Norðurland


Norðurland - 02.06.1906, Qupperneq 1

Norðurland - 02.06.1906, Qupperneq 1
NORÐURLAND. Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson, læknir. 38. blað. Akureyri, 2. júní 1906. V. ár. ]VIý rit um rjáttúru íslands. Helgi Pe'tursson: Om Islands Qeolosrl. Kbh. 1905. 80 106 bls. (Doktorsdisputatia ) í riti þessu reynir höf. að rekja myndunarsögu Islands eftir þeim gögn- um einkanlega, er hann hefir aflað sér á rannsóknarferðum sínum um landið undanfarin ár. Eins og vænta mátti er saga hans allmjög á annan veg en eldri fræði- manna, er um þetta mál hafa ritað. Pví miður er hér hvorki rúm né staður til að skýra nákvæmlega frá niðurstöðu þeirri, er höf. kemst að um myndun og byggingu Iands vors, en á fátt eitt vildi eg minnast, því marga veit eg, er langar til að vita eitthvað um það, hversu hólminn okkar varð til. í 27. árg. Andvara skýrir próf. Þorv. Thoroddsen frá því, hversu hann álíti að ísland hafi til orðið. Ritgerð þessi er að mörgu leyti mjög fróðleg og ættu þeir, sem fræðast vilja í þessu efni að kynna sér hana. Aðalatriðanna skal hér getið til saman- burðar. »Á miocenetímabilinu miðju«, segir R. Th., »3. tímab. tertiæru aldarinnar, var ísland partur af landbálki miklum, er náði yfir Atlantshaf frá Skotlandi til Grænlands. Pessi landbrú um hafið þvert var eldbrunnið hálendi, myndað af ótal hraungosum og höfðu hraunin runnið úr sprungum og gígaröðum«. Ressi hraun eru blágrýtis eða stuðla- bergs (basalt) lögin í fjöllunum okkar. — »Um miðbik »miocene«tímans hefir verið langur hvíldartími, svo að stórir skógar breiddust yfir landið, sem síð- ar urðu að surtarbrandi og mókolum. Surtarbrandslögin skifta blágrýti íslands í tvær deildir — eldri og yngri. — Eftir þennan hvíldartíma byrjuðu gos- in aftur og ný blágrýtishraun hlóðust hvert ofan á annað. Við og við, bæði fyr og síðar, brutust aðrar bergteg- undir gegnum blágrýtið og inn á milli laganna, svo sem liparit« eða Baulugrjót. Liparitgos hafa átt sér stað alt fram á vora daga. — Á seinni hluta »miocene«tímans brotnaði blágrýtishálendi þetta, »sem var 10 — 12 þús. fet á hæð, og tók að sökkva; þá varð ísland viðskila við önnur lönd og hefir síðan verið eyland í miðju hafi. Á næsta tímabili, »pliocene«tím- anum, hélt landið áfram að síga og miðbik þess tók að sökkva en ákafar og stórar sprungur mynduðust yfir landið þvert frá suðvestri til norð- austurs. Úr sprungum þessum urðu ógurleg eldsumbrot og móberg og þursaberg myndaðist; gosin héldust á hinum sömu brotlínum um ísöld fram á vora daga«. — »Framan af voru öskugos tíðust« — og mynduðu þau móbergsbeltið um miðbik landsins eða »lögðu grundvöllinn til þess«, en síðan urðu hraunin almennari, fyrst grági-ýtis- hraun (dolerit) síðan blágrýtishraun. »Sumstaðar hafa þykk lög af nýju móbergi myndast ofan á grágrýtis- hraununum.« »Hinir stóru flóar á ís- landi mynduðust við landsig og brotn- un jarðskorpunnar seint á »miocene«, en dalir og firðir grófust niður f blá- grýtishéruðunum á »pliocene«, en dýpkuðu við ágang jökla á ísöldu.« — F*. Th. álítur að ekki hafi nema ein ísöld gengið yfir landið og ekki fyr en efiir lok »pliocene« og eftír að móbergs og þursabergslögin og grá- grýtishraunin voru mynduð. Telur hann lítil líkindi til þess, að ísland hafi verið íslaust, eða flestir jöklar hafi bráðnað af því nokkurn tíma á ísöldinni. Dr. Helgi Pétursson skiftir mynd- unarsögu Islands í tvö aðaltímabil. Fyrra tímabilið nær fram til þess tíma, að landbálkur sá hinn mikli, er náði frá Bretlandi til Grænlands, springur sundur og sekkur í sæ, en Island stendur eftir »sem klettur úr hafinu«. Á þessu tímabili mynduðust eldri blá- grýtislögin, sem höf. kallar »regionala«- blágrýtið eða »basalt«-myndunina. Hefir það líklegaverið áfyrrihluta »miocene«- tímans, jafnvel ekki ólíklegt, að þessi basaltgosaöld hafi byrjað fyr. Efst f þessum hraunlagabálk eru þykk grá- grýtishraun og er grjótið í þeim, að útliti og byggingu, gagnlíkt Reykja- vfkur-grásteininum. — í þessum lögum kveðst höf. hafa fundið ótvíræðar ís- aldarmenjar, rispur og harðnaðar jökul- urðir, í Skriðugili í Fnjóskadal. Eftir því ætti ísöld að hafa gengið yfir landið á tertiæru öldinni og máskg fleiri en ein. Loftslag álítur höf. að verið hafi allmismunandi meðan »regionaIa« basaltið var að myndast, og telur líklegt, að surtarbrandslögin séu engan vegin jafngömul, eða frá sama tíma, heldur menjar af jurta- gróðri, er skrýtt hafi landið á ýmsum tímum. Rau geti því ekki markað nein tímamót. Pegar þessum stórkostlegu blágrýtismyndunum tertiæru aldarinnar var Iokið, Iinti eldgosum á öllu blá- grýtissvæðinu og hefir hvergi á þeim bært síðan nema á íslandi, og svo lítur út, að hér hafi einnig orðið langt hlé á gösunum meðan land- bálkurinn var að sökkva í sæ og eyðast af áhrifum lofts og lagar. Pá grófust djúpir dalir niður í gegnum blágrýtislögin á spildum þeim, er eftir stóðu (Island, Færeyjar) og einhvern tíma á þessum tíma hafa skeljalögin miklu á Tjörnesi myndast. Hefir sjór- inn þá staðið töluvert hærra við strend- ur landsins en nú. Pykt skeljalaganna ber þess ljósan vott, hve afarlangt þetta hlé hefir verið. Undir Iok »pliocene«tímans hófust gosin að nýju og halda áfram gegn- um ísaldir og örisistímabil alt fram á þá jarðöld, sem vér nú lifum á. Petta er síðari þátturinn, síðara aðaltímabilið í myndunarsögu landsins, og nú hlað- ast upp á rústum þeim, er eftir standa af hinum risavöxnu og víðáttumiklu blágrýtisbyggingum, voldugar berg- myndanir, er höf. kallar einu nafni »insularbasalt« eða eyblágrýti, því nú er ísland orðið eyja, — til aðgrein- ingar frá »regionalbasaltinu« eða land- bálksblágrýtinu, er myndaðist á meðan það var hluti af stóru meginlandi. — Eyblágrýtismyndanirnar svara að nokk- uru leyti til móbergs og þursabergs- myndana P. Ths. Eru þær bygðar úr víðáttumiklum grásteinshraunum, — er ekki má blanda saman við grágrýtis- lögin efst í landbálksblágrýtinu —, hörnuðum jökulurðum og fornum leir, móbergi og þursabergi. Grásteins- hraunin hafa fallið út yfir hið þáver- andi yfirborð landsins; eru þau megin- hluti þessara myndana og miklu víð- áttumeiri, en ekki nærri eins þykk og hið eiginlega þursaberg, sem ekki er annað en leifar af fornum eldvörpum. Mikið af því sem áður hefir verið talið gosmóberg og þursaberg (»vulkanske Tuffer og Breccier«) eru harðnaðar jökulbotnurðir og vatnalög. — Rústir af gígum þeim, er grásteinshraunin hafa ollið upp um, hefir höf. fundið á nokkurum stöðum, t. d. við Ketu á Skaga, Pórðarhöfða og víðar. Vest- mannaeyjar telur hann forna gígaþyrp- ingu frá þessu tímabili. Hefðu þessi gos ekki orðið hér á landi og þau jarðlög myndast, sem hér hefir verið frá skýrt á fallsvæðum fornblágrýtisins, mundi útlit landsins hafa orðið alt annað en það nú er. Landið væri þá að öllum líkindum sundurklofið í jökullausa eyjaklasa líkt og Færeyjar. — Jökulflákar síðari ís- aldanna hefðu þá sennilega ekki orðið eins víðáttumiklir. Mararbotninn umhverfis landið innan við 100 faðma dýpi er myndaður sam- tímis eyblágrýtinu og á ofanverðu því tímabili (plistocenetímanum) mynduðust firðirnir íslenzku með troglöguðu botn- unum. Pessi fjarðatrog eru grópin eftir skriðjökla síðustu ísaldarinnar, þegar landið var síðast aljökli hulið. Enginn getur sagt með vissu hve myndunarsaga landsins nær yfir langt tímabil, en vafalaust skiftlr það mörg- um miljónum ára. Hér hefir nú að eins mjög lauslega verið drepið á nokkur helztu aðalat- riðin í þessu merka riti, sem höf. hlaut doktorsnafnbót fyrir við Kaup- mannahafnarháskóla. Kenningar Dr. Helga Péturssonar um jarðfræði Islands eru að mörgu leyti spánnýjar og hljóta að marka nýja stefnu í jarðfræðissögu og jarð- fræðisrannsókn landsins, svo framar- lega þær í öllum meginatriðum reyn- ist réttar. Auðvitað eru þær sumar, enn sem komið er, nokkuð vafasamar og á veikum rökum bygðar, eins og eðlilegt er, þegar þess er gætt að höf. er kornungur og hefir enn ekki átt kost á að rannsaka nema lítinn hluta landsins og það lauslega. — En auð- séð er á ritum hans, að hann hefir til að bera óvenjulega skarpskygni, sterkt ímyndunarafl og hugflug. Hon- um hættir ekki til að láta gamlar kenningar, þó rótgrónar séu, villa sér sýn eða binda sig við borð, ef hon- um virðast þær koma í bága við hans eigin athuganir og ályktanir þær, sem hugsunarrétt verði af þeim dregnar. Maður sem er slfkum kostum búinn virðist nærri því sjálfkjörinn til þess að ryðja nýjar brautir í sinni grein. Pað má því óhætt gera sér beztu vonir um, að rökin fyrir kenningum Dr. H. P. styrkist og fjölgi og vafa- semdunum fækki við frekari og ná- kvæmari rannsóknir. — Allir sem unna vísindalegri rannsókn hljóta því að óska þess af heilum hug, að höf. endist heilsa og aldur til þess að skygnast lengra og dýpra inn í hina myrku og torskildu myndunarsögu lands vors, að honum megi auðnast að ráða sem flestar af þeim »rúnum, sem náttúran sjálf hefir ritað á fjöll og undirlendi, sævarstrendur og jökultinda«, eins og próf. Porv. Thoroddsen svo fagurlega að orði kemSt’ 5/. St. % Brot úr ferðasögu. IV. Það er ekki ætlun mín að Hðfn. , . , , , _ lýsa þessari hofuðborg Dan- merkur, þessu höfði sem nú er orðið svo stórt, að þjóðarlíkaminn fær tæpast undir því risið. Jón Thoroddsen kallaði Höfn fyrir löngu síðan Babylon við Eyrarsund, en lftil ástæða var þá til að nefna hana Babylon við það sem nú er orðið, því smáborg hefir Höfn í raun og veru ætíð verið þangað til á síðasta mannsaldrinum. Hve breyt- ingin er stórfengleg sézt bezt á því að í ungdæmi sfra Matthíasar var garður mikill utan um' alla borgina og 4 hlið á, sem lokað var á kvöldin. Þá brunnu og grútarlampar á götun- um. Nú er gamli bærinn að eins mið- bik stórrar borgar, með raflýstum, jarðbikuðum strætum, með sæg af ríkmannlegum skrauthýsum og götu- vögnum, sem sífelt þjóta í allar áttir, dregnir af ósýnilegu afli, rafurmagn- inu — þessu undraafli vorrar aldar. Þar búa nú sexfalt fleiri menn en á öllu íslandi og þó er ummál borgar- innar miklu minna en meðal hrepps á voru landi. Ætla mætti, að það væri sönn á- nægja að koma eftir io ár á fornar stöðvar, þangað sem maður var orðinn nauðakunnugur, komast aftur inn í stórborgarlífið og menningarstrauminn eftir einveru og einangran heima. Mér varð þó ekki að þessu. Það var ekki laust við að mér leiddist hvenær sem eg ekki hafði ákveðið starf fyrir hönd- um. Sjálfur var eg breyttur, borgin breytt, gamlir kunningjar horfnir og óþektir menn komnir í staðinn. Það var ekki að ganga að þvf gruflandi að hér var eg útlendingur og átti ekkert erindi annað en að læra sem mest af því, sem að gagni mætti koma heima og sjá ungu íslenzku menta- mennina, sem mest eru kunnir heima fyrir þjóðlegan, einarðan hugsunar-

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.