir dragi fólkið til sín og bjóði því betri kjör en bændur hafi efni á að bjóða, eða með því að reyna að stía fólkinu frá kaupstöðunum með því að hafa skólana sem lengst frá þeim og láta það sem minst um kaupstað- ina vita, en tala þó sífelt um »að þangað liggi flest sporin frá land- búnaðinum« og þar vilji flestir veraf Það er algild regla, að það sækjast menn mest eftir að kynna sér, sem þeim er varnað að vita um, ekki sfzt þegar þeir sjá og heyra að fjöldinn keppir eftir því. Hvergi á landinu eru eins mikil brögð að fólkstraumnum úr sveitinni eins og einmitt á suðurlandi. Reykja- vík dregur til sín og gerir það fram- vegis, þó reynt sé að aftra mönnum með því ýmist að kalla hana spillingar- bæli eða fjargviðrast út af hinum að- laðandi áhrifum Reykjavíkurlífsins. Nei, hugsunarhátturinn þarf að breyt- ast. Það verður að vakna lifandi »áhugi á landbúnaðinum og virðing fyrir bónda- stöðunni«. Þessa vakning geta menn hvergi fengið eins fljótt og alment eins og á góðum búnaðarskóla, er veiti mönnum »staðgóða búþekking«, standi í sambandi við góða tilrauna- stöð og beztu búmenn þjóðarinnar víðsvegar um alt land, þar sem nem- endur skólans geti lært og séð hin ýmsu búnaðarstörf og kynt sér með eigin augum hve landbúnaðurinn borg- ar sig, þegar hann er rekinn með þekkingu og hyggindum. Jafnframt er nauðsynlegt að skólinn eigi kost á að sýna nemendum sínum skuggahlið- ar kaupstaða og sjávarþorpalífsins. Þetta ætti hvergi að vera hægra en í Reykjavík. Þar er fjöldi fólks, sem ekkert þekkir til sveitalífs eða búnað- ar; þangað safnast það fólk, sem snúið hefir bakinu við sveitinni vegna sannra eða ímyndaðra erfiðleika, í von um betri daga í slcauti höfuð- staðarins, von, sem oftar bregst en rætist. Einmitt mitt á rneðal þessa fólks þarf að flytja evangelium landbúnað- arins með mestum krafti, og það verður ekki gert á neinn annan hátt en með góðum búnaðarskóla, er skip- aður sé þeim beztu kenslukröftum, sem völ er á, mönnum, sem hafi brennandi áhuga á starfi sínu og framför land- búnaðarins. Það ætti að vera auðvelt j III. ár. fyrir slíkan skóla að innræta nemend- um sínum lifandi sannfæringu fyrir því, hvílíkur ógrynnis auður liggur falinn og ónotaður í landinu okkar í móum og mýrum, og hversu það er tiltölulega hægt að finna og vinna þennan auð, ef vit og þekkingu vant- ar ekki; miklu ódýrara og áhættu- minna en að ausa úr hinni marglofuðu »óþrjótandi auðsuppsprettu kringum landiðc. Mikið land má rækta fyrir eitt þilskipsverð, og arðurinn af því vissari og hin árlega aðvinsla áhættu- minni en skipsýtgerðir, þar sem miklu fé og mörgum mannslífum er árlega teflt í voða. Eg nefni þetta sem dæmi. Ætli sveitapiltum, þótt ekki væru þeir uppaldir við neina sérlega vel- megun, brygði ekki í brún, ef kenn- arar þeirra færu við og við með þá á gönguför um úthverfi Reykjavíkur, sem sjálfsagt væri að gera, og sýndi þeim, við hvaða kjöt sjóara og verk- mannalýður bæjarins lifði ? Mundi þeim ekki þykja »búrið autt og búið snautt« í híbýlum þeirra, þrátt fyrir hin háu vinnulaun, ólíkt snauðara, en heima í sveitakotinu þeirra, þótt fátækt væri, hvað þá heldur á efnabænum? Ætli marga þeirra fýsti að hafa skifti? Það mundi heldur ekki ýta undir þá, ef þeir hittu á þessum skoðunarferðum sínum einhverja uppgjafabændur, sem hlaupið hefðu frá góðum jörðum og sæmilegum búum, en yrðu nú að þræla baki brotnu, og ættu ekki mál- ungi matar, eða þá ef þeir hittu unga uppeldisbræðuivsína, sem hlaupið hefðu frá foreldrum sínum í sveit á þilskip til þess að ná í háa kaupið, en ættu þrátt fyrir það ekki fótin utan á sig skuldlaus. Piltum, sem uppaldir væru hjá fátækum sjómönnum og verkmönn- um í Reykjavík; mundi hins vegar þykja allfýsilegt að gerast bændur í sveit, þegar þeir hefðu dvalið sumar- langt á góðu sveitabúi. Eg er sannfærður um, að allir heil- skygnir menn, sem ekki eru blindaðir af einhverjum heimskulegum hleypi- dómum, verði mér samdóma um, að slíkur búnaðarskóli í Reykjavík yrði ekki að eins fullkomnari og betri en tök væri á að gera hann upp til sveita, heldur mundi hann vinna á móti fólksflutningnum í kaupstaðina fremur öllum öðrum búnaðarskólum landsins, einmitt fyrir það, að hatin er í Reykjavík og hefir bezt tök á því að sýna mönnum tneð áþreifanlegum dœmuni muninn á sveita og kaupstaða- lífi. — Af þessum tveimur ástæðum aðallega, auk margra fleiri, sem eg nefndi í fyrri grein minni, eiga Sunn- lendingar að setja skóla sinn í höfuð- staðinn, þar sem þörfin er mest, og landið á að hjálpa þeim til að gera hann sem bezt úr gárði. Hinir amts- skólarnir ætlast eg til að standi óhreyfð- ir fyrst um sinn; rétt að láta reynsl- una skera úr, hversu Reykjavíkurskól- inn gefst og hvorir hafa haft réttara, andmælendur hans hinir mörgu eða

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.