Norðurland

Tölublað

Norðurland - 15.05.1909, Blaðsíða 2

Norðurland - 15.05.1909, Blaðsíða 2
Nl. 76 ? um 50—500 kr., ef ekki liggur þyngri hegning við að lögum. Ef brot er ítrekað, varðar það sektum frá 100—1000 kr. Sama hegning liggur og við því, ef lyfsali lætur áfengi af hendi án skriflegrar læknisforskriftar eða oftar en einu sinni eftir sama læknisseðli. 16. gr. Brot gegn 7. gr. laga þess- ara varða sektum 50—1000 kr. og skal hið flutta áfengi ásamt ílátum verða eign landssjóðs. 17. gr. Nú verður læknir sannur að sök um að hafa látið af hendi læknisseðil um áfengi í þeim tilgangi að það verði notað öðruvísi en sem læknislyf, og skal hann þá í fyrsta sinn sekur um 100 — 1000 kr., og skal sektin tvöfaldast, sé brotið end- urtekið. Verði læknir sannur að sök um slíkt oftar en tvisvar, má svifta hann læknisleyfi nm stundarsakir, eða að öllu, ef miklar sakir eru. 18. gr. Allar sektir eftir lögum þessum renna í landssjóð. ig. gr. Með brot gegn lögum þess- um skal fara sem almenn lögreglumál. 20. gr. Sveitarstjórnum og lögreglu- stjórum er sérstaklega skylt að sjá um að lögum þessum sé hlýtt. 21. gr. Lög þessi skal prenta á íslenzku, dönsku, þýzku, ensku og frönsku og svo mörg eintök að nægi til að senda dönskum verzlunarfulltrú- um í öðrum löndum. 22. / gr. Með lögum þessum eru numin úr gildi þau ákvæði Iaga nr. 26, 11. nóv. 1899 og önnur laga- ákvæði, er koma í bága við lög þessi. 23. gr. Að svo miklu leyti sem ekki er öðru vísi ákveðið í lögum þessum, koma þau til framkvæmdar 1. jan. 1912. Kosningar í þinginu. / verðlaunanefnd gjafasjóðs fóns Sig- urðssonar voru kosnir í sameinuðu þingi með hlutfallskosningujón Þor- kelsson skjalavörður, Hannes Þor- steinsson ritstjóri og Björn M. Ólsen prófessor. Yfirskoðunarmaðurlandsreikninganna var af efri deild kosinn Skúli Thor- oddsen í stað Hermanns Jónassonar; neðri deild endurkaus Hannes Þor- steinsson. Qœzlustjóri Landsbankans var end- urkosinn í efri deild Kristján Jóns- son háyfirdómari. Gœzlustjóri söfnunarsjóðsins endur- kosinn af efri deild Júlíus Havsteen amtmaður. Húsbruni. Að kveldi 2. þ. m. brann baðstofan á Esjubergi á Kjalarnesi að köldum kolum. Lausamunum varð bjargað. Það var af sama bænum er bóndinn (Guðm. Kolbeinsson) druknaði í vetur á heimleið úr Reykjavík. Þióðvinafélaaið. Þess hefir áður verið getið í Nl. að þing- menn hefðu kosið Tryggva Gunnarsson for- seta félagsins. Ennfremur kusu þeir vara- forseta: Björn Kristjánsson, ritnefndarmenn: Einar Hjörleifsson, Jens Pálsson og dr. Jón Þorkelsson; endurskoðunarmenn: Einar Gunnarsson og Björn Ólafsson augnlækni. Kaupmaður Vilhelm Knudsen. sem dvalið hefir í Rvík um þingtímann er kominn heim; hann kom með >Fálk- anum>. Barnaskóla Akureyrar var sagt upp í gær. Qísli Pétursson. Iæknir á Húsavík, kom hingað til bæjar- ins með >Ceres«. Var á leið til Rvíkur. Þingmennlrnir. Sigurður Hjörleifsson Iæknir og Stefán Stefánsson skólameistari komu heim af þingi með >Fálkanum« í gær. Auk þeirra voru með skipinu þingmenn Húnvetninga og Skagfirðinga, sem allir fóru í land á Sauðarkrók og þingmennirnir úr Suður-þingeyjarsýslu, sem settir voru á Iand í Húsavík. — þingmennirnir kunna skipstjóranum kapt. Brockmeyer og öðrum foringjum skipsins beztu þakkir fyrir fijóta ferð og frábæra umönnun á skipinu. Skip. „Prospero" kom hingað að austan áfimtu- daginn. Fór í nótt áleiðis til Reykjavíkur. >Islands Falk« kom frá Reykjavík í gær- morgun; dvelur hér nokkra daga I gær komu einnig >Ceres« og >Eljan«, báðar að austan. >Ceres« fór í gærkveldi áleiðis til Rvíkur. >Eljan« fer á morgun. Sigurður Sigrurðsson. skólastjóri frá Hólum kom hingað til bæjarins fyrir síðustu helgi. % Veðrátta frá 9. til 15. maí 1909. Ak. Gr. Sf. Bl. ÍS. Rv. Þh. s. 6.0 10.2 3'° 2.9 74 12.6 4-7 M. 3-5 2.0 3-1 3-8 5-4 6.4 5-7 Þ. - i-5 - 4.8 - 1.2 - 0.2 0.2 2.0 4.6 M. 4.1 0.2 0.8 1.6 1.9 2.6 3-o F. 4.8 - 2.0 i.6 3.8 4.0 4.5 3-4 F. o.8 - 5-o - 1.2 3-5 43 4.6 0.3 L. - °-5 - 5-o - i.2 2.0 3-2 4.1 «•5 Steinhringur hefir tapast á götum bæjarins. Finnandi vinsamlegast beðinn að skila honum—gegn fundarlaunum — til afgreiðslu þessa blaðs. Heiðruðum viðskiftamönnum okkar nær og fjær tilkynnist hér með, að við höfum fastlega ákveðið að hætta allri lánsverzlun frá I. sept. þ. á. Síðasti gjalddagi er 31. okt. þ. á. Þær skuldir, sem þá eru ekki greiddar að fullu, eða tryggilega um samið, verða án frekari fyrirvara innheimtar á kostnað hlutaðeigenda. Verzlunin býður beztu kjör öllum, sem kaupa móti borgun um leið, og er vel byrg af flestum nauðsynlegum vörum. Vinsamlegast. St. Sigurðsson & E. Gunnarssoi). Íslandsglíma. Kappglíma ípróttafélagsins »Grettis" á Akureyri um íslands- beltið verður preytt á Akureyri fimtudaginn hinn 17. júní p. á. Skorað er á alla glímumenn og ípróttavini að sækja verðlauna- glímu pessa. CtDPT’TJDu er framúrskarandi hvað snertir mjúkar) og þægilegan smekk- Hefir hæfilega mikið af „extrakt“ fyrir meltinguna. Hefir fengið meðmæli frá mörg- um mikilsmetnum læknum. Bezta meðal við hósta, hces[ og ödnim kœlingarsjúkdómum. jk blikksmiðavinnusfofu J. Bjarna Péturssonar Talsími nr. 125, Reykjavík. P. O. Box 13 A. eru framleiddar ettirfylgjandi vörutegundir: Aðgerðarljósker, Ankerljósker, Blikkbrúsar, Blyskönnur, Garðkönnur, Hliðar- Ijósker, Jafnvægislampar, Kjöljárn, Kœlingarfötur, Loftrör, Lofttúður, Mjólk- urflutningafötur, Nátthús, Nátthúsljósker, Niðurfallsrör, Niðursuðudósir, Oliu- brúsar, Olíukönnur, Rennubönd, Rennujárn, Rjómatunnur, Salernafötur, Sökkul- járn, Talrör, Pakrennur, Pakgluggar, Pokulúðrar, Pvottapottar, Öskukassar, Öskutunnur, og hinar óviðjafnanlegu SÍLDARPÖNNUR. &r beygðar úr heilurn plötum. Styðjið innlendan iðnað! Sparíð peninga yðar og frrrið kaup við ofangreinda vinnustofu, se/rt uppfyllir nútímans kröfur, með vandaOn vinnu, fljótri afgreiðsla og lagu verði. DE FORENEDE BRYGGERIERS MALT- Danmark Expedltionen meddeler den i.Septbr. 190S: Med Fornojelse kan jeg give det Danmark Ex- peditionen medgivne „Ægte Kongens Bryghus Malt- extrakt" min bedste Anbefaling. 0llet holdtsig fortræffeligt under hele vort 2aarige Ophold i Polaregnene Med megen Artelie Alf. Trolle. grS W. Scháfer & Co, °',",;ra',e gjtiflT Mekanisk Skotöjsfabrik og Lager en gros af öllum venjulegum tegundum af karlmanna-, kvenmanna- og barna-skó- fatnaði, hlífarskóm og flókaskóm. Vel unnið. Hentug gerð. Lægst verð. Beztu viðskifti fyrir útsölumenr). HIÐ DANSKA STEINOLÍU HLUTAFÉLAQ hefir altaf ijægar byrgðir af ýmsum steinolíutegundum, til sölu á Akureyri, frá geymsluhúsi félagsins á Oddeyri. Afgreiðsla öll og upplýsingar fást hjá Carl F. Schiöth Lœkjargötu nr. 4, talsími nr. 14. — Aðalskrifstofa félagsins er í Hafnarstrœti ur. 17 í Reykjavík, talsími þar nr. 214. Steinolían verður héðan af öll seld eftir vikt við afhendingu. Tóm og ógölluð föt frá fé- laginn sjálfu, kaupir félagið til baka ef þeim er skiiað á geymsluhúsi félagsins fyrir 4 kr. hvert fat. Akureyri 26. aprll 1909. * Virðingarfylst Hið danska steinolíu hlutafélag D. D. P. A. « $ Prentsmiðja Odds Björnssonar,

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.