Norðurland - 02.06.1906, Page 4
NI.
154
3.
LÍFSÁBYRGÐARFÉLAGIÐ
J ryg‘
í Kaupmannahöfn
(stendur undir eftirliti Danastjórnar)
tekur menn í ábyrgð með eða án læknisvottorðs fyrir
lágf fastákveðin iðgjöld, sem borgist æfilangt eða um
tiltekinn árafjölda, eftir ósk ábyTgðarkaupanda.
mTRYG" borgar vátryggingarupphæðina við dauða
eða þegar ábyrgðarkaupandi hefir náð tilteknum aldri,
eftir ósk hlutaðeiganda.
mTRYG" hefir hagfeldastar ábyrgðir fyrir börn.
mTRYG' veitir bindindismönnum sérstök hlunnindi.
Nánari upplýsingar viðvíkjandi félaginu og töflur
þess eru fúslega í té látnar af umboðsmönnum félags-
ins, sem eru þeir
Björn prestur Björnsson, Laufási og
Hallgr. verzlunarstjóri Davíðsson, Akureyri
Félagið óskar eftir umboðsmönnum um alt Norður-
land og eru þeir, sem kunna að vilja taka að sér um-
boðsmensku fyrir félagið, beðnir að snúa sér SEM
FYRST til undirritaðs aðalumboðsmanns fyrir Norður-
land.
Rolf Johansen,
Reyðarfirði.
mi
#
Nýjar bækur
komnar til Hallgr. Péturssonar í
Lundargötu 9:
Eimreiðin 1906.
Börn óveðursins.
Kynblandna stúlkan.
Alþingismannatal 1845—1905.
Þyrnibrautin.
Friðþjófssaga, söguljóð, 3. prentun.
Reimleikinn á herragarðinum.
Ennfremur fást margar eldri sög-
ur, mjög góðar.
Undirskrifaður
seíur nú fyrst
um sinn allar
vörur óheyri-
lega ódýrt gegn pen-
ingum út í hönd.
Komið og sannfærist
um að þetta er sann-
leikur.
Oddeyri, 1. júní 1906.
Ásgeir Pétursson.
18
hann við í lágum róm; hann var orðinn hljóðlaus og andstuttur af
skrafinu. »Einu gildir mig þó þið farið allir til helvítis!«
Þegar Buran hafði lokið máli sínu, ypti hann öxlum og gekk í
burtu.
1 slíkum fangaflota eru vanalega nokkrir, er hafa orð á sér fyrir
að þeir kunni lögin öðrum betur, og þegar þessir »lögfræðingar«
hafa athugað málið nákvæmlega og sagt skoðun sína á því, hvernig
dómurinn muni falla, fer sjaldan hjá því að það komi í ljós, að þeir
hafa litið rétt á. í þetta skifti voru allir lögfræðingarnir á sömu
skoðun og Buran og samkvæmt því var ákveðið að Vasilij skyldi
strjúka. Og þar sem hann átti að gjalda fyrir þá alla, töldu allir sér
skylt að hjálpa honum eftir föngum. Honum var heimilt að taka all-
ar þær tvfbökur og kex, sem þeir áttu eftir og Vasilij fór strax að
ráða sér menn til þess að taka þátt í þessari ofdirfsku för.
Buran hafði tvisvar sinnum áður strokið frá Sakhalin. Vasilij leit-
aði því fyrst til hans og gamli maðurinn var ekki lengi að hugsa
sig um. t
»Já«, svaraði hann, »eg held að það hafi verið lagt á mig í vögg-
unni, að eg ætti að deyja inni í dimma skóginum og ef til vill fer þar
líka bezt um okkur landhlauparana. En því miður er eg hræddur um
að þú hafir enga ánægju af fylgd minni, því eg er gamall og slitinn
og get varla lafað á fótunum«. Buran vöknaði um augu og hann
deplaði þeim títt.—En þú verður að fá fleiri í félagið, tveir eða þrír
er altof lítið; fyrst við ætlum að strjúka megum við ekki vera færri
en 10, annars mistekst það.—Já, fús er eg til að fylgja ykkur, meðan
eg get hreyft fæturna. Og ekki tekur mig það heldur sárt, þó eg þá
deyi, ef það aðeins gæti orðið einhverstaðar annarstaðar en á þess-
ari bölvaðri eyju, Sakhalin.«
Heiðruðum almenningi
tilkynnist að undirritaður hefir 29. fyrra mánaðar opnað
skósmíðavinnusíofu.
Verða þar allar pantanir á skófatnaði smíðaðar eftir máli og
nútímans kröfum. Jafnframt verður tekið á móti gömlum skó-
fatnaði til aðgjörðar. Viðskiftin verða öllum gjörð svo þægi-
leg sem unt er. — Vinnustofan er áföst við hús þeirra Páls
kennara og Guðbjörns snikkara, 24 í Aðalstræti.
Virðingarfylst
Pórarinn Magnússon.
pcr Allar 1*5
vefnaðarvörur
eru ódýrastar og beztar í
GUDMANNS EFTERFL. VERZLUN.
Verzlun mín
3 Norðurgötu 3
hefir með síðustu skipum fengið nægar birgðir af alls-
konar vöru. — Sérstaklega skal eg nefna matvöru, álna-
vöru fjölbreytta, nýjan skófatnað og vörur úr leir og
postulíni.
Virðingarfylst
Guðlaugur Sigurðsson.
• •• Ágætar
bmjor Rartöflur
er keypt fyrir vörur og peninga í fást í
Höepfners verzlun. fSudmanns Sfterfl. oerzlun.
Biðjið ætíð um
Offo Mönsfeds
danska smjörlíki.
Sérstaklega má mæla með merkjunum „Elefant“
,,Fineste“ sem óviðjafnanlegum.
Reynið og dœmið.
og
C I u
a E m H/iSt/rQ-
3 = o OÍOÍ
c e »s
Seí
U C '&r-
= I E
J.
■Hz.§§.§5
— £ .s, o _ <
_ S S m'C ■
. .b ‘C
w ú þ: «2
__
« Q"--Es
= §
E I n “
. 'c ^ s _
% ■= E £ .
!S g "S
u.§>.b c»g E
2'S)-a
Z ■•o g--3 3
Prentsmiðja Odds Björnssonar.