Norðurland - 21.11.1908, Síða 4

Norðurland - 21.11.1908, Síða 4
Ni. 60 9 logi yfir akur og jafnvel skíra oss upp* Og það mönnum, sem litla mentun hafa fengið, nema trú á bókstaf bibl- íunnar, eins og hann var skilinn á liðnum tímum. Hið sama er, að flest- allir þesskonar menn hafa alt aðrar trúar- og lífsskoðanir en vér höfum. Hér í birtist ekki frelsi, heldur offrelsi, ójafnaður, og skeitingarleysi. í kathólsku kirkjunni þekkist ekki mikið frelsi og sízt þesskonar. Tvennar verða öfg- arnar. Einn sérflokkur hefir myndast í kathólsku kirkjunni á vorum dögum. Það er fríkirkja ein í Ameríku, sem nokkrir menn frá Filipseyjunum hófu fyrir 6 árum og nú hefir 4 milljónir áhangenda. Þeir hafa kath. fyrirkomu- lag og tíðagerðir, en láta allar kredd- ur í friði, hafa þær sem þeim sýnist og láta aðra í friði fara með þeirra skoðanir; deilur um þá hluti eru bann- a^ar' Matth. jochumsson. % Heiðursgjafir úr styrktarsjóði Kristjáns IX. hafa þeir fengið þ. á. Halldór Jónsson um- boðsmaður í Vík í Mýrdal og Olafur Finnsson bóndi á Fellsenda í Dölum 140 kr. hvor, fyrir framúrskarandi dugnað í jarðabótum. Heiðurssamsœti var Halldóri Daníelssyni bæjarfógeta haldið í Reykjavík 23. f. m. af bæjar- fulltrúum þeim, er verið höfðu í bæj- arstjórn höfuðstaðarins þau 22 ár, er hann hefir veitt bæjarstjórninni for- stöðu. Smjörsalan. Faber konsúll í Newcastle ritar til Reykjavíkur að íslenzka smjörið sé alt af að ávinna sér gengi á Englandi, en salan mundi ganga töluvert betur, ef smjörið kæmi ekki alt af of seint á markaðinn. Ekki væri vanþörf á að reyna að bæta úr því, ef unt væri. Ungmennafélaa er nýstofnað á Húsavík; heitir Ó- feigur í Skörðum. Formaður er Sig- urður Sigfússon, sölustjóri. Prestkosnlngr. Síra Sigurður Guðmundsson aðstoð- arprestur frá Ólafsvík er kosinn prest- ur að Þóroddstað í Kinn. Háskóla vill stjórnin láta að fara að reisa í Reykjavík. Tillögur um það að sögn væntanlegar frá henni, og verða lagð- ar fyrir næsta þing. Náttúrlega er það eitt af þeim málum, er ekki mega lengi dragast úr þessu, þó hætt sé við að peningar verði tæplega til þess á næsta fjárhagsári. Hver veit samt f OuObrandur Björnsson prestaskólakandidat frá Miklabæ er kosinn prestur í Viðvík í Skagafirði með 79 atkv. Síra Sveinn Guðmunds- sgn fékk 5 atkv. Otsvör á Húsavík Þar var jafnað niður um 4500 kr. Hæzt útsvar á verzlun Örum & Wulffs 700 kr. Söludeild K. Þ. 240, Aðal- steinn og Páll Kristjánssynir 240, Stefán Guðjohnsen 150, Bjarni Bene- diktsson 140, Steingrímur Jónsson 130, Gísli Pétursson 130, Jón Ár- mann Jakobsson 85. * En verður ekki trúfrelsið nokkuð lítið, ef á að fara að banna slíkt. Ritstj. TíöarfariS. I þessari viku hefir dálítið föl fallið á jörð hér, en annars má heita að en haldist sama veðurblíðan, þó nokkuru sé kaldara en fyr á haustinu. Prjónasaumur. Eins og í fyrravetur verður prjóna- saumur nú í hæstu verði í verzlun Sn. Jónssonar. Heiðruðum almenningi gefst hérmeð til kynna að eg undirskrifaður tek að mér aðgerð d allskonar skó- fatnaði Goff efni. - Ódýr vinna.— Fljóf afgreiðsla. Eyrarlandsveg : ÁGÚST SIGVALDASOJV. cð C/3 ‘53 Til viðskiftamanna. Háttvirtir viðskiptamenn blaðsins eru beðnir að borga skuldir sínar sem fyrst. Sérstaklega er skorað á þá menn, sem veitt hafa blaðinu móttöku til margra ára, án þess að borga það og án þess að endursenda það, að borga skuld sína, eða í öllu falli eitthvað í henni f bráð. Slíkt er ekki góðra manna háttur, að láta senda sér blaðið ár frá ári, en borga ekkert. •*" Regnkápa er í óskilum í húsi Sigurðar læknis Hjörleifssonar. Eigandinn vitji hennar sem fyrst og borgi þessa auglýsingu. Þeir, sem ætla að fá sér ný föt fyrir jólin, ættu að muna eftir að Karlmanna- mr fataefni eru lang fjölbreyttust og bezt í Veínaðarvöruverzlun Gudmanns Efterfl. Hvítt sem snjór og Ijúffengt sem hunang er að þeirra dómi sem reynt hafa, brauðið, sem bakað er úr HVEITINU sem nýkomið er í verzlun i>ig. Sigurðssonar. Offo Monsfed8 danska smjörliki er bezt. * Agætt skepnufóður, Glíukökur, Klíð, Fóðurmjöl, Ma/s fæst í KAUPFÉLAGSVERZLUNINNI. ÍÍH Prjónasaum htt sérstaklega heíl” og hálfsokka borgar verziun Sig. Sigurðssonar hæztu verði. Dauðing yfirvinst ekki, en menn verða langlífari og lífið farsælla ef menn gæta þess að halda meltingunni í lagi og blóðinu hreinu og nýju; þetta geta menn gert með því að neyta daglega hins frá- bæra matarbitters „China Livs Eliks- irs" frá Waldemar Petersen í Fred- rikshavn Köbenhavn. Garnakvef. Eg hefi i 3 dr þjdðst af þessum sjúk- dómi og var svo illa farinn, að eg gat ekki unnið léttustu verk. Eftir að eg nú hefi brúkað China Livs Eliksir, er eg orð- inn sem alheilbrigður og er það sannfær- ing min að eg haldi við heilsunni með því að halda úfram að taka þetta lyf inn. J. E. Peterseq. Vansæt í Noregi. Krampi. Undirritaður hefir i 20 dr þjdðst af krampaflogum i öllum likamanum, en eftir að eg hefi tekið inn 12 flöskur af China Livs Eliksir yðar er eg orðinn laus við þenna sjúkdóm og bið yður hér með að senda mér 12 flöskur handa öðrum manni, því mig langar til að allir sem sjúkir eru reyni þetta lyf. Carl J. /Vndersorj- Norra Ed, Kila í Svíaríki. Varið yður á eftirstælingum. Kaupið enga flösku nema á ein- kunnarmiðanum standi Kínverji með glas í hendinni og nafn verksmiðju- eigandans Waldemars Petersen, Fred- rikshavn Kjöbenhavn og á flösku- stútnum merkið í grænu lakki. Prentsmiðja Odds Bíörnssonar. Rjúpur verður hvergi gefið betur fyrir en f verzlun Sn. Jónssonar. Skóhlífar mjög: góðar fást í verzlun Sn. Jónssonar. tegundir af Kexum fást f verzlun SN. JÓNSSONAR, sem kosta frá 0.18—1.50 pundið. Saltfiskur °g tros fæst í verzlun SN. JÓNSSONAR.

x

Norðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.