Norðurland

Ataaseq assigiiaat ilaat

Norðurland - 02.10.1909, Qupperneq 1

Norðurland - 02.10.1909, Qupperneq 1
NORÐURLAND. Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson, læknir. 43. blað. Ræktunarfélag píorðurlands og búnaðarfélögii). Nýmæli. Á síðasta aðalfundi Ræktunarfé- lagsins var stjórn félagsins falið að leitast fyrir um það hjá sýslunefnd- um og búnaðarfélögum á félags- svæðinu, hvort ekki þætti tiltækilegt að ráðnir væru búfróðir menn, einn í hverja sýslu hér norðanlands, er leiðbeindu mönnum í búnaði, hefðu umsjón með tilraunastöðvum þeim og meiriháttar jarðyrkjufyrirtækjum, sem þegar eru komin á fót eða stofn- að kynni að verða til, mældu jarða- bætur búnaðarfélaganna og hefðu eftirlit með, að þær væru vel og varanlega gerðar og segðu jafnframt fyrir um vandasamar jarðabætur og jarðyrkju, svo sem jarðrækt, blóm- rækt, trjáþlöntun o. fl. — Yrðu þeir með þessu móti farkennarar í bún- aði. Svo var til ætlast, að Ræktunar- félagið launaði þessum mönnutn, en sýslurnar og búnaðarfjelögin legðu fram samtals sem svaraði >/3 — V2 af launum þeirra, en losnuðú þá aftur við að borga fyrir umsjón með tilraunastöðvunum og mæling- ar á jarðabótum, jafnframt því sem þessi störf kæmust þá í höndurnar á þeim mönnum, er væru þessu vaxnir og gætu unnið almenningi ómetanlegt gagn. Eðlilegast væri að búnaðarfélögin greiddu eitthvert víst gjald á ári til Ræktunarfélagsins fyrir hvern fé- laga sinn, er svaraði ríflega kostn- aði þeim, er þau hafa af jarðabóta- mælingunum. í Búnaðarsamböndum Austur- og Vesturlands gjalda bún- aðarfélögin 1 kr. til sambandsins fyrir hvern félaga sittn og má það varla minna vera, þó ekki þurfi endilega að binda sig við það. Sýslurnar í Austfirðingafjórðungi leggja 2 — 300 kr. hver til Búnaðar- sambands Austurlands, og virtist þá ekki til of mikils ætlast að sýslurn- ar norðlenzku legðu fram 1—200 kr. árlega til þess að koma föstu skipu- lagi á búnaðar eftirlitsstarfsemi hér norðanlands, og sameina um leið í eina samstarfandi heild allan bún- aðarfélagsskap landsfjórðungsins. — Eitthvað verður að gera, ef vér eig- um ekki að dragast aftur úr. Stjórn Ræktunarfélagsins hefir nú orðið ásátt um að reyna fyrst um sinn að hafa þessa búnaðarráðunauta eða eftirlits- menn aðeins 2, kostnaðarins vegna. Yrði þá annar fyrir Þingeyjar- og Eyjafjarðarsýslu og hefði umsjón með tilraunastöð Þingeyinga, en hinn fyrir Skagafjarðar- og Húnavatnssýslu og hefði tilraunastöðvarnar þar vestur- frá til umsjónar. Mundu þeir báðir kosta um 14 — 1600 kr., ef þeir væru ráðnir einungis yfir sumarið, en auð- vitað meira ef þeir væru ársmenn, sein að mörgu leyti væri betra, því Akureyri, 2. Iðnskólinn. Þeir iðnaðarmenn eða iðn- nemar, konur setn karlar, er vilja verða aðnjótandi kenslu á iðn- skólanum í vetur, verða að hafa gefið sig fram til einhvers af undirrituðum stjórnendum skól- ans eigi síðar en 16. þessa mán- aðar. Akureyri 1. Október 1900. Frb. Steinsson. Oddur Björnsson. Sigtryggur Jónsson. þá gætu þeir kent við búnaðar- námsskeið að vetrinum, sem halda mætti í hverri sýslu, eitt eða fleiri á vetri. — Fé það er sýslurnar og búnaðarfélögin þyrftu að borga þess- um mönnum yrði hverfandi lítið í samanburði við það mikla gagn, sem þeir hlytu að gera. Er það ekkert efamál að ráðstöfun þessi hefði mikilvæg áhrif á búnaðarfram- farir hér norðanlands og er því vonandi að þessari lofsverðu viðleitni Ræktunarfélagsins verði vel tekið, bæði af búnaðarfélögunum og sýslu- nefndunum. Síldarmat. Þegar fiskimatið var fengið og reynsl- an hafði sýnt, að það var nytsamleg og heillavænleg ráðstöfun, var eðlilegt að farið væri líka að hugsa um mat á síldinni. Alvarleg hreyfing komst á málið hér á Akureyri í fyrra vetur og var samið frumvarp til laga um síldarmat, sem borið var upp á þing- inu. Frumvarpið fór aðallega fram á, að mönnum væri gert að skyldu að láta skoða og meta alla herpinóta- og reknetasíld, sem flutt væri ný að landi, og verkuð væri í landi eða við land til fitfiutnings. Sömuleiðis var gert ráð íyrir að mönnum væri gef- inn kostur á að fá metna og merkta saltaða síld, sem flutt væri til annara landa. Þetta var aðalefni frumvarpsins. Þegar það kom fyrir þingið, fanst þingmönnum málið vera of lítið und- irbúið. Þeim þótti viðsjárvert að sam- þykkja lög, sem færu jafnlangt og farið var fram á í frumvarpinu, þar sem alla reynslu í þessu vantaði ger- samlega. Og hvergi hjá nágrannaþjóð- unum voru til lög um skyldumat á síld, og var því ekki hægt að hafa hliðsjón af lögum annara í þessu efni. Það var því von að írumvarpið næði ekki fram að ganga að þessu sinni. Aftur á móti fanst þinginu eðlilegt að útgerðarmenn og síldareigendur gætu fengið síld sína skoðaða og metna, og sá um að svo yrði, með því að oktober 1909. veita fé til þess að launa tveim síld- armatsmönnum, sem máttu taka sér aðstoðarmenn, eftir því sem þurfa þætti við matið. Matsmönnum var gert að skyldu að meta alla þá síld, sem flutt væri frá landinu fullsöltuð, ef þess væri óskað og setja mats- merki á umbúðir á þeirri síld, sem þeir álitu góða vöru. Sömuleiðis var matsmönnum gert að skyldu, ef þess var óskað, að seg- ja álit sitt um, og meta þá síld, sem komið var með að landi óaðgerða og verkuð var í landi, eða við land. Með þessu fengu útgerðarmennirnir að miklu leyti það sem þeir báðu um, þó eigi væru afgreidd nein lög um það; þeim var með þessu gefinn kost- ur á að leggja grundvöllinn undir lögin með reynslunni. Ætla mætti að útgerðarmennirnir hefðu tekið þessum umbótum fegins hendi og notað matsmennina til muna. En hver hefir orðið raunin á? Mats- mennirnir hafa ekkert haft að gera, svo teljandi sé, við skoðun á síld. Lftils háttar við skoðun á nýrri síld, en svo að segja ekkert við skoðun á á saltaðri síld. Og ekki hefir ein ein- asta tunna, sem flutt hefir verið frá Eyjafirði, verið merkt með merki matsmannsins. Hvernig stendur á þessu? Er minni þörf á síldarmati nú en það var í fyrra ? Vill ekki einhver útgerðarmað- urinn svara því? Mér dettur í hug tvent, sem getur valdið því að matið hefir ekki verið notað þetta ár. Það fyrst, að yfirleitt hafi mönnum gengið betur að selja síldina í sumar en undanfarin ár, af því veiðin var minni en tvö ár áður og eftirspurnin þar af leiðandi meiri. Og annað það, að matið hafi þótt fyrirhafnarmikið og kostnaðarsamt, þegar til framkvæmdanna átti að koma. Hvað fyrra atriðinu viðvíkur, þá sé eg ekki að nein ástæða hafi ver- ið til að nota matið síður fyrir það þó salan hafi gengið vel. Það er meiri ástæða til að ætla að salan hefði gengið ennþá betur, ef varan hefði verið vandaðri en hún var. Svo er ekki treystandi á það að svo verði framvegis. Vel getur skeð að á næsta ári veiðist miklu meira en veiddist þetta árið. Og hefði síldin, sem afl- ast hefir í sumar, verið metin og merkt og við það unnið álit á mark- aðinum, þá eru meiri likur til, að eftirspurn hefði aukist, frá .því sem nú er. Ekki er heldur hægt að búast við því að þingið veiti fé á næstu fjárlögum til að launa með síldar- matsmenn, ef þeir verða ekki látnir gera meira að síldarmati, en verið hef- ir í sumar. Hvað þá heldur að það afgreiði nokkur lög um mat á síld. Hvað fyrirhöfn og kostnaði við matið viðvíkur, þá getur það í fljótu bragði sýnst ástæða til að draga úr framkvæmdunum á matinu. En ekki IX. ár. held eg þó að það ætti að verða mönnum þyrnir í augum. Eg vil taka það fram hér að eg álít, að ef 'matið á að koma að full- um notum, þurfi síldin að hafa legið svo lengi í saltinu að hún sé orðin fullsöltuð, áður en farið er að að- greina hana. Hún á að aðgreinast bæði eftir stærð og gæðum. Þetta er ekki hægt nema með því móti að tæma tunnurnar alveg fyrst og leggja síldina svo niður þær, þegar flokkun- inni er lokið. Sé þetta ekki gert er mér ekki ljóst hvernig sá, sem óskar eftir mati á saltaðri síld, getur gefið vottorð um gæði síldarinnar, sem sé sam- kvæmt fyrirmælum 5. gr. erindisbréfs stjórnarráðsins til matsmanna. Að minsta kosti á meðan verkunar fyrir- komulaginu er ekki breytt. Og það er þessi fyrirhöfn og kostnaður, sem eg ímynda mér að útgerðarmönnum hafi vaxið svo mjög í augum. En sé það athugað, að þetta er gert hvort sem er, á þeim stöðum sem síldin er flutt til og síldarmat er á eins og t. d. í Noregi*, þá dylst það engum að kaupandinn, sem lætur vinna þetta verk, að flokka síldina, gefur þeim mun minna fyrir hverja tunnu, sem verkinu nemur, og meira enn það; því óhætt mun mega gera ráð fyrir, að sá sem kaupir síld óaðgreinda, kaupir hana með það fyr- ir augum, að eitthvað muni ganga úr af skemdri síld, og gefa þeim mun minna fyrir síldina, sem hann hyggur að skemdu síldinni nemi. Ef tunnurnar væru tæmdar við að- greiningu síldarinnar, eins og að fram- an er getið, mundi komast töluvert meira af síld í tunnuna heidur en ella, sökum þess að þá væri jafnframt tek- ið burtu alt órunnið salt, sem væri í tunnunum, sem oft tekur upp töluvert rúm. Og varla getur matsmaður gefið vottorð um þyngd síldarinnar í tunn- unum, ef hann hefir ekki nokkurnveg- in vissu fyrir hve mikið órunnið salt er í þeim. Það virðist líka vera beinn skaði fyrir sendendur, ef tunnurnar innihalda töluvert af salti og pækli að óþörfu. Það má heldur ekki gleyma því, að aðgreining síldarinnar veiti töluverða atvinnu, sem að miklu leyti gæti ver- ið unnin hér, eftir að veiðunum er lok- ið og þegar fólk hefir lítið til að gera. Og tæpast er það vanvirðulaust, að útlendingar seu látnir vinna við ís- lenzkar afurðir, það sem landsmenn geta gert sjálfir, þó fjöldi manna hér á landi þurfi að ganga með hendur í vösum vegna atvinnuleysis. Ef matið yrði framkvæmt á þann * Veturinn 1908 í janúarmánuði sá eg ís- Ienzka síld aðgreinda í Haugasundi í Noregi á þann hátt, að helt var úr tunnun- um og síldinni raðað í þær aftur þegar því var lokið. Mér hefir verið sagt að þetta sé algengt í Svíþjóð og á Þýzka- landi, en í Danmörku sé það ekki gert nema síldin sé sérstaklega slæm vara, og illa gangi með söluna,

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.