Norðurland

Ataaseq assigiiaat ilaat

Norðurland - 03.11.1906, Qupperneq 1

Norðurland - 03.11.1906, Qupperneq 1
NORÐURLAND. Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson, læknir. Akureyri, 3. nóvember 1906. j VI. ár. Carl Höepfners verzlun á Akureyri mun framvegis sneiða hjá því, að hafa framhaldandi viðskifti — nema hönd selji hendi — við þá, sem alls ekki eða laklega hafa staðið í skilum við verzlunina tvö undanfarin ár, nema þá að sérstakar ástæður hafi orðið þess valdandi. — Sömuleiðis verð- ur framvegis ekki lánað félausum mönnum, eða mönnum sem ekki eru fullveðja. Þar á móti óskar verzlunin að hafa sanngjörn og frjálsleg við- skifti við alla, er að jafnaði verzla skuldlítið, og sem greiða skuldir sínar — ef nokkurar eru — í þeim vanalegu kauptíðum. Allur útlendur varningur fœst með mjög vœgu verði. Flestar íslenzkar afurðir keyptar. Akureyri 1. nóvember 1906. Kristján Sigurðssoi) verzlunarstjóri. 10. blað. Standmynd Kristjáns níunda. Líkneskis-brask stjórnarinnar. Sjö höfðingjar í Reykjavík, þeir Klemens Jónsson, Hallgr. Sveinsson, Júlíus Havsteen, Eiríkur Briem, O. Zoega, Jón Helgason og D. Thomsen hafa sent út áskorun um það til allra íslendinga, „æðri sem lægri, ungra sem gamalla, að leggja fram, eftir því sem hver hefir efni og vilja til, fjár- upphæð, til þess að koma upp stand- mynd gristjáns konungs níunda, sem ætlast er til að verði sett upp á hæfi- legum stað f Reykjavík." Segjast þeir sjömenningarnir hafa verið kosnir til þessa þjóðlega starfs af fjölmennum fundi í höfuðstaðnum. Enginn efi er á því að þessi ráð- stöfun er komin beina leið frá stjóm vorri; hún var að burðast með þessa hugmynd í harðindunum í vor, en þá urðu undirtektirnar svo daufar, að henni mun hafa þótt ráðlegast að fresta því að senda út áskoranir um samskot til þessa fyrirtækis. Satt að segja munu ýmsir hafa efast um að hún hefði einurð til þess að halda þessu máli lengra áfram, jafndaufar og undirtektirnar voru alment, enda aðkall til fjársöfnunar með meira móti, fyrst eftir mannskaðana miklu á Suðurlandi, síðan til Ingólfslík- neskisins og nú síðast eftir brunann hér á Akureyri. , Óneitanlega setur stjórn vor sig ekki úr færi um að halda konungs- valdinu að oss íslendingum. í sumar voru allir íslenzkir þingmenn boð- aðir utan til Danmerkur og það látið í veðri vaka að ónáð konungs lægi við ef þeir kæmu ekki. Séð hefir hún oss og fyrir heimsókn konungs- ins á næsta sumri með miklu dönsku fylgdarliði og nú þykir henni loks ekki annað sæma, en að heimta skatt af þjóðinni til þessarar dýrkunar á konungsvaldinu. Ekki er nema skylt að viðurkenna að Kristján konungur níundi var sæmdarmaður í hvívetna. Qóðvild sýndi hann líka landinu oftar en einu sinni, er hér var óáran í landi, eins og títt er um þjóðhöfðingja við þegna sína. Aðalástæðan til þessarar fjársöfnunar er það þó talið, að kon- ungurinn hafi heimsótt oss, óverð- uga þegna sína, á þúsund ára afmæli þjóðarinnar og fært oss stjórnar- skrána. Hér er líka um þá einu ástæðu að ræða, er verulega sé hægt að taka til greina, er um þetta mál er að ræða. Nú á tímum munu mentaþjóð- irnar líta svo á, að sú ein ástæða sé réttmæt til þess að reisa upp lík- neskjur af þjóðhöfðingjunum, er þær viðurkenna að þeir hafi búið svo við þær f stjórnmálunum, að mikils sé um vert að halda þeirri sambúð á lofti, niðjunum til athugunar og síð- ari höfðingjum þeirra til eftirbreytni. Sá mælikvarði er og réttmætur. En hvernig víkur þessu við er á hann er mælt, að því er stjórnarskrána snertir og ríkisstjórn Kristjáns 9. hér á landi? Samþegnar vorir, Danir, fengu stjórnarskrá sína 1849. Fyrir það blómgaðist hagur dönsku þjóð- arinnar, eftir að hún varð sjálfs sín ráðandi og það þrátt fyrir miklar ófarir hennar í Slesvíkur ófriðinum. En hjá oss hélt alt áfram í sama kaldakolinu, sem á einveldistímun- um. Kristján 9. tekur við ríkisstjórn 1863, en stjórnarskrána fáum vér fyrst 1874. Þau árin, sem hér liggja á milli, er háð af vorri hálfu hörð og látlaus barátta við konungsvaldið og full- trúa þess um réttindi þjóðar vorrar. Og hvernig stjórnarskrá fengum vér svo? Ekki æðstu lög frjálsrar þjóð- ar, heldur náðargjöf útlandrar yfir- drotnunar. Þeirri sömu stefnu var og fram við oss haldið, því nær öll ríkisstjórnarár Kristjáns 9. Og það höfum vér fyrir satt, að rýmkun sú er vér fengum á sjálfstjórn vorri 1903 sé ekki síður að þakka krón- prinsinum, hinum núverandi kon- ungi vorum, en Kristjáni 9. Sjálfur var hann mjög íhaldssamur í stjórn- málum, enda alinn upp í skóla ein- veldishugsananna. Ráðgjafar hanslétu sér og Iengstum mjög fátt, ekki að eins um kröfur þjóðar vorrar, heldur líka kröfur Dana sjálfra. Því fer mjög fjarri að vér viljum hafa nokkurn þann heiður af hinum látna konungi vorum, er honum ber. Mannkosti hafði hann eflaust mikla til að bera. En hverja sögu ber að segja eins og hún gengur, en ekki villa mönnum sýn með konunga- smjaðri og ómaklegum uppveðrungs- fagurgala. Reisi fslenzka þjóðin þessa mynda- styttu, fáum vér ekki betur séð en að í því felist viðurkenning hennar á því, að sú stefna hafi verið rétt- mæt, sem haldið var að oss af stjórn Kr. 9. Lagalegt gildi hefði sú viður- kenning að vísu ekki, en hún hefði engu að síður mikið siðferðislegt gildi, einkum nú, er svo skamt er um liðið frá lati hans, og þau mál eru enn óútkljáð, er voru deilu- málin á ríkisstjórnarárum hans. Þjóð vor á rétt á sjálfstæði, landið heimtingu á réttindum sínum aftur. Sá konungur er viðurkennir þessi réttindi, reisir sér sjálfur minnisvarða í sögu þjóðar vorrar og jafnframt í öllum íslenzkum hjörtum. Þann minn- isvarða á þjóð vor að fága. og mun gera það. Ytri mynd hans á hún líka að reisa. En hvort þeirrar viður- kenningar verður langt eða skamt að bíða, fáum vér ekki betur séð en að líkneskisgerðin mætti bíða þess tíma. X Skoðanamunur \ x \ eða hatur. i. Einu sinni áður höfum vér bent á það hér í blaðinu, hve óvarlegt það sé, að reyna til að brjála dómgreind manna, með því að halda þvf fram, að skoðanamunur andmælendanna sé runninn af rótum persónulegrar óvild- ar. Tilefnið var í það skiftið ummæli ráðgjafa vors á Hrafnagilsfundinum fræga. Honum þótti þá sem öll mót- spyrna gegn stjórn hans á landinu væri af því komin, að »ein familía* vildi niður af sér skóinn. Vér viljum ekki bera honum á brýn, að hann hafi þá talað móti betri vitund, enda sæti það ekki vel á æðsta manni lands- ins frammi fyrir miklum fjölda áheyr- enda. En hafi svo ekki verið, fáum vér ekki betur séð, en að ummæli hans hafi borið vitni um undarlega kynlega þröngsýni, því ámátlegri sem maðurinn var betur gefinn og svo hátt settur, að meira víðsýnis mátti vænta af honum en illa siðuðum og óhlutvöndum mönnum. Lítum snöggvast á það, sem um var deilt á Hrafnagiisfundinum. Tvö stórmál voru þar til meðferðar og ekki annað svo teljandi sé; annað var samningur sá, er ráðherrann hafði gert við M. n. ritsímafélagið, hitt var undirskriftarmálið. Ráðherrann hélt því þar fram, að sjálfsagt væri að láta sæsímann koma á land á Austurlandi. Um þetta var alls engin deila. Allir voru sammála um það, að svo framarlega sem sæ- þráður yrði lagður til landsins, yrði að leggja hann þangað. En hvernig stóð eiginlega á því, að enginn skoð- anamunur varð um þetta atriði? Ástæð- an var blátt áfram sú, að ráðherrann hafði sjálfur skift um skoðun, tekið að sér skoðun andmælenda hans; því fám árum áður hafði hann haldið því fram með miklum ofsa á þingi þjóðarinnar, að það væri hin mesta fjarstæða að láta sér detta slíkt í hug og það þó enginn annar vegur sýnd- ist þá fær til þess að útvega landinu hraðskeytasamband við umheiminn. Vér ætlum ekki að fara að rifja upp allar þær fjarstæður, sem ráð- herrann bar þar fram fyrir kjósendur sína um loftskeytaaðferðina. Sannan- irnar á móti þeim eru fyrir iöngu komnar fram, svo allri þjóðinni er orðið kunnugt um þær, enda liggur það utan við tilgang þessara stuttu hugleiðinga. En er ekki eitthvað af- káralegt við það, að maður, sem ný- búinn er að skifta um skoðun á mikil- vægu atrjði, skuli bregða öðrum um illar hvatir, þó þeir láti í ljós skoð- anamun á öðrum atriðum í sama mál- inu? Þessi skoðanamunur hefði jafnvel ekki þurft að vera annar en sá, að ein- hverjir hefðu haldið fram sömu skoð- uninni, sem hann sjálfur hafði barist fyrir, að þeir hefðu ekki verið eins liðugir í snúningnum eins og hann sjálfur. En þá hitt málið, undirskriftarmál- ið? Hvað hefir gerzt í því síðan á Hrafnagilsfundinum? Á þeim fundi hélt ráðherrann því fram, að undir- skrift forsætisráðherra Dana væri bæði eðlileg og réttmæt í alla staði, þó hann sjálfur hefði haldið fram alt annari skoðun á þinginu 1903. Sjálf- ur hafði hann þar skift um skoðun og þessari nýju skoðun sinni heldur hann fram á þinginu 1905, svo að enginn aldanskur ráðgjafi hefði getað gert það ósleitilegar. Honum verður það ágengt þar, að mikill meiri hluti þingmannanna vinst til þess að fella með honum hógvær mótmæli gegn þessari dönsku ráðstöfun. Svo líður að eins eitt ár, eða tæplega það. Þing- mennirnir fara til Danmerkur og þar verða þeir allir sammála um að láta

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.