Norðurland


Norðurland - 02.11.1907, Blaðsíða 2

Norðurland - 02.11.1907, Blaðsíða 2
Nl. 44 hrekkur því næsta lítið til að veita þau lán sem gert er ráð fyrir í lögum. A næsta fjárhagstímabili gera fjár- lögin ráð fyrir 125 þús. kr. lánum, samkvæmt túngirðingalögunum á að lána 100 þús. kr. til gaddavírskaupa en 30 þús. kr. samkvæmt lögum um byggingu á prestssetrum. Loks má búast við að byggingarsjóður þurfi að minsta kosti 200 þúsund kr. lán. þessi Ián verða samtals 455 þús. kr. Upp í þau hefir viðlagasjóður einar 43 þús. kr. og verður þá að taka þessar 412000 kr. af peningaforða landsins. í árslok 1903 var peningaforði Iandsins meir en nokkru sinni áður. Hann var þá nærri því 670,000 kr. Samkvæmt skilagrein ráðherrans á þingi í sumar var hann við lok árs- ins 1906 566,407 kr. 92 a. Frá því hann tók við stjórn og fram til þess tíma hafði hann því minkað um rúm- ar 100 þús. kr. F*urfi að veita öll þau lán á næsta fjárhagstímabili, sem gildandi lög gera ráð fyrir, verða við lok fjárhagstímabilsins ekki eftir nema svo sem 150 þúsund kr. af öllum peningaforðanum. Færi ennfremur svo að tekjurnar á næsta fjárhagstímabili verði ekki meiri en alþingi gerir ráð fyrir, eyðist allur peningaforðinn og 100 þúsund kr. vantar upp á að hann nægi. Fað fé þarf þá að fá með nýj- um álögum á landsbúa á næsta þingi, áður enn næsta fjárhagstímabili lýkur. Eins og nú stendur eru því horfur á að fjárhagur landsins við lok næsta fjárhagstímabils verði sem hér segir: 1. Landið verðurí 1,060,000 kr. skuld. 2. Viðlagasjóður hefir minkað um mik- ið meira en 100,000 kr. frá því sem hann var við árslok 1906 og hver skildingur sem hann á stend- ur fastur. 3. Peningaforði landsins, sem var 670 þús kr. í árslok 1903 er alveg horfinn. 4. Nýjan skatt eða toll þarf að leggja á landsbúa á næsta þingi fyrir þeim 100 þúsund kr. er upp á vanta, til þess að reikningurinn geti staðið í járnum. Væntanlegur tekjuauki umfram auk- in útgjöld gæti eitthvað bætt upp þessar bágbornu fjárhagshorfur, en enginn er fær um að segja hve mik- ill hann verður, eða hvorí hann verð- ur nokkur. En þó er reyndar meira blóð í kúnni. Hér er ekki tekið tillit til þeirra lána, er Iandið hefir lofað að veita á yfirstandandi ári, samkvæmt gildandi lögum. Hitt skiftir þó meira máli, að land- ið er í 580 þúsund kr. ábyrgð fyrir brunabótasjóð landsins. Sú ábyrgð getur orðið létt og það viljum vér allir vona að hún verði, en hún get- ur líka orðið nærri óbærilega þung, eins og fjárhagnum annars er farið. Petta fé hefði þurft að vera handbær eign, að minsta kosti nokkuð af því, en ekkert fé er handbært. Beri ein- hvern stórbruna að höndum verður því óhjákvæmilegt að taka lán til þess að bæta hann upp. Að stofna bruna- bótasjóð, en ætlast tll þess að ekkert brenni, bendir á mjög varhugaverða fjármálastefnu. Auk þess er vert að geta þess að síðasta þing hefir tekið að sér ábyrgð á 500,000 kr. láni handa Reykjavíkur- bæ. Ekki miðar sú ábyrgð til þess að bæta fjárhag landsins og má heita allmerkilegt að höfuðstaðurinn þurfi að fá aðstoð þess til þess að afla sér neyzluvatns. Vér látum hér staðar numið að sinni, að skýra frá fjárhag landsins. Fagur er hann ekki. Svona hafa stjórn- in og þingmennirnir skilið við hann í enda kjörtímabilsins. Við þessum fjárhag á nýtt þing að taka. Gamla þingið hefir notað sér allar reiturnar og stórfé í viðbót og svo ganga þing- mennirnir, sem þessu hafa ráðið, út á meðal þjóðarinnar og prédika fyrir henni að fjárhagurinn sé í bezta lagi, og stjórnarblöðin prenta upp hvert eftir öðru gyllingar ráðherrans á þess- um fjárhag. Með öilum tólum stjórnarinnar er prédikað fyrir þjóðinni andvaraleysi um fjárhag landsins, blekkingunum ausið út yfir hana. í því er ef til vill fólgið allra hættu- legasta »fjárhagsbölið«. Lögin um stofnun * brunabótafélags Islands. (Endir.) Almenn ákvœði. 12. gr. Vátryggjendur í félaginu ábyrgj- ast, hver gagnvart öðrum, að félagið standi í skilum. Þó nær skuldbinding þessi að eins til eignar þeirrar, er vátrygð er í fé- Iaginu. Ábyrgðin skal ákveðin í hlutfalli við þann hluta eignarinnar, sem vátrygður er. Skaðabóta má að eins krefjast af vá- tryggjendum í félaginu á þann hátt, að heimt séu inn aukaiðgjöld, er eigi séu hærri neitt ár, en helmingur hins árlega iðgjalds, er tiltekið er f brunabótaskír- teininu. 13. gr. Landssjóður ábyrgist með alt að 600,000 kr., að félagið uppfylli skyldur sínar. Geti félagið eigi af eigin ramleik borgað skaðabætur, er skylt er að greiða, leggur landssjóður til það sem á vantar, þó aldrei meira, en áðurnefnda upphæð. Ef félagið hefir orðið að leita aðstoðar landssjóðs til þess að greiða skaðabætur, skal styrkur sá, er það hefir þegið af landssjóði, að viðbættum 4°/o í árlega vöxtu, endurgreiðast smátt og smátt, eftir því sem efni félagsins leyfa. Nú nemur fé það, er lagt hefir verið fram af landssjóði, að meðtöldum vöxtum meiru en en 50,000 kr., og skal þá féiagið gjöra tryggjendum að greiða aukaiðgjöld, þannig, að það, sem fram yfir er 50,000 kr., endurgjaldist lands- sjóði á 10 árum í seinasta lagi ef hægt er, en ávalt skal gæta ákvæða 12. gr. um stærð aukagjaldsins. Af ábyrgðarupphæð landssjóðs má þegar afhenda félaginu alt að 20,000 kr. sem starfsfé, en greiða skai af því 4 % árlega- Endurborga skal þetta fé af gróða félags- ins, þá er varasjóður nemur 20,000 kr. 14. gr. Að því er snertir iausafé, svo og húseignir aðrar en þær, sem vátryggingar. skyldar eru samkvæmt 3. gr., má ganga úr félaginu við áramót að undan genginni uppsögn með 3. mánaða fresti, og gegn því, að vátryggjandi greiði iðgjald sitt til þess tíma, er hann fer úr félaginu, og sinn hluta af skaðabótum þeim, er á hafa fallið áður, ef þær nema meiru en sjóður bruna- bótafélagsins. Áður en nokkurt hús sé tekið úr trygg- ing félagsins, verður sá, er trygginguna hefir fengið, að fá samþykki til þess frá öllum þeim, sem samkvæmt þinglesnu veð- ' bréfi, aðför eða kaupsamningi, eiga á ein- hvern hátt tilkall til hússins. Enga byggingu má fella úr tryggingu fyrir þá sök, að iðgjald sé eigi greitt. 15. gr. Félagið tekur eigi ábyrgð á tjóni, sem orsakast af jarðskjálfta eða ófriði, né heldur á tjóni, sem af því leiðir, að vá- tryggjandi, kona hans eða nánustu erfingjar eru valdir að brunanum, af ásettu ráði eða fyrir stórkostlegt hirðuleysi. Félagið á auk þess rétt á, að draga alt að fjórðung af brunabótunum, er vátryggj- andi hefir út af eldsvoðanum verið dæmd- ur í sekt fyrir brot gegn brunamálalögun- um, eða hann hefir gengist undir það sjálf- viljugur að greiða slíka sekt. 16. gr. Tjón, sem eigi nemur meiru en 30 kr., verður eigi bætt, og sé það meira. skal draga þá upphæð frá brunabótunum. Ef sérstaklega stendur á, má félagsstjórn- in þó gera undantekning frá þessum á- kvæðum. Ákvæði greinar þessarar gilda ekki um tjón, er stafar af ráðstöfunum til þess, að hindra útbreiðslu eldsvoða, sem þegar er upp kominn. 17. gr. Skaðabætur má eigi greiða af hendi fyr en haldin hefir verið réttarran- sókn út af brunanum; þó má félagsstjórnin gera undantekning frá þessu, er tjónið eigi nemur meiru en 500 kr. 18. gr. Bætur fyrir tjón á húsum má að eins greiða til þess að byggja upp á sama stað eða gera við hús það, er brunnið hefir, sbr. þó 19. gr. Við húsábyrgðir er félaginu skylt að tryggja það, áður en brunabæturnar eru greiddar, að þeim sé varið réttilega. Félagsstjórnin, ásamt sveitarstjórn, ef sveit er hluttaki, má veita undanþágu frá fyrsta lið þessarar greinar, þó svo að 15 til 20 °/o af brunabótaupphæðinni sé þá dregið frá, nema almannahagur heimti, að vikið sé frá þessum ákvæðum. 19. gr. Þegar eignir þær, er trygðar eru hjá félaginu, eru veðsettar, nær veðréttur- inn einnig til brunabótafjárins. Glati veð- setjandi rétti sínum til brunabótanna, á veðhafi engu að síður heimting á greiðslu þeirra, svo sem með þarf til þess að borga kröfuskuld hans með eins árs vöxtum, ef annað verð eða aðrar eignir veðsetjanda hafa eigi hrokkið til. 20. gr. Tryggingariðgjaldið hvílir á hús- eignum þeim, er trygðar eru í félaginu, og gengur í 2 ár fyrir öllum öðrum skuld- bindingum, er á þeim liggja, nema skött- um til landssjóðs. ÖIl iðgjöld til félagsins og virðingargjöld má heimta með lögtaki. Um það fé, sem sveitarstjórnir jafna nið- ur samkvæmt 9. gr., fer sem um önnur sveitargjöld. 21. gr. Eindagi á öllum iðgjöldum skal vera 15. október. Nú eru eignir vátrygðar á öðrum tíma, og skal þá ávalt fyrsta vá- tryggingartímabilið teljast til 15. október þess, er næstur kemur eftir að vátrygg- ingin byrjar, nema vátrygt sé til skemri tíma. 22. gr. í reglugerð félagsins skulu sett nánari ákvæði um virðingar á eignum þeim, er trygðar eru hjá félaginu, og á tjóni því, er á þeim kann að verða. Skylda má sveit- arstjórnir til og hreppstjóra, að veita fé- Iaginu aðstoð sína í því efni kauplaust. Sveitarstjórnirnar í þeim sveitum, er þátt taka í áhættunni, eru yfirleitt skyldar til þess, að gæta hags félagsins kauplaust. Enn fremur ber þeim að heimta inn ið- gjöldin eftir nánari ákvæðum í reglugerð- inni. Stjórn félagsins. 23- gr- Félagið skal hafa heimili og varnarþing í Reykjavík, og stendur undir umsjón stjórnarráðsins. Félaginu stjórnar framkvæmdarstjóri, sem skipaður er af ráðherra íslands. Félagið greiðir stjórnar- kostnað, þar með talin Iaun framkvæmdar- stjóra. Þegar sameiginlegur brunabótasjóður er stofnaður eftir Iögum 20. oktbr. 1905, skal hann hafa sömu stjórn sem brunabótafé- lag íslands og vera yfirleitt í samvinnu við það, þannig, að stjórnarkostnaðurinn skift- ist milli þeirra eftir ákvæði stjórnarráðs- ins. Annars eru félagið og brunabótasjóð- urinn reikningslega alveg óháð hvort öðru. 24. gr. Áður en reglugerð, flokkunarregl- ur, iðgjöld og tryggingarskilyrði eru sett, skal leita álits sveitarfélaga þeirra, er hlut taka í ábyrgð. Þær sveitarstjórnir, er í hlut eiga, eiga rétt á að koma fram með tillögur um öll málefni félagsins, enda skal leita álits þeirra um öll málefni, er mjög eru mikilsverð, og þau atriði, er einkum koma þeim við. 25, gr. Þegar félagið er orðið svo stórt að ársiðgjöldin nema meiru en 75,000 kr., skal stjórnarráðið semja frumvarp til laga um breyting á stjórn þess í þá átt, að skipað sé fulltrúaráð til þess að gæta hags sveitarfélaganna og vátryggjenda. Þegar fengnar eru umsagnir hlutaðeigandi sveitarstjórna, skal frumvarpið lagt fyrir alþingi. Um brunabótatrygging á eignum landssjóðs Á eignum landssjóðs —að undanteknum byggingum í Reykjavík — skal framvegis ekki fengin ábyrð gegn eldsvoða. í stað þess skal árlega leggja í tryggingarsjóð, er landssjóður á, svo mikið fé, að sam- svari því, er hann mundi eiga að greiða í Brunabótafélagi íslands. Stjórn brunabótasjóðs landssjóðs skal falin brunabótafélagi íslands; fyrir það má veita félaginu þóknun, er stjórnarráðið á- kveður. Að öðru leyti er enginn félags- skapur með brunabótafélaginu og bruna- bótasjóði Iandssjóðs; ef síðastnefndur sjöð- ur með vöxtum hrekkur eigi til þess að greiða tjón af eldsvoða á eignum lands- sóðs, þá verður landssjóður að bera skað- ann að öðru Ieyti. Stjórnarráðið setur nánari reglur um þetta atriði. Reikningar, snertandi brunabótasjóð landssjóðs, skulu árlega fylgja landsreikn- ingnum og skulu yfirskoðunarmenn lands- reikninganna einnig yfirfara þá. Um það, hvenœr félagið taki til starfa. 27. gr. Landsstjórnin sér um, að Iög þessi komi til framkvæmda og brunabótafélag það, er ræðir um í Iögunum, taki til starfa svo fljótt, sem verða má. 28. gr. Brjóti vátryggjandi móti lögum þessum eða reglum þeim og skilyrðum, sem sett eru samkvæmt þeim, varðar það réttarmissi tii brunabóta eftir málavöxt- um, svo sem reglugerð nánar til tekur. í reglugerð má ákveða sektir fyrir brot á ákvæðum hennar, 5—500 kr., er renni í sjóð þann, sem brotið er við. 29. gr. Með mál út af brotum gegn lögum þessum skal farið sem almenn Iög- reglumál. \ Hraðskeyti til Nls. Reykjavík 25/10 '07. Frá útiöndum. Borgin Karatag í Bulhara (sic. Buchara eða Bulhar?) varð undir skriðuhlaupi í landskjálfta. 15000 manna fórust. 200 manna biðu bana í landskjálfta i Kalabríu (Ítalíu). Rikisbankinn i Berlin hefir hœkkað útlánsvexti úr 51/2 í 61/2 %, Eng- landsbanki úr 41/2 í 5xh °/o. Mikkelsen farinn frá stjórn i Nor- egi, Lövland orðinn forsœtisráðherra. Trier og Borgbjœrg, dönsku fólks- þingsmennirnir, heimtuðu i þinginu að Albertí dómsmálaráðherra vœri látinn fara frá stjórn fyrir gjörræði. Stjórn- arflokkurinn heldur hlífiskildi yfir honum. Harden ritstjóri þýzka timaritsins Zukunft hefir verið sýknaður í máli, er höfðað var gegn honum af Moltke greifa og hirðgœðingi í Berlin. Hafði Harden sakað hann um karlmanna- samrœði. í Kaupmannahöfn er stofnað stórt félag með~300,00Q kr. höfuðstól til þilskipaveiða við ísland. 5 motorskút- ur cetlar það að hafa til veiða og gufuskip til milliflutninga. Að sunnan. Ráðgjafinn fór utan með Sterling 29. þ. m. Sýslunefnd Árnesinga hefir í einu hljóði synjað um framlag til sima- lagningar austur sýslurnar.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.