Norðurland


Norðurland - 19.05.1906, Síða 1

Norðurland - 19.05.1906, Síða 1
NORÐURLAND. Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson, Iæknir. 36. blað. } Akureyri, 19. maí 1906. j V. ár. Sameiginlegur fundur fyrir allar nefndir Iðnaðarsýningarinn- ar verður haldin á Hótel Akureyri næstkomandi sunnudag, kl. 4 e. h. Áríðandi að allir mæti. Akureyri, s/s 1906. Sigurður Hjörleifsson. ísland fyrir íslendinga. ii. (Síöari kafli). Sumt af því sem gera þarf, til þess að landið verði fsland fyrir íslendinga -— margt af því verður að ganga gegn- um greipar löggjafarvaldsins — öll póli- tísk mál. Eg tala nú ekki um þau málin í þetta sinn, því að þess gerist ekki brýn þörf, með því að á þeim er at- hyglin vakin oft og víða, bæði í blöð- unum og á mannamótum. En á hin málin vildi eg benda, sem almenningur hefir beinlínis í höndum sér og getur ráðið til lykta alveg af sjálfsdáðum, án þess að hömlur lög- gjafarvaldsins komi þar til greina. Þessi mál eru viðskiftamál þjóðarinn- ar og samneyti okkar við útlendinga. Þar er einn annmarki altaf í veg- inum, sem hamlar því, að sœmd þjóð- arinnar beri höfuðið hátt og er hann sá, að þjóðleg samiök brestur meðal almennings, til þess að efia innlenda, íslenzka framför. Með öðrum orðum. Hátterni lands- lýðsins ber þess engan vott, yfirleitt, að fólkið, yfirmenn og undirgefnir, vilji gera Iandið að landinu okkar ein- ungis, að því er séð verður. Reyndar vakir þessi löngun í hug- um margra manna, á víð og dreif. En hún er ekki nógu öflug. Verkin sýna merkin í þessu efni eins og fleirum. Eintóm löngun í þessa átt, og bæn í einrúmi, þær eru ónógar. Framkvœmdirnar verða að fylgja. Og þá sjást framkvæmdirnar í dags- ljósinu, þegar viðleitni þeirra manna nýtur styrks almennings, — þeirra manna viðleitni, sem ryðja veginn og brjóta ísinn. Þeir menn hafa nú á síðustu árum verið að rísa á legg víðsvegar í land- inu, sem reynt hafa að koma á fót innlendum iðnaði. Skinnasútun, súkku- laðigerð, brjóstsykurframleiðsla, vindla- gerð, sápusuða — alt þetta og fleira í þá átt hefir verið sett á stofn í landinu. En misjafnlega hefir það verið stutt. Almenningurinn og einstakling- arnir hafa víst eigi haft það hugfast, æfinlega, að þessir vegryðjendur inn- lendrar framleiðslu eru þess maklegir að vera styrktir á þann hátt, að vera teknir fram yfir útlenda menn, sem vilja hafa okkur að féþúfu og vcra sjálfir að eins — farfuglar á féþúf- unni. Þúsundir króna hafa farið, og tugir þúsunda, árlega út úr landinu fyrir klæðagerð, sem Norðmenn hafa haft á höndum fyrir okkur. Nú eru tóvélar að eflast í landinu, sem ættu að geta fullnægt okkur, ef þær væru studdar. En er þjóðin svo innrætt, að þessi innlenda viðleitni vinni hjarta hennar og hönd? Eg efast um það. Danadekrið er svo rótgróið í alþjóð vorri að hörmung er til að vita — og gengur gráti næst. Ef vér viljum vera þjóð, þá verðum vér að byggja landið fyrst og fremst og þar næst að efla alt það, sem eykur þjóðina og styrkir hana heima fyrir. Innlend verzlun er þar á meðal. Engin verzlun getur verið innlendari en sú, sem verzlar með afurðir lands- ins okkar. Hvar sem þessháttar fyrir- tæki rís á legg, ætti alls ekki að skorta stuðning almennings. Sú var tfðin, að innlendur matur fékst ekki í landinu — ekki einusinni í helztu bæjum landsins — alt var keypt frá útlendingum. Og þessi þjóð heldur, að hún sé orðin sjáltstæð, og hélt það, meðan hún átti þess engan kost að selja eða kaupa ketbita eða annan íslenzkan mat — í sínu eigin landi, nema á hlaupum og í smá- smokkum og illa tilreiddan. Enn þá er vanséð, hvernig þeirri viðleitni reiðir af, sem víðsvegar hefir brytt á í seinni tíð. Vonandi er, að íslenzkt hangikjöt og önnur alíslenzk ágætis matvæli verði etin og sæmileg talin hverjum manni. En eg óttast þó, að danskt svínakjöt verði nú bráðum tekið fram yfir hitt góðgætið — í fínu samkundunum. Skamt er síðan vanda- maður ráðherrans vildi ekki að hann reykti íslenzkan vindil — ekki nógu fínt! Þá má búast við því, að íslenzkur matur þyki ósamboðinn æðstu mönnum landsins. En undarleg er sú þjóðernis með- vitund, sem vill heldur styrkja hálf- danskan kaupa-hrapp, sem gengur með dönsku völuna undir tungurótunum, heldur en þá alinnlendu stofnun, sem stendur á bjargstuddum íslenzkum grundvelli — hvort sem sú stofnun heitir tóvinnuvél eða kjötbúð, vindlagerð, sápusuða eða sútunarsmiðja. Meðan þjóðin vaknar ekki af þessum dönsku-dvala. er hún ekki sjálfstæð orðin að eðlisfari og því síður f húð og hár, eða frá hvirfli til ilja. Meðan almenningur landsins, æðri menn og lægri, telja sér ósæmd að því, að vera al-íslenzkir, innan rifja og á ytra borðinu, erum vér örkvisa- þjóð og ættlerar. Þeir menn, sem vilja hamla því, að þjóðin verði sjálfstœð — og það gera þeir menn, sem eru þess fýsandi, að vér innlimumst Dönum — eru komnir í beinan skottlegg frá Gissuri jarli, sem mestur svikari hefir verið í landinu og þjóðar-Júdas, um þúsund ár. Engin vafi leikur á því, að barátta er fyrir höndum í landinu, barátta í þá átt að gera þjóðina trúa sjálfri sér. Herópið, sem þeir menn hafa, er fylgja þeirri stefnu, er og verður þetta: fsland fyrir fslendinga ! G. F. X Utan úr heimi. Vér höfum séð nokkur norsk blöð frá byrjun þessa mánaðar. Stórtfðindi eru engin. Vissa er þó fyrir að Witte forsætisráðherra Rússaveldis hefir feng- ið lausn frá embætti sínu og heitir sá Goremykin er komið hefir í stað hans. Frá Serbíu er illa látið af stjórn Péturs konungs, og vilja þeir losna við hann. — Morðingjar Alexanders konungs ráða þar nú öllu í land- inu og þykir ekki ólíklegt að konung- urinn hafi upphaflega verið í vitorði með þeim. Er fullyrt að Serbar hafi helzt augastað á Valdemar prins, bróð- ur konungs vors. X BÆKUR. Matth. Jochumsson: Frá Danmörku. Nokkrir fyrirlestrar tll fróðleiks og skemmtunar, ásamt kvæðum og myndum. Kh. 1906. 212 bls. Enginn íslendingur er annar eins hamfaramaður að rita og síra Matt- hías. Honum vex ásmegin með aldr- inum, og nú, þegar hann er kominn yfir sjötugt, koma út frá honum tvær og þrjár bækur á ári auk fjölda kvæða og blaðagreina. Bók þessi, sem hér er uin að tala, kom út í vetúr; hún er allmikið rit, í stóru átta blaða broti, með nær 80 ágætum myndum, og kennir þar margra grasa. En mest er það lýsing á Danmörku, einkum landi þar og útsjón, bókmentum, listum og lærdómi, vísindum, skólum og þættir úr sögu Iandsins, einkum frá tímabil- inu 1840 — 52, eða stjórnarárum Krist- jáns konugs 8. og stríðinu út af her- togadæmunum; en þá báru Danir hærra hlut. Öll er bók þessi ritin af hinni alkunnu málsnild og fjöri, sem höf. er lagin, enda gægist skáldið þar út um aðrahvora línu. I gegnum alla bókina skín sá tilgangur höfundarins, að ætla sér að kynna Islendingum Dani betur en verið hefir, og efla þannig velvildar- og bróðurhug vorn til Dana; var það vel gert að ríða á vaðið með það og leggja þannig sitt fram til þess, að styðja sátt og sam- lyndi meðal þessara bræðraþjóða, sem svo mikið eiga saman að sælda. Kvæði allmörg eru í bókinni; eru flest þeirra ágæt, og sum með því allra bezta, er síra M. hefir orkt, t. d. Hafnar- sæla og Gefjun. Að tiltölu er bókin mest sögulegs efnis, enda er sagan jafnan keltubarn síra M.; en hann les og segir söguna eins og skáld, hirðir ekki um ná- kvæmnina, en setur á hana sinn skáldlega blæ. Þessvegna verður bókin einkar skemtileg aflestrar og í mörgu fróðleg fyrir þá, er lítið vita um Dan- mörk, bókmentir þeirra, lærdóm ög listir. En svo skemtilega og vel sem bók þessi er samin, virðist svo, sem höf. hafi ekki náð þeim tökum á efninu, sem þurfti. IJað eru nærfelt eingöngu Danir um og fyrir 1850, sem hann er að tala um; upptalning lærðra manna, listamanna og skóla frá sfðara hluta aldarinnar er svo stutt, og hefir lítið að þýða. Fyrir oss Íslendinga þurfti alls ekki að vera að verja niinn- ingu Kristjáns konungs 8. fyrir mis- skilningi á afstöðu hans gagnvart her- togadæmunum og þýzku pólitíkinni þar fyrir 1848; það kemur oss lítið við, en oss var áður minning hans heilög og kær; oss varðar og lítið frammistaða Dana í stríðinu um her- togadæmin 1848 — 51, bardagar þeirra, vörn og vopnaskifti, þó að það sé skemtiefni fyrir Dani, af því að þeim gekk þá vel; og ekki verður það nema hálfsögð saga, fyrst ekki var sagt frá síðustu úrslitum þeirra mála Föstudaginn 11. þ. m. burt- kallaðist okkar elskulegi eigin- maður og fósturfaðir, Eggert Stefánsson. JarðarfÖr hans fer fram laugardaginn 26. þ. m. frá heimili okkar, Strandgötu 17, kl. 12 á hádegi. Oddeyri, 17. maí 1906. Anna Davfðsdóttir. Anna Sigurðardóttir. 1865, en á það er varla minzt. Öll hin síðari saga Dana er oss jafn ókunn fyrir þetta; og þó er saga þeirra eftir 1865 það langmerkasta fyrir oss, og sem að öllu samanlögðu hafði lang- mesta þýðingu fyrir oss, oss reið lang- mest á að fá eitthvað að vita um; það er þeirra stórmerkilega innri framfara- saga nú síðustu 40 árin. Það eru að eins lýðskólarnir, sem dálítið er sagt frá. En á alt annað, sem þeir hafa af- kastað, og gert hefir þessa litlu þjóð að öndvegisþjóð í sumum greinum, er ekki orði minst: hinar stórfenglegu búnaðarframfarir þeirra, samvinnufé- lagsskap í verzlun og vöruvöndun, rækt- unarstórvirki Heiðafélagsins, og svo margt annað, sem einmitt er svo fýsi- legt fyrir oss Islendinga að fara og kynnast. Fað hefði gert oss íslending- um bókina stórum þarfari, einn sögu- legur kapítuli um þessi atriði í staðinn fyrir pólitíkina fyrir og um 1848 og alt þjarkið um hertogadæmin. Pað er að mestu sú Danmörk, sem var, en ekki sú sem er, sem verið er að lýsa — sögulegt yfirlit afturi tímann, og þó varla minst á afstöðu hennar gagnvart íslandi, hvorki þá og því síður nú. En öðrum kann nú annað að sýn- ast, og það eitt er víst, að bókin er bæði skemtileg og líka fróðleg; mynd- irnar eru bæði margar og góðar, og prýða bókina mjög. Málið er bæði fallegt og fjörugt, eins og höf. er von og vísa; þó rakst eg á tvö orð, sem eru illa hafandi: annað er stafnsfesta (bls. 42) yfir Stavnsbaand; Stavn þýð- ir heimili, heimkynni, en ekki stafn, og ætti að heita heimafesta eða heima- bönd á íslenzku (heima=heimili). Hitt orðið er rómanskur (tvisvar á bls. 162). Pað á að vera sama og rómantiskur, en svo er kölluð skáldskaparstefna sú, er fyrst kom upp og fekk nafn sitt f Þýzkalandi 1798 (í Athenæum Schle- gels). Rómanskar heita aftur á móti þjóðir þær, er ætt sína eiga að meiru eða minnu leyti að rekja til Rómverja hinna fornu; en engin skáldskaparstefna er við þá kend.* — Höfuðrit Brand- esarheitir ekki »Höfuðstraumar siðmenn- ingarinnar á 19 öld« heldur bókment- anna (bls. 135). Stór galli er það á jafnvandaðri og eigulegri bók og þessi er, hvað hún er lilaðin meinlegum prentvillum t. d. ortstýr (bls. 132) fyrir orðstír; í flokk * Að eins einn stíll í byggingarlist.

x

Norðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.