Norðurland - 30.05.1908, Side 2
saltaður SAUÐ^MÖR Kjötbúðinni
Nl.
170
pundatölu fráDanmörku af hverri tóbaks-
tegund, til þess að fá útflutningstoll-
inn bættan upp. Þetta gerir sjálfsagt
ýmsum smærri kaupmönnum óhagræði,
en fari landið sjálft með tilbúninginn
og innflutninginn, ætti hver kaupmað-
ur að geta keypt eins mikið eða Iítið
og hann vill í einu.
Eg bið menn að gæta þess að til-
laga mín nær ekki lengra en til inn-
flutnings og tilbúnings á tóbaki, en
ekki til útsölunnar; eg geri helzt ráð
fyrir að hún sé frjáls eins og verið
hefir. Þessu er þó ekki svo varið í
ýmsum einkaréttar-löndum. Ríkin ann-
ast víða sjálf söluna, t. d. á Frakk-
landi, en eg heid að staðhættir og
strjálbygð geri þessa verzlun ekki
fýsilega fyrir landið. Breytingin á
verzluninni yrði þá aðeins sú, að kaup-
mennirnir keyptu hjá landinu, það sem
þeir áður keyptu frá útlöndum. Að
vísu geri eg ráð fyrir að tóbakssal-
an gæti orðið landinu vel arðvænleg
í stærri kaupstöðunum, en hinsvegar
sýnist mér varla á það bætandi að
fela stjórninni að skipa menn í stöð-
ur í þarfir þjóðfélagsins. Þessar nýju
stöður yrðu ekki annað en nýjar verð-
launastöður fyrir stjórnmálafylgi, eins
og flestar slíkar stöður í þessu landi
um þessar mundir. A þá siðspillingu,
sem því fylgir, er ekki bætandi. Miklu
heppilegra væri að veita leyfi til þess
gegn árlegu gjaldi, sem hverjum kaup-
manni væri heimilt að kaupa, en rétt-
ast tel eg þó að þessi verzlun sé
frjáls, að minsta kosti þangað til
gagngerð breyting yrði gerð á verzl-
unarleyfum og boigarabréfum.
En getum vér íslendingar gert þetta?
Er ekki mikill kostnaður því samfara
fyrir landið að taka þetta að sér? Eg
held að vér þurfum engan kvíðboga
að bera fyrir því, þó eg geti ekki
komið með neina ákveðna áætlun.
Verkfærin sem landið þyrfti að kaupa,
kosta, að því er eg hefi til spurt, ekki
nema nokkur þúsund kr. Byggingar
mundu kosta nokkuð, ef landið þyrfti
að byggja, en langsennilegast er að
landið gæti búið í leiguhúsum, til
bráðabirgða, ef það þættist ekki hafa
efni á að leggja fé í byggingar í bráð.
Tíminn til þessarar breytingar er
afarhentugur nú. Fyrst og fremst er-
um vér að endurskoða skattalöggjöf-
ina, en þær verksmiðjur, sem eru í
landinu, eru annaðhvort hættar, eða
eru að hætta. Þetta síðara atriði er
sérlega þýðingarmikið. Landið þarf
ekki að taka dýrar tóbaksverksmiðjur
fjárnámi, eins og þau þurfa að gera
víða annarstaðar og þykir þó tilvinn-
andi. Eg geng hinsvegar að því sem
vísu að landið léti sér farast mannúð-
lega við þær verksmiðjur, er það hefir
neytt til að hætta og keypti af þeim
verkfæri þeirra sanngjörnu verði, ef
þær vildu það, en þar er ekki að
ræða nema um smáar fjárhæðir.
Eg skal svo ekki fara lengra út í
þetta mál að sinni, en fela það ykkur
og þjóðinni, og ekki sízt skattanefnd-
inni, til íhugunar. Kröfurnar til lands-
sjóðsins eru miklar. Þessvegna verður
ekki hjá því komist að hugsa fyrir
tekjum handa landinu, en þess verður
jalnframt að gæta að skattarnir verði
ekki að hömlum á framfara-viðleitninni
í landinu, en þó umfram alt að þeir
fþyngi ekki um of fátækustu mönnun-
um í landinu, sem þola svo illa byrð-
arnar.
Hraðskeyti til Nls. Rvík 30/5 'o8.
Tillagan er ekki borin fram í því
skyni að íþyngja þjóðinni með nýjum
skatti, heldur til þess að reyna með
henni að firra þjóðina einhverjum öðr-
um skatti, sem væri miklu ósanngjarn-
ari en þessi.
Og ósanngjarnari en þessi skattur
eru flestir skattar og tollar í landinu.
X
2jörn jCfnda/
er við og við að prenta upp úr Norð-
urlandi, til þess að fylla hjá sér dálk-
ana og kunnum vér honum fremur en
hitt þakkir fyrir; hitt er síður þakkar-
vert, að hann rangfærir ætíð það sem
hann prentar upp, dregur af því vit-
lausar ályktanir, þó ekki sé oss vand-
ara um í því efni en öllum þeim öðr-
um, sem hann ritar á móti, eða þykist
eiga eitthvað sökótt við. Ennþá hafa
greinir hans ekki lýst því að hann
skildi neitt í þeim málum, sem hann
var að tala um og er Iíklega ekki
von um verulegar framfarir hjá honum
úr þessu, þennan stutta tíma sem
hann á eftir að fást við blaðamensku.
Norðurland hefir áður gert ráð fyrir
því að vér mundum vinna það til sam-
komulags við Dani, að leyfa þeim fiski-
veiðar í landhelgi um ákveðinn tíma,
með sanngjörnum og aðgengilegum
uppsagnarfresti af vorri hálfu og að
því til skildu að þeir viðurkendu að
vér hefðum fullan umráðarétt yfir
landinu og landhelginni, svo að engin
mál væru sameiginleg til langframa,
nema konungssambandið eitt.
Nú benti NI. á það nýlega hve
háskalegt það teldi að vér gengjum
að frumvarpi millilandanefndarinnar ó-
breýttu, af því það bygði á alt öðr-
um grundvelli en Nl. hefði áður talið
að við mætti una, benti á að þar
væri skráð á milli línanna sú fyrirætl-
un Dana, að halda yfirráðunum yfir
landhelginni um aldur og æfi.
Af þessu dregur B. L. þá ályktun
að Norðurland og ritstjóri þess hafi
viljað fremja þá svívirðingu að ofur-
selja Dönum landhelgina um aldur og
æfi.
Margt dettur Lindal vorum í hug
skringilegt, og förum vér nú að trúa því
að hann ætti fremur að eiga heima á
Kleppi, en á öðrum stöðum hér á
landi, viljum fremur gera ráð fyrir því
að þessi staðlausu ósannindi séu hon-
um ósjálfráð, en að hann sé blygð-
unarlaus ósannindamaður.
'4
Björn Bjarnasoi)
á Húsavík andaðist að heimili sínu þann
19. þ. m. Hann hafði verið ern og frískur
þar til þ. 16. s. m. að hann fekk heila-
blóðfall. Björn varð 87 árs gamall, og
var alla æfi mjög heilsugóður. Hann var
kvæntur Helgu Ólafsdóttur, sem nú Iifir
mann sinn. Þau bjuggu Iengi að Vöglum
í Fnjóskadal og víðar, en fluttu fyrir nokk-
urum árum til Bjarna sonar síns, sem var
kaupfélagsstjóri á Húsavík og andaðist
síðastliðið haust.
Bjöm var mesti fróðleiksmaður, keypti
og las öll íslenzk blöð og hélt því áfram
til dauðadags. Hann var ætíð glaður og
skemtinn, og á heimili þeirra hjóna var
ætíð hin mesta gestrisni. Börnum sínum
kendi hann og mentaði þau betur en al-
ment gerist meðal bændafólks. Enda eru
þau öll; — sem mörgum er kunnugt — hin
mannvænlegustu.
X
Burtfararpi óf
frá srasrnfrœOaskóla Akureyrar
var haldið frá 23.— 29. þ. m. Þessir
10 nemendur útskrifuðust:
1. Arni Jónsson frá Akureyri.
2. Arni Hallgrímsson frá Ulfstaðakoti.
3. Hans Einarsson frá Guðrúnarstöð-
um, utansk.
4. Hólmgeir Þorsteinsson frá Ytri-
Dalsgerðum.
5. Jón KristjánsSon frá Akureyri.
6. Kristbjörg Jónatansdóttir frá Ak-
ureyri.
7. Sigurjón Jónsson frá Húsavík.
8. Valtýr Stefánsson frá Akureyri.
9. Vilhelm Erlendsson frá Grafarós.
IO. Vilmundur Jónsson frá Seyðisfirði.
Pródómendur voru þeir prestarnir
Bjórn Björnsson í Laufási og Stefán
Kristinsson á Völlum, skipaðir af stjórn-
arráðinu.
Saumur
af öllam tegundum, ódýrari en al-
staðar annarsstaðar
fæst í verzlun
Guðbjörns Björnssonar.
Nýtt í bókaverzlun
Frb. Steinssonar.
Ríkisréttindi íslands......1.50
Nýársnóttin, sjónleikur....1.50
Bóndinn, Ijóðmæli þýdd af M. J. 1.50
Ben Húr, saga frá dögum Krists 3.00
Opinberunarbókin...........2.50
Afmælisdagar...............3.00
Kjörfundar-Psaltari af Plausor . 0.15
Nýkomið í
bókaverzlun
Kr. Guðmundssonar
Rikisréttindi ísland.
Afmœlisdagar, í skrautbandi.
Bóndinn. M. J. þýddi.
Altarisgangan.
Opinberunarbókin.
Dulrœnar smásögur.
Ben Húr.
Nýársnóttin.
Mjallhvít.
Gott saltað
sauðakjöt
rúllupylsur
tólg og
saltfiskur
fæst f verzlun
8N. JÓNSSONAR.
Verð á eftirfylgjandi vörum, í verzlun
Sn. Jónssonar
er fyrst um sinn, frá 24. maí.
Rúgmjöl, óvanalega fín og góð tegund, peningaverð 12*/2 lánsverð 14
— vanalega góð tegund. . . . — 11 — 121/2
Rúgur — 10V2 - 12
Bankabygg — 12V2 - 14
Heilgrjón — 133/2 15
Hálfgrjón — 123/2 14
Baunir — 133/2 15
Hálfbaunir — 14 - 151/2
Kaffi — 55 62
Melís, í toppum og kössum — 26 29
Vörurnar eru áreiðanlega góðar.
Þeir sem taka vörur að láni, með ofangreindu lánsverði en
borga skuldir sínar við verzlunina í næstkomandi sumarkauptíð
með peningum eða vörum með peningaverði, fá bættan ofangreind-
an verðmun.
Verzlunin er nú sem áður vel birg af allskonar fjölbreyttum
verzlunarvörum, sem seljast, gegn borgun út í hönd, með mjög
lágu verði.
Kenslustörfin
sem fyrsti og annar kennari við barnaskóla Búðahrepps í Fáskrúðsfirði eru
laus. Kenslutími frá 1. október til 30 apríl. Laun fyrsta kennara eru 600
krónur, annars kennara 400 krónur og sjái þeir sér sjálfir fyrir fæði, hús-
næði ljósi og hita.
Skrifleg umsókn ásamt prófvottorði og meðmælum sendist skólanefnd Búða-
hrepps fyrir 15. ágúst n. k.
Viðskiffavinir
Gosdrykkjaverksmiðju E. Einarssonar
á Ak;ureyri
eru vinsamlega beðnir að endursenda kassa, flöskur og aðrar um-
búðir, svo fljótt sem kostur er á.
Pretitsmiðia Odds Björnssonar.
— Rikisréttur i Berlín hefir ónýtt dóm þann er kveðinn var upp yfir Harden ritstjóra. Eulenburg greifi tekinn fastur,
grunaður um meinsœri i máli þessu. — Konungur kom heim á miðvikudaginn úr för sinni til Austurríkis. — / gcer flutti danska blaðið „Politiken“ grein
eftir Skúla Thoroddsen, aðfinningar hans við nefndarfrumvarpið. — Stúdentar i Höfn halda bráðlega jund og hafa boðið Skúla að tala. — Kristiana
Kristjánsdóttir ógifi stúlka í Rvik hengdi sig i síðustu viku. — Albert Þörðarson hefir fengið bankabókarastöðuna við landsbankann. — Millilandanefndinni
verður haldin fjölmenn átveizla i kvöld. (Framfélagið). — Tölf Vestur-íslendingar alkomnir heim með Lauru,