Norðurland

Ataaseq assigiiaat ilaat

Norðurland - 30.11.1906, Qupperneq 2

Norðurland - 30.11.1906, Qupperneq 2
Nl. 54 sjóðs höfundarins og mun cand. Hall- dór Hermannsson bókavörður við hið íslenzka bókasafn Cornell háskóla í íþöku annast um útgáfuna. Þarf því eigi að óttast að aflagað verði í með- förum það sem birt verður. Hann hefir og ásamt öðrum manni tekið þar við með útgáfu þessarar bókar, sem höfundurinn hvarf frá og sérstak- lega átt mestan þátt í að semja nafna- skrána aftanvið. Hinn góðkunni látni höfundur hefir með bók þessari, sem er hið lang- stærsta ritverk hans, reist. sjálfum sér þann minnisvarða, er lengi mun standa, þótt mörgum kunni að dylj- ast. Ekkert var honum jafnmikið á- hugamál sem það, að auka kynning og veg íslenzkra bókmenta og menn- ingar meðal erlendra þjóða. Bók þessi mun gera hvorttveggja. B.J. Útflutningur á íslenzkum skepnum. ii. Nl. flutti 15. þ. m. lítinn útdrátt úr dönskum blöðum um hrossafarm þann er fluttur hafði verið með skip- inu »Echo« og kom til Alaborgar 9. sept. þ. á. Töluðu blöðin svo um þetta, sem mjög hraklega hefði verið farið með skepnurnar. Öll frásögn Nls. þræddi ummæli blaðanna og verður ekki betur séð en að þau byggist á skýrslu þeirra manna, er voru sjónar- vottar að því, hvernig hestarnir litu út, þeir af þeim sem komust lífs af úr þeim flutningi. Engar líkur sýnast vera fyrir því að sögumönnum blað- anna hafi getað gengið annað til, en að fara með rétta fregn og benda á að slíkt mætti ekki koma fyrir. Eng- inn hefir heldur hreyft rökum eða þá líkum fyrir því að persónuleg óvild til nokkurs manns hafi getað ráðið frá- sögninni. Við þessa frásögn bætti svo Nl. nokkurum athugasemdum um þörf- ina á eftirliti af hálfu stjórnarvaldanna með útflutningi á lifandi skepnum héð- an úr landi. Það var aðalefni og til- gangur greinarinnar að benda á þörf- ina á þessu eftirliti og fáum vér ekki betur séð en að flutningurinn á »Echo« hafi verið sorglega ljóst dæmi því til skýringar. Því nær hið sama sýnist hafa vak- að fyrir höfundum greina þeirra er ritað hafa um þetta í Isafold og Lög- réttu; báðir benda þeir með skýrum orðum á þessa þörf. T. d. segir grein- arhöfundurinn í Lögréttu (Daníel Dan- íelsson): »Það er víst óhætt að segja að öll þau skip, sem nú eru notuð til hestaflutnings héðan frá landi eru afarilla útbúin sem hestaflutningaskip og mennirnir sem um skepnurnar sýsla, alls ekki því starfi vaxnir«. Hér er miklu harðar að kveðið en Nl. gerði og er þó höf. víst nákunn- ugur þessum hestaflutningi. Á öðrum stað í greininni segir svo um útflutn- ing Zöllners, að á skipum hans sé flestur útbúnaður líkur og á hinum skipunum (0: Sameinaða félagsins), en »oft miklu þrengra og stundum hestar hafðir á þilfari; ætti það alls ekki að líðast, þó Zöllner eigi í hlut.« Herra alþingismaður Jón Jónsson, sem hér er umboðsmaður Zöllners, þykist þurfa að leiðrétta það sem stóð í Nl. Reyndar fáum vér ekki séð að hann leiðrétti neitt það sem þýðingu hefir, en hinu kemur hann upp um sig, að hann hefir látið blað sitt þegja yfir fregninni, þó hann vissi vel um hana áður. Helzta leiðréttingin á að vera sú, að ofmikið sé gert úr því hve margir hestarnir hafi verið hraklega útlítandi, ekki hafi þurft að skjóta strax nema 8 og 7 hafi verið fengnir dýra- lækni til hjúkrunar. Aðrir segja um þetta að þurft hafi að drepa 22 af hestunum og mörgum hafi orðið að koma til lækningar og vitum vér ekki hver þar fer með réttara mál. Ef til vill hefir ekki sírax þótt ástæða til þess að drepa nema 8, en hinir verið drepnir síðar, þegar vandlegar var búið að líta eftir þeim. En annars er fregn Nls. um þetta atriði þýdd orði til orðs eftir blaðinu »Nordjylland«, eins og blaðið af Nl. ber með sér og verður engri aðdróttun um rangfærslu við það komið. Annars virðast þau sönnunargögn, sem alþingismaðurinn ber fyrir sig, vera þess eðlis að varlega sé með þau farapdi. Hann vill hafa að litlu eða engu ummæli þeirra manna, er voru sjónarvottar að því hvernig hestarnir litu út, er þeir komu á land; ekki þykir honum það heldur nokkurs um vert að Dýraverndunarfélagið danska skerst í málið til þess að koma fram ábyrgð á hendur þeim sem sekur sé og að það lætur sér svo ant um það að það sendir áskorun þess efnis til annars lands, en hann heimtar að fólk taki trúanlegt það sem skipstjórinn og húsbóndi hans segja honum um þetta, einmitt þeir mennirnir, sem helzt eru bornir sökum í þessu máli. Sú regla mun þó vera næsta almenn, að taka minna mark á því sem sakborningur- inn segir, heldur en því, sem óvilhöll vitni bera um hvert mál sem er, og virðist ekki að svo stöddu vera nein ástæða til þess að gera hér undan- tekning frá þessari reglu. Annars hefir Nl. enga löngun til þess að kíta um smáatriði þessa máls. Hvað marga hestana þurfti að drepa er ekkert aðalatriði, heldur hitt að þetta geti orðið til þess, að vér tök- um upp hér þann sið mentaþjóðanna að líta eftir útflutningi á lifandi skepn- um. Líkunum fyrir þeirri þörf virðist fremur fara fjölgandi en fækkandi þeg- ar málið er tekið til íhugunar og hafi Z. og umboðsmenn hans góða sam- vizku af þeim flutningi, ætti þeim sjálf- um að koma bezt að eftirlitið fengist. Þó er eitt atriði í grein herra J. J. sem oss virðist ástæða til að athuga dá- lítið betur. Hann segir að til jafnaðar fari bezt um þær skepnur sem á þil- farinu séu. »Þar skortir eigi loft og fé okkar og hestum, sem vanast er við útivistina, eins og allir vita, kem- ur fátt ver en skortur á góðu lofti. En við því er auðvitað hættara niðri í skipinu, þótt ætíð sé gert alt sem mögulegt er til þess að leiða loft niður um skipin.« Fyrst og fremst getum vér ekki séð líkur fyrir því að íslenzkar skepnur þurfi fremur gott loft, en aðrar skepnur; loftið er jafnt lífsskilyrði út- lendra skepna sem innlendra, en auk þess getur loftleysi niðri í skipunum ekki stafað nema af tveim ástæðum, annaðhvort því að skipin eru svo ó- heppilega útbúin fyrir lifandi skepnur, að örðugt er að veita nægilegu lofti um þau, eða þá af því að ofmörgum skepnum er hrúgað saman í lestinni. Það er einmitt þetta sem vér viljum að haft sé eftirlit með. Að bezt fari að jafnaði um skepnur á þilfarinu við flutninga héðan af landi til útlanda, er óbein sönnun fyrir því að eitthvað sé verulega athugavert við þann flutn- ing. Það er þó lélegur skúti, sem er lakari en úti. Sumir eiga ef til vill hægra með að skilja þetta, ef vér hugs- um oss menn 1' stað hestanna og fer því varla mjög fjarri að bera þetta saman, því hestarnir eru mjög við- kvæmar skepnur. Sjálfsagt kjósa marg- ir að spóka sig á þiljum uppi, fremur en vera niðri í skipinu, en þó þá helzt þegar gott er veður. Þegar sjóarnir ganga yfir skipið munu fæstir kjósa vistina á þilfarinu, en mikill sjógangur getur komið fyrir í hverri ferð sem héðan er farin til annara landa. Kenn- ingin um þessa góðu vist á þilfari er því ekkert annað en bláber villukenn- ing. Það getur reyndar rétt verið að betra sé fyrir skepnurnar að springa á sundi í öldunum, en að kafna í loft- leysi niðri í skipinu en hvorugt mun þó gott vera. 5» Verzlunar-samsteypan. Miklar fréttir voru það, sem Nl. flutti í síðasta blaði, að danskt félag hafði keypt, eða væri því nær búið að kaupa allar verzlanir Örum & Wulffs og Gránufélagsins hér norðan og aust- an lands. En síðan er það orðið kunn- ugt að ráðgert er að verzlanir stór- kaupmanns Þórarinns Tuliniusar og jafnvel fleiri verzlanir hér norðaustan- lands gangi í félagið. Það er og fullyrt að Þórarinn Tulinius sé aðalmaðurinn í þessum samtökum og muni verða for- stjóri fyrirtækisins. Það hefir og komið til orða að Thorefélagið gangi inn í þetta nýja félag. Annai aðalhluthafinn er talið að verði Austurasíufélagið (Östasiatisk Kompagni) í Höfn, sem hefir yfirráð yfir afarmiklu fé og mörg skip í förum. Nokkurir stóreignamenn í Höfn eru og tilnefndir sem hluthafar. Búast má við því, að félag þetta eigi bráðlega eina verzlun á hverjum verzl- unarstað frá Hornafirði til Sauðárkróks. Talað hefir verið um að skipa undirforstjóra (3?) og er fullyrt að Chr. Havsteen kaupstjóri muni verða einn þeirra. Um Gránufélagið er það að segja, að það er að sönnu innlend eign að nafninu til, en í raun réttri hefir Holme stórkaupmaður alt ráð þess í hendi sér, getur selt allar eignir þess með 6 mánaða fyrirvara. Hlutafé fé- lagsins mun vera 100,000 kr. og býðst þetta nýja félag til þess að borga hluthöfum út 80 %, og er það töluvert meira en margur mun hafa búist við. Líkur sýnast því vera mjög miklar fyrir því, að aðalfundur fé- lagsins verði fús til þess að selja. Eftir því sem frézt hefir með hrað- skeytum hingað, hafa stúdentar í Höfn hreyft einhverjum mótmælum, gegn þessari sölu á verzlununum. Þau mót- mæli verða sjálfsagt þýðingarlaus. í fjármálum eru slík mótmæli höfð al- gerlega að engu og að því er vér getum bezt séð, eru þau líka mjög ástæðulítil, þó vér ekki efum að stú- dentunum gangi gott eitt til fyrir land þeirra og þjóð. En í rauninni er breyt- ingin ekki stórvægileg frá því sem nú er, aðallega í því einu fólgin, að nokkur dönsk gróðafélög slá sér sam- an og auka hlutafé sitt. Vér fáum ekki séð að íslenzku verzlunarstéttinni þurfi að standa nokkur verulegur stuggur af þessum samtökum; verði sú reynd- in á verður henni sjálfri um að kenna. Félagsskapur þessi gæti orðið til þess, að þoka henni dálítið betur saman og knýja hana til framkvæmda og yrði þá henni og landinu til verulegs gagns. Óttinn við einokunartilraunir þessa fé- lags ætti að vera ástæðulaus í verzlun- arfrjálsu landi. Náttúrlega kysu flestir íslendingar helzt að vér hefðum sjálfir það bein í hendi, að vér værum færir um að annast alla verzlun vora sjálfir og jafnframt allar siglingar hingað til landsins. En meðan jafnmikið vantar á að vér getum það og nú er, og að þjóðin hafi alvarlegan vilja á því, get- um vér ekki láð útlendingum að þeir leita sér hér að gróða. Þó verður það að sjálfsögðu að vera markmið þjóðar- innar að gera verzlunina innlenda. En svo er á það að lfta að það er mjög líklegt að oss geti staðið nokk- ur hagur af þessari verzlunarsam- steypu. Ekki sýnist ósennilegt að hún verði til þess að vér fáum tölu- vert meiri skipaferðir hér norðanlands og austan og betra samband við um- heiminn, t. d. við Hamborg og jafn- vel Vesturheim. Er þá ekki ósenni- legt að félagið reki hér stórsölu að einhverju verulegu leyti og gæti það orðið allri verzlunarstétt vorri til hagn- aðar og jafnframt landinu í heild sinni. Líklegt sýnist það og að félag þetta muni hafa hér með höndum ýmsan atvinnurekstur (fiskiveiðar í stórum stíl ?), er geti veitt mörgum góða at- vinnu og þjóðin geti líka lært eitt- hvað af. Verði af þessari félagsmyndun — sem fullar horfur eru á nú — fáum vér ekki séð að ástæða sé til þess fyrir oss að taka henni illa heldur bíða átekta. Dáðleysi og ótélagslyndi sjálfra vor bætum vér ekki upp með lítt hugsuðum ónotum og afllausum olbogaskotum. * Skarlatssóttin útbreiðist hér í bænum jafnt og þétt. Sem stendur er hún í 17 húsum og sjúklingarnir rúmir 30. Af þeim eru 9 nemendur á gagnfræðaskólanum en 5 á kvennaskólanum. Þessir 5 sjúkl- ingar eru allir einangraðir og hefir sýkin ekki gert þar vart við sig af nýju í alllangan tíma. Hefir því verið leyft að byrja þar aftur kenslu. Kensla á gagnfræðaskólanum verður ekki höfð um hönd fyr en útlit er fyrir að sýk- in sé stöðvuð þar. Einn sjúklingur í bænum er þungt haldinn, en sýkin yfirleitt væg. í læknishéraðinu fara enn engar sög- ur af sýkinni; aftur höfðu 3 sjúkling- ar veikst nýlega á Breiðumýri í Reykja- dal, og mun veikin þar komin héðan úr bænum. Læknis hafði verið vitjað þegar og Iofsverður áhugi þar nyrðra að verjast sýkinni. Um sóttvarnir hefir verið leitað á- lits landlæknis og stjórnarráðs, en um síðustu helgi fól landlæknir héraðslækn- inum hér allar ráðstafanir gegn henni hér í bænum. Hér í Akureyrarbæ er hætt við að sýkin verði ekki stöðvuð úr þessu, vegna

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.