Norðurland


Norðurland - 30.09.1905, Blaðsíða 3

Norðurland - 30.09.1905, Blaðsíða 3
Leiðarþing hélt Magnés Kristjánsson, alþingis- maður á laugardaginn var í leikhúsi bæjarins. Allmargir bæjarbúar mættu, bæði kjósendur og aðrir. Fyrir hrað- skeytamálinu gerði þingmaðurinn helzt þá grein, að ritsímasamningurinn væri það bezta og ódýrasta, án þess að færa rök að því og álíka veigamikla greiréjgerði hann tyrir undirskriftarmál- inu. Þeim kenningum var tekið með þögn og kulda. Auk þess skýrði hann stuttlega frá nokkurum öðrum málum, helzt þeim er beinlínis snerta kjör- dæmið eða héraðið. Nálega engar um- ræður urðu á eftir og alls engar um deilumálin, því eftir lestur þingmanns- ins þótti ekki taka því að færa rök á móti því litla er hann sagði, enda voru menn þá orðnir svo syfjaðir að fáir munu hafa treyst sér til þess. — Ofurlítið vöknuðu menn þó við það, að bæjarfógeti Guðlaugur Guðmunds- son fiutti þingmanninum þakkarávarp fra sjálfum sér fyrir samvinnuna. Þegar út kom sagði einn, af áheyr- endunum, að fundur þessi hefði ekki átt að heita leiðarþing, heldur leiða þingið. Torfunefsbryggjan. Þeir timburmeistararnir Sigtryggur Jónsson og Snorri Jónsson, sem út- nefndir voru til þess að rannsaka smíðið á skipabryggjunni á Torfunefi, að því leyti, er það var hægt, eftir hrun bennar, hafa sent bæjarstjórninni skýrslu sína. Skýrsla þessi ber það með sér að bryggjusmíðinni hefir verið áfátt í ýms- um greinum, þegar tekin er til sam- anburðar lýsing sú af bryggjunni, er smíða skyldi eftir. Verölaun fyrir úffluff smjör. A leiðarþinginu á laugardagskvöldið var benti einn fundarmaður á ofurlft- inn »smágalla«, sem hann hafði fund- ið á gerðum þingsins í sumar. Auð- vitað treysti hann því, að sá galli yrði fljótlega bættur. Fundarmanni fanst sem sé óvið- kunnanlegt að veita verðlaun fyrir að flytja út smjör og selja það í útlönd- um, en verðlauna alls ekki samskonar smjör, ef það væri selt fyrir sama eða hærra verð hér á landi og etið hér með jafngóðri lyst. Auðráðið var, að ýmsa langaði í gott íslenzkt smjör, og þótti maðurinn hafa satt að mæla, því nokkurir opn- uðu munninn þegar í stað. En það kom ekkert smjör, og svo sögðu þeir »heyr« heldur en ekki neitt. * * * Það er annars eftirtekta vert atriði þetta, sem fundarmaðurinn drap á. Sjáum vér ekki sama andann — sömu stefnuna í fleiri gerðum þessa þings — þessa stefnu, að flytja hið íslenzka út úr landinu á kostnað þjóð- arinnar sjálfrarf Vonandi er, að þessi »smágalli« á stefnu þingsins verði leiðréttur, þegar þjóðin hefir fyrir alvöru fundið »smjör- þefinn« af gerðum þess. Áheyrandi á leiöa-þinginu. Fjálslynda blaðið á Seyðisfirði er að reyna til þess að láta taka eftir sér með því að segja það sem er allra vitlausast. Nýlega lagði það til að forsprökkum bænda- fundarins væri refsað eins og upphlaups- mönnum og nú endurtekur það þetta bull með þeim ummælum, að þeir hafi raskað friðhelgi löggjafarþingsins. »Sömuleiðis styngur það upp á því, að ritstjóra Norðurlands sé refsað fyr- ir það að hann hljóp ekki frá mörgum sárveikum sjúklingum í Akureyrarbæ, til þess að gegna yfirsetukonustörfum að ástæðulausu, sællar minningar. Austri ætti að vita það að þó farið sé að veita verðlaun fyrir naut hér á landi, er ekki enn þá beinlínis farið að veita verðlaun fyrir höfuðin á naut- unum«. Síra Einar Þórðarson alþingismaður fer í næsta mánuði til Danmerkur og dvelur þar í vetur. Veifingar á Seyðisfirði. Þess var áður getið í Nl. að Seyð- firðingar neituðu veitingamanninum þar herra Kristjáni Hallgrímssyni um fram- lengingu á vfnveitingaleyfinu. Hann hætti því vínveitingum 18. f. m. Að rúmum mánuði liðnum sótti hann aft- ur til bæjarstjórnarinnar um vínveit- ingaleyfi, en hún neitaði því samdæg- urs. — Nú hefir og Gísli kaupmaður Hjálmarsson á Norðfirði boðist til að reisa veitinga- og gistihús á Seyðis- firði fyrir 30 þús. kr. og reka það án vínveitingaleyfis, ef hann fái góða lóð með vægum kjörum undir bygginguna. Samningum um það var þó ekki lok- ið fyrir fám dögum síðan. Af skarlafsóff hafa þrír sjúklingar veikst í Hrísey á tveim heimilum. — Barnaveiki fekk barn þar í eyjunni, en batnaði fljótt eftir innsprautingu af barnaveikisblóð- vatni. Annars hefir barnaveiki stungið sér niður í sumar ekki alls óvíða í vesturhluta Höfðahverfishéraðs en mörg tilfellin verið svo væg að læknis hefir ekki verið leitað. Vifnisburður Húnvefninga. Húnvetningar fá þakkirnar hjá »mál- gagni sannsöglinnar« fyrir að vera að ónáða þingmenn sína með því að segja þeim hvað þeir vilja. Grein í blaðinu byrjar á þessa leið: »Húnvetningar hafa menn alment ætlað til þessa að væru með mennilegri mönnum hér á landi. En nú er nokkur grunur á það fallinn, að talsverður hluti þeirra sé meðal fáfróðustu og óupplýstasta lýðs þessa lands«. Sigurður Sigurðsson skólastjóri lagði af stað héðan í gær vestur að Hólum. Hann mun illa mega missast þaðan, en þó líkiega enn þá síður frá Ræktunarfélaginu. Mannalát. Sigurlaug Ounnarsdóttir í Ási í Hegra- nesi andaðist fyrir nokkuru eftir Iangvinnan sjúkdóm. Hún var kona Olafs dbrm. í Ási og móðir Björns augniæknis og þeirra systkina. Hún var um langan tíma einhver allra merkasta kona í Skagafirði. Sigurður Sigurðsson Skipstjóri á Odd- eyri andaðist hér í bæ 27. þ. ni. úr lungna- bólgu. Síra Guðmundur Guðmundsson prestur í Gufudal Iætur af prestskap á þessu hausti og sezt að á ísafirði, Brúarvígslur. Landritarinn vígði brúna á Lagarfljóti 14. þ. m. Við þá athöfn voru saman komn- ir um 600 manna. Ráðherrann vígði brú á Soginu 9. þ. m. Voru þar um 11 hundruð manns. Sú brú er 60 álna löng og 4 álna breið. Hefir kost- að um 16,000 kr. Dr Þýngeyjarsýslu. „Echo" fór frá Húsavík 23. þ. m. með 1600 fjár beint til Belgiu. Þar hafði farm- urinn verið seldur fyrirfram. — í Friðþjóf er verið að skipa út í dag (27. sept.) nær 2000 fjár. Meiri hluti þess fjár er úr Norður- Þingeyjarsýslu. Sauðir hafa yfirleitt reynst óvanalega og óskiljanlega þungir eftir ekki betrasumar. f farminum sem fór með „Echo" viktaði hver kind að tneðaltali 123V2 pd. og var þó talsvert í honum veturgamlir sauðir. Þyngstur sauður í Hólsfjallahópnum var 186 pd., enda var hann 3 vetra, margir 150 pd. Kjötið á Húsavík er 16-22 a. pd. gærur alment komnar upp í 42 a. og jafn- vel 45 a., mör 20 a., haustull hvít 62 a. mislit 52. Úr Múlasýslum. Búnaðarsamband Austurlands hélt fund 19. þ. nt. í stjórnina voru kosnir: síra Ein- ar Þórðarson formaður, sfra Magnús B. Jónsson, skrifari og hreppstjóri Björn Halls- son á Rangá, gjaldkeri. Varastjórn: síra Björn Þorláksson, Jónas Eiríksson á Eiðum og Sigfús Halldórsson í Sandbrekku. Daginn eftir var sýslufundur fyrir báðar sýslurnar. Samþykt að halda áfram skóla- stofnuninni á Eiðum. Er gert ráð fyrir að hún verði að mestu verkleg, sett í samband við gróðrarstöð Sambandsins. Halldór Vilhjálmsson búíræðiskandídat er ráðinn fastur starfsmaður Búnaðarsambands Austurlands og verður i vetur 2. kennari á Eiðum. Ceres kom í fyrrakvöld. Með henni var Arnór Arnórsson frá Chicago með fjölskyldu sinni og æthr að sögn að setjast að í Reykjavík. Ung og góð mjólkurkýr, sem á að bera fyrri part næsta vetrar, óskast keypt. Kristján Nikulásson. ▲▲▲▲▲▲▲▲▲▲▲▲▲▲▲▲▲▲▲▲▲▲ þrifnar og hraustar stúlkur geta fengið veturvist í gagnfræða- skólanum á Akureyri. ▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼ Útlendai) skófaínað fyrir börn og fullorðna sel eg með góðu verði. Sömuleiðis margskonar skósvertu og reimar. 3. 3veinsson. fTóð kýr er til sölu. ^ Ritstjóri vísar á. Hinum heiðruðu við- skiftavinum mínum geri eg hér með kunnugt, að eg skuld- bind mig ekki til að borga inni- eignir við verzlun mína í pen- ingum, heldur að eins í einstök- um tilfellum, ef svo um semst við verzlunarstjóra minn,að nokk- uru leyti í vörum og að nokk- uru leyti í peningum. Gudm. Efterfl. Fatatau, Xjó/atau og Cuistfau mikið úrval og mjög ódýrt fást hjá Guðl. Siguiðssyni & Y. Gunnlaugssyni Skólapiltar geta fengið fæði í vetur með mjög góðum kjör" um og á hentugum stað. Ritstjóri vísar á. Barnaskólini). Þeir, sem ætla sér að láta börn sín ganga í barnaskóla Akureyrar næsta vetur, eru beðnir að gefa sig fram á skrifstofu bæjarfógeta fyrir 7. október. Þeir, sem ætla sér að beið- ast eftirgjafar á kenslueyri, verða að hafa sótt um hana til bæjarstjórnar- innar fyrir 15. n. m. Þurfamanna- börn fá kauplausa kenslu, en þeir, sem að þeim standa, verða að gefa sig fram við bæjarstjórnina innan 15. n. m. Akureyri 29. sept 1903. Skólanefndin. JCanc/sápa margar sortir. Xex mjög ódýrt. jKöfuðföt ágæt til vetrarins. JCérept og fique, Saloscher handa körlum,konum 3kófatnaðurým\skox\a.x o. m fl. kom nú með „Ceres" til Guðl. Sigurðssonar. & V. Gunnlaugssonar. Tú með skipunum „Mjölni" I "Ceres" hefi eg fengið I H mikið af allskonar vörum, ▼ svo setn allskonar korn- vöru, brauð, flesk ost o. fl., mik- ið af álnavöru góðri og ódýrri, kaffi, sykur og margskonar sæl- gæti, hálstau og slaufur fyrirtaksfallegt, vandað og fallegt skótau, mikið at blikkvöru, lampa af mörgum tegunduni, góða og ódýra, margskonar ritföng, tóbak, skotíæri, leirtau o. fl. fl., sem oflangt er upp að telja. — Það borgar sig að líta á vörurnar. — Alt selt ódýrt móti borgun út í hönd. — Von á meiri vörum síðar. Sláturfé kaupi eg með sanngjörnu verði fyrir peninga út í hönd og móti vörum. Akureyri 30. sept. 1905. Davíð Sigurðsson.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.