Norðurland - 12.03.1910, Side 4
40
Nl.
Skilorði maðurinn, sem fregnin er höfð
eftir, hefir því sagt ósatt; í hvaða skyni eða
af hvaða ástæðu hann hefir gert það - um
um það eigið þið saman.
En af því að fregnin er ósönn, verður
ályktunin, sem þér, á yðar vísu, byggið á
henni, í niðurlagi greinarinnar, markleysa.
t>ó þessu sé nú þannig varið, að við get-
um ekki orðið yður sammála um fregnina,
af því að við vitum að hún er ósönn, von-
um við að þér getið orðið okkur sammála
um eitthvað af eftirfylgjandi atriðum, frá
almennu sjónarmiði t. d. það, hvað þeir
menn séu kallaðir, eða réttara, hvernig þeim
mönnum sé lýst, sem breiða út, bæði munn-
lega og á prenti, ósannar fregnir.
Sumir segja, að þeir fari með þvætting,
nokkrir að þeir séu málugir, og til eru
menn, sem segja að þeir séu kjöptugir; —
enn aðrir halda því fram, að slíkur fregn-
burður sé eitt af óviturleik heimskra inanna,
sem góðum mönnum beri niður að þagga.
Hvílíkir skyldu ennfremur þeir menn
vera, sem leggja mesta stund á að útbreiða
ósannar sögur og fagna yfir þeim.
Sennilega óskilorðir menn — eða jafnvel
lýgnir. Hvað elskar sér líkt.
í hvaða skyni búa menn til slíkar sögur
og breiða þær út?
Það er ýmislegt, sem fyrir mönnum get-
ur vakað með því — meira að segja hegn-
ingarlögin gera ráð fyrir sumu af því, eins
og þér vitið.
Hafi yður og okkur nú komið saman um
þetta -við vonum að svo sé-þá gerum við
okkur von um, að þér séuð okkur samdóma
um það, að það sé viðeigandi og fari vel
á því, að þér framvegis látið okkur í friði,
meðan við erum saklausir, og séuð ekki að
breiða út um okkur ósannar sögur, meðan
við ekki áreitum yður persónulega — þó við
séum svo gæfusamir að vera andstæðingar
yðar í hugsunarhætti og ýmsum landsmál-
um; því þó þér aldrei nema kunnið að
gera þetta í góðu skyni, og skiljið það alt
á yðar visu, þá þykir bæði okkur og okkar
þetta óþarft og óviðfeldið, og jafnvel skiL-
oröir menn geta misskilið það og rangfært.
Ef þér, móti von okkar, ekki skilduð vilja
birta greinina í ncesta blaði yðar, biðjum við
ritstjóra „Norðra" að birta hana hið fyrsta,
svo að yður verði það ljóst, að við viljum
reyna að launa það, sem að okkur er rétt
— í líkum mæli, og vonum að þér takið
viljann fyrir verkið.
Jónmundur Halldórsson. Páll Árnason.
*
* *
Þessi prúðmannlega og prestlega
grein barst Nl. fyrir nokkru, með
hendi síra Jónmundar á Barði og er
því víst við hann að eiga um hana.
Honum hefir komið það illa, prest-
inum, að Norðurland sagði frá því,
sem þó hefir verið altalað í Skaga-
fjarðarsýslu, eftir Sauðárkróksfundinn,
að 4 af fulltrúum meirihlutans hefðu
greitt atkvæði með aukaþingi, þó meiri-
hluti kjósenda hreppanna hefði verið
á móti því. Nl. sagði frá þessu 27.
jan. og var sú fregn komin utan af
Siglufirði og fullyrt að sönn væri. En
19. jan. var Nl. skrifað innan úr Skagn-
firði. >Aþreifanlegast hneyksli munu
þeir hafa vakið fulltrúarnir úr Staðar-
hreppi og Haganeshreppi. Þeir greiddu
atkvæði með aukaþingi, en sveitungar
þeirra hérumbil eindregið andstæðir
aukaþingi.* Norðurland hefir sagt frá
þessum fregnum, sem skylt var og
víst enginn borið á móti þeim opin-
berlega, svo kunnugt sé.
Og presturinn á Barði ber heldur
ekki á móti því, að meirihluti hrepps-
búa sinna hafi verið á móti aukaþingi,
og það er þó aðalatriði þessa máls,
gefur yfir höfuð engar upplýsingar,
sem nokkurs eru verðar, hvorki um
tölu kjósenda né þá atkvæðatölu, er
hann var kosinn með, né heldur hitt
hvort kjósendur hans hafi ætlast til
að hann greiddi atkvæði með aukaþingi,
þó engar nýjar upplýsingar lægju fyr-
ir fundinum. Hann verður bara málóða,
og mun þvf bergmálið af röddu hans
verða heldur lítið út um landið, lík-
lega ekki meira en vant er að vera,
er talað er niðri í poka.
Annars verður það skiljanlegra af
grein prestsins, en af mörgum blaða-
greinum að söfnuðirnir hneigist sum-
staðar að fríkirkjuhugmyndinni, af þvf
þeir geti hugsað sér prúðmannlegri
og andríkari leiðtoga en þá, sem þeir
eiga við að búa.
V'
%
Kartöplur,
íslenzkar, fást keyptar hjá
Friðbirni Steinssyni.
Spegilgler og glerskerar
fást nú hjá
Friðbirni^Steinssyni.
Af hinum mikilsmetnu neyslufönguin með maltefnum, sem
DE FORENEDE BRYGGERIER
framleiða, mælum vér með:
Særlig at anbefaleReconvalescenter ogAndre,som trænger
til letfordejeligNæring. Det er tilligeetudmærketMid-
del modHoste,Hæshed og andre lette Hals-og Brystonder.
er framúrskar-
andi hvað snertir
mjúkan ogþœgi-
legan smekk.
Hefir hœfilega
mikið af,extrakt‘
fyrir meltinguna.
Hefir fengið
meðmœli frá
mörgum mikils-
metnum lcekn-
um.
Bezta meðal við hósta, hœsi og öðrum kœlingarsjúkdómum.
Birgðir hjd: J. V Havsteen.
Strandgötu 35, Oddeyri.
Sfærsfa uppboð
á sveitabúi,
sem haldið hefir verið um langan aldur hér á Norðurlandi verður haldið
í vor á
mer JVIöðruvöllum í Hörgárdal "»a
og þar selt hæstbjóðanda:
3-400 fjár, flest ær — óvenjulega vamt fé.
20-30 kýr ágœtar mjólkurkýr.
10-20 hross duglegir vagn- og plóghesiar.
Allskonar jarðyrkjutœki og búshlutir, mikið af innanstokks-
munum, sœngurföt, stofugögfn, borðbúnaður, föt o. fl.
mr Langur gjaldfrestur. im
Akureyri 9. marz 1910.
Stefán Stefánsson.
Beizlisstangirnar
sem allir vilja eiga, eru aftur komnar í
verzlun Sig. Sigurðssonar.
/Mlskonar mafvara,
Kaffi, Sykur, Tóbak o. fl. er nýkomið í
verzlup Sig. Sigurðssonar.
Hafís
varð því ekki til fyristöðu, sem betur fór, að s|s Ingolf kæmist
með vörurnar til
Kaupfélagsverzlunar Eyfirðinga.
Þangað er því gott að leita til vörukaupa fyrir joá, sem meðal
annars vanhagar um:
Rúg, kaffi,
rúgmjöl, export,
hveiti, melís,
hrisgrjón, brauð,
bankabygg, rúsínur,
baunir, sagógrjón,
hœnsabygg, salt.
Ekki er heldur úr vegi að minna á allar tóbaksfegundirnar,
og járij í skaflaskeifur, sem margir parfnast, pegar frystir eftir
hlákuna sem sagt er að komi fyrir páskana.
PrenUmiðja OUds Ujörnjsomu.