Norðurland - 09.12.1911, Page 1
NORÐURLAND.
54. blað.
Thore-félagið.
Rógurinn og illmælin.
Hvað bæta þarf.
Svo er að heyra á forstjóra og
aðaleiganda í Thore-félaginu, í grein
sem hann hefir nýlega sent blöðun-
um, að honum þyki sér nóg boðið
héðan að heiman, um þessar mund-
ir, og að honum þyki ekki ástæða
til þess að leggja sig í líina með
að bæta samgöngurnar hér við land
í þakklætisskyni fyrir allar þær of-
só'cnir, er hann verður fyrir og fé-
lag það, er hann veitir forstöðu.
Varla getur þetta komið á óvart
skynbærum mönnum í þessu landi.
Engir sæmilegir menn eru svo gerð-
ir, að þeir láti bugast til þess, að
leggja enn meira að sér og enn
meira í hættu, er þakkirnar eru róg-
ur á róg ofan og flest er gert
mönnum til skapraunar og óvirð-
ingar.
Thore-félagið hefir unnið landinu
ómetanlegt gagn með samkepni sinni
við Sameinaða gufuskipafélagið, sett
niður fargjöld og farmgjöld svo stór-
fé nemur, og aukið samgöngur lands-
ins feiknamikið, og með því fram-
leiðsluna í landinu. Thore-félaginu
er það fyrst og fremst að þakka, hve
Sameinaða félagið er nú miklu betra
í viðskiftum við landsmenn, en það
var áður. Hefði Thore-félagið ekki
komið til sögunnar, mundi Samein-
aða félagið nú hafa einokun á ná-
lega öllum samgöngum til landsins
og frá landinu, og auk þess hring-
ferðum kringum landið.
íslenzka þjóðin hefir ekki reynst
fær um það enn, að ráða sjálf yfir
safngöngum sínum. Pað mál hefir
hún vanrækt, eins og svo mörg önn-
ur, sumpart af þekkingarleysi, sum-
part af getuleysi, sumpart af sinnu-
leysi. Vestu-útgerðin sæla varð hel-
ber ómynd, og þegar um það var
að ræða, að láta landið fara að ráða
yfir samgöngunum meira en áður,
þá reyndist svo, að bæði þjóð og
þing brast kjark til þess, að ráðast
í það stórræði.
Hvorki var það þingi eða stjórn
að þakka, að Thore-félagið gat hald-
ið uppi samkepninni við hið vold-
uga Sameinaða félag. Landsstjórnin
notaði það að vísu sem vopn á Sam-
einaða félagið, til þess að ná hjá því
betri samningum, en hitt kom henni
ekki til hugar, að reyna á nokkurn
hátt að efla félagið, eða styrkja til
samkepninnar.
Þannig var ástatt fram til þess
tíma, er Björn Jónsson gerði samn-
inginn við Thore-félagið
Upp frá því hefir félagið verið
ofsótt látlaust í blöðum heima-
stjórnarflokksins í þessu landi, af
kjaftaskúmum flokksins, og sömu
Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson, læknir
Akureyri, 9. desember 1911.
aðferðinni var beitt gegn því á síð-
asta þingi af heimastjórnarflokknum.
Svo Iangt var farið í því efni af
þinginu, að það kinokaði sér ekki
við að gera landinu beinan skaða
með ráðstöfunum sínum gegn Thore-
félaginu, aðallega í því skyni, að
sýna félaginu óvirðingu.
Með 10 ára samningnum hafði fé-
Iagið tekið að sér að flytja póst á
skipum þeim, er það hefir í förum
hingað til lands, fyrir 6000 króna
ársþóknun um 10 ár, hve mikið sem
sá póstur kynni að vaxa á þessum
árum. Að þetta var ívilnun af
hendi Thorefélagsins má bezt sjá af
því, að fyrverandi ráðherra, Hannes
Hafstein, gaf sjálfur þinginu skýrslu
um, að ekki mundi verða komist af
með svo lítið fé, vegna þess, hve
póstflutningur skipanna færi vaxandi.
En þegar Björn Jónsson, þrátt fyrir
þetta, gat fengið Thore-félagið til
þess að heita þessu, var öllu strax
snúið öfugt af heimastjórnarþinginu;
þá var þetta orðið með öllu óhaf-
andi; þá sýndu heimastjórnarmenn-
irnir það drengskaparbragð, að neita
um alt fjárframlag til póstflutnings
milli landa með Thoreskipunum.
Verði póstur eftir sem áður send-
ur með skipum Thore-félagsins, má
búast við því, að landið þurfi að
borga miklu meira fyrir flutninginn-
En til þess ætluðust heimastjórnar-
mennirnir ekki. Peir ætluðu sér það
með þessu, að kúga Thore-félagið
til þess að flytja póstinn fyrir alls
ekkert. En léti félagið ekki kúga sig.
átti að nota þetta, að ekki var hægt
að senda póst með skipum félagsins,
til þess að reyna að gera félagið
sem óvinsælast í augum landsmanna.
Slíku drengskaparbragði beitti
heimastjórnarflokkurinn á þinginu
1911 gegn því félagi, er unnið hef-
ir landinu gagn svo hundruðum
þúsunda króna skiftir.
Af sama drengskapartoga sem
þetta, er hann sprottinn rógurinn sá,
sem haldið er uppi gegn félaginu,
bæði leynt og Ijóst í þessu landi.
Með því er ekki sagt, að ekkert
megi að félaginu finna, og tekið
skal það fram, að línur þessar eru
ekki ritaðar af neinum kala til Sam-
einaða félagsins.
Nl. hefir drepið á það áður, að
það hefir æði oft komið fyrir, að
brytar félagsskipanna hafa gert sig
seka í óleyfilegri vínsölu. Ekki er
þó svo að skilja, að þar sé Thore-
félagið eitt í sökinni. Hinum félög-
unum hefir orðið sama skissan, og
nokkuð hefir verið gert af hálfu fé-
lagsstjórnarinnar til þess að afstýra
þeim lögbrotum, mönnum vikið frá
starfinu, er reynst hafa brotlegir við
lögin. En samt sem áður hefir fé-
lagið ekki nóg að gert í þessu efni.
Hver sá þjónustumaður skipsins, er
verður sannur að sök um brot á á-
fengislöggjöfinni, ætti að vera rækur
jafnharðan úr þjónustu félagsins.
Landsstjórninni ætti að vera innan-
handar, að fá félagið til þess að
setja slík ákvæði inn í samningana
við starfsmenn sína, og sömu ákvæði
ættu að vera í samningum allra
þeirra félaga, er halda uppi skipa-
ferðum hingað til landsins. Félög-
unum verður að skiljast það, að það
er ósæmileg móðgun við það land,
er þau vilja eiga vingott við til við-
skifta, að starfsmenn félaganna reyn-
ist sannir að sök um tilraunir til
þess að brjóta lög landsins, í hags-
munaskyni fyrir sjálfa sig. Þótt em-
bættis- eða Iögreglulýður þessa lands
kunni víða að vera skipaður þeim
rolum, að hægt sé að brjóta lands-
lögin, svo að kalla rétt fyrir augun-
um á þeim, ættu félögin að hafa
þann metnað, að vilja ekki vamm
sitt vita í því efni.
Þessi yfirsjón Thore-félagsins og
annara félaga er þó ekki gerð að
umtalsefni í blöðum heimastjórnar-
manna. Til þess liggja þau drög,
að það eru langoftast heimastjórnar-
menn, sem riðnir eru við lögbrotin.
Flest annað er fremur notað. Meðal
annars er því haldið á Iofti, að Thore-
félaginu liggi við gjaldþroti. Á því
var byrjað strax, þegar B. J. hafði
gert samninginn. Ef til vill gera sum-
ir þetta af heimsku eða hugsunar-
leysi, mæla það sem þeir hafa heyrt
aðra mæla, sér lakari menn, en tor-
velt virðist þó stundum að komast
hjá því að álykta, að þessu sé hald-
ið á lofti í því skyni einu, að gera
félaginu tjón. Slíkt ódretigskapar-
fleipur um félag, er vinnur slíkt nyt-
semdarstarf, sem Thore-félagið gerir
hér á landi, ættu allir vandaðir menn
að varast.
Þá er enn eftir að minnast á það
ámælið, að félagið sé svo óáreiðan-
legt í þeim skipaferðum, er það
heldur uppi, að ekki sé við það
unandi. Mikið af því ámæli er ekki
annað en illkvitni og rógur. Haldi
skip félagsins ekki áætlun, er það
strax gert að blaðamáli, og blaðrað
um það fram og aftur af öllum verstu
kjaftatólum heimastjórnarliðsins, en
jafnáreiðanlega um það þagað, þó
eitthvað líkt komi fyrir um skip
Sameinaða félagsins. Ekki verður
félagið þó undanþegið öllu ámæli
um þetta efni, en sama má segja
um nær því öll þau félög, er hald-
ið hafa uppi siglingum hingað til
lands. En hér er eins sérstaklega að
gæta, að því er snertir Thorefélagið.
Félagið hefir með samningi skuld-
bundið sig til þess, að halda uppi
tuttugu ferðum hingað til lands, með
eftirliti landsstjórnarinnar,, en ferð-
irnar hafa verið helmingi fleiri. Þótt
því eitthvað hafi verið áfátt um
nokkrar ferðir, hefir þó félagið full-
komlega haldið samninga síria við
landsstjórnina, og meira að segja
gert um fram skyldu sína. Að því
er þær ferðir snertir, sem farnar eru
um skyldu fram, þá getur lands-
XI. ár.
stjórnin ekki haft afskifti af þeim -
Félagið verður að eiga það við sjálft
sig, hve vel það heldur uppi þess-
um ferðum, og með hve mikilli reglu.
Náttúrlega má það búast við því,
að úr því þessar ferðir eru settar á
áætlun, þá muni landslýður því bet-
ur við una, sem sú' ferðaáætlun er
betur haldin, en margt mun mega
telja til afsökunar, þegar út af er
brugðið, eins fyrir Thore-félaginu
sem öðrum félögum. Það sem gert
er einum til hagræðis, umfram það
sem áætlanir tii taka, verður öðrum
til óhagræðis, og er oft ekki metið
með fullri sanngirni.
En úr því landsstjórnin hefir rétt
til þess að hafa eftirlit með tuttugu
ferðum félagsins, er það líka skylda
hennar að heimta, að þessar ferðir
séu sérstaklega tilteknar og hafa
eftirlit með því, að þær séu farnar
svo, að allir megi vel við una. Fé-
lagið hefir lagst undir höfuð að
auglýsa, hverjar þessar ferðir séu,
og landsstjórnin hefir vanrækt að
ganga eftir því, að það væri gert,
og að setja þessar ferðir sérstaklega
í hæfilegt samband við ferðir Sam-
einaða félagsins. Þetta mál eigum
við við landsstjórnina en ekki Thore-
félagið. Þess ættu rógberar þess fé-
lags hér á landi að gæta betur en
þeir hafa gert hingað til.
S
Lord Nelson,
botnvörpungurinn, sem sagt var frá
i síðasta blaði að sokkið hefði við
Skotland fyrir skömmu vegna árek-
sturs, var vátrygður fyrir 120 þús-
undir. Þó er tjón eigendanna all-
mikið, og ætla þeir að höfða skaða-
bótamál gegn skipinu, sem árek-
strinum olli.
%
Ný halastiarna
var fundin í sumar frá stjörnuturn-
inum í Genf í Sviss af Brook nokkr-
um stjörnufræðingi, og er hún við
hann kend og kölluð Brooks-hala-
stjarnan.
í októbermánuði sást halastjarna
bæði á Seyðisfirði og í Reykjavík, og
ætla menn að það sé þessi Brooks-
halastjarna. Stjarnan hlýtur að hafa
sést miklu víðar, þó að ekki hafi bor-
ist sögur um það, því að hún er skær
og sést halinn greinilega. Hún sást á
austurhimninum snemma á morgnana,
Eftir gömlu þjóðtrúnni er það fyrir-
boði mikilla tíðinda og illra, ef hala-
stjarna sést, og mun mörgum ekki
þykja undarlegt, þótt halastjarna sæ-
ist fyrir síðustu þingkosningar!
Húsaleigusamningar,
Hjúasamningar,
Byggingarbréf jarða
fást í prentsmiðju
Odds Björnssonar á Akureyri.