Norðurland - 30.11.1906, Side 3
55
þéttbýlisins, enda ómögulegt að full-
yrða nema sýkin sé miklu víðar í
bænum, því víða stingur sér niður
væg hálsbólga, sem vel getur verið
skarlatssótt.
5»
Hraðskeytafréttir
frá Reykjavík.
Þórður Thoroddsen læknir og stór-
templar varð fimmtugur 15. þ. m.
Templarar héldu honum mikla veizlu
28. þ. m. Tóku um 100 manns þátt
i henni.
Stúdentafélagið i Reykjavik bauð iil
almenns borgarafundar þar i gœrkvöldi
um fánamálið. Fyrir hönd félagsins
œtluðu þeir að tala, formaður félags-
ins Bjarni fónsson frá Vogi og cand.
mag. Guðm. Finnbogason.
Bœrinn Álasund í Noregi hefir gef-
ið Akureyrarbæ 2 fullsmiðuð hús og
eitthvað af rúmfatnaði.
Miklir mannskaðar sagðir við Noreg.
%
Landstjórafyrirkomulag.
Lausafregnir hafa um það gengið
hér í vikunni að von væri bráðlega á
nýju samkomulagi milli blaðamannanna
um að fara fram á landstjórafyrirkomu-
lag, landstjóra sem konungur skipaði
með undirskrift forsætisráðherra Dana.
— Engin hæfa er fyrir því að sam-
komulag sé að verða um þetta, enda
hefir það mál ekki enn þá verið rætt
svo alment, að rétt væri að bindast
samtökum um það mál, áður en það
hefir verið skýrt betur fyrir þjóðinni.
Þjóðólfur og blaðamannasamfökin.
Sá kvittur hefir verið borinn út hér,
að Þ. sé í þann veginn að hverfa frá
blaðamannasamþyktinni aftur, af því
flokksmenn ritstjórans þar syðra væru
samtökunum andvígir. Vér höfum gert
fyrirspurn um þetta til Reykjavíkur.
Svarið var á þá leið að fyrir þessu
væri engin hæfa. Þrátt fyrir vitanleg-
an kala sumra stjórnarsinna til þess-
ara samtaka, væri blaðið þeim fylgj-
andi af fullri alúð.
Norðri
flutti jafnframt ávarpi blaðamann-
anna ranga frásögu um hvenær Nl.
hafði skrifað undir ávarpið. Honum
þótti eitthvað mannalegra að láta líta
svo út sem hann hefði sjálfur skrifað
undir á undan Nl., sem þó ekki var.
Vér gáfum blaðinu kost a að leiðrétta
þetta mishermi, og mundum ekki hafa
skift oss af því að öðru leyti, ef blaðið
hefði gert það athugasemdalaust. En
við þetta bætir blaðið athugasemd um,
að Nl. hafi verið ætlaður nauða-naumur
tími til að íhuga innihald ávarpsins. Sá
tími var þó um þrír sólarhringar, og
þóttumst vér ekki þurfa lengri tíma
við, því vér skildum ávarpið svo, og
skiljum það enn svo, sem þar sé farið
fram á það, sem Nl. hefir haldið fram
öllum blöðum fremur. Hinu trúum ver
ofurvel, að umhugsunartíminn hafi verið
nokkuð naumur fyrir þá, sem ætíð eru
á báðum áttum.
Nl. kemur út í dag vegna póstferðar-
innar suður. Blaðið kemur ekki út á
morgun.
Úr ýmsum áttum.
Dr. A. P. Martin, sem fyr
Framfarir var forstöðumaður háskólans
í Kína. * í Peking, hefir dvalið um
nokkurn tíma á Vesturlöndum. Þegar hann
kom aftur til Peking, sýndist honum Hest
Kfl.
vera breytt. Segir hann frá á þessa leið.
Götur bæjarins. sem áður voru nærfelt
ófærar yfirferðar og afrenslislausar, eru
nú að nokkuru Ieyti steinlagðar og ræstar,
eins og tíðkast á Vesturlöndum. Hús rísa
upp með nýtízkusniði, járnbraut er lögð
rétt að keisarahöllinni, verið er að undir-
búa raflýsingu og rafmagns-götuvagna, ný
blöð þjóta upp með degi hverjum. Hingað
og þangað eru Iestrarsalir og blöðin lésin
þar upphátt fyrir þeim, sem ekki eru
læsir. Og ekki er eingöngu hugsað um
höfuðstaðinn Peking, því út um alt land
ferðast menn með blöð og bækur, til þess
að Iesa þau upphátt fyrir ólæsri alþýðu *.
Kvennaskólar með nútímasniði þjóta upp
og sá siður Iegst óðum niður að afskræma
fætur stúlkubarna. A keisaraekkjan góðan
þátt í þeim framförum. Nýtt stafrof hefir
og verið tekið upp í stað gömlu mynd-
skriftarinnar. Það léttir lestur bóka stór-
lega. Járnbrautir og önnur nýtízku-fyrir-
tæki aukast og eflast með degi hverjum.
Er því líkast sem gamla fastheldnin sé
orðin að nýunga-og breytingagirni.
Þó vér íslendingar eigum við
Baráttan margt að stríða, þá höfum
við hafið. vúr ag segja af þeirri
baráttu við hafið, sem ýmsar aðrar þjóðir
eiga í. Allir hafa heyrt getið um Holland,
hversu sjórinn gekk þar á land fyrir
öldum síðan og breytti stórum landflæmum
í djúpa flóa, og hversu Hollendingar hafa
náð aftur drjúgum hluta af landi þessu
og hlaðið varnargarða hvervetna með-
fram ströndunum. Baráttan við hafið er
einn hinn þyngsti útgjaldaliður Hollend-
inga á ári hverju og óðara en manns-
höndin hætti að verja landið, væri sjór-
inn búinn að gleypa heil héruð, —■ A
vesturströnd Jótlands sverfur sjórinn lát -
laust af landinu og er óvíst nema sá tími
kunni að koma, að Jótland eyðist, að
miklu leyti af sjó. Danir hafa varið mil-
jónum króna til þess að hefta þetta land-
brot og hafa víða bygt trausta garða lík-
ast stóreflis bryggjum út í hafið. En þrátt
fyrir það að garðarnir séu hlaðnir úr
feiknabjörgum, þá hefir brimið brotið hvern
á fætur öðrum. Er það nærfelt ótrúlegt
að sjá hversu brimið hefir getað unnið á
jafnramgerðum mannvirkjum.
Það er aldrei nema skiljanlegt að þessi
hætta vofi yfir lágum ströndum, þar sem
varla sézt steinn; hitt' mun fæstum kunn-
ugt, að Englandi, sem víða er hálent,
standi hætta af sjónum. Englendingum
telst svo til að á hverju ári missi þeir í
sjóinn landræmu, sem svari þrem enskum
mílum á lengd og einni á breidd. Hafa
menn sannar sögur af því, að heilir sveit-
arhlutar hafa horfið í sjó.
Lítill efi er á því að á einstöku stað
brýtur sjórinn hér land svo nokkru nem-
ur, en víðast veita fjöll og harðar klappir
trausta mótspyrnu og að Iíkindum fer
yfirborð Iands vors vaxandi en ekki mink-
andi, því mjög víða fyllir framburður ánna
grynningarnar upp.
Eftir austræna ófriðinn sæmdi
Litillœti. Englakonungur japönsku hers-
höfðingjana Yamagata, Oyama og Togo
aðmírál hinu enska verðleikaheiðursmerki.
Standa á því öðru megin orðin »Fyrir
verðleika sakir« (For merit). Þeir þökk-
uðu konungi heiðurinn, en sneru þeirri
hlið heiðursmerkisins inn að brjóstinu, sem
orðin stóðu á og út skyldu vita. Þeir
þóttust ekki eiga það lof skilið sem í
orðunum Iá, og hafa þó sennilega fáir verð-
skuldað það fremur en þeir.
* Að mikill hluti alþýðu er ekki læs stafar af því, hve
það er afarerfitt að iæra myndaskrift Kínverja
Það mætti ætla að Englend-
Nýjar kola- ingar, sem selja öllum ná-
námur. * * grannaiöndunum kol, þyrftu
ekki að grípa til annars eldsneytis sjálfir
en kolanna, en þéir eru þó einnig farnir
í óðaönn að hagnýta sér mó til eldsneytis.
Stærsta mósmiðjan er nýlega stofnuð i Kil-
berry í írlandi. Mórinn er grafinn úr mýr-
inni með stóreflis grafvél og grefur hún
upp 30 smálestir af sverði á klukkutím-
anum. Sverðinum er steypt ofan í gufu-
vagna, sem flytja hann inn í verksmiðjuna.
Hann er malaður þar og pressaður, svo'að
fyrirferðin verður að eins þriðjungur af
blauta mónum. Að því loknu er rafmagns-
straum hleypt í gegnum hann og breytist
hann við það i efni, sem líkist mjög kol-
um. Rafmagnið kostar tæpa 25 aura fyrir
hverja smálest af mó. Verksmiðjan býr til
6000 mókögla á hverjum klukkutíma og
vinnur ekki minna en 2 miljónir smálesta
á ári hverju af mó.
Þessi mókol þykja eitthvert hið ágæt-
asta eldsneyti, hreinlegt, hitamikið og sót-
lítið. Er sagt að kol þessi sé að mörgu
leyti betri en steinkolin og vænta menn
sér mikillar auðlegðar af þessum nýju
námum.
Því fer víst fjarri að íslenzku mólögin
geti jafnast á við írska móinn, en íhug-
unarefni er það fyrir oss íslendinga, sem
flytjum kol inn í landið fyrir ærna pen-
inga á ári hverju, að sjá menn vinna mó
með góðum hagnaði í sjálfum kolalönd-
unum.
Hvergi fæst betra
Aiargarine
í 1 pd. og 5 pd. kössum en hjá
St. Sigurðssyni & E. Gunnarssyni.
MUSTADS ELDAVÉLAR
eru beztar.
Fást hjá Otto Tlllinius.
Góður fisKur
saltaður í
TUNNUR
fæst í verzlun
Sn. Jónssonar.
ikill afsláttur verður
gefinn af allri
álna- og kram-
vöru
fyrir jólin. SKÓFATNAÐUR seldur
mjög góðu verði; skóaðgerðir afgreidd-
ar með 1—2 daga fyrirvara.
Suðl. Sigurðsson.
Siglufjarðarhákarl
fæst hjá
St. Sigurðssyni & E. Gunnarssyni.
•
jyiargt er altid dei kmmm irme 7bedste -Lm.,, J
Húsmœður bœjarins
hafa nú reynt
smáu Tapiocagrjónin í Edinborg
og Iokið á þau miklu lofsorði. — Nú hefir verzlunin fengið
stór Tapiocagrjón.
Þau ættu þær einnig að reyna. Pundið kostar að eins 28 aura.
JÖRÐ til sölu.
Jörðin Saurbær í Siglufirði er til
sölu á næstkomandi vori (07). Hún
er 9,90 hndr. eftir nýjasta mati.
Túnið gefur af sér tveggja kúa fóður.
Útheysskapur er mikill og góður eftir
stærð jarðarinnar. Jörðin liggur að
sjó, hefir gott upprekstrarland og ó-
þrjótandi mótak og torfristu; jörðinni
fylgja 1 íveruhús 14x8. Það er 12
ára gamalt, vel vandað að öllu leyti,
5 peningshús og I heyhlaða.
Lysthafendur snúi sér til undirrit-
aðs eiganda.
Saurbæ í Siglufirði 1 nóv. 1906.
Jón Jóhannesson.
jlalgaardsullarverksmiðjur
í Noregi, eru áreiðanlega þær beztu,
umboðsmaður þeirra á Akureyri er
kaupm. Sigvaldi Þórsteinsson.
mAAAAAAAAAA.AAA.AAAA.AAAAAAA
Tannlœknir
JCaraldur Sigurðsson,
Österbrogade 36,
Xaupmannahöfn,
vœntir að landar láti sig
sitja fyrir, ef þeir þurfa
< að fá gert við tennur.
◄ Heimsins nýjustu og full-
“1 komnustu áhöld notuð.
■▼VVTVVVVVVTVVVTVVVWVVVVB
Standard er ódýrasta og frjáls-
lyndasta lífsábyrgðarfélag sem
starfar hér á landi, þá á alt er
litið. Það tekur allskonar tryggingar,
almenna lífsábyrgð, ellistyrk, fjárá-
byrg*, barnatryggingar o. fl.
Aðalumboðsmaður
H. Einársson á Akureyn
TTietsímoti n 1 Munið að Mustads
r iSKimenn. önglar númer 7>
Extra Long, eru veiðnastir.