Norðurland - 19.05.1906, Síða 3
145
N/.
einn af allra mestu framkvæmdar-mönnum
við Faxflóa.
Þá hafa enn 2 skip strandað á Reykja-
víkurhöfn, kolaskip til Björns kaupm. Guð-
mundssonar og frönsk fiskiskúta.
\
Burtfarapróf
við gagnfræðaskólann á Akureyri 1906.
Hans Einarsson Eyjafj.s. 1 ágætiseink. 6i st.
Kristján Jakobsson S.Þing.s. I. eink. 57 -
Kristján Sigurðsson Eyjafj.s. I. — 55 -
Elinborg Björnsdóttir Skgfj.s. I. — 53 -
Anna Sigurðardóttir R.vík I. — 52 -
Jón S. Ólafsson Bafðastr.s. I. — 52 -
Vilhelm Jakobsson N.Múla.s. I. — 52 -
Geir Jón Jónsson S.Þing.s. I. — 52 -
Jónína Valtýsdóttir N.Múla.s. I. — 5i -
Þorsteinn Stefánss. Eyjafj.s. I. — 50 -
Jón Siggeirsson Eyjafj.s. 2. — 47 -
Tryggvi J. Árnason Eyjafj.s. 2. — 42 -
Pálmi Kristjánsson Eyjafj.s. 2. — 41 -
Gísli Bjarnason Eyjafj.s. 2. — 40 -
Þorst. G. Sigurðsson Eyjafj.s. 2. — 39 -
Páll Guttormsson N.Múla.s. 2. — 37 -
$
Slys á Ausfurlandi.
Nýlega varð fiskiskúta frá Eskifirði fyrir
miklum áföllum í stórsjó úti fyrir. Brot-
sjór laskaði skipið til stórra muna og
tók út skipstjórann, röskan mann úrReykja-
vík.
í sama óveðrinu hrakti nærfelt alt fé
bónda eins við Eskifjörð í sjóir.n. Fórust
þar 120 fjár. Bóndinn hafði komið fénu
saman og var á heimleið með það, en
varð að yfirgefa það til þess að bjarga
unglingspilti, sem með honum var.
Fyrirlesfrar um Island.
Séra O. P. Monrad hefir nýlega haldið
fjölda fyrirlestra í Danmörku um Island
og íslendinga. Hann er andríkur maður,
ágætlega máli farinn og mesti íslandsvin-
ur. Má ganga að því vísu, að fyrirlestrar
hans verði oss til sóma og auki þekk-
ing Dana á högum vorum og hugsunar-
hætti.
Þess má geta, að séra Monrad er mjög
styðjandi það mál, að ísland eigi að ná
aftur fornu frelsi, Það eitt verði beztu
málalokin fyrir Dani og íslendinga.
Handbók fyrir hvern mann
heitir dálítill bæklingur, sem cand phil
Einar Gunnarsson í R.vík gefur út og
er kominn í þriðju útgáfu. Er þar marg-
víslegur fróðleikur, sem daglega getur að
haldi komið um peninga vog og mái, póst-
burðargjöld, fargjöld með póstskipum,skatta
o. fl. Verðið 25 aurar.
Giffing.
Á laugardaginn var voru hér gefin saman
í hjónaband frk. Maren Vigfúsdóttir, veit-
ingahússeiganda og Einar Gunnarsson
kaupmaður.
Skipaferöir.
>lngeborg<, kaupskip Höepfners og Gud-
manns verzlana kom hingað um síðustu
helgi.
*Nor< timburskip til þeirra félaganna
Jóns Guðmundssonar og Sigurðar Bjarna-
sonar timburmeistara kom 16. þ. m. Með
því kom Sigurður Bjarnason frá útlöndum.
>Vesta<, saltskip til Tuliniusar konsúls
kom 17. þ. m.
Hákarlaveiöin.
»Eiríkur«, skip Gudmanns verzlunar kom
hingað 17. þ. m. með um 60 tn. lifrar.
Mannaláf.
Eggert Stefánsson bóndi frá Glerá andað-
ist hér í bænum 11. þ. m.62 ára gamall; 7
síðustu árin bjó hann hér á Akureyri, en
hafði áður búið lengi á Glerá, rausnarbúi.
Próf í sfýrimannafræði
hafa 19 menn tekið í Reykjavík á þessu
vori. Að eins einn þeirra var af Norðurlandi,
Stefán Jónsson úr Eyjafjarðarsýslu.
pjóöminningarháfíðin
sem getið var um hér í blaðinu verður
víst ekki haldin á þessu sumri. Framkvæmd-
arnefndin hefir sagt af sér störfum, einkum
vegna þess að ekki þótti tiltækilegt að fara
að halda hátíð þegar horfur eru jafnískyggi-
iegar og nú.
Á fíðarfarinu
er engin gagngerð breyting en sem komið
er, stöðug norðanátt. í næstliðinni viku var
Iengst af bjart veður og kalt, en tók nokk-
uð að deginum af sólbráð. Um helgina snjó-
aði enn töluvert og skemdi á jörð. En þ.
16. birti upp með gaddhörku og hefir verið
bjart síðan og úrkomulaust. Síðustu tvær
næturnar hefir verið hér um bil frostlaust.
í gær var bezta veður og tók mikið hér í
nærsveitum, en af miklu er að taka. í dag
stilt veður. Enn mun enginn fellir hér í
sýslu. Úr Skagafirði berast hingað hinar
hörmulegustu fregnir. Betur að þær væru
ýktar.
Samsöngur
var haldinn hér um síðustu helgi og aft-
ur í gær og rennur ágóðinu til Magnúsar
organista Einarssonar, sem viðurkenningar-
vottur fyrir hina ótrauðu og óeigingjörnu
starfsemi hans í þjónustu sönglistarinnar hér
í bænum.
Heklungar sungu, þeir sem hér eru í
bænum, en fengu aðstoð nokkurra beztu
söngmanna bæjarins, fyrst og fremst síra
Geirs Sæmundssonar og Péturs og Friðriks
Þorgrímssona og Sigtryggs Benediktssonar.
Þá las Stefán Stefánsson kennari upp
sögur og kvæði, en frk. Herdís Matthías-
dóttir lék á harmonium.
Húsfyllir var f fyrra skiftið en nokkuru
færra í gær, vegna póstkomu og annríkis,
enda er síra Geir ekki öðru vanur, en að
húsið sé fult hvenær setn hann syngur hér
opinberlega.
Sild.
Alla þessa viku hefir verið töluverður
síldarreitingur í lagnet.hér á pollinum, en
þó mest í morgun. Dinesen hefir fengið
nær 200 tunnum út í Sandgerðisbót ( staura-
vörpu og tveim vörpum var kastað hér í
gær og er töluvert af síld i þeim báðunt.
Vörpurnar eiga þeir Otto Tulinius konsúll
og Eggert Laxdal kaupmaður.
Mikið af síldinni er fremur smátt ett þó
nokkuð sæmilega væn millisíld.
Sveitamenn ættu að nota sér þennan afla
og kaupa síld til skepnufóðurs.
Presfkosning.
Síra Benedikt Eyjólfsson í Berufirði hefir
verið kosinn prestur að Bjarnarnesi með
öllum greiddum atkvæðum.
Veöurathuzanir
á Möðruvöllum í Hörgárdal. Eftir Sigfr. Þorsteinsson
1906. Apríl. Um mið an dag (kl. 2). Minstur h. (C) á sólar-j hringnum.j
Loftvog (þuml.) Hiti (C.) 'C 3 lO KO U (D r- > g 1 2 cn •I
Sd. 1. 75.3 9.6 SV 1 7 3.o
Md. 2. 74.6 9.o SV 3 10 R 2.9
Þd. 3. 73.4 11.5 0 10 5.0
Md. 4. 72.7 5.0 sv 1 8 -4- 1.0
Fd. 5. 73.5 ~1.5 vsv 3 10 S -4- 4.8
Fd. 6. 74.2 9.5 sv 2 10 R -4- 3.2
Ld. 7. 74.4 -4- 2.8 3 10 S -4- 3.5
Sd. 8. 74.8 5.0 vsv 2 10 R -f- 4.9
Md. 9. 75.f 2.0 vsv 1 7 O.i
Þd. 10. 75.o -T- 0.3 vsv 1 10 R -4- 2.0
Md.ll. 75.9 2.o sv 0 10 4- 7.0
Fd. 12. 74.2 3.o 0 10 S -4- 3.0
Fd. 13. 75.i — 3.7 0 10 -4- 7.9
Ld. 14. 74.8 -4- 3.6 1 10 ■4- 17.9
Sd. 15. 76.2 -4- 3.5 NV 0 8 -4- 9.o
Md.16. 76.6 -4- 4.5 0 0 -4- 17.9
Þd. 17. 76.7 -4- 2.7 0 0 -4- 17.o
Md.18. 75.6 1.0 0 5 -4- 9.0
Fd. 19. 74.5 3.o 0 8 -4- 9.1
Fd. 20. 73.7 2.0 NAU 1 10 -4- 5.5
Ld. 21. 75.3 0.3 NAU 2 10 S -4- 1.5
Sd. 22. 76.4 1.0 VSV 1 10 S -4- 13.0
Md.23. 76.o 4.0 SV 1 8 4- 6.0
Þd.24. 76.6 3.3 0 •1 -4- 3.0
Md.25. 76.i 0.3 SV 1 3 4- 1.9
Fd. 26. 75.0 2.0 NAU 0 10 s -4- 3.1
Fd. 27. 75.9 -4- 3.5 NAU 3 10 s 4- 6.0
Ld. 28. 76.5 -4- 4.6 NAU 2 10 S 4- 8.0
Sd. 29. 77.3 -4- 4.7 NAU 1 9 -4- 7.3
Md.30. 76.6 -f- 4.7 NAU 1 10 4- 8.3
Síra Hálfdán Guðjónsson
á Breiðabólstað er settur prófastur í
Húnavatnsprófastsdæmi.
Til leigu.
Fyrir einhleypt fólk eru 2 góð
herhergi strax til leigu f steinhús-
inu á Oddeyri. Menn snúi sér til
verzlunarstjóra Ragnars Ólafssonar.
Nýr
hjólhesfur
er til sölu í verzlun Sn. Jónssonar.
Snemmbæra kú
kaupir verzlunarstjóri Ragnar Ólafs-
son nú strax.
Óveður
eru hér tíð, þessvegna ættu karl-
menn að kaupa sér kápur og
frakka og kvenfólk sjöl og klúta
í verzlun Jósefs Jónssonar á
Oddeyri.
mr Skófatnaður
og
mr stórt úrval
' Höepfners verzlun.
Verzlun Sn. Jónssonar gef-
ur mönnum kost á, að hafa
hin svo nefndu MÁNAÐAR-
REIKNIN GA VIÐSKIFTI, með
mjög sanngjörnum verzlunarkjörum.
Biðjið ætíð um
Offo Mönsfeds
danska smjörlíki.
Sérstaklega má mæla með merkjunum „Elefant“
,Fineste“ sem óviðjafnanlegum.
Reynið og dæmið.
og
m
o £
£
«3gs
ló l- *■ >
•gZ c §
rt ‘5,43
ö£ p
S B 5 b.
íl .5. C
1*0 IO y,
_ sO o,
5
^ So°
+-•02 c
‘3 C25C
Æ73 l
-OJ
12-S!
JLo u-
+. b .
®> ÖI
Z .•=>
SgíH
b _ <
LÍFSÁBYRQÐARFÉLAQIÐ
»T ryg‘
í Kaupmannahöfn
(stendur undir eftirliti Danastjórnar)
tekur menn í ábyrgð með eða án læknisvottorðs fyrir
lág fastákveðin iðgjöld, sem borgist æfilangt eða um
tiltekinn árafjölda, eftir ósk ábyrgðarkaupanda.
»TRYQ“ borgar vátryggingarupphæðina við dauða
eða þegar ábyrgðarkaupandi hefir náð tilteknum aldri,
eftir ósk hlutaðeiganda.
,/TRYQ hefir hagfeldastar ábyrgðir fyrir börn.
,/TRYQ- veitir bindindismönnum sérstök hlunnindi.
Nánari upplýsingar viðvíkjandi félaginu og töflur
þess eru fúslega í té látnar af umboðsmönnum félags-
ins, sem eru þeir
Björn prestur Björnsson, Laufási og
Hallgr. verzlunarstjóri Davíðsson, Akureyri
Félagið óskar eftir umboðsmönnum um alt Norður-
land og eru peir, sem kunna að vilja taka að sér um-
boðsmensku fyrir félagið, beðnir að snúa sér SEM
FYRST til undirritaðs aðalumboðsmanns fyrir Norður-
land.
Rolf Johansen,
Reyðarfirði.
I
m