Norðurland - 11.04.1908, Side 3
139
Nt.
KARBÓLÍNEUM
fæst í verzlun PÁLS JÓNSSONAR.
Bezta efni, sem til er, til að verja
trjávið fúa, t. a. m. brýr, girðingar,
húsagringdur o. s. frv.
Tún
ertil leigu hjá Gránufélaginuá Oddeyri
Uúsnæði fyrir eina fjölskyldu er til
* * leiguhjá Gránufélaginuá Oddeyri.
Hraðskeyti til Nls.
Rvík 10/4 '08.
Larsen fjármálaráðherra Dana er dá-
inn. (Talinn einn af atkvœðamestu ráð-
herrunum i ráðaneytinu).
Campbell-Bannermann forsœtisráðherra
Breta hefir fengið lausn. Asquit orðinn
forsœtisráðherra í hans stað.
Stjórnin i Portugal hefir unnið stór-
sigur við kosningarnar 5. þ. m. (Sbr.
Nl. 28. f. m.).
Þing Finna hefir verið rofið.
íslandsfarar af ríkisþingsmönnum halda
stórveizlu i dag.
Valurinn hefir handsamað þrjá brotlega
botnvörpunga, Clifton frá Grimsby, fekk
360 kr. sekt, Elsfleth frá Bremerhaven,
sekt 1200 mörk og Surcouf frá Boulogne
sekt 1200 kr. og afli og veiðarfœri gerð
upptœk.
Hólar komu i fyrradag. Skálholt að
leggjast.
X
Qirðingrar.
Samgirðingu, meiri háttar, ætlaTorfa-
lækjarhreppsbúar í Húnavatnssýsiu að
gera fyrir framan allan hreppinn, vest
an úr Húnavatni og austur í Blöndu.
Veitti sýslufundur Húnvetninga hrepn-
um leyfi til þess að taka 3SOO kr. lán
til þessa fyrirtækis. — Slíkar girðing-
ar eru hið mesta nauðsynjafyrirtæ'ki,
en gæta verður þó þess, er slíkar
girðingar eru settar upp, að þær séu
fullkomlega traustar. Dálítill sparnað-
ur á efni borgar sig oft illa. Það hafa
ýmsar þær girðingar sýnt, er komið
hefir verið upp að þessu.
Slysfarir.
Sorglegar fréttir af slysförum ný-
afstöðnum flytur síminn um landið,
hafa 19 menn dáið í sjó á örstuttum
tíma. A Stokkseyri fórst bátur með 8
mönnum. Formaðurinn hét Ingvar Kar-
elsson. — Þá drukknuðu 3 menn í
lendingu á Loftsstöðum. — Þ. I. þ.
m. fórst mótorbátur með 6 mönnum
í Vestmannaeyjum. — En síðastliðinn
sunnudag drukknuðu í Hvalfirði Vern-
harður Fjeldsted, bróðursonur And-
résar á Hvítárvöllum og Jón Vestdal
uppeldissonur Sigfúsar Eymundssonar
bóksala.
Guðlaugur Guðmundsson
bæjarfógeti fór héðan í gær með
Agli til þess að taka sæti sitt í skatta-
nefndinni. — Einar Arnórsson cand.
jur. verður settur sýslumaður og bæj-
arfógeti hér meðan G. G. dvelur syðra
Er E. væntanlegur hingað seint í þ. m.
Or bréfi af Flateyiardal.
Vetur þessi hefir verið einhver hinn
snjóléttasti og óvenjulega frostalítill.
Snjór kom eigi til muna fyr en á góu
og var jarðlaust mestan hluta hennar.
Síðan nokkur jörð af og til, en óstilt
mjög.
Mislingar hafa gengið hér og komið
á flesta bæi. Úr þeim dó Jónína Guð-
rún Jóhannsdóttir, kona Jóns bónda
Sigurgeirssonar í Vík; ein hin mesta
dugnaðarkona og vel látin.
Friöbjörn Steinsson
dbr. og bóksali varð sjötugur 5. þ.
m. Flaggað var hér á hverri stöng
bæjarins þann dag, en fjöldi bæjarbúa
heimsótti hinn aldraða og mikilsmetna
borgara, til þess að færa honum ham-
ingjuóskir sínar. Auk þess barst hon-
um fjöldi heillaóska-símskeyta.
Úfbreiðslufund
héldu Goodtemplarar hér fyrra laug-
ardag. Húsfyllir var í stóra sal Templ-
ara. Steingrímur Matthíasson héraðs-
læknir flutti skemtilegan og fróðlegan
fyrirlestur um áhrif áfengis á mann-
legan líkama, en bæjarfógeti Guðl.
Guðmundsson flutti snjalla ræðu.
Brennivíns- oz innllmunartrúin.
I skemtilegri fréttagrein í Ingólfi,
eftir skáldið Indriða Þorkelsson á Ytra-
Fjalli, er sagt frá stjórnmálafundi er
haldinn var í þinghúsi Reykdæla í
Þingeyjarsýslu í vetur. Kemst greinar-
höfundurinn svo að orði
» . . . þó get eg eigi stilt mig um
að minnast á tvær skoðanir er þar
komu fram. Er þó hvorug skoðunin
ný, heldur gamlar og gengnar upp að
hnjám, og færast þó enn á stúfana.
Einn ræðumaður hélt því fram, all-
freklega, að eigi hlýddi að banna að-
flutning áfengis til landsins, sakir þess
að landssjóður færi við það á mis við
miklar tekjur, þar sem tollurinn væri.
Nú mun enginn ætla að það fé mynd-
ist eða verði til f landinu, sökum að-
flutninga vínfanga, og sé það til í
landinu fyrir, þá er ekki auðvelt að
sjá hversvegna landssjóði getur eigi
goldist það alt að einu — og í þokka-
bót alt það fé sem látið er fyrir vín-
föngin sjálf.
Annar ræðumaður mintist á sam-
bandsmálið og sjálfstæðiskröfur vorar.
Fór óvirðingarorðum um forn lands-
réttindi, gamla sáttmála og sögulegan
rétt vorn. Taldi það alt kerlingabæk-
ur, kreddur og hégóma. Var honum
svarað að maklegleikum og talin firn
mikil að heyra slíkum skoðunum fram
haldið. Þó er þessi maður mikilsverð-
ur að ýmsu, skynsamur og drengileg-
ur. Og það er eg viss um að hann
hefir átt svo góða móður, að hann
hefir eigi drukkið slíkt eitur með
móðurmjólkinni.
Ágætan
Sigluneshákarl
seltir
Matthias Hallgrímsson.
Þeir, sem skulda verzlun minni
nú, eru vinsamlegast beðnir að
greiða skuldir sínar, í þessum
mánuði eða gera samning um borgun
þeirra, því að öðrum kosti neyðist eg
til að afhenda þær málafærslumanni til
innheimtu. Verða þá reiknaðir vextir
af öllum skuldum frá fyrra ári.
9á/l Jónsson.
Gaddavír
fæst óvanalega ódýr í verzlun
Sn. Jónssonar.
Tombóla.
Kvenfélagið ,Framtíðin(
heldur tombólu. á
Sumardaginn fyrsta
23. þ. m. á
HOTEL AKUREYRI,
hefst hún kl. 12. á. há-
degi.
Peir sem góðfúslega vilja
styrkja þessa tombólu með gjöf-
um, gera svo vel og afhenda
munina til einhverrar af félags-
konunum fyrir 21. þ. m.
J'é/agssfjórnin
NÚ fyrir páskana hefi eg til sölu
mikið af nýjum, ljómandi fal-
legum og góðum
Karlmannafötum
VERÐIÐ ER ÓTRÚLEGA |áo-t
Enn fremur.
Stórtreyjur, Peysur, Höfuðföt, Háls-
klúta, og Nærfötin óslitandi, Háls-
tau, Buxnatau, Flónel, Stúfasirs, Kjóla-
tau og svuntutau.
Allskonar pappír og umslög hvergi
eins ódýrt.
Páll fónsson.
Saltaður
FISKUR
flattur stór fœst hjá
Matthíasi Hallgrímssyni.
Fermingarfafaefni
handa drengjum og stúlkum, hvergi eins
fjölbreytt og ódýr og í
Vefnaðarvöruverzlun
Gudmanns Efterfl.
>•••••
Fortepiano frá H. Lubitz í Berlít)
og
Orgel-Harm. frá K. A. Anderssog,
Stockholm
eru áreiðanlega hin hljómtegurstu, vönduðustu og beztu hljóðfæri
sem til landsins flytjast og jafnframt ódýrustu eftir gæðum, enda er
salan feykilega mikil. Aðeins fáein vottorð, af fjöldamörgum, læt eg
birta hér frá háttvirtum kaupendum o. fl., sem reynt hafa hljóðfærin
Úr bréfi 4. jan. 1907: „Orgelið frá yður líkar mér ágœtlega; eg bjóst við því
góðu, en að það vœri svo gott, sem það er, bjóst eg þó ekki við. Mörg ame-
risku hljóðfcerin virðast mér glœsileg útlits, en ekki að því skapi hljómfögur
eða vönduð; eg sneri mér því til yðar með pöntun á þessu hljóðfœri og iðrar
mig þess ekki, þvi það er mjög hljómfagurt, vandað í alla staði og ódýrt eftir
gceðum.
Guðríður Sigurðardóttir, forstöðukona Blönduósskóla.
Fortepiano það frá H. Lubitz i Berlin, sem notað var við koncert minn og
söngkonunnar V. Hellemann 2. júlí þ. á. í Reykjavík, er að mínum dóml óvenju-
lega vandað og gott.
p. t. Reykjavík 1905.
Sigfús Einarsson.
Heiðraðir kaupendur eru beðnir að minnast þess, að ágætur kaup-
bætir fylgir hverju Orgel-Harm. (frá 4 — 15 kr.) sé borgað við mót-
töku, að engan eyri parf að borga fyrirfram, að áreiðanl. kaupend-
um veiti eg langan afborgunarfrest án nokkurrar verðhækkunar og
að yfir höfuð er hyggilegast að eiga kaup við mig á Orgel-Harm.
og Fortepianoum.
Væntanlegir heiðraðir kaupendur á Norðurlandi geta einnig snú-
ið sér til hr. verzlunarstjóra PÁLS HALLDÓRSSONAR á Siglufirði
Jón Pálsson, organisti við Fríkirkjuna í Reykjavík.