Norðurland

Útgáva

Norðurland - 25.03.1911, Síða 3

Norðurland - 25.03.1911, Síða 3
Samkvœmt beiðni hreppsnefndarinn- ar í Öxnadalshreppi veitii sýslunefndin samþykki til þess að Þverárrétt sé gerð að skilarétt, og að Öxnadals- hreppur sé gerður að sérstakri fjall- skiladeild. Sveitaverzlunarleyfi í Hrísey var veitt Carl Höepfner í Khöfn og Jóhannesi Davíðssyni á Syðstabæ í Hrísey. Kyennaskóli í Eyjafirði Samkvæmt tillögu stjórnarnefndar kvennaskóla Eyjafjarðarsýslu samþykti sýslunefndin að senda Alþingi áskorun um, aðkvenna- skóli fyrir norðurland verði settur á stofn við Eyjafjörð og býðst sýslunefnd- in til að leggja fram 6 þús. krónur til byggingar skólahúss svo og til þess, ef þörl gerist, að veita skólanum nokk- urn árlegan styrk. Sýslunefndin samþykti að veii a þess- um mönnum meðmæli sín til verðlauna úr Ræktunarsjóði: Hallgrími Kristinssyni í Reykhúsum (hefir unnið 959 dagsverk). Vilhjálmi Einarssyni á Bakka (607 dagsverk). Jóni Jónssyni Hálsi (427 dagsverk). JóhanniJóhannssyniSogni(389dagsv.) Sigurði Guðmundssyni Helgalelli (337 dagsv.). Júlfusi Gunnlaugssyni Hvassafelli (331 dagsv.). Sýslunefndjrmenn Hvanneyrar-, Þór- oddstaða- og Svarfaðardalshreppa lögðu það til í bréfi 6. Marz þ. á. að sýslu- nefndin hlutaðist til um„ að í stað aukapósta frá Akureyri til Siglufjarðar og Grenivfkur komi 8—10 póstferðir á sjó, á tímabilinu frá I. Október til Aprfl-mánaðarloka, með viðkomustöð- um beggja megin fjarðarins. Sýslu- nefndin samþykti að afgreiða bréf þetta til póststjórnarinnar, og telur þetta fyrirkomulag til bóta, ef póstflutning- ur fæst vátrygður í þessum ferðum. Húsmœðraskótanum á Akureyri var veittur IOO króna styrkur úr kvenná- skólasjóði sýslunnar, samkvæmt tillög- um stjórnarnefndar sjóðsins. í kvennaskólanefnd fyrir þetta ár voru þeir kosnir : Guðl. Guðmundsson bæjarfógeti. Kristján H. Benjamínsson Tjörnurn. Eggeit Davíðsson Krossanesi. / bókasafnsnefnd var kosinn Krist- ján Jónsson í Glæsibæ. /yfirkjörsljórn við alþingiskosning- ar, sem kynnu að koma fyrir á þessu ári, voru þessir menn kosnir: Guðm. Guðmundsson á Þúfnavöllum (úr sýslunefnd). Benedíkt Einarsson á Hálsi (af kjós- endaflokki), og til vara: Kristján H. Benjamínsson Tjörnum. Hallgr. Hallgrímsson Rifkelsstöðum. Sýslunefndin mælti með því, að þessir menn fengi verðlaun úr »Búnaðarsjóði Eyjafjarðarsýslu* : Kr. H. Benjamínsson Tjörnum (hefir ' unnið 455 dagsv.). Jón Jónsson Möðrufelli (432 dagsv.), Jóhann Jóhannsson Sogni(38gdagsv.). Jón Jónsson Hálsi (310 dagsv.). Jatnframt lagði sýslunefndin það til, að við úthlutun verðlauna úr »Bún- aðarsjóði* verði framvegis tekið sér- stakt tillit til þejrra umsækjenda, er byggja góð áburðarhús og sýna að öðru leyti eftirbreytniverða meðferð á áburði. Bœjarstjórn A kureyrarkaupstaðar m æ 11 i á sýslufundinum, er kiæðaverksmiðju- Si málið var til umræðu. Voru samþykt- ar reglur um þáttöku bæjarstjórnar og sýslunefndar í stjórn klæðaverk- smiðjunnar á Akureyri. í fulltrúanefnd verksmiðjufél. voru kosnir þessir menn: Ur sýslunefnd: Kr. H. Benjamínsson, Tjörnum. Eggert Davíðsson, Krossanesi. Ur bæjarstjórninni: Kristján Sigurðsson. Fjárkláðamálið. Samþykt svohljóð- andi ályktun: »Eftir skýrslunum að dæma virðist ekki vera um fjárkláða að ræða hér í sýslunni um þessar mundir, en með því er ekki fullvissa fyrir að hann geti ekki komið upp seinna í vetur eða vor. Eins og sakir standa nú, sjáum vér fátt hægt að gera annað í þessu efni en þegar hefir verið gert, aðeins að brýna enn á ný fyrir eftirlitsmönnum að hvetja fjáreigendur til þess að veita þvf nákvæma athygli hvort nokkuð grunsamt komi fyrir, að því er fjár- kláða snertir. Ennfremur álítum vér heppilegt, að á næstu manntalsþing- um brýni sýslumaður fyrir fjáreigend- um að athuga sauðté sitt nákvæmlega við rúning í vor, og þá að sjálfsögðu tilkynna hlutaðeigai.di eftirlitsmanni tafarlaust, ef nokkuð grunsamt kemur fyrir.c íþróttafélagið „Qrettir“ * á Akureyri er enn ungt að aldri, en það hefir þegar unnið eigi alllítið, og er það því félagi mikið að þakka, hversu ís- lenzka glíman er nú kappsamlega iðk- uð víðsvegar um land. Nú hefir félagið stofnað til glímu- skóla fyrir norðlendingafjórðung hér á Akureyri, svo sem sjá má á auglýs- ingu í síðasta blaði »Norðurlands«, og er kenslan ókeypis fyrir hvern, sem vill nota hana. Það er enginn efi um það, að slíkir glímuskólar gætu orðið til þess að efla íþróttina og fegra hana, og væri æskilegt, að beztu glfmumannaefnin úr hverri sýslu í fjórðungnum notuðu þetta tækifæri til þess að fá góða tilsögn að iðka glíinuna eftir fegurðarreglum, kynnast glímuaðferðum hver annars og reyna sig við glímumenn sér jafnsnjalla eða snjallari. „Ungmennafélag Akureyrar“ gekst fyrir kappglfmu hér á Akureyri um síðustu helgi, og gaf fern verðlaun þeim sem fremstir voru. Keppendur vofu 16, og var þeim skift í tvo flokka eftir þyngd. Voru 9 í I. fl., en 7 í II. fl. Þessir hlutu verðlaun úr I. fl.: Ari Guðmundsson (skólapiltur) frá Þúfnavöllum I. verðl. Sigurður Kristjánsson verzlunarm. 2. verðl., en úr II. fl.: Jón Sveinsson (skólapiltur) 1. verðl. Stefán Arnason 2. — Verðlaunin voru silfurpeningar með áletrun. Keppendur glímdu flestir dável. Sér- staklega glímdi Björgvin Jóhannsson verzlunarm. (I. fl.) mjög vel, þótt hann fengi eigi nógu marga vinninga til þess að geta hlotið verðlaun. Er hann mjög álitlegur glímumaður. \ Jarðarför Kristveigar sál. Jónsdóttur, konu Magnúsar Einarssonar orgánista fór fram í dag. Fánar blöktu í hálfa stöng um allan bæinn. Hafísinn. »Vesta« kom í dag til Reykjavíkur, og varð hvergi vör við ís á leið sinni nema við Skagann, eins og getið er um í síðasta »Norðurl.« Isinn er nú horfinn með öllu. Nýr franskur raeðismaöur (konsúll), Blanche að nafni, er nú skipaður í Reykjavík. Brillouin, sem áður hefir gegnt því starfi, verður skipaður ræðismaður i Mexiko, en dvelur þó hér á iandi fyrst um sinn. (Símfrétt). Prestar eisra að læra búfræði. I fjárlagafrumvarpi Noregs-stjórnar 1910 er gert ráð fyrir 500 króna fjár- veitingu til »Vetrar-búnaðarskólans« í Kristjaníu til þess að halda búnaðar- námsskeið fyrir prestaefni. Þeir líta eigi svo á, norðmenn, að það sé ótilhlýðilegt né skaðlegt, að prestarnir stundi búskapinn líka. Kirkjan. ' Við hádegismessuna á morgun stígur síra Jónmundur Halldórsson á Barði í stólinn. \ Leiðrétt mishermi. í »Norðurl.« 5. nóv. 1910 er smá- grein ein með fyrirsögn: »Unga kyn- slóðin.« I greininni er sagt frá, að hér í hreppi sé lestrarfélag, er bændur og aðrir hreppsbúar hafi haldið uppi, en vilji þrífast miðlungi vel. Einhverjir unglingar hafi viljað ganga í lestrar- félagið, en eigi fengið. Börnin hafi því myndað Iestrarfélag sjálf, og er sagt að flestir unglingar hafi gengið í það o. s. frv. Svona segir blaðið, að sér sé skýrt frá. Hver, sem hefir skýrt »NI.« svona frá þessu máli, hefir skýrt því rangt frá, og í því trausti, að »N1.« vilji heldur bjóða lesendum sínum rétta en ranga skýrslu um hvaða mál sem er, sendi eg því hér með rétta skýrslu um það mál, sem eg þykist vita að hér sé átt við, og óska eg að blaðið flytji hana sem leiðréttingu. Svo er háttað máli, að hér í sveit er íélag, sem nefnt er málfundafélag Svínavatnshrepps, og í sambandi við það er lestrarfélag, og eru allir lestr- arfélagsmenn einnig málfundafélags- meðlimir. í sveitinni hefir og verið dálítil ungmennafélagsdeild, en yngri að aldri en málfundafélagið; hefir nokkrum sinnum komið til tals, að sameina félög þessi í eitt félag til að sameina kraftana, og bauð málfunda- félagið ungmennafélaginu fyrst sam- einingu og þá eins hlutdeild í lestrar- félaginu ; þetta var eigi þegið, en síð- ar köm það tilboð frá ungmennafélag- inu, að því aðeins gætu félagar þess gengið í félagsskap með málfunda- félagsmönnum, að málf.félagið væri leyst upp og stofnað nýtt félag, er héti ungmennafélag. I ungmennafélag- inu mattu svo ekki vera menn fyrir ofan vissan aldur; í málfundafélaginu voru aftur bæði ungir og gamlir. Að leysa upp málfundafél. og sámeinast ungmennafél. var því sama sem að reka hina eldri úr öllum félagsskap með hinum ungu. Þetta þótti óhæfa Nl. margra hluta vegna; af þessu varð þvf eigi. Ennfremur bauð málfunda- félagið fram, að -ungmennafélagsmenn, svo margir eða fáir sem vildu, hvort heldur karl eða kona, barn eða full- orðinn, gengju í málfundafél., og þá um leið í lestrarfélag þess, en að ung- mennafélagið, sem ekkert lestrarfélag hafði, og aðallega er skemtifélag með- a! fáeinna unglinga, héldi eigi að síð- ur áfram að vera til og starfa sem slíkt. Ekkert af þessu hefir verið þeg- ið. Með öðrum orðum: hverjum ein- asta manni í sveitinni, karli sem konu, ungum sem gömlum, börnum sem full- orðnum, hefir verið og er heimilt að ganga í málfunda- og lestrarfélagsskap sveitarinnar. Þetta er sannleikurinn í þessu máli; það er því með öllu ósatt, að nokkr- um unglingi eða barni hafi verið bægt frá nokkrum lestrarfélagsskap hér; hafi nokkur börn stofnað hér lestrar- félag, er það af alt öðrum ástæðum en þeim, að þeim hafi verið meinað að vera í þeim lestrarfélagsskap, er einn var til í sveitinni; þau hafa alt af verið og eru enn velkomin, bless- uð börnin. Að lestrarfélag málfunda- félagsins hafi þrifist miðlungi vel, er einnig ósatt; að eins er það satt, að kraítar þess eru litlir vegna fámennis, en fengjust börnin til að ganga í félag- ið, hvort sem þau sæktu málfundi eða ekki — um það eru þau sjálfráð — myndi haft tiliit til þeirra að því er bókaval snertir. Af því að þetta eitt er satt og rétt um þetta efni, væri rétt að þér, herra ritstjóri, settuð ofan í við sögumann yðar hinn fyrri, ef hann kynni að vera yður nálægur, fyrir missögli hans. Auðkúlu 16/i 1911. St. M. Jónsson. * * * ,»Norðurl.« hefir eigi viljað neita höfundi þessarar greinar um rúm í blaðinu fyrir þessa »leiðréttingu«, þótt svo virðist, sem hún sé fremur rituð til þess að gera lftið úr »Ungmenna- félagi Svínavatnshrepps*, en að leið- rétta mishermi þess manns, sem sagði »Norðurl.« frá stofnun ungmennabóka- safnsins. Það er fjarri »N!.« að vilja halla á nokkurn ranglega. En á þess- ari grein verður eigi betur séð, en að ungmennafélögum hafi verið bægt frá að vera í bókasafnsfélaginu nema þeir gengi í má/fundafélagið. Þetta mál- fundafélag hefir því einveldi yfir bóka- safninu, og ekki er þess að vænta, að ungmennafélagar vildi þurfa að ganga í annað félag til þess að geta verið í bókafélaginu. Hafa þeir þá heldur kosið að stofna annað bókasafn. Hér er því naumast um mishermi að ræða hjá sögumanni »N1.«, eftir þess- ari frásögn. A. P. \ „Jörundur" gufubátur norðlendinga, hefur ferðir sínar á þessu ári I. Maf, héðan frá Akureyri til Siglufjarðar. 4. Maí fer hann fyrst til Húsavíkur, 9. Maí til Sauðárkróks. — Lengst vestur fer hann til Blönduóss (fyrst 20. Maí) og Lamb- húsvfkur á Vatnsnesi, en kemur á Skaga- strönd, Kálfshamarsvík og Selvík á Skaga. — Austur lengst fer báturinn til Seyðisfjarðar (fyrst 9. Júní), en kem- ur við á Borgarfirði, Vopnafirði, Bakka- firði, Skálum og Heiðahöfn á Langa- nesi, Þórshöfn, Raufarhöfn, Kópaskeri og Grímsey. Skipstjóri verður hinn sami og fyrra ár, Oddur Sigurðsson úr Hrísey. Munu allir telja það vel ráðið, því að hann hefir getið sér góðan orðstír,

x

Norðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.