Norðurland - 13.01.1906, Qupperneq 3
73
NI.
Glímur.
Veðglíma fór fram hér í leikhúsi bæjar-
ins fyrra laugardag. Voru aðgöngumiðar
seldir og svo var kapp bæjarbúa mikið að
miðarnir seldust upp því nær strax og fengu
þó miklu færri en vildu. Er það gleðilegt
og bendir til þess að enn er áhugi manna
á þessari þjóðlegu skemtun ekki lítill og
virðist sem mjög auðvelt væri að giæða
hana, ef menn vildu sýna henni fullan sóma.
Glímurnar áttu að vera þrjár og skyldi
sá er ynni tvær af þeim fá 100 kr. af laun-
um. Hafði verzlunarstjóri Grímur Laxdal
boðið fram 100 kr. og urðu síðar margir í
því félagi, en Jóhannes Jósefsson verzlunar-
stjóri bauð fram 100 kr. fyrir sitt leyti. Þess-
irglímdu: JðhannesJósefsson verzlunarstjóri
og Ólafur V. Davíðsson verzlunarmaður, er
báðir hafa verið taldir ágætis glímumenn.
Höfðu þeir og æft sig báðir um nokkura
hríð áður en glímurnat' fóru fram. í dóm-
nefnd voru þessir: Ásgeir Pétursson, kaup-
maður, Guðlaugur Pálsson, snikkari, og Vig-
fús Sigfússon, hóteleigandi.
Glímurnar fóru svo, að Jóhannes Jósefs-
son vann þær allar; feldi hann glímubróð-
ur sinn fyrst á klofbragði en tvær seinni
glímurnar á krœkju-, hlaut hann því að
sjálfsögðu verðlaunin. Er það mál margra
manna að Ólafur muni ekki hafa notið sín
fullkomlega um kvöldið, því hann sé íþrótta-
maður en ekkert megum vér um það dæma.
Nokkurt útlit er fyrir að glímur þessar
verði til þess að glímum verði meira sint
hér í bænum en áður. T. d. er oss það
kunnugt, að ýmsir hafa skorað á Guðlaug
Pálsson, snikkara, sem talinn er einn af beztu
gh'mumönnum bæjarins, að æfa flokk manna
og sýna glímur á leiksviðinu.
Væri vel til fallið að fleiri vildu gera
þetta og er ekki útlit fyrir annað en að
þeim mundi vel tekið hér, ef þeir vildu
sýna list sína. Hvað segja t. d. Mývetningar
um það að glíma hér eitt kvöld, eða þreyta
glimur við Akureyrarbúa. Mætti að því verða
hin bezta skemtun og jafnframt gagn. Er
það illa farið hve ungir menn æfa lítið
krafta sína og fimleika.
X
ísland erlendis.
Frá fréttaritara Norðurlands í Khöfn.
f sænska blaðið Uppsala hefir Finnur
prófessor Jónsson ritað grein um stjórnar-
skipun fslands. Fræðir hann Svía á því, að
nú muni deilum íslendinga og Dana að
öllu vera lokið, enda sé landið nú svo frjálst
og óháðjjDönum sent framast verði á kosið,
en segir þó, að forsætisráðherra Dana líti
yfir íslenzk lög til þess að gæta þess, að
þingið fari ekki út fyrir verksvið sitt. —
Hér var fundur haldinn í stúdentafélag-
inu um dönsku greinina í „Reykjavík". Vóru
þar allir á eitt mál sáttir um, að slíkt væri
hið mesta þjóðarhneyksli, er danska flokkn-
um ætti ekki að haldast uppi. Var samþykt
með öllum atkvæðum gegn einu (Valdemars
Erlendssonar þingeyings) að félagið léti opin-
berlega í Ijós skoðun sína á þessari miklu þjóð-
arsmán. Fylgdi öðlingurinn Bogi Melsteðstú-
dentum hér að máli. Var svo samþykt að skrifa
stjórn danska flokksins stutt bref urn þetta
og heita á hana, að hún léti blað sitt ekki
flytja fleiri greinar um íslenzk sérmál á
dönsku og Ieiða henni fyrir sjónir, hvílík
óhæfa slíkt væri. Var kosin 5 manna nefnd
til þess.
X
Mannalát.
Qróa Jónsdóttir kona Jóns Pálmasonar
verzlunarmanns hér í bæ andaðist 24. þ.
m. Hún varð að eins 29 ára gömul. Hún
var dóttir Jóns bónda Guðmundssonar, er
lengi bjó á Strjúgsstöðum; hún var vel
gefin kona til sálar og líkama og var
manni hennar mikill söknuður að henni
og öllum þeim, er þektu hana. í meira en
t ár þjáðist hún af megnri vanheilsu.
Nýfrétt er hingað lát Jðseps bónda Ein-
arssonar á Hjallalandi í Vatnsdal í Húna-
vatnssýslu. Var hann einn af beztu bænd-
um sýslunnar, maður höfðinglyndur og
drenglundaður. Bæ sinn bygði hann upp
allan mjög reisulega, girti alt túnið með
grjótgarði og stækkaði það, og bætti jörð-
ina á marga vega. Hann var maður frábær-
lega karlmannlegur og svipmikill og mun
mörgum hafa dottið í fiug einhverir forn-
k appar vorir, er þeir sáu hann fyrst.
Sjö sinnum enn.
íupphafi inngangsgreinarinnarí »Norðra«
er komist svo að orði: »BIaðið (o: »Norðri«)
er gefið út af hlutafélagi, sem hefir keypt
blöðin >Gjallarhorn« og »Stefni« Þau hætta
að koma út með áramótunum, en »Norðri«
kemur í stað þeirra*. — Vér gátum þess
til að potti hefði verið hvolft yfir þessi
sáluðu blöð, svo þeim yrði hægra andlátið,
því bæði vér og aðrir munu hafa skilið
ummælin svo, sem blöðin væru bæði dáin.
En auðsjáanlega hefir »Gjallarhorn« sloppið
með lífsmarki undan pottinum, því 8. þ. m.
birtist það hérumbil í sömu mynd, sem
það hafði, meðan það var enn hér á veg-
inum með oss og hótar því að sýna sig
enn þá sjö sinnum við hátíðleg tækifæri,
þegar ritstjóranum verður mest mál á að
skýra þjóðarmálin fyrir alþýða. Aftur hefir
enn ekki sézt neitt Iífsmark með »Stefni«,
sem þó mun hafa átt eitthvað ótalað við
kaupendur sína. Hefir hann víst verið svo
að fram kominn áður, að honum hefir
auðnast að gefa upp andann — undir pott-
inum.
Truscoft-moforar,
sem eru auglýstir hér í blaðinu,
eru amerikskir, og kendir við mann
þann, sem býr þá til. Þeir fengu
heiðursverðlaun (grand prize) á St.
Louis sýningunni í fyrra.
Sigurjón Jóhannesson
á Laxamyri ætlar að flytja hingað til
Akureyrar á næsta vori. Hefir hann þegar
samið um byggingu á íbúðarhúsi handa
sér og verður það reist á Oddeyri fyrir
utan hús sonar hans, stúdents Lúðvíks
Sigurjónssonar kaupmanns.
Hlekkjaherfið.
Vér leyfum oss að benda á auglýsingu
hér í blaðinu um hlekkjaherfið. Meðmælin
eru gefin af einum merkasta bóndanum
í Svarfaðardal, sýslunefndarmanni Gísla
Jónssyni á Hofi.
Bæjarsfjórnarnefndir.
Þessar fastar nefndir voru skipaðar á síð-
asta bæjarstjórnarfundi hér í kaupstaðnum
fyrir ár það, er nú er að byrja:
Fjárhagsnefnd: Bæjarfógetinn, Otto Tul-
inius, M. B. Blöndal. - Fátœkranefnd: B/ej-
arfógetinn, Frb. Steinsson, Eggert Laxdal. —
Eyrarlandsnefnd: Stefán Stefánsson, Kristján
Sigurðsson, Júlíus Sigurðsson. — Veganefnd:
Frb. Steinsson. Oddur Björnsson, Kristján
Sigurðsou.- Vatnsleiðlsunefnd: M. B. B!ön-
dal, Eggert Laxdal, Júlíus Sigurðsson. —
Styrktarsjððsnefnd: Stefán Stefánsson, Oddnr
Björnsson, Frb. Steinsson. — Hafnarncfnd:
Bæjarfógetinn, Otto Tulinius, Magnús Krist-
jánsson. — Skðlanefnd: Bæjarfógetinn, Ste-
fán Stefánsson, Geir Sæmundsson. - Heil-
brigðisnefnd: Bæjaríógetinn, Guðmundur
Hannesson, Kristján Sigurðsson,— Sóttvarn-
arnefnd: Bæjarfógetinn, Guðm. Hannesson,
Kristján SigurðssonByggingarnefud: Ste-
fán Stefánsson (ti! 6 ára). - Bókasafnsnefnd :
Bæjarfógetinn, Oddur Björnsson, Eggert
Laxdal. — / kjörstjórn: Bæjarfógetinn, Krist-
ján Sigurðsson, Frb. Steinsson.
Blöðrusel
sáu þeir nokkurn hákarlaveiðamennirnir
úr Hrísey.
Leiðrétfing.
í næst síðasta blaði Norðurlands misprentað-
ist í fáeinum númerum blaðsins í auglýsingu
um Dan motorinn, að hann eyddi 60—70
pundum á klukkutímanum. í staðinn fyrir
pundum átti eðlilega að standa kvintum.
Þetta eru þeir beðnir að athuga, sem
fengið hafa blöðin með prentvillunni í.
Hús
fil sölu.
Gott ÍBÚÐARHÚS og nýtt
geymsluhús með stórri lóð er
til sölu á Oddeyri.
Allar upplýsingar pessu við-
víkjandi gefur
JÓH. JÓSEFSSCN,
Oddeyri.
p ólkakstur^sleða
mjög FALLEGA, ÓDVRA og HENT-
UGA hér á íslandi, selur
JÓH. JÓSEFSSON-
Oddeyri.
Keypt fæst
fbúðarhús
við eina af aðalgötum Akureyrar
með stórri og góðri lóð, nægilegri
til að byggja á 2 stórhýsi, ágætum
matjurtagarði og stórri spildu af
brekkunni, upp af kaupstaðnum,
mjög hentugri til garðræktar og
túnræktar.
Byggi’igameistarar bæjarins ættu
sérstaklega að athuga þetta tilboð.
Akureyri 11. janúar 1906.
Cggert £axdal.
húsið
í Aðalstræti nr. 34 er til leigu frá
14. maí næstkomandi.
Jakob tSís/ason.
Skozka
blekkjaherfið,
sem eg keypti hjá yður síðastliðið
vor, hefir reynst mér ágætlega. Það
mylur áburðinn einkar vel, sé honum
hreytt hæfilega gisið, og hann ekki
mjög harður þegar herfað er, enda
mikið fljótt að vinna með því, sér-
staklega þegar þess er gætt, að
breiðsla og hreinsun eftirá, nálega
hverfur. Svo ber þess líka að gæta,
að óhætt má fullyrða, að þar, sem
herfið er brúkað, verður grasvöxturinn
meiri.
Bóndi hér skamt frá, sem eg lán-
aði herfið til afnota, gefur því sér-
lega góðan vitnisburð og mun fljót-
lega útvega sér eitt þeirra.
Hofi í Svarfaðardal 24/s '05.
jSís/i Jónsson.
íslands bezfi þilskipaflofi
til sölu.
Hjá Islandsk Handels- & Fiskerikompagni fást eftirfylgjandi skip keypt:
Nafn skipsins. Sigling. Fet á • Register Tons. Hvenær bygt. Byggingar- efni. Sann- sýnt verð. fást fyrir.
lengd. breidd. dýpt miðskipa.
1. -Arney .... Kutter 64.5 19.0 9.5 59 1872 Eik. Kr. 8000
2. Bjarney . . . • — 59.7 16.5 8.5 43 ? Eik. - 6000
3. Drangey . . . — 62.i I8.1 8.7 53 1885 Eik. - 8500 ’5o
4. Engey .... — 65.6 17.9 9.4 57 1871 Eik. - 11000 cg
5. Flatey .... Skonnort 52.4 14.4 6.2 32 1875 Eik og fura. - 5000 s
6. Grímsey . . . Kutter 70.8 18.6 9.5 61 1885 Eik. - 9000 c
7. Hvanney . . . — 63.5 17.5 8.5 50 1883 Eik. - 8000 n C/5
8. Jómsey .... — 61.7 18.6 9.8 60 1884 Eik. - 10000 Ut
9. Kiðey .... — 74.5 19.4 9.7 78 1878 Eik. -12000 UJ
10. Langey .... — 56.2 19.4 8.2 43 1873 Eik. - 7500
11. Málmey .... — 63.o 18.5 9.3 52 1881 Eik. - 8500
Skipunum hefir verið vel við haldið frá því þau voru keypt og nú síðustu árin ig03/05 hafa þau hvert af öðru
fengið grandgæfa viðgerð (frá 2000—500° kr. hvert skip) og þá alt tekið burt, sem nokkuð þótti athugavert við,
hátt og lágt, og nýtt sett í staðinn. Skipum þessum er því nú hægt að halda út ( fleiri ár. án nokkurs viðgerðar-
kostnaðar, og það mun ýkjalaust mega fullyrða að þau séu í lang fremsta flokki af íslenzkum fiskiskipum, hvað gæði
og allan útbúnað snertir. — Skipin ganga til fiskiveiða frá Patreksfirði og má þar sjá þau af og til í sumar, en að
loknum fiskiveiðum, í ágúst lok, fást þau til kaups, og verða til sýnis á Patreksfirði og í Flatey frá september-
byrjun. — Af því félagið hefir í hyggju að hætta þilskipaútvegnum fást skipin með vægara verði og betri skilmálum
en nokkurstaðar annarstaðar er hægt að fá jafngóð og velútbúin skip fyrir.
Frekari upplýsingar hjá undirrituðum aðalerindreka félagsins hér á landi.
Patreksfirði 1. maí
1905.
Pétur A Ólafssoi).