Norðurland - 28.11.1908, Side 4

Norðurland - 28.11.1908, Side 4
Nl. 64 samkvæmt tilganginum, ef svo væri ekki. Hins mætti fremur krefjast, að ávextir þess væru, og sérstaklega fram- vegis yrðu enn þá meiri. Það er og ýmislegt, er ber þess ljósan vott, að gjaldþol Iandsmanna hefir aukist, og að hinar auknu álög- ur hafa eigi sorfið þar mjög nærri. Skal þar einkum bent á það, að gjöld til landssjóðs hafa nærri því eingöngu verið aukin með tollum hin síðustu 30 ár, og tollum á vörum, sem að sumu leyti eru óþarfar og að litlu leyti geta talist til óhjákvæmilegra lífsnauðsynja. Jafnframt því, sem gjöld þessi hafa lagst á vörurnar, hefðu landsmenn vafalaust getað vikið sér undan þeim, með því að minka kaupin á hinum tollskyldu vörum. En þetta er svo fráleitt, að ekki verður séð, að toll-álögurnar hafi haft teljandi á- hrif á vörukaupin, og það lítið það er, þá að eins í bráð. Þetta sézt glögt, þegar menn líta á yfirlit yfir aðflutning á tollskyldum vörum, skift niður á mannsbarn hvert á landinu, síðan tollar hófust. Samkvæmt því er brennivín og aðrir áfengir drykkir hið eina, sem hefir minkað síðan tollar lögðust á 1872. Mun það í fyrstu hafa verið fyrir áhrif tollsins, en þó alls eigi af því, að hann væri svo þungur, heldur munu menn hafa verið ófúsir á að greiða tollgjöld, á meðan þjóðin hafði ekki fengið fjárforræði, og þess vegna reynt, sumstaðar með semtökum, að minka vínkaupin. Kaup á sykri hafa aukist mest og alveg hiklaust, þá er tollurinn lagðist fyrst á, árin 1889—'90. Það er mesta nauð- synjavaran af hinum tollskyldu, en toll- urinn er þar líka lang tilfinnanlegast- ur og mikið af sykrinum er munaður, sem vel mátti minka, ef að krepti. Kaffikaup og kaffibætis virðast hafa minkað um 2 ár, þá er tollurinn kom, en það var eingöngu kaffibætirinn, sem minkaði í bráð og mun það hafa ver- ið fyrir áhrif tollsins, enda var hann 10 au. at 25 au. virði. Tóbakskaupin hafa eigi orðið fyrir neinum áhrifum, og vindlakaup, sem liggja utan við skyrsluna, hafa mest aukist, síðan hár tollur kom á þá. Loks má benda á það, að síðan 1890, að tollgjöld fyrst urðu tilfinnan- leg hér, hafa ýms óþarfakaup og ým- isleg eyðsla farið mest vaxandi. Alt þetta bendir á, að gjaldþolið hafi auk- ist, jafnvel meira en hin opinberu gjöld; því það verður eigi sýnt eða rökstutt, að þjóðareignin hafi aukizt meira á tímabilinu síðan, en á næsta tímabili á undan. Kvenslifsi ▼▼▼TTTTTVYTVTTVYVTTVTTTT hafa aldrei verið eins fjölbreytt og nú í Edinborg. Rjúpur og PRJÓNA8AUM kaupir Gránufélagsverzlun HÆSTA VERÐI. iiii Prjónasaum jjii sérstaklega heil- og hálfsokka borgar verzlun Sig. SÍgUrðsSOnar hæztu verði. io cS /5 TJÖ 'en kO C <D <U C3 ^ £ , c co 05 c; > § * - 3 *o C3 C .03 b/) cS o c í3 2 "O M c £ jO * > Margar tegundir af LISTUM gyltum og ógyltum með eikar- og maljogniviðarlit utan um fást í verzlun Sig. Bjarnasonar. Oíto Monsíed3 danska smjörliki er bezt. Uppboð verður haldið í Goodtemplara- húsinu mánudaginn p. 30. p. m. og hefst kl. 10'/2 f. h. Seldar verða ýmsar meubler, innanstokksmunir, nýjar og vel inn bundnar bækur, drykkjarföng, byssur, skotfæri, leirtau, nærri nýr hjólhestur, kaðlar, net og m. fl. Langur gialdfrestur. Rjúpur verður hvergi gefið betur fyrir en í verzlun Sn. Jónssonar. Prjónasaumur. Eins og í fyrravetur verður prjóna- saumur nú í hæstu verði í verzlun Sn. Jónssonar. * Agætt skepnufóður, Olíukökur, Klíð, Fóðurmjöl, Jíu/s fæst í KAUPFÉLAOSVERZLUNINNI. Rjúpur °g prjónasaum kaupir hæsta verði verzlun Otto Tutinius. tegundir af Kexum fást í verzlun SN. JÓNSSONAR, sem kosta frá 0.18—1.50 pundið. Bœrinn DÆLDIR í Geldingsárlandi á Svalbarðsströnd með tilheyrandi réttindum er til sölu. Oddeyri 24. nóv. ’o8 8n. Jónsson. ÍSLAND hefir það veðráttufar að mönnum er hætt við innkulsi og sjúkdómum þeim, er af því leiða, svo sem lungna- pípubólga, gigtveiki, influenza, maga- kvef 0. fl. Bezta lyfið við öllum sjúkdómum er China Livs Eiiksir Waldemars Petersen í Fredrikshavn, Kjöbenhavn. Hefir það hlotið verðlaun á sýning- um heimsins og meðmæli læknanna. það lyf ætti því að vera á hverju íslenzku heimili. Brjóstljimnubólga. Eg var lengi sjúkur rf brjósthimnubólgu og leitaði mér lœknishjálpar, án þess að haldi kœmi. Reyndi eg þá China Livs El- iksir Waldemars Petersen og með því að neyta þessa ágœta heilsubitters um lengri tíma hefi eg fengið heilsuna aftur. Hans Henningseri, Skarerup pr. Vordingborg. Gigfveiki. Undirituð hejir til margra ára þjáðst mikið af giktveiki, en reyndi China Livs Eliksir Waldemars Petersen og eftir að hafa neytt hans daglega um langan tíma er e8 aftur orðin heil heilsu. Ungfrú Emmy Truelsep Köbenhavn. Taktu inn China Livs Eliksir, hvað sem að þér gengur, því hann hefir reynst óbrigðult meðal, þegar ekkert annað hefir getað hjálpað, af því hann hefir bætt meltinguna og hreins- að blóðið. Biðjið berum orðum um China Livs Eliksir Waldemars Peter- sen. Varið yður á eftirstælingum. Prentsmiðja Odds Björnssouar.

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.