Norðurland - 22.12.1908, Side 2
8o
NI.
á bátum við ísland, geti fengið skip-
rúm á skútunum, því sífelt sé hörg-
ull á mönnum á þessar skútur.
5»
SamspII
var haldið hér í Templarahúsinu á
sunnudagskvöldið — I horn 2 fiðlur,
piano og orgel — undir forustu herra
söngkennara Sigurgeirs Jónssonar. Þess
konar samspil er sjaldgæft og lítið
þekt hér í bænum, enda var skeintun
þessi svo illa sótt, að spilamenn fengu
ekki fyrir kostnaði.
Hin daufa aðsókn að þessari skemt-
un mun að nokkuru leyti hafa stafað
af því, að hún var slælega auglýst,
því mér er kunnugt að fjölda bæjar-
búa var ókunnugt um hana. — Eg tel
víst að æfðir söngmenn hafi getað
fundið ýmsa smágalla á samspilinu,
en eg veit, að margir at áheyrendum
skemtu sér mjög vel, og fanst yfir
höfuð vel leikið á hljóðfærin.
Vonandi fá bæjarbúar að njóta þess-
arar skemtunar síðar í vetur og að
hún verði þá betur sótt. — Um leið
og eg þakka hljóðfæraleikendunum fyrir
skemtunina, vona eg að þeir láti oft-
ar til sín heyra í 1 emplarasalnum.
Áheyrandi.
Noröurland.
kemur aftur út næstkomandi þriðju-
dag, en ekki á laugardaginn, vegna
jólahátíðarinnar.
77/
óshilvísra
kaupenda.
Með byrjun 9 árgangs verður hœtt
að senda Norðurland tilþeirra manna,
sem hafa fengið blaðið frá upphafi,
en aldrei borgað það. — En ekki
eru þeir fyrir það lausir við skuld
sina við blaðið. Peir hafa tekið við
blaðinu mótmœlalaust öll þessi ár og
margir þeirra hafa sótt það bein-
línis i afgreiðsluna. Enn verður þeim
gefinn frestur til þess að borga skuld
sina, til 14. mai nœstkomandi, en
eftir þann tíma verða þessar skuld-
ir afhentar máiafœrzlumanni til inn-
heimtu. Peir sem borga eitthvað af
skuld sinni, fá blaðið sent, þegar er
þeir hafa sent borgunina.
Kven-
kápur
Búar, Múffur,
bkinnhúfur og
alla
álnavöru
er langbezt að kaupa í
Vefnaðarvöruverzlun
Gudmanns Efterfl.
Ágætir
hoilenzkir
VIJSIDLAR.
Margar tegundir í
Edinborg.
Dauðinij yfirvinst
ekki, en menn verða langlífari og
lífið farsælla ef menn gæta þess að
halda meitingunni í lagi og blóðinu
hreinu og nýju; þetta geta menn gert
með því að neyta daglega hins frá-
bæra matarbitters »China Livs Eliks-
irs" frá Waldemar Petersen í Fred-
rikshavn Köbenhavn.
Hjálpræðisherinn
heldur opinbera
JÓLATRÉSSAMKOMU
2. jóladag hinn 26. desember kl. 8V2
e. h. í Goodtemplarahúsinu. Jafnframt
verða undirfyrirliðar vígðir.
Inngangur kostar 25 aura fyrir full-
orðna, en 15 aura fyrir börn.
Allir velkomnir.
Nýjar, laglegar
kommóður
fást hjá
Sig. 2jarnasyni.
Sjónaukar
af ýmsri gerð, frábærlega góðir,
verð 28-60 kr.
fást í
EDINBORG.
Ágæfasta jólagjöf!
Gleymið ekki
að senda kunningjum ykkar og vinum
Jólahoi t.
Þau fást fallegust í verzlun
Sn. Jónssonar.
*
4*
Bezf er að Kaupa
jðlagjáfir
í verzlun
Snorra Jónssonar.
NB. Sérstakt úrval af jólagjöfum
handa börnum.
Munið eftir
Landsíma-
sföðii)
verður opin á 1. jóladag og ný-
ársdag aðeins frá kl. 8—10 ár-
degis og 4—5 síðdegis.
Akureyri 22ln ’08.
Gísli Ólafsson.
Kaupendur Norður-
lands í Húnavatnssýslu,
sem skulda nú blaðinu, mega borga
skuld sína í verzlun Carl Höepfners
á Blönduósi. Jafnframt eru þeir beðn-
ir að senda blflÖíflU tilkynningu um
hve mikið þeir borga.
Hugheilar þakkir
til allra viðskiftavina, fyrir gamla
árið, með óskum um gleðilega jóla-
hátíð og gott nýár.
F. C. Möller.
Garnakvef.
Eg hefi i 3 dr þjáðst af þessum sjuk-
dómi og var svo illa farinn, að eg gat
ekki unnið léttustu verk. Eftir að eg nú
hefi brúkað China Livs Eliksir, er eg orð-
inn sem alheilbrigður og er það sannfœr-
ing mín að eg haldi við heilsunni með því
að halda úfram að taka þetta lyf inn.
J. E. Peterserj.
Vansæt í Noregi.
Krampi.
Undirritaður hefir í 20 ár þjáðst af
krampaflogum í öllum llkamanum, en eftir
að eg hefi tekið inn 12 flöskur af China
Livs Eliksir yðar er eg orðinn íaus við
þenna sjúkdóm og bið yður hér með að
senda mér 12 flöskur handa öðrum manni,
því mig langar til að allir sem sjúkir eru
reyni þetta lyf
Carl J. y\ndersotj-
Norra Ed, Kila í Svíaríki.
Varið yður á eftirstælingum.
Kaupið enga flösku nema á ein-
kunnarmiðanum standi Kínverji með
glas í hendinni og nafn verksmiðju-
eigandans Waldemars Petersen, Fred-
rikshavn Kjöbenhavn og á flösku-
stútnum merkið í grænu lakki.
að nýtt svínsflesK, nýtt dilkaket, nýtt nautaket medysterpyls-
ur, hakkað ket og fars fæst í
Kjötbúðinni.
JSiB OSTAR hvergi betri og ódýrari en par.
Stór-góð
TOMBÓLA
til arðs fyrir sjúkrasjóð Verkamannafjelagsins verður haldin miðvikudag-
inn 30. des. n. k. í Goodtemplarahúsinu.
Sjá nánar á götuauglýsingu:
TOMBÓL UNEFNDIN.
SrS W. Scháfer & Co. 0",T“‘e
OBBT Mekanisk Skotöjsfabrik og Lager en gros T9H8
af öllum venjulegum tegunduro af karlmanna-, kvenmanna- og barna-skó-
fatnaði, hlífarskóm og flókaskóm. Vel unnið. Hentug gerð. Lægst verð.
Beztu viðskifti fyrir útsölumenrj.
Prentsmíðja Odds Bjðrnssonar.
\